Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.1988, Qupperneq 28
28
MIÐVIKUDAGUR 17. FEBRÚAR 1988.
Smáauglýsingar - Sími 27022 Fréttir
Hvar er best að versla um helgina?
Viðskiptaráðherra auglýsir
hagstæðasta helgarverðlð
Rauðsprettan sló í gegn
Um síðustu helgi lét Jón Sigurðs-
son viðskiptaráöherra birta auglýs-
ingu allnýstárlega þar sem munur á
fiskverði á milli verslana var tíund-
aður. í auglýsingunni er m.a. birt
hæsta og lægsta verð á saltfiskflök-
um í stórmörkuðum og munur á
verði rauðsprettu á milli fiskbúða.
Verðið eru byggt á könnun Verðlags-
stofnunar.
Auk upplýsinga um verð er neyt-
andi hvattur til aö vera á verði
gagnvart fiskverði stórra matvöru-
verslana sem sagðar eru halda
verðinu uppi. Neytandi er þannig
hvattur til að vera vakandi gagnvart
vöruverði og bent á að versla þar sem
ódýrast er. Viðskiptaráðherra hefur
í hyggju að auglýsa í framtíðinni á
þennan hátt hagstæðasta vöruverð,
t.d. fyrir hverja helgi.
Jón Sigurðsson ráðherra sagði að
hann hefði fyrir skömmu ákveðið að
miðla á þennan hátt upplýsingiun til
neytenda. „Þetta er fyrst og fremst
tilraun til þess að virkja verðskyn
neytenda með upplýsingum sem við
höfum frá Verðlagsstofnun. Ég tel
einnig að á þennan hátt sé ýtt undir
samkeppni. Ef þessar auglýsingar
gefast vel þá er þetta aðeins byrjunin
á einhveiju meira. Við viljum fyrst
athuga viðbrögð neytenda sem mér
sýnist á þessu stigi vera mjög já-
kvæð. Við ætluðum reyndar að hafa
þessa rauðsprettuauglýsingu fyrr í
síðustu viku þannig að hún hefði
frekar áhrif fyrir helgina en það
verður bætt úr því. Það er að mínu
mati mjög hagstætt fyrir neytandann
að sjá á. fimmtudögum út hagstæð-
asta helgarveröið og kaupa þannig
inn fyrir helgina þar sem verðið er
lægst.
-ÓTT.
Upptaka neta á viss
um stöðum í Hvítá
- samkomulagi um suðurbakkann og fyrir ofan Ferjukot næstu daga
Stangaveiðifélag Reykjavíkur
ásamt leigutökum og veiðileyfasöl-
um í Borgarflrði gerir sér miklar
vonir um samkomulag á upptöku
neta á vissum stöðum í Hvítá næstu
daga.
Telja menn þetta fyrsta skrefið
um jafnvel heilarsamkomulag um
upptöku allra neta þar um slóðir.
„Það rétt að við munum ganga frá
þessum samingum við þá sem eiga
þama í hlut núna næstu daga, það
eru þeir á suðurbakkanum og bæir
fyrir ofan Feijukot sem hafa sam-
þykkt að hætta netaveiðinni,"
sagði Jón G Baldvinsson, formaður
Stangaveiðifélags Reykjavíkur, í
samtali við DV í gærkveldi. „Við
munum borga fyrir kílóið af laxin-
um 400 krónur í sumar svo 500
krónur með verðbótum næstu árin.
Bændur í Feijukoti vilja ekki enn-
þá ganga að þessu samkomulagi
okkar en við munum ræða áfram
við þá. Þessi suðurbakki Hvítár
þýðir það að laxinn á að geta geng-
ið óhindrað í ár eins og Grímsá,
Flókadalsá, Reykjadalsá og Þverá
og Kjarrá," sagði Jón að lokum.
Lax er veiddur í net í Borgarfirö-
inum frá 20. maí og leyft er að veiða
í þrjá og hálfan sólahring í hverri
viku til 20. ágúst.
-G.Bender
Það samkomulag sem gengið verður frá næstu daga þýðir að stöngin
mun svigna óftar í ám eins og Reykjadalsá, Flókadalsá, Grimsá, Þverá
og Kjarrá næstu sumur. DV-mynd G.Bender
Samtök ungra sjálfstæðismanna:
Gagmýna utanríkisráðherra
■ BDar til sölu
Bronco ’84 til sölu, ekinn 76.000 km,
upphækkaður, ný dekk 31", bíll í topp-
standi. Uppl. í síma 76311.
