Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.1988, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.1988, Blaðsíða 3
MIÐVIKUDAGUR 3. FEBRÚAR 1988. 3 dv Viðtalid Ingrid Jónsdóttir leikkona hefur tekið við hlutverki Dollíar í leikrit- inu Þar sem Djöflaeyjan rís. Ný Dollí í Djöfla- eyjunni Ingrid Jónsdóttir tók nýlega við hlutverki Dollíar í leikritinu Þar sem Djöflaeyjan rís í leikgerð Kjartans Ragnarssonar, en hlut- verkið var áður í höndum Eddu Heiðrúnar Backman. Ingrid er 28 ára gömul. Móðir hennar, Sólveig Jónsson, er norsk en faðir hennar heitir Einar Jónsson. Ingrid út- skrifaðist frá Leiklistarskóla íslands í vor og er þetta fyrsta hlutverk hennar í atvinnuleik- húsi. - Er ekki erfitt að koma ný inn í gamalgróið leikrit sem húið er að sýna meira en hundraö sinn- um? „Jú, það er mun erfiðara en að byija frá grunni en þetta hefur gengið furðulega vel. Ég þekki verkið vel þar sem við settum leikritið upp á þriðja ári í leiklist- arskólanum með Kjartani Ragnarssyni. Þar var ég einmitt í hlutverki Dollíar. Fyrir sýning- arnar hjá Leikfélagi Reykjavíkur horfði ég á leiktritið á myndbandi en æfði síðan fjórum sinnum með hópnum.“ - Hvernig gengur ungum leikur- um yfirleitt að fá vinnu? „Yfirleitt gengur strákum betur að fá hlutverk. Þeir eru líklega eitthvaö færri auk þess sem karl- hlutverkin eru mun fleiri. Ég er mjög ánægð að hafa verið ráðin í þetta hlutverk hjá Leikfélagi Reykjavíkur og það verður von- andi stökkpallur í önnur verk. Maður verður bara að vera bjarstýnn og trúa því að maður fái hlutverk. En ef maður hugsar um atvinnuhorfur og peningamál er leiklistarnám líklega ekki það arðvænlegasta. En bæði skólinn og vinnan eru afskaplega skemmtileg og gefandi.“ - Hvereruhelstuáhugamálþín? „Ferðalög til útlanda eru mitt uppáhald. Ég hef ferðast víða og dvaldist meðal annars í hálft ár í ísrael við vinnu á samyrkjubúi. Það var mjög afslappandi og þægilegt líf. Maður fékk mat, húsnæði og svolitla vasapeninga svo það þurfti ekki að hafa áhyggjur af nokkrum hlut. Bóklestur tekur líka sinn tíma og einnig fer ég mikið í leikhús en leiklistin hefur lengi verið eitt af áhugamálum mínum. Á sínum tíma var ég einn af stofnendum Leikfélags Mosfellssveitar auk þess sem ég lék í gagnfræðaskól- anum í Mosfellssveit. Sigríður Þorvaldsdóttir leikari kenndi þar og gæti ég trúað að hún hafi smit- að mig af leiklistarbakteríunni. Hún ýjaði að því við mig að ég færi út í leiklistarnám en ég ák- vað mig þó ekki fyrr en nokkrum árum eftir stúdentspróf. Þá var ég úti í Noregi en kom gagngert hingað til að taka inntökupróf í Leiklistarskólann. Ég ákvað strax að reyna bara einu sinni og það tókst. Ég hefði ekki reynt aft- ur þar sem mín skoðun er sú að annaðhvort geti maður gert hlut- ina eða ekki.“ -JBj Fréttir Lögreglumenn í Kópavogi: Mótmæla ráðningu í stöðu aðstoðaryfiriögregluþjóns Guðmundur Jónsson rannsóknar- lögreglumaður hefur verið ráðinn aðstoðaryflrlögregluþjónn í Kópa- vogi. Lögreglumenn í Kópavogi eru óánægðir með ráðningu Guðmundar og hyggjast þeir senda dómsmálaráð- herra mótmælabréf. Nokkrir starf- andi lögreglumenn í Kópavogi sóttu um stööuna. Þeirra á meðal er maður sem gegnt hefur starfi aðstoðaryfir- lögregluþjóns á annað ár. Lögreglumaður í Kópavogi, sem DV ræddi viö, sagði að hér væri um löngu ákveðna og pólitíska skipun í embætti að ræða. Lögreglumaðurinn sagði að Guðmundur Jónsson hefði sótt um stöðu yfirlögregluþjóns og þegar sýnt þótti að hann fengi þá stöðu mótmæltu allir lögreglumenn í Kópavogi. Þeir vildu að Valdimar Jónsson yrði skipaður í stöðu yfirlög- regluþjóns. Að lokum fór svo að Valdimar var ráðinn í þá stöðu. -sme Canon Rétti timinn til reiknivélakaupa. Mikið úrval. Lækkað verð. ilcrifvélin hf Suðurlandsbraut 12, S:685277 - 685275 ÁBÓTARREIKNINGUR ÚTVEGSB ANK AN S MEÐ HÆSTU ÁVÖXTUN ÓBUND- INNA INNLÁNS- REIKNINGA Á SÍÐASTLIÐNU ÁRI! Ábótarreikningur Útvegsbankans skilaði betri ávöxtun á síðastliðnu ári (1987) en nokkur ann- ar óbundinn reikningur í bankakerfinu. Ávöxt- unin nam 28,2% sem er 4,89% umfram verð- bólgu. Ábótarreikningurinn er því sem skapað- ur fyrir þig og alla sem er annt um sparifé sitt. Ábótarreikningurinn nýtur vinsælda meðal sparifjáreigenda og það ekki af ástæðulausu. Hann færir eigendum sparifjár fulla ávöxtun fyrr en aðrir sérreikningar. Ábótin reiknast strax frá þeim degi sem þú leggur inn á reikn- inginn og vaxtaábótin er síðan færð mánaðar- lega inn á höfuðstól reikningsins. Við munum stefna að því að eigendur Ábótar- reikninga njóti framvegis sem áður, hæstu mögulegrar ávöxtunar á inneign sinni og spari- fé, en hið nýbyrjaða ár leggst vel í okkur. Þú getur opnað Ábótarreikning á öllum afgreiðslustöðum Útvegsbankans um land allt - Útvegsbanki íslands hf

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.