Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.1988, Síða 35

Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.1988, Síða 35
MIÐVIKUDAGUR 17. FEBRÚAR 1988. 35 Fólkífréttum Amór Diego Arnór Diego var Kjörinn herra ís- land á laugardaginn. Arnór er fæddur 19. nóvember 1969 í Rvík og stundar nám í Fjölbrautaskólan- um í Breiðholti. Hann hefur verið í fimleikum frá því að hann var átta ára og varð bikarmeistari ís- lands í fimleikum 1989-1986. Amór varð unglingameistari íslands í fimleikum 1983 og 1985 og keppti á Norðurlandamótinu í fímleikum 1986. Hann hefur unnið um sextíu titla í fimleikum og kennir nú eró- bikk í Dansstúdíói Dísu í Garðabæ. Arnor hefur sýnt dans frá 1983, var unglingameistari íslands í dansi 1985 og tekur nú þátt í sýningunni Allt vitlaust í Brodway. Hann var skólameistari íslands í fijálsum íþróttum 1981 og hefur sýnt í sýn- ingasamtökunum Módel ’79 frá 1987. Amór lék þrjú hlutverk í kvikmyndinni í skugga hrafnsins sumarið 1987. Unnusta Arnórs er Anna Þorsteinsdóttir, f. 10. nóv- ember 1969, nemandi í MH. Systur Arnórs em Aðalheiöur Diego, f. 6. apríl 1966 og Hlín Diego, f. 2. mars 1978. Foreldrar Amórs era Hjálmar Diego Amórsson flugumferðar- stjóri og kona hans, Anna Kristj- ánsdóttir. Föðursystkini Arnórs era Hörður, flugumferðarstjóri í Rvík, kvæntur Emmu Magnús- dóttur, Halldóra, gift Amgeiri Lúðvíkssyni, framkvæmdastjóra flutningasviðs Amarflugs, Jóhann, garðyrkjuhönnuður í Rvík, kvænt- ur Jennýju Jónsdóttur, Alma, gift Ævari Gestssyni, verkstjóra í Stykkishólmi, og Guðfinna, gift Karvel Jóhannssyni, fram- kvæmdastjóra í Stykkishólmi. Föðursystkini Amórs sammæðra era Brynhildur Kristinsdóttir, gift Brynjólfi Arnórssyni, b. á Vöðlum í Onundarfirði, Selma Kristins- dóttir, ritari lögfræðings Lands- bankans, og Vilma Mar, gift Erling Ottóssyni, vélavinnumanni í Rvík. Faðir Harðar var Arnór Diego, yflr- flugmnferöarsfjóri í Rvík, Hjálm- arsson Diego, fulltrúa toflstjóra í Rvik, Johnson Diego, skipstjóra á Gelti í Dýrafirði, frá Boston í Eng- landi, ættaður frá Frakklandi, af enskum, frönskum og spænskum ættum. Móðir Arnórs var Halldóra, systir Jasonar, fóður Benedikts kristniboða. Halldóra var dóttir Sigurðar, b. á Steinhólum í Grannavík, Ebenezerssonar. Móð- ir Sigurðar var Guðrún Jörands- dóttir, b. á Eyri í Ingólfsfirði, Guðmundssonar, b. á Finnboga- stöðum, Bjamasonar, ættfoður Finnbogastaðaættarinnar, langafa Magnúsar, afa Magnúsar Óskars- sonar borgarlögmanns. Móðir Hjálmars yngra var Guðfinna Vil- hjálmsdóttir, bæjarpósts á ísafirði, Jónssonar og konu hans, Sesselju, systur Péturs, afa Ólafs Þ. Þórðar- sonar alþingismanns og Kjartans Ólafssonar, fyrrv. alþingismanns. Sesselja var dóttir Sveinbjamar, b. á Botni í Súgandafirði, Pálsson- ar. Móðir Sesselju var Guðmund- ína, systir Jóhönnu, ömmu Guðmundar Kjærnested