Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.1988, Síða 26
26
MIÐVIKUDAGUR 3. FEBRUAR 1988.
Jarðarfarir
Halldór Kr. Kristjánsson, Kársnes-
braut 74, Kópavogi, sem lést 1
Borgarspítalanum 25. janúar, verður
jarðsunginn frá Fossvogskirkju
föstudaginn 5. febrúar kl. 13.30.
Útför Guðrúnar Árnadóttur frá Vogi
fer fram frá Kópavogskirkju föstu-
daginn 5. febrúar kl. 15.
Guðrún Arnfríður Tryggvadóttir,
Hróarsholti, Flóa, verður jarðsungin
frá Hraungerðiskirkju föstudaginn
5. febrúar kl. 14. Bílferð verður frá
Hópferðamiðstöðinni, Bíldshöföa 2a,
Reykjavík, kl. 12.30.
Helga Sigurðardóttir, áður til heim-
ilis á Laugavegi 140, verður jarðsung-
in frá Fossvogskirkju fimmtudaginn
4. febrúar kl. 13.30.
Ingibjörg Arnórsdóttir, Freyjugötu
6, verður jarðsungin frá Hallgríms-
kirkju fimmtudaginn 4. febrúar kl.
13.30.
Gestur Ólafsson lést 23. janúar sl.
Hann fæddist í Dalbæ í Gaulveija-
bæjarhreppi 30. júlí 1922 en fluttist
árið 1931 að Efri-Brúnavollum á
Skeiðum. Þar átti hann heima til
dauðadags. Foreldrar hans voru þau
Ólafur Gestsson og Sigríður Jóns-
dóttir. Útför Gests verður gerð frá
Ólafsvallakirkju í dag kl. 14.
Andlát
Jóhanna Gunnarsdóttir frá Miðfjarð-
arnesi andaðist 29. janúar á Elliheim-
ihnu Grund.
Jón Sæmundsson, Hátúni 4, Reykja-
vík, andaðist í hjúkrunarheimilinu
Sunnuhhö 1. febrúar.
Ragnheiður Eygló Eyjólfsdóttir,
Álfaskeiði 59, Hafnarfirði, lést að
morgni 1. febrúar í Vífilsstaðaspítala.
Jónmundur Guðmundsson.ReynÍ-
mel 58, andaðist að heimili sínu að
kvöldi 29. janúar.
Kristján S. Hermannsson, Tómas-
arhaga 32, lést í Borgarspítalanum
31. janúar.
Ingigerður Loftsdóttir lést laugar-
daginn 30. janúar á Droplaugarstöð-
um.
Björg Helgadóttir, Baldursgötu 32,
lést í öldrunardeild Borgarspítalans
aðfaranótt 31. janúar.
Benedikt Jónsson, Aöalbóli, lést á
sjúkrahúsi Akraness 30. janúar.
Jón Guðmundsson frá Molastöðum,
Háuhlíð 6, Sauðárkróki, andaðist í
Sjúkrahúsi Sauðárkróks laugardag-
inn 30. janúar.
Jónína Albertsdóttir frá ísafirði
andaðist í Landspítalanum föstudag-
inn 29. janúar.
Þorsteinn ívarsson, Hryggjarseh 3,
Reykjavík, lést af slysförum sunnu-
daginn 31. janúar.
Fundir
Kvenfélag Hallgrímskirkju
heldur fund í safnaðarheimili kirkjunnar
fimmtudaginn 4. febrúar kl. 20.30. Sr.
Pétur Ingjaldsson flytur erindi og sýndar
verða litskyggnur frá ferð aldraðra í
Hallgrímssókn til Danmerkur sl. sumar.
Kaffi og að lokum hugvekja sem sr. Karl
Sigurbjömsson flytur. Eldri konur, sem
þurfa á bíl að halda, hringi í Dómhildi
safnaðarsystur í sima 39965 sama dag.
