Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.1988, Page 4

Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.1988, Page 4
4 MÁNUDAGUR 4. JANÚAR 1988. Fréttir „Erfiðustu áramót um margra ára skeið“ Olvun og æsingur um áramót: - tvöföld vakt hjá lögreglunni Gamla árið kvatt með brennu á Seltjarnarnesi. Fjöldi fólks kom á brennuna, htýddi á söng og skaut upp flug- eldum. DV-mynd KAE Áramótin í Reykjavík voru erflö aö sögn lögreglumanna og þurfti tvöfalda vakt til aö mæta álaginu. „Þetta eru með erfiðari áramótum sem verið hafa,“ sagöi einn varö- stjóri lögreglunnar í samtali við DV. „Fólk var miklu æstara og ölv- un mun meiri en undanfarin ár. Sérstaklega voru mikil skrílslæti í miöbænum og í Breiðholti. Segja má aö þaö hafi verið gegndarlaus ölvun fram aö hádegi á nýársdag." Óvenjumörg alvarleg slys uröu á mönnum sem rekja má til flugelda. „Ég tel að menn hafi sýnt óvar- kárni og þá sérstaklega með tí- volíbombur sem virðast hafa veriö í tisku núna,“ sagöi varöstjórinn. „Margir af þeim flugeldum, sem fólk var aö skjóta upp núna, hafa hingað til veriö til sýnis en ekki sölu og menn ekki varað sig nógu vel á þeim.“ Aliar fangageymslur í Reykjavík voru yfirfullar og lögreglan átti annríkt viö að aka ölvuðu fólki á slysadeild eftir skrílslæti. Margir skáru sig á rúðubrotum en ófáar rúður voru brotnar um allan bæ, eins og lögreglan orðaöi það. Ráðist var að lögreglumönnum og lög- reglubílar skemmdir. Einnig var talsvert um að lögregla væri til kvödd á öldurhús borgarinnar. Varðstjórinn sagði að þetta væru ein verstu áramót í langan tíma hjá lögreglunni. „Það er helst að elstu menn muna verri áramót en þá logaði allt í götubardögum og mik- ill múgæsingur. Ég segi ekki að það hafi verið svo slæmt núna en slæmt var það.“ - Voru lögreglumenn þá þreyttir eftir áramótin? „Já, það er óhætt að segja að menn hafi verið þreyttir og fáir eða engir komust heim til sín um morg- uninn er vaktinni lauk. AUur nýársdagur var fremur erilsamur og það var ekki fyrr en á nýárs- kvöld sem fólk fór að slappa af. Hins vegar byrjuðu aftur læti að- faranótt sunnudagsins eftir að veitingahúsin lokuðu. Það var þó ekkert í líkingu við nýársnóttina." -ELA Áramótin um landið: Víða friðsamleg en á öðrum stöðum mjög Áramótin fóru misjafnlega fram um landið. Á sumum stöðum fór allt fram meö ró og spekt en á öðrum áttu lögreglumenn erilsama nótt. í Vestmannaeyjum var nóttin róleg framan af en talsvert um ölvun. Veð- ur var gott og margir á ferh. Það kom hins vegar ekki í Ijós fyrr en á nýárs- dagsmorgun aö mjög miklar skemmdir höfðu verið unnar um nóttina. Svo virðist sem eitthvert gengi hafi vaðið um bæinn og brotið rúður og voru fá fyrirtæki sem sluppu. í einu fyrirtæki höfðu verið brotnar ellefu rúöur. Þá var bfotist inn á veitingahús og stohð þaðan 30 flöskum af áféngi. Sneisafuht var á skemmtistöðum í Eyjum og á einu þeirra var heima- gerður kínverji sprengdur með þeim afleiðingum að sparifót manns eins, sem þar stóð í sakleysi sínu, tættust. Maðurinn slapp með skrekkinn en fótin eru ónýt. Talsverð sprenging varð og mun sjálfsagt mörgum hafa brugðið í brún. í Keflavík var sömu sögu að segja. Nóttin var mjög erilsöm en ekki kom til neinna óspekta. Talsverð ölvun var í bænum og undraðist lögreglú- maður í Keflavík að á þeim fáu dögum sem liðnir eru af nýju ári hefðu nú þegar sex ökumenn verið teknir grunaðir um ölvun við akstur. Á árinu 1987 tók lögreglan í Keflavík 198 ökumenn grunaða um ölvun en 133 árið á undan. Er því um mikla aukningu að ræða sem ekki virðist ætla að linna. í Hafnarfirði voru mjög róleg ára- mót og þurfti lögreglan þar ekki að hafa afskipti af neinum vegna ölvun- ar. Lögreglan vonar að þrettándinn verði jafnrólegur en nokkuð hefur borið á látum í Hafnarfirði á þeim degi undanfárin ár. Lögreglan í Kópavogi átti erilsama nýársnótt. Talsverð ölvun var í bæn- um og mikið um rúðubrot. Sérstak- lega voru mikil ólæti við Skemmuveginn en þar er til húsa unglingaskemmtistaður. Engin slys urðu á fólki. Á Selfossi, Akranesi og á ísafirði voru lögreglumenn ánægðir eftir vel heppnuð áramót. Á öllum stöðunum var einhver ölvun en ekkert meira en á venjulegu laugardagskvöldi. Sömu sögu er að segja frá Akureyri. „Þetta var bara eins og venjulegt í dag mælir Dagfari Þorskar a þurru landi Alþingismenn íslendinga hafa ekki getað um frjálst höfuð strokið yfir hátíðamar. Þeir þurfa meira að segja að mæta til