Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.1988, Síða 30
30
MIÐVIKUDAGUR 17. FEBRÚAR 1988.
LífsstHI
?
íslensk hönnun:
2000
fermetra
kúluhús
að rísa í
í Torup, Mum bæ skammt frá
ferjubænum Hundested á Sjá-
landi, hefur hópur fólks í ráöi aö
reisa stærsta kúluhús sem risiö
hefur. Húsiö á aö veröa eins kon-
ar sameign og er gert ráö fyrir
að þaö verði notað sem gróðurhús
og jafiivel veitingahús. í bígerð
er aö á vissu svæði, þar sem kúlu-
húsiö verður, muni um 90 hús
rísa þannig að úr verði lítill og
sjálfstæður byggðarHjami. A
þessu svæöi munu rösklega 200
manns búa. Byggingasamtök,
sem standa að þessari byggingu,
hafa fest kaup á stórri lóð í Torup
þar sem þessi byggðarkjarni mun
rfsa. Sá sem er í forsvari tyrir
samtök þessi, Henrik Saxe líf-
fræöingur, segir að hús þetta eigi
að verða fyrir fólk úr öllum sam-
félagshópum.
Hugmyndin að húsi þessu er
sótt til íslenska hönnuðarinsEin-
ars Þorsteins Ásgeirssonar sem
teiknað hefur nokkur svona hús
hér á landi. Danir hugsa stórt í
kringum þessi kúluhús og eru
jafnvel famir að velta vöngum
yfir því aö fjöldaframleiða þau.
Þeim finnst hönnun Einars afar
forvitnileg og segja hana minna
á geimskip. Einar hannaði húsin
með það fyrir augum aö þau
þyldu betur blástur þannig að
vindur strykist meðfram kúplin-
um í stað þess að stoppa á
homum á hefðbundnum húsum.
Þannig nær kaldur vindur frekar
að kæla venjuleg hús. Með þessu
kúluformi sparast kyndingar-
kostnaður verulega. Oft er talað
um 50%. Einnig segja kunnugir
aö byggingarkostnaður sé um
30% minni en við venjulegt hús
sé miðað við fermetrafjölda.
Fyrsta kúluhúsið reis hér á
landi fyrir átta árum. Þakið, sem
setur svo stóran svip á húsin, er
aö mestu leyti úr trégrind. í loftið
em notaðar spónarplötur og sex
tommu þykkt lag af steinull, því
næst kemur loftrúm sem fylgir
sveigjanleika þaksins, þá 15 mm
krossviðarplata og loks Sarmafil
sem er þýskhannaö plastefiú.
Sparar óhemju olíukostnað
Nokkur hús af þessu tæi hafa
nú risið hér á landi og ennþá
fieiri em í bígerð. Komið hefur í
ijós að sérstaklega hentugt er að
reisa þessi hús á landinu þar sem
kyndt er með olíu. Kúluhúsaeig-
endur á ísafirði segjast t.d. spara
70% í kyndingarkostnaði. Einar
Þorsteinn Ásgeirsson, hönnuður
húsanna, segir að sé gerö 30 ára
kostnaöaráætlun, þar sem kynd-
ingarkostnaður er útrelknaður
eftir kúnstarinnar reglum, þá
megi segja aö hönnun sem þessi
borgi hreinlega húsið upp sé mið-
að viö hefðbundiö einbýlishús.
Einar sagði að húsbyggjendur á
Akureyri, Hólmavík, Súðavik og
Akureyri væm meö i bigerð
kúluhús sem saraþykkt heföu
verið og fleiri reyndar. Þvf væri
augijóst að fólk búsett á stööum
þar sem orkukostnaður er mikill
sæktist frekar eför að byggja
kúluhús. Hvaö varðar byggingar-
kostnaö má segja að hann sé
frekar í lægri kantinum miðað
við heföbundin einbýlishús og
eigi eftir að nýtast mun betur
þegar þessi hús veröa stööluð og
byggð við svipuö skilyrði og önn-
ur hús.