skip- herra. Guömundína var dóttir Jóns, b. á Kirkjubóli í Skutulsflrði, Hafldórssonar, b. í Fremri-Amar- dal, Ásgrímssonar, b. í Amardal, Bárðarsonar, b. í Arnardal, niuga- sonar, ættfóður Amardalsættar- innar. Móðir Guömundínu var Rannveig Ólafsdóttur, systir Mál- fríðar, langömmu Bjama, afa Þrastar Árnasonar, Evrópumeist- ara unglinga í skák. Bróðir Rannveigar var Sveinn, langafi Páls Magnússonar fréttastjóra og Axels Ammendrap blaðamanns. Móðursystkini Amórs era Margrét íþróttakennari, gift Hann- esi Thorarensen rannsóknarlög- reglumanni, Óskar húsasmíða- meistari, kvæntur Bimu Ámadóttur, og Kristleifur, læknir í Georgíu í Bandaríkjunum, kvænt- m- Bjamveigu Bjamadóttur. Faðir Önnu er Kristján, verkamaður í Rvík, Amgrímsson, b. á Höfða í Eyrarsveit, Magnússonar, b. í Syðri-Knarrartungu, Jónssonar, bróður Gróu, langömmu Sigríðar, móður Friðriks Ólafssonar stór- meistara. • Móðir Magnúsar var Guðbjörg Magnúsdóttir, systir Jóns Norðfjörð beykis, langafa Helgu, ömmu Matthíasar Johann- essen skálds. Móðir Guðbjargar var Gróa Sigurðardóttir, systir Eg- ils, langafa Ölafs, afa Jóns Baldvins Hannibalssonar. Móðir Önnu var Aðalheiður Friðriksdóttir, b. á Litlateigi á Akranesi, Bergssonar í Bergsbæ í Ólafsfirði, Jónssonar. Móðir Aðalheiðar var Steinvör Guðmundsdóttir í Holtum í Ásum, Benediktssonar. Afmæli Kjartan Ólafsson Kjartan Ólafsson frá Strandaseli, til heimilis aö Birkihvammi 8, Kópavogi, er sjötíu og fimm ára í dag. Kjartan fæddist að Strandaseli í Ögurhreppi við ísafjarðardjúp. Hann lauk prófi frá Héraðsskólan- um á Laugarvatni og síöar frá Samvinnuskólanum 1933. Kjartan var verslunarstjóri um tuttugu ára skeið, fyrst hjá Kaupfélagi Arnes- inga á Selfossi og síðar Kaupfélagi Hafnfirðinga. Þá var hann starfs- maður hjá Samvinnubanka íslands frá stofnun hans og síðustu árin fulltrúi þar. Kjartan hefur starfað mikið að bindindismálum, auk þess sem hann hefur verið mikill áhuga- maður um ferðalög og ferðamál. Hann starfaði í ungmennafélögum í Norður-ísafjarðarsýslu og í Ár- nessýslu. Kjartan tók sæti í framkvæmdanefnd Stórstúku ís- lands 1961, varð stórriddari 1963 og framkvæmdasfjóri Stórstúku ís- lands sama ár. Hann hefur verið fulltrúi IOGT á mótum og þingum erlendis, auk þess sem hann hefur verið í stjórn Norræna bindindis- sambandsins og fulltrúi íslands í Norræna góðtemplararáðinu. Þá hefur Kjartan setið í stjóm reglu musterisriddara í tuttugu og fimm ár. Kona Kjartans var Kristjana Guörún Bjarnadóttir frá Ögumesi, f. 11.11. 1911, d. 5.6. 1985. Kjartan og Kristjana eignuðust fimm böm. Þau eru: María Erla bóksali, f. 30.1.1936; Bolli, fv. bæjar- stjóri á ísafirði, f. 31.8.1937; Einar, deildarstjóri hjá SÍS, f. 18.10. 1941; Guðríður, skrifstofustúlka og hús- móðir, f. 19.11. 1948; Halldór skrif- stofumaður, f. 22.11. 