Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.1988, Side 7
MIÐVIKUDAGUR 3. FEBRÚAR 1988.
7
Fréttir
□ Andvígir úrsögn
□ Fylgjandi úrsögn
Kakan sýnir hlutföllin milli þeirra, sem vilja úrsögn úr Alþjóöa hvalveiði- Halldór Asgrimsson beitti sér fyrir
ráðinu og andstæðinga úrsagnar.
Skoðanakönnun DV:
því, að aörir samþykktu vísindaveið-
arnar á nýafstaðinni ráðstefnu.
Naumur meirihluti vill
vera í hvalveiðiráðinu
Naumur meirihluti landsmanna er
andvígur þvi, að íslendingar gangi
úr Alþjóða hvalveiöiráðinu, sam-
kvæmt skoðanakönnun DV um
síðustu helgi. Meirihlutinn, sem að
baki þessari afstöðu stendur, er örlít-
iU og varla marktækur. í könnuninni
var spurt: Ertu fylgjandi eða andvíg-
ur því, að íslendingar segi sig úr
Alþjóða hvalveiðiráðinu? Úrtakiö
var 600 manns, jafnt var skipt milli
kypja og jafnt milli höfuðborgar-
svæðisins og landsbyggðarinnar.
í .könnuninni sögðust 32,5 prósent
vilja ganga úr Alþjóða hvalveiðiráð-
inu. 34,8 prósent voru andvíg slíkri
úrsögn. 28,5 prósent voru óákveðin
og 4,2 prósent vildu ekki svara.
Þetta þýðir, að 51,7 prósent þeirra
sem tóku afstöðu eru andvíg úrsögn
úr Alþjóða hvalveiðiráðinu, en 48,3
prósent vilja úrsögn.
Hlutföllin eru nokkuð svipuð með-
al karla og kvenna.
Menn spyrja, hvort viö eigum að
ganga úr Alþjóöa hvalveiðiráðinu
með tilliti til þess, að íslendingum
gangi illa að komast upp með svo-
nefndar hvalveiðar í visindaskyni,
verðum við í ráðinu. -HH
ÍSLANDSSTRENGUR
í 10 þráða hör, stærð: 16x110 cm.
I aida, stærð: 18x127 cm.
Verð á pakkningu án járna kr. 2.100,-
SKJALDARMERKI
í 10 þráða hör. Stærð 35x40 cm.
I aida. Stærð 45x50 cm.
Verð á pakkningu kr. 1.850,-
LUKKUPOKAR
Verðmæti kr. 3.000,-. Verð kr.
Engir tveir pokar eins.
1.500,-
PÓSTSENDUM
HannprbabErölunín
€rla Snorrabraut 44, simi 14290
Niðurstöður skoðanakönnunarinnar urðu
þessar:
Fylgjandi úrsögn úr úr Alþjóöa hvalveiðiráóinu 195 eða 32,5%
Andvígir úrsögn 209 eða 34,8%
Óákveðnir 171 eða 28,5%
« Svara ekki 25 eða 4,2%
Ef aðeins eru teknir þeir sem tóku afstöðu
verða niðurstöðurnar þessar:
Fylgjandi úrsögn 48,3%
Andvígir úrsögn 51,7%
Ummæli fólks
i konnunmm
Kona úti á landi sagöi að þetta þjóða hvalveiðiráðið heföi ekki
hvalamál væri mannskemmandi. staðiö nógu vel á bak viö okkur.
Karl á Vestfjörðum sagöi aö við KarláReyKjavíkursvæöinusagöist
ættum að hætta hvalveiöum. Karl fylgja Halldóri að málum. Karl úti
úti á landi kvaðst andvígur hval- á landi kvaðst elnkum mótmæla
veiðiráöinu^Annar sagði aö íslend- hótunum Bandaríkjamanna. Ann-
ingar ættu að ráða sjáiflr hvort ar sagði ekki tímabært aö fara að
þeir veiddu hval eða ekki. Kona á ganga úr þessu hvalveiðiráðí.
Reykjavikursvæðinu sagði að Al- -HH
Picasso Vigdísar
enn í geymslu
Styttunni Jaqueline, sem ekkja
Pablos Picasso færði Vigdisi Finn-
bogadóttur, forseta íslands, á Lásta-
hátíð 1986, hefur enn ekki verið
fundinn samastaður. Styttan hggur
í geymslu í hvelfingu Seðlabankans.
Samkvæmt upplýsingum frá for-
setaritara hefur lítið verið rætt um
undanfarið hvar styttunni verði
komið fyrir en hann sagðist þó búast
við aö að ekki liði langur tími þar til
forsetinn tæki ákvörðun um hvar
styttan yrði staðsett til framhúðar.
Listasafn íslands hefur verið nefnt
sem líklegur samastaður fyrir stytt-
una en Bera Nordal, forstöðumaður
safnsins, sagði í samtali við blaða-
mann DV að ekki hefði verið rætt
við sig um að taka við styttunni.
-JBj
Líkamsrækt fyrir alla!
ÆriNQASTOÐIN
AEROBIC
Horkuleikfimi, eykur þol og styrk með dúndurmúsík. Kennt
þrisvar í viku. Fjögurra vikna byrjenda- og framhaldsflokkar.
Frjáls mæting í tækjasal jnnifalin.
KVENNALEiKFIMI
Styrkjandi og friskandi leikfimi tvisvar í viku. Fjögurra vikna
námskeiö, eöa lengra tímabil.
LIKAMSRÆKT I TÆKJASAL
Frabær aðstaða til líkamsræktar. Styrkjandi, grennandi og
hressandi æfingar í vel búnum tækjasal. Ótal möguleikar.
Komdu og fáðu æfingakerfi við þitt hæfi. Frjáls mæting. Mán-
aðarkort fyrir karla og konur á öllum aldri.
KONUR
Sérþjálfun fyrir konur í tækjasal með upphitun og teygjuæfing-
um á mánud., miðvikud. og föstud. kl. 14.00.
SLÖKUN
Þægilegir Ijósalampar, vatnsgufa, nuddpottar. Þú slakar vel á
hjá okkur eftir erfiðið.
HÖFUM FENGIÐ SENDINGU AF HINU VIÐURKENNDA MULTI KRAFT PRÓTÍNI
FRÁ ÞÝSKALANDI, ÁSAMT MEGRUNARFÆÐI SEM MARGIR HAFA BEÐIÐ EFTIR.
OPNUNARTIMI
Mánudaga - fimmtudaga frá kl. 12-22 • föstudaga kl. 12-21 •
laugardaga kl. 11-18 • og sunnudaga kl. 13-16
ATH! afsláttur fyrir hópa og skólafólk. Hringdu strax og láttu innrita þig
BYRJAÐU STRAX - KOMDU ÞÉR í FORM
Innritun í öll námskeiðin
í símum 46900 - 46901 - 46902 eftir kl. 14.00