Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.1988, Blaðsíða 31
MIÐVIKUDAGUR 17. FEBRÚAR 1988.
31
Lífsstni
Rós á Isafirði um jólin.
salvíur og pelagóníur og alparósir og
azaleur veröa fjölærar viö svona skil-
yröi. Já, svo má ég til meö að geta
Heimilið
þess að viö höfum þarna tvö dönsk
eplatré sem ég hef mikla ánægju af.
Þau eru reyndar tvö til þess aö þau
beri frekar ávöxt.“
Þaö fylgir þessu önnur ánægja en
af gróðrinum, ekki satt?
„Þaö er enginn bundinn við að hafa
gróöur í öllu sínu garðhýsi, sem við
gerum nú reyndar ekki sjálf. Það er
allstór stétt í húsinu hjá okkur. Á
stööum, þar sem hitaveitu nýtur viö,
er auðvitað rakiö aö hafa heitan pott
þar sem ekki þarf aö fara út og jafn-
vel bar. Það má líka gera ráö fyrir aö
í febrúar og mars sé hægt aö fara út
í garðhús og sitja þar í kannski 15-20
stiga hita. Þama skapast auðvitað
möguleikar sem koma vegna þess aö
sólarljósið eöa birtan vinnst svona
vel. Varminn geymist síðan í jarð-
veginum og stéttinni þannig að
hitans nýtur viö fram eftir kvöldi.
Það er ekki amalegt að sitja þarna
viö kertaljós og heyra vindinn
gnauða á plastinu sitjandi meö hvít-
vínsglas í hendi. Ég vil eindregið
hvetja fólk til þess að byggja sér
kúluhús, þetta veitir manni svo
mikla ánægju. Þaö er líka hægt að
byggja sumarbústað í þessum stíl eða
minni hús.“ -ÓTT
Kúluhúsið á ísafirði í allri sinni reisn. Garðhýsið er hægra megin. I baksýn má sjá „venjulegt" garðhús.
Kúluhús á Isafirði:
Húsið er eins
konar aukavídd
Stöðugt fleiri kúluhús hafa veriö í
byggingu undanfarin ár hér á landi
og enn fleiri sem hafa verið teiknuð
og samþykkt eru að bætast við. Þá
hefur hróður íslensku kúluhúsanna
borist út fyrir landsteinana. M.a.
birtist fyrir skömmu í hýbýlablaði
Berlingske Tidende umfjöllun um
þau á tveimur heilsíðum.
Blaðamaður fékk arkitektinn og
annan eiganda hússins til að segja
okkur frá því hvemig gengur að fara
ótroðnar slóðir í húsbyggingum á
íslandi.
Á ísafirði hefur nú risið kúluhús
allmyndarlegt sem hjónin Ásthildur
Þórðardóttir, nemi í Garðyrkjuskóla
ríkisins, og Elías Skaftason reistu
ásamt íjórum börnum sínum. Húsið
er hannað af guðfóður kúluhúsanna,
Einari Þorsteini Ásgeirssyni. Ást-
hildur og Elías höfðu þó margar
hugmyndir sem á endanum komu
fram á teikningum. Umsjón með inn-
réttingum hafði Halldór Magnússon,
húsasmíðameistari á ísafirði.
Hús þetta samanstendur af íbúðar-
hluta sem er um 120 fermetrar og
heljarstóru 110 fermetra garðhýsi. I
íbúöinni em fimm svefnherbergi,
bað, sjónvarpshol og eldhús og stofa
að sjálfsögðu.
En hvernig tilfinning skyldi það
vera að búa í kúluhúsi?
Húsmóðirin á heimilinu, sem
reyndar er nemandi í Hveragerði
sem stendur, lýsti því fyrir blaða-
manni hvernig þeim hjónum og
börnum þeirra hefur Uðið frá því að
ákvörðun var tekin um að ráðast í
þessar framkvæmdir: „Við vissum í
rauninni ekkert hvað við vorum að
fara út í. Nú er hins vegar raunin sú,
þegar byggingunni er lokið og viö
höfum búið þama í vetur, gö ekkert
neikvætt hefur komið upp. Það er í
einu orði sagt mjög gott að búa í
svona húsi. Það er eins og það gefi
manni svo mikið því okkur hefur
aldrei liðið eins vel í neinum hýbýl-
um.“
Getur þú lýst þessu betur í smáat-
riðum?
„Þetta er auðvitað eitthvað sem
maður hafði aldrei séð áður. Sjónar-
hornið er svo vítt þannig að það sést
svo víða um húsið þar sem maöur
er staddur. Húsið er eins konar auka-
vídd á allt það sem við höfum séö og
reynt um dagana. Óreglulega formið
í húsinu gerir það að verkum að okk-
ur finnst við geta verið svo frjáls. Það
er öraggt að beinu hefðbundnu lín-
umar þrengja að mannvemnni og
láta hana finnast hún vera þvinguð
að einhverju leyti. Mér verður hugs-
að til þess þegar ég sest að í svona
húsi.“
Finnst þeim sem fara framhjá ekki
forvitnilegt að sjá svona óvenjulegt
hús þarna fyrir vestan?
„Jú, mikil ósköp. Fólk þarna er
mjög forvitið og það eru margir sem
hafa komið og skoðað húsið. Meira
að segja hafa mjög margir útlending-.
m----------------------------►
Teikning Einars arkitekts af þverskurði hússins. Ibúðin er vinstra megin, garðhýsið er hægra megin.
Körfuboltafarrými?
Ekki beinlínis nafniö sem við höfðum í huga. ■ Hins vegar höfum við
sœtabilið þannig að það fœri svosem vel um körfuboltastrákana.