Tíu manna pickup til sölu, vél Nissan
3,3 1 turbo, 4x4, yfirbyggður og inn-
réttaður hjá Ragnari Valssyni. Uppl.
í síma 985-20758 og 92-37570.
BMW 320 ’81 til sölu, ekinn 82 þús.,
verð 380 þús. Allar uppl. á bílasölu
Guðfinns.
Allir eiga að
sitja öruggir
í bíl.
Notum bílbelti
- alltaf!
||U^FERÐAR
Suzuki Fox SJ 413, árg. ’87, upp-
hækkaður, 31" dekk, verð 570.00,
góður bíll. Uppl. í síma 673445.
Bill, bátur, motorhjól. Til sölu Chevro-
let Camaro ’83, 6 cyl., sjálfskiptur,
rafmagn í rúðum, útvarp/kassetta, ný
14 feta Skutla, klædd en vélarlaus,
Suzuki Dakar 600 ’86, ekið 3.500 km.
Uppl. í síma 34305 á daginn og 672188
eftir kl. 19.
Dodge Ramcharger 78 dísil turbo, 38"
dekk, mögul. á skuldabréfi. Uppl. í
síma 673445.
Skíðafólk - góða ferð! Þessir hentugu
skíðakassar taka 5-6 pör af skíðum
ásamt skóm o.fl. Gott verð. Mjög létt-
ir. Hjólbarðastöðin, Skeifunni 5, símar
689660, 687517.
■ Ymislegt
Frábært úrval af sokkabeltum, nælon-
sokkum, sokkaböndum, corselettum,
sexý nær- og náttfatnaði, margs konar
fyrir dömur og herra. Sjón er sögu
ríkari. Sendum í ómerktum póstkröf-
um. Romeo og Júlía.
I 3KAMHDEGIHU
Vörurnar frá okkur eru lausn á t.d.
spennu, deyfð, tilbreytingarleysi,
einmanaleika, framhjáhaldi, hættu-
legum sjúkdómum o.m.fl. Leitaðu
uppl. Opið frá kl. 10-18 mán.-föstud.,
10-16 laugard. Erum í húsi nr. 3
v/HallærispIan, 3. hæð, sími 14448.
„Það gengur auðvitað ekki aö ut-
anríkisráðherra sé með yfirlýsingar
í jafnviðkvæmum málaflokki og ut-
anríkismál eru. Hann verður tvísaga
og erfitt er að sjá hvað hann meinar
og hvað ekki,“ sagði Árni Sigfússon,
formaður Sambands ungra sjálf-
stæðismanna, en sambandið hefur
sent frá sér harðorða yfirlýsingu þar
sem orð og gerðir Steingríms Her-
mannssonar í utanríkismálum eru
harðlega gagnrýnd. Segir í yfirlýs-
ingunni að: „Óábyrgar og þver-
stæðukenndar yfirlýsingar... “
Steingríms í utanríkis- og varnar-
málum hljóti „.. .að stefna stjómar-
samstarfinu í hættu.“ En hversu
langt vill SUS ganga í að endurskoða
stjórnarsamstarfið?
„Ef ekki fæst úr því skorið hvað
utanríkisráðherra meinar og hvað
hann ætlar sér þá er það tilefni til
að endurskoða stjórnarsamstarfið,"
sagði Árni. Hann sagði að þó vissu-
lega hefðu ánægjuleg tíðindi gerst í
afvopnunarmálum á síðasta ári yrðu
menn að forðast óraunhæfar yfirlýs-
ingar. Það væri þó greinilegt að
sumir væru enn í „friðamirvana".
-SMJ
NVR OPNUNARTÍMI
Opið alla virka daga í hádeginu og á kvöldin
Um helgar: Föstudaga til kl. 02
Laugardaga frá kl. 18—02
Sunnudaga frá kl. 18-23.30
m
&hé fötíenbetú
D Kvoóinnl
‘11 ndir Lctíqartungli. Lczkjurgötu 2
_ Borðpantanir í símum 621625 og 11340. Snyrtilegur klæðnaður.