Aðalfundur Suomi-félagsins
verður haldinn í Norræna húsinu fóstu-
daginn 5. febrúar 1988 kl. 20 stundvíslega.
Dagskrá: venjuleg aðalfundarstörf. Að
aðalfundinum loknum, um kl. 20.30, hefst
samkoma félagsins í tilefni af Runebergs-
deginum. Félagsmenn eru hvattir til að
fjölmenna og taka með sér gesti.
Tapað - Fundið
Fressköttur í óskilum
Hálfstálpaður fressköttur, gr ár með hvítt
undlr hálsi og hvitar hosur, er í óskilum
á Baldursgötu 12, simi 25859.
Tónleikar
Tónleikar helgaðir byggingu
tónlistarhúss
Fyrstu tónleikar Sinfóníuhljómsveitar
íslands á síðara misseri verða nk.
fimmtudag í Háskólabíói. Stjómandi
verður Bandaríkjamaðurinn George
Cleve og einleikari verður píanóleikarinn
Randall Hodgkinson, en hann er einnig
Bandarikjamaður. Tónleikamir era
helgaðir byggingu tónlistarhúss.
Ýmislegt
Félagsmiðstöð Geðhjálpar
að Veltusundi 3b er opin á fimmtudögum
kl. 20-22.30 og á laugardögum og suimu-
dögum kl. 14-18. Einnig hefur Geðhjálp-
opna skrifstofu alla virka daga kl. 10-14
þar sem seld era minningarkort félagsins
og veittar upplýsingar urn starfsemina.
Sími 25990.
íslenska óperan
Af óviðráðanlegum orsökum falla niður
sýningar íslensku óperannar á Litla sót-
aranum sem vera áttu í dag, 3. febrúar,
og fimmtudaginn 4. febrúar. Þeir sem
búnir vora að kaupa miða á þessar sýn-
ingar, vinsamlegast snúi sér til miðasölu
íslensku öperunnar milh kl. 15 og 19 í
dag og á morgun. Síminn er 11475.
Kvenfélag Laugarnessóknar
verður með árlega kaffisölu sina í safnað-
arheimili kirkjunnar sunnudaginn 7.
febrúar kl. 15. Komið og styrkið gott
málefni. Tekið á móti kökum kl. 11-12
sama dag.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem
glöddu mig á 80 ára afmæli mínu 27.
jan. sl. með heimsóknum, gjöfum og
skeytum og gerðu mér daginn eftir-
minnilegan.
Guð blessi ykkur öll.
Guðbjartur Betúelsson
OG SHINAN0
MIKIÐ ÚRVAL AF
LOFTVERKFÆRUM
Hermes sllplbönd fyrlr málm
pfl tré I fjölbreyttu úrvall.
SÉRVERSLUN MEÐ SLÍPIVÖRUB
0GL0FTVERKFÆRI
%R0T
BlLDSHÖFÐA 18, SlMI 672240
SAMCO
SAMBYGGÐAR
TRÉSMÍÐAVÉLAR
★
3 MÚT0RAR
HALLANLEGT BLAÐ
3 HNÍFAR í HEFILVALSI
STÓR SLEÐI
FÍNSTILLILAND Á FRÆSARA
TÆKJABÚÐIN HF.
Smiðjuvegur 28, 200 Kópavogur
Simi 75015
Fréttir
Vandi í refabúskap að nokkru vegna byggðasjónarmiða?
Dreifingarkostnaður á
fóðrinu alK of mikill
„Það er ekkert nýtt í refabúskap að
lægðir komi í hann. Það ætti ekki að
koma neinum á óvart,“ sagði Reynir
Barðdal, loðdýrabóndi á Sauðár-
króki. Reynir er formaður samtaka
fóðurstöðva og hefur hann aö öllum
líkindum verið lengst allra með loð-
dýrabú eða frá 1969. Hann sagðist
vera hættur með refinn og einbeitti
sér í þess stað að minkaræktinni;
Reynir er með 2000 minkalæður en
hann var með 150 refalæður og hjá
honum starfa fimm manns.