vinnu strax í dag eins og annað fólk. Hvað er það sem veldur þessu ónæði? Hvað er það sem angrar og ergir alþingis- menn í svo miklum mæli að þeir fá ekki svefnfrið eins og áður og mega ekki vera að þvi að heim- sækja kjósendur í jólafríinu? Jú, það er kvótinn, þorskkvótinn, sem ætlar þá hfandi að drepa og hefur sett allt á annan endann vegna þess upplausnarástands sem hlýst af því að kvótinn hefur ekki enn verið samþykktur. Nú er það að vísu rétt að þorskur- inn skiptir máli á íslandi. Þorskur- inn skiptir miklu meira máli heldur en kjósendur og raunar meira máh en alþingismenn ef út í það er farið. Alþingismenn lifa á atkvæðum en atkvæöin lifa á þorskinum og þess vegna þykir at- kvæðunum mun vænna um þorskinn heldur en þingmanninn. Það er hægt að éta þorskinn en ekki þingmanninn. Sá er munur- inn á þorski og þingmanni. Þetta mikilvægi þorsksins veldur því að alþingismenn verja jólafrí- inu í kvótann og láta kjósenduma lönd og leið. Þar að auki er fyrir löngu búið að setja kvóta á kjósend- urna. Þeir eru allir i sínum básum og flokkarnir gera tilkall th þeirra og geta rifið kjaft viö þá eða hefnt sín á þeim sem svíkjast undan flokkakvótanum. Þeir flokkar, sem töpuðu fylgi í síðustu kosningum, eru nú sem óðast að hlaupa uppi • þá kjósendur sem svikust undan" merkjum oé stálust út úr kvótun- um í kjörklefunum. Nýir flokkar eru iha séðir. Bæði Borgaraflokkur og Kvennalisti stálu úr kvóta ann- arra flokka og era ekki viður- kenndir af þeim flokkum sem fengu sínum kvótum úthlutað fyrir fjór- um* eða fimm áratugum. Kvótar flokkanna gilda hka við úthlutun embætta í ríkisbönkum og opin- berum stofnunum, fyrirgreiöslu á fjármagni og öðrum þeim hrossa- kaupum sem eiga sér stað á hinu pólitíska markaðstorgi. Þar eru kvótarnir kvittir og klárir og eng- inn þarf að stytta hjá sér jólafríið til að ákveða nýja kvóta í þeim efh- um. Nei, það er þorskkvótinn sem er vandamálið. Reyndar hafa íslend- ingar búið við það í níu aldir að veiða þorsk án kvóta og það var ekki fyrr en fyrir örfáum árum sem kvóti var settur á þorskinn th að tryggja það að enginn veiddi meira en hann mátti. Aflaklær og veiði- menn af guðs náð hafa enga þýðingu lengur, því kvótinn kemur í veg fyrir að menn séu að veiða annarra manna þorska. Næst fara þeir sennilega að merkja þorskana í sjónum til að kvótinn haldi og enginn veiði meira en hann má. Ekki fær maður skilið hvernig ís- lendingar og aðrir þorskar komust af með það í margar, margár aldir að stunda fiskveiðar kvótalausir þegar maður heyrir ábúðarmikla stjórnmálaskörunga lýsa áhyggj- um sínum yfir þeim dögum sem nú fara í hönd án þess að kvótinn sé til staðar. Kannske er skýringin sú að þorskar eru þorskar og hafa alltaf verið þorskar, hvort sem fisk- veiðistefna var til eða var ekki th. Það er bót í máli að þorskurinn, sem áður synti kvótalaus í haf- djúpinu, hefur verið fljótur að tileinka sér hina nýju fiskveiði- erilsóm laugardagsfylhrí,“ sagði lögreglan þar. Á Húsavík bauð bæjarstjómin upp á ball sem bæjarbúar nýttu sér ó- spart. Ókeypis var inn á ballið og máttu bæjarbúar ganga út og inn. „Þessi dansleikur kemur í veg fyrir fyllirí og vitleysu," sagði lögreglu- maður á Húsavík og var míög ánægður með þetta framtak bæjar- stjórnarinnar enda fóru áramótin friðsamlega fram. Kalt var í veðri á Húsavík og mikhl snjór. ELA stefnu og þar að auki er búið að veiða. alla gömlu þorskana sem þekktu ekki kvóta, þannig að þorskurinn er sjálfsagt orðinn mjög ráðvihtur í sjónum þegar al- þingi getur ekki komið sér saman um nýjan kvóta. Þetta stefnir öllum veiðum í bráða hættu og það er voðinn vís næ’stu daga þegar skipin sigla kvótalaus á miðin og afla- klæmar geta aftur farið að veiða stjórnlaust og botnlaust. Þorskur- inn veit ekki hvaðan á sig stendur veðrið og sjómenn þurfa aftur að hafa fyrir því að veiða eins og þeir geta, í stað þess að veiða upp í kvóta og hafa það gott. Þetta öngþveiti hjá þorskunum í sjónum er alvarlegt eins og sjá má. Spurning er hvort þeir sætta sig við það stjórnleysi að hver sem er geti veitt þá. Sem betur fer eiga þeir sér talsmenn í landi. Það em nefnilega til þorskar á þurru landi, sem finnast víðs vegar í þjóðfélag- inu og taka upp hanskann fyrir hina sem eru í sjó. Það era þessir þorskar sem nú hamast við að koma kvótanum í lag og spara til þess hvorki tíma né fyrirhöfn og eyða jólafríinu í það. Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.