-ÓTT
Stærsta garðhýsi
landsins í einkaeign
„Þaö má segja að þessi garðskáli í
kúluhúsinu sé mjög óvenjulegur
miðað við önnur garðhýsi," sagði
Ásthildur Þórðardóttir, garðyrkju-
stjóri á ísafirði, í spjalli á dögunum
um rekstur gróðurhúss norður við
heimskautsbaug þegar snjónum
kyngdi niður í höfuðborginni.
Hún hélt áfram: „Viö hjónin
ákváöum að fara út í húsbyggingu
og ég vildi hafa garðskála umfram
állt í húsinu. Kúluhústeikningin, þar
sem garðhýsið er næstum helming-
urinn að flatarmáli, varð síöan ofan
á og úr hefur orðið hjá okkur þessi
heljarmikli geimur. Lofthæðin er um
5 metrar þar sem hæst er en lækkar
að sjálfsögðu niður í ekki neitt vegna
lögunar hússins."
Hvað er það sem gerir garðskálann
frábrugðinn öðrum?
„Það er fyrst og fremst sú staðreynd
að skálinn er óupphitaöur þannig að
hann kaUast kalt gróðurhús. Lögun
hússins gerir það að verkum að ljós
og sólarhiti nær að koma inn úr öll-
um áttum þannig að inni safnast
fyrir hiti og hlýja sem nýtist betur
en í öðrum húsum. Veggirnir eru
kúptir og hrinda þannig frá sér kulda
betur en sléttir gluggafáir útveggir
og taka þess í stað inn varma gegnum
plastiö í þríhymingunum sem
mynda húsið. Skuggaáhrif eru einnig
minni og það verður stundum frekar
of heitt en hitt þannig að við verðum
að opna nokkra þríhyrninga til þess
að halda hitanum réttum. Við höfum
reyndar í bígerð áætlun þar sem
meiningin er að notast viö kvikasilf-
ursútbúnaö til að opna og loka
gluggunum."
Kalt gróðurhús, hvað felst í því?
„Munurinn er auðvitað sá að jafn
hiti ríkir ekki allt árið eins og allir
þekkja úr venjulegum gróðurhúsum.
Það má því segja að hitafar fylgi
Svefnherbergisgluggar, stofugluggar, forstofuhurð og gróðurhús, allt undir sama hatti.
nokkum veginn árstíðunum eins og
gróður utanhúss, en hitastigið er
samt miklu hærra. Það fer t.d. aldrei
niður fyrir frostmark. Já, og svo er
það sú staðreynd að pöddur og ann-
að, sem fylgir háu hitastigi, eins og
í upphituðum húsum, er óþekkt fyr-
irbæri í köldum gróðurhúsum. Það
má samt ekki skilja svo að það sé
alltaf svo kalt þama. Við sitjum úti
í skála allt fram í október og njótum
þess að vera úti í birtunni og ylnum.
Það er aöeins um háveturinn, 3-4
mánuði, sem ekki er hægt aö vera í
sumarfótunum ef svo má segja.
Garðskálinn lengir þannig sumarið
um 2-3 mánuði bæði fyrir menn og
gróður."
Hvernig þrífst gróður í köldu garð-
hýsi?
„Við höfum aðallega fjölærar
plöntim og eitthvað af einæmm. Á
þeim tíma, sem kaldast er, liggur
gróðurinn í dvala eins og gengur og
gerist utanhúss en það er bara miklu
styttri tími. Þegar ég kom heim í jól-
afrí t.d. voru rósimar enn í fullu
fjöri. Plöntur, sem varla þola við hér
á landi utanhúss, þrífast mjög vel
þarna, eins og t.d. petóníur, skógar-
Ásthildur Þórðardóttir, fjögurra barna móðir, garðyrkjustjóri á ísafirði, nem- Hér sést vel hve lofthæð er mikil. Birtan kemur óhindruð inn og skugga
andi og kúluhúseigandi, stendur hér stolt við eplatré sem örugglega á eftir gætir ekki.
að bera ávöxt.