„Ég byrja ekki aftur með refabú-
skap en ég er alls ekki svartsýnn
fyrir hönd refabænda. Ég harma að
þeir skuli vera að gefast upp núna
því ég er sannfærður um að refurinn
kemur upp aftur.“ Reynir sagði að
þróunin í refabúskapnum heföi verið
neikvæð síðustu þrjú árin en þannig
væri nú refabúskapurinn, hann væri
mun sveiflukenndari en minkurinn
enda markaðurinn minni og óstöð-
ugri. Á meðan ársframleiðslan af
refaskinnum í heiminum væri milii
fjórar og fimm milljónir skinna væru
framleiddar 35 milljónir skinna af
mink enda væri hann mun vinsælli
vara.
í upphafi voru reyndar íslendingar
varaðir við því að refabúskapur væri
mun ótraustari og ráðlagt að stefna
ekki út í hann. í kringum 1980 virtist
refamarkaðurinn hins vegar arð-
vænlegur og þvi hófst þar mikil
uppbygging sem nú virðist hins veg-
ar vera að hrynja.
Eiga byggðasjónarmið að
ráða?
Reynir sagði aö 11 fóðurstöðvar
væru nú hér á landi en hann taldi
loðdýraframleiðsluna of dreiföa um
landið. Því væri verið að flytja fóðrið
of langar vegalengdir. Þama heföu
ráðið byggðasjónarmið og út frá þeim
yrði að meta hvort mönnum yrði
komið til hjálpar nú.
„Mér finnst persónulega að það eigi
ekki að hafa nein áfskipti af þessum
hiutum - hvort sem gengur vel eða
illa - eins og á við um aðrar atvinnu-
greinar. En ef hins vegar eiga að
koma einhver hyggðasjónarmið inn
í þá er eðlilegt að aðstoða menn.
Vegna búháttabreytinga þarf aðhlúa
að bændum. Þeir fóru af stað á öðr-
um forsendum en reyndin hefur
orðið, var nánast ýtt af stað, og því
þurfa þeir að fá aðstoð núna.“ Taldi
Reynir að sú aðstoð myndi.skila sér
best ef hún tryggði lágt fóðurverð.
Reynir sagði að fóðurverð heföi
orðið hærra en menn hefðu áætlað í
upphafi: „Við eigum ódýrt hráefni
hér á landi en dreifingarkostnaður á
fóðrinu er býsna hár.
Það hefur verið ákvörðim stjóm-
valda að planta loðdýrabúum um allt
land sem leiðir af sér hátt fóðurverð.
Það em mistök að dreifa loðdýrabú-
um um allt land.“
Kostar sjálfur breytingar
Reynir er sem áður sagði að gera
nokkuð róttækar breytingar hjá sér
og sagði hann að það væri allt á eig-
in kostnað. Hann sagðist fá betri
nýtingu út úr sínu búi með því að
vera eingöngu með mink.
Reynir sagði að það háði minka-
bændum að mega ekki koma upp
sérstökum sóttvamarbúum til kyn-
bóta og koma þannig nýju blóði inn
í stofninn. Það væri i raun forsenda
framfara í ræktinni.
17 bændur hafa hætt
17 refabændur hafa hætt nú að
undanfömu og er hluti þess vanda
sem þeir skilja efdr hjá fóðurstöðv-
unum í ógreiddum fóðurreikningum.
Þetta skiptir mfiljónum og vita fóður-
stöðvamar lítið hvemig þær eiga að
ná þessumpeningum. Óráðlegt þykir
að velta þessum kostnaði út í verðið
og láta þá loðdýrabændur sem eftir
em greiða þetta.
Fjárfesting í loödýrabúskap er talin
vera um 1,4 milljarðar króna en á
síðasta ári voru flutt út skinn fyrir
um 350 milljónir kr.
-SMJ
Fulltrúar loödýrabænda funda hér með landbúnaðarráðherra en bændur
biða nú eftir viðbrögðum ráðherra við umleitunum sínum. Má jafnvel bú-
ast vjð svörum í dag. DV-mynd GVA
Tillaga um innflutning
loðdýra til kynbóta
Þær Valgerður Sverrisdóttir og
Elín R. Líndal, Framsóknarflokki,
hafa lagt fram á þingi þingsályktun
um innflutning á loðdýrum til kyn-
bóta.
í greinargerð með frumvarpinu er
bent á að gæði íslenskra skinna séu
Stjórn Áburðarverksmiðjunnar
hefur ákveðið að láta byggja nýjan
ammoníaksgeymir við verksmiðj-
unna en sem kunnugt er uppfyllir
núverandi geymir engan veginn ör-
yggiskröfur.
Nýi geymirinn veröur tvöfaldur
1000 tonna kældur stálgeymir með
jarðvegsþró. Hann mun kosta 47
milljónir kr. Fyrst í stað var talið að
ódýrasti kosturinn væri að endur-
Innbrot var framið 1 Fjölbrauta-
skóla Suðurnesja aðfaranótt þriðju-
dagsins. Þjófarnir unnu toluverðar
skemmdir á skólahúsnæðinu, spörk-
uðu upp hurðum, réðust aö peninga-
skáp og sprengdu upp smokkasjálf-
saia.
mun minni en t.d. danskra skinna
og því sé nauðsynlegt að koma upp
tveim sóttvamarbúum hér á landi.
Búin ættu að geta tekið við 200-300
minkalæöum til kynbóta á ári þegar
jafnvægi verður komið á stofninn.
Fleiri þurfi tii í upphafi.
bæta núverandi geymi en við nánari
rannsókn kom í ljós að það myndi
kosta 54 miHjónir kr. Reyndar hefur
verið bent á enn ódýrari kost - sem-
sagt að hætta einfaldlega geymslu
ammoníaks við Áburðarverksmiðj-
unna enda óvíst að framleiðsla
verksmiðjunnar geri kröfur til að
geyma svo mikið magn þar.
-SMJ
Þjofamir toku um fjögur þúsund
krónur úr peningaskápnum. Úr
smokkasjálfsalanum tóku þeir eitt-
hvað af peningum og tuttugu pakka
af smokkum. Málið er óupplýst og
vinnur Rannsóknarlögreglan í Kefla-
vik að rannsókn þess. -sme
I greinargerðinni kemur fram að í
ársbyrjun 1987 hafi verið um 220 loð-
dýrabú hér á landi en þeim síðan
fjölgað um 60 á síðasta ári. Fjárfest-
ing í loðdýrarækt sé orðin 1,3-1,4
milljarðar kr. og um 300 ársverk séu
bundin í þessari starfsemi. -SMJ
Ríkisendur-
skoðunar
Fógetaréttur hefúr hafnað
kröfu Ríkisendurskoöunar um
aðgang að gögnum Heilsugæslu-
stöðvarinnar í Árbæ. Valtýr
Sigurðsson hjá embætti borgar-
fógeta kvaö upp úrskurðinn. í
honum segir að Ríkisendurskoð-
un skorti lagaheimild til að
krefjast gagnanna.
Læknar við Heilsugæsiustöð-
ina höfðu sagt að þeir ryfu
þagnarskyldu með því að leggja
gögnin fram. í fógetarétti var ekki
skorið úr um hvort læknar þyrftu
að rjúfa þagnarskyldu. Þar sem
mat fógetaréttar var aö lagaá-
kvæöi skorti.
-sme
Áburðarverksmiðjan:
Nýr geymir á 47 milljónir
Fjölbrautaskóli Suðumesja:
Aurum og 20 pökkum
af smokkum stolið