Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.1987, Page 8
8
ÞRIÐJUDAGUR 22. DESEMBER 1987.
Utlönd
Sextán fórust í flugslysi
Sextán manns fórast í Frakklandi í gær þegar htil farþegaþota hrapaði
í skóglendi skammt frá Bordeaux.
Slysiö átti sér stað þegar þotan, sem var af gerðinni Embraer Brasilia,
var í aðflugi aö Merignac flugvelli við Bordeaux. Þoka var við flugvöllinn
og hrapaði þotan nokkur hundrað metra frá flugbrautarendanum.
Þotan tók þrjátíu farþega en í þessari ferð vora þrettán farþegar um
borð í henni, auk tveggja flugmamia og einnar flugfreyju. Allir sem um
borð vora fórast.
Þotan var á leið frá Amsterdam til Brassel og Bordeaux. Meðal farþega
voru nokkur belgísk böm sem vora á leið í jólaleyfl.
Að sögn talsmanns flugfélagsins Air France, sem þotan var í leiguflugi
fyrir, rofnaði samband við þotuna fáeinum minútum áöur en hún átti
að lenda. Af ummerkjum á siysstað má merkja aö þotan hafi hugsanlega
flogiö of lágt og lent í tijátoppum..
EKa kontra tll Honduras
Daniel Ortega, forseti Nicaragua,
sagði í gær aö stjómarhermenn
væru nú að eltast við skæruliða
úr kontrahreyfingunni sem væra á
flótta í átt til landamæranna að
Honduras eftir aö hafa gert árásir
á námabæi í norðvestanverðu Nic-
aragua.
Ortega skýrði þinginu í Nic-
aragua frá því í gær að stjómar-
herinn heföi þegar hrakiö
skæruliðana á flótta frá tveim af
þrem bæjum, sem þeir tóku síöustu
daga, en bardagar stæðu enn í
þriðja bænum.
Kommúnistankin nueta
Suöur-Kóreumenn eru nú vongóðir um að flest eða öll kommúnistaríki
heims muni mæta til leiks á ólympíuleikunum f Seoul á næsta ári. Ung-
verjar og Austur-Þjóðverjar hafa þegar þegið boð Suöur-Kóreumanna um
þátttöku í leikunum og búist er við að önnur kommúnistaríki, þeirra á
meðal Sovétríkin, muni sömuleiðis svara boöinu játandi.
íþróttamálaráöherra Suður-Kóreu sagði í gær að nokkur Austur-Evr-
ópurfki heföu þegar sagst ætla aö mæta til leikanna þótt opinber yfirlýsing
hafl ekki enn verið gefin út þar aö lútandi.
Búist er við aö eitt hundrað sextíu og sjö ríki taki þátt 1 leikunura í
Seoul en til þessa hafa liðlega hundrað staðfest þátttöku sfna á einn veg
eða annan.
Stöðvuðu skip með blóðm
Óskalistinn
Jafnvel stjómmálamenn eiga sér
óskaiista og gott getur verið aö ná
eyra jólasveinsins í von um að
hann komi til aöstoðar. Svo virðist
sera Bruce Babbitt, fyrrum fylkis-
stjóra f Arizona í Bandaríkjunum,
sem nú keppir að útnefningu sem
forsetaefni demókrata þar í landi,
hafi einhveijar óskir fram að færa.
Hann er í öllu falli vongóður á svip
þar sem hann hvískrar í eyra
sveinka. Þeir kurapánar hittust í
verslanamiðstöð þar sem þeir voru
báöir aö kynna sig og stefnumið
sín. Væntanlega vita allir hvað er
efst á óskalista Babbitts, Eitt stykki
hvítt hús eða svo.
Fimm menn úr Greenpeaee
hreyflngunni heftu ,í gær fór jap-
ansks hvalveiðskips frá Yokohama
í Japan með því að draga fimmtán
metra uppblásinn hvai í veg fyrir ,
það. Blöðruna nefnaþeir félagamir
Flo. Þrír þeirra voru handteknir
og hnepptir í varöhald um stundar-
sakir.
Mennimir fimm, sem allir vora
Vesturlandabúar, voru að mót-
mæla áætlaðri brottfór hvalveiði-
skipsins Nisshin Maru No. 3 frá
Yokohama, skammt frá Tokýo.
Ætlunin var að skipið færi tii suö-
ur-heimskautssvæðisins til veiða á
þijú hundmð hvölum.
ísraelsmenn boða
hertar aðgerðir
Yfirvöld í ísrael hafa tilkynnt að
þau ætli að herða aðgerðir gegn mót-
mælendum á herteknu svæðunum.
Óeirðimar hafa nú breiðst út til
borga araba í ísrael og enn fjölgar
þeim er falla fyrir byssukúlum ísra-
elskra hermanna. I gær voru þrír
Palestínumenn skotnir til bana.
Þrátt fyrir að arabar í ísrael efndu
til allsherjarverkfalls í gær í samúð-
arskyni við Palestínumenn á her-
teknu svæðunum reynir forsætis-
ráðherra ísraels, Yitzhak Shamir,
enn að reyna að halda því fram að
ástandið sé ekki svo alvarlegt. Segir
hann enga ástæðu til þess að óttast
þar sem ísraelsmenn hafi þurft aö
horfast í augu við slíkt áður og muni
ráöa við þetta nú eins og þá. Shamir,
sem ekki hefur heimsótt herteknu
svæðin frá því að óeirðirnar hófust,
tilkynnti í gær að hann myndi í dag
heimsækja íbúðahverfi gyðinga á
vesturbakkanum. Þar skutu her-
menn tvo Palestínumenn til bana
nálægt Nablus og þann þriðja við
flóttamannabúðir í jenin þegar mót- •
mælendur köstuðu bensínsprengjum
að hermönnunum.
Mótmæli araba í ísrael í gær náðu
einnig til borgarinnar Jaffa nálægt
Tel Aviv þar sem bæði arabar og
ísraelsmenn búa. Þar var bílum velt
og vegatálmum komið upp. Það sama
geröist einnig í Abu Gosh nálægt
Jerúsalem. Að sögn lögreglunnar
voru hundrað manns handteknir
víðs vegar um landið.
israelskur hermaður skýtur táragasi að mótmælendum í israel sem sýndu
Palestinumönnum á herteknu svæðunum samúð sína.
Simamynd Reuter
Ottast kynþáttaróstur
í New York-borg vegna
dómsúrskurðar yfir hvítum
Lögreglumenn í New York-borg stöðvuðu umferð viðs vegar um borgina
til að tryggja að allt færi friðsamlega fram eftir að hvít ungmenni voru fund-
in sek um að hafa orðið völd að dauða blökkumanns. simamynd Reuter
Ólafur Amaison, DV, New York:
Kviðdómur í New Yórk-borg úr-
skurðaði í gærkvöldi að þrír af
fjórum hvítum unglingum, sem
ákærðir voru fyrir líkamsárás og að
hafa orðið valdir að dauða blökku-
manns, væra sekir.
Þaö var 20. desember á síöasta ári
að tveir ungir blökkumenn sem voru
staddir í Howard Beach hverfi í Que-
ens hluta New York-borgar sem er
rétt við Kennedyflugvöll, uröu fyrir
árás hóps hvítra ungmenna. Annar
blökkumannanna var barinn nær til
óbóta og hinn lét lífið er hann varð
fyrir bifreið þegar hann reyndi að
komast undan. I Howard Beach era
flestir íbúar hvítir.
í kjölfar þessa atburðar fylgdu
hefndaraðgerðir af hálfu blökku-
manna annars staðar í borginni og
var um tíma óttast að atburðimir
myndu magnast upp í kynþáttaóeirð-
ir. Því tókst að afstýra.
Réttarhöldin í málinu hófust í sept-
ember á þessu ári og hafa þau vakið
geysilega athygli um öll Bandaríkin.
Hafa blökkumenn litið á þau sem
prófstein á það hvort réttur þeirra
væri fyrir borð borinn vegna litar-
háttar.
Kviðdómurinn hafði setiö á fund-
um í tólf daga er niðurstaöa náðist.
í fyrradag héldu blökkumenn víða
um borgina minningarathafnir
vegna þess að eitt ár var liðið frá
dauða unga mannsins í Howard Be-
ach hverfinu. í gær höfðu síðan
blökkumenn í frammi ýmiss konar
mótmæli víðs vegar um borgina til
aö mótmæla því að hvítu ungmennin
höíðu ekki þegar verið úrskurðuð
sek. Var umferð bíla á götum stöðv-
uð. Einnig vora neðanjarðarlestir
stöðvaðar. Um þaö bil sjötíu og fimm
manns voru handteknir.
En það var svo klukkan 20.30 í
gærkvöldi að kviðdómur birti úr-
skurð sinn. Gífurlegar varúðarráð-
stafanir vora haíðar til að tryggja að
allt færi friðsamlega fram og var þrjú
hundrað manna lögregluliö við
dómshúsið. Var talið nauðsynlegt að
vemda hvítu ungmennin fyrir hefni-
gjömum blökkumönnum. Fór svo að
nokkrir voru handteknir.
Eftir að úrskurður lá fyrir létu
blökkumenn í ljós óánægju sína með
að ungmennin skyldu ekki hafa verið
sakfelld fyrir morð heldur aðeins
manndráp. Hvítir íbúar Howard Be-
ach umhverfisins voru hins vegar á
því að ungmennin hefðu átt skilið
sýknun. Hæsta mögulega refsing fyr-
ir brot af þessu tagi er fimmtán ára
fangelsi og dómarinn mun ákveða í
lok janúar hvern dóm þau fá.
Þaö var mikifl æsingur í fólki, bæði
hvítiun og svörtum, í gærkvöldi og
óttast yfirvöld nú mjög að róstur
milli kynþátta fylgi í kjölfarið.