1951. Foreldrar Kjartans: Ólafur Kr. Þórðarsoh, b. að Strandaseli og kona hans, Guðrún Hafliðadóttir. Meðal systra Kjartans er Sólveig, kona Hannibals, fv. ráðherra, og móðir Jóns Baldvins íjármálaráð- herra. Önnur systir Kjartans er Guðrún, móðir Jóns Helgasonar, formanns Einingar á Akureyri, og Friðfinns, forstjóra Háskólabíós, foður Björns, aðstoðarmanns Jóns Sigurðssonar, dóms- og kirkju- málaráðherra. Föðurforeldrar Kjartans vora Þórður, b. á Hjöllum í Skötufirði, Gíslason, og Guðrún Ólafsdóttir, b. á Skjaldfónn, Jóns- sonar og konu hans, Jóhönnu Egilsdóttur, b. í Bakkaseli, Sigurð- arsonar réttláta á Gilsfjarðarmúla, Jónssonar. Móðurforeldrar Kjart- ans voru Hafliði, vegghleðslumaö- ur Jóhannesson, bróðir Hannibals, afa Hannibals ráðherra og Þóra Rósinkransdóttir, b. á Svarthamri, bróður Sigurðar, afa Jóns Bald- vinssonar, fyrsta formanns Al- þýðuflokksins, og langafa Ingigerðar, móður Þorsteins Páls- sonar. Engilbert Guðjónsson Engilbert Guðjónsson múrara- meistari, Garðabraut 31, Akranesi, er sjötugur í dag. Engilbert fæddist að Vogatungu í Leirársveit og ólst þar upp hjá foreldrum sínum. Hann flutti á Akranes um áramótin 1940-41 og fór fljótlega í múrara- nám sem hann lauk 1947. Engilbert hefur stundað múrverk þar til fyrir sjö árum að hann gerðist húsvörð- ur við Fjölbrautaskóla Vesturlands og þar starfar hann enn. Engilbert var formaöur Múrarafélags Akra- ness um skeið og sat í stjórn Múrarasambands íslands í nokkur ár. Fyrri kona hans var Eva Laufey Eyþórsdóttir, f. 27.2. 1918, d. 9.9. 1957. Börn þeirra eru: Halldóra, f. 18.7.1940, gift Rögnvaldi Þorsteins- syni frá Sauðárkróki, starfsmanni á Grandartanga, en þau búa á Akranesi og eiga þrjú börn; Sess- elja Sveinbjörg, f. 28.7. 1942, gift Þórði Árnasyni málarameistara, en þau búa á Akranesi og eiga tvö böm; Guðrún, f. 23.2.1944, gift Birni Inga Finsen, kennara við Fjöl- brautaskólann á Akranesi, en þau búa á Akranesi og eiga þrjú börn; Hugrún, gift Stefáni Gunnlaugs- syni, framkvæmdastjóra Bautans á Akureyri, en þau búa á Akureyri og eiga fiögur börn; Guðjón mál- arameistari, f. 12.2.1955, en hann á tvö börn, er búsettur i Reykjavík og er nú til sjós Seinni kona Engilberts er Guð- rún Jónsdóttir, f. 21.10. 1933, en sonur hennar og stjúpsonur Engil- berts er Jón, f. 26.9.1958, læknir í framhaldsnámi í Svíþjóð, kvæntur Jónínu Sanders hjúkrunarfræö- ingi. Börn Engilberts og Guðrúnar era Óli Páll, f. 8.10. 1961, bókbind- ari, en hann á eiit bam og er í sambúð með Sigríöi Einarsdóttuf frá Sauðárkróki og búa þau á Akra- nesi; og Birgir, f. 30.1.1965, en hann er múrari, búsettur á Akranesi. Engilbert á sjö systkini. Foreldrar Engilberts: Guöjón, b. í Vogatungu, Jónsson og kona hans, Hálldóra Böðvarsdóttir. For- eldrar Halldóru vora Böðvar, b. í Yogatungu, Sigurðsson og Halla Árnadóttir. Föðurforeldrar Engil- berts voru Jón, ráðsmaður á Hvanