Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.1987, Page 31
ÞRIÐJUDAGUR 22. DEgEMBER 1987.
31 .
Menning
Burt með sorg og sút
eða köttur í veiðihug
Veiðiferöin
Höfundur: Sven Nordqvist
Útgefandi: Iðunn 1987
Splunkuný bók eftir hinn sænska
myndabókasmið Sven Nordqvist
kemur út hér hjá Iðunni á sama
útgáfuári og í heimalandi höfund-
arins.
Sagansegirímáhogmyndumfrá .
Pétri gamla einsetukarh sem er í
vondu skapi og hefur ekki geð í sér
th að gera nokkurn hlut og kettin-
um hans honum Brandi sem er
staðráðinn í að lyfta brúninni á
karlinum og fá hann með sér út að
leika.
- Nei, mig langar ekki til aö leika
mér, tautaði Pétur og starði eitt-
hvað út í tómið. - Ég má ekki vera
að því. Ég þarf að höggva í eldinn.
En ég vil ekki höggva í eldinn. Ég
þarf aö taka upp kartöflur. En ég
vh ekki taka upp kartöflur. Ég vU
bara sitja héma í allan dag og vor-
kenna sjálfum mér.(ekkert blstal)
Kötturinn beitir öllum hugsan-
legum brögðum, leikur hstir sínar,
fettir sig og brettir og framkahar
hávaða. Loks tekst honum með '
kænsku að plata Pétur gamla á
veiðar og í hita veiðigleöinnar
gleymist öll sorg og sút. Pétur
gamli er aftur eins og hann á að
sér að vera þó að afrakstur veiði-
ferðarinnar sé ekki stórkostlegur.
Það var ekki svo vitlaus hug-
mynd að fara út á veiðar,“ segir
hann í lokin og ákveður að þegar
heim komi skuli hann bæði leika
við köttinn, höggva í eldinn og taka
upp kartöflur.
Kettir eru vinsælar söguhetjur í
bamabókum enda skemmtileg dýr
sem fara sínar eigin leiðir. Köttur-
inn Brandur er lævís eins og eðli
hans býður og fer sínu fram. Hér
leikur hann jafnframt hlutverk
vinarins sem bregst ekki í raun.
Brandur gefst ekki upp fyrr en
hann hefur hrakið burtu raunir
húsbóndans og gert hann virkan í
Ein af myndum Svens Nordqvist úr bókinni.
Bókmenntir
Hildur Hermóðsdóttir
lífinu á ný, hvort sem eitthvað al-
varlegt.þjakar nú karlgreyið eða
aðe.ins timburmenn þarna í skógin-
um. Honum líður bölvanlega eftir
myndunum að dæma. Kattar-
skrattinn leikur hins vegar við
hverja sína kló og beitir brögðum
í ætt við Tommabrögð og Jenna.
Auk þess talar hann máli manna
svo hér er á ferð n.k. Tommi stíg-
vélaköttur, klæddur brók en ekki
stígvélum.
Myndir bókarinnar eru hug-
myndaríkar og kostulegar, einkum
myndir sem sýna köttinn á mörg-
um stöðum í einu og eiga að sýna
ferðina á honum. Myndirnar frá
veiðiferðinni eru í öðrum dúr, fall-
egar náttúrulífsmyndir í haustlit-
um.
Þorsteinn frá Hamri hefur þýtt '
bókina á látlaust og smekklegt mál
og vel er vandað til útgáfunnar.
HH
Fíni Vínarstfllinn
Eina hljómplatan á þessari ver-
tíð, sem inniheldur íslensk tónverk
af stærri sortinni, er klarínettplata.
Þar leikur Sigurðúr Ingi Snorrason
verk eftir Pál Pampichler Pálsson,
Jón Nordal og svo er verk eftir
austurrískan íslandsvin, Werner
nokkurn Schulze. Með Sigurði
leika Sinfóníuhljómsveit íslands
(Klarínettkonsert eftir Pampichler)
og Anna Guðný Guðmundsdóttir
(Ristur eftir Nordal og Tilbrigöi
eftir Schulze).
Páll stjómar sjálfur konsert sín-
um og er þaö mjög ánægjulegt því
gera verður ráð fyrir að þar með
fáist besta mynd af verkinu meö
þessum flytjendum. Þetta er langur
konsert og alvarlegur. Hann er í
þrem þáttum sem mér virðast
nokkuð einlitir en það er sterk og
ákveðin meining í þessari músík
og tilgerðarlaus og hreinn stíll ein-
leikarans nýtur sín vel. Samspihð
allt er með miklum ágætum og
hljóðritun er með þeim bestu sem
heyrst hefur úr Háskólabíói.
Ekki er minni alvara í Ristum
Hljómplötur
Leifur Þórarinsson
eftir Jón Nordal. Þetta haglega
byggöa verk vinnur vel á við nán-
ari kynningu, eins og reyndar flest
eftir þennan höfund og þarna er
það frábæriega flutt af Sigurði og
Ónnu Guðnýju.
Hins vegar eru „Steflaus til-
brigði" fyrir klarinett og píanó,
eftir Wemer Schulze léttari á bá-
runni. Þetta eru níu þættir, af
býsna ólíkum toga, en verkið hang-
ir vel saman enda saumað af
kunnáttu. Þessi plata er stór-
skemmtileg viðbót við klarínett-
plötu Einars Jóhannessonar og
Philip Jenkins frá í fyrra. Þar
heyrði maður allt annan stíl, ættað-
an úr Frakklandi. Hérna er stílinn
eins og hann gerist fínastur í Vín
og það er ekki verra. Ljómandi
plata.
LÞ
Polaroid - Myndavél og vasadiskó
^|SAMAN í PAKKA
á aðeins kr. 3.350,-
Myndavélin er með
innbyggt eilífðarflass.
Rafhlaðan er í
filmupakkanum.
Sem sagt, filman f,og
myndavélin er tilbúin
Vasadiskóið
er eitt hið
mmnsta
á markaðinum.
Cr02 metal
7/i
THE ULTIMATE POWER PRESSURE WASHER
W07TATÆKID
Alhliða þvottatæki tengt beint við garðslönguna.
„SOFT-SUDS“ sápubrúsi fylgir hverju tæki.
„TURBO-WAX“ bóni ersprautao á bílinn með tækinu.
Tilvalið á:
* bilinn
* húsið
* gluggana
* stéttina og márgt fleira.
Tilvalin jólagjöf
gj
imiÆL ÍZ?\
Varahlutaverslun
Bildshöfða 18 - Reykjavik - Simi 91-672900
möguleikar
4 litir,!Ií> í
ir
elle
Skólavörðustíg 42
Amaró Garðarshólmi
Akureyri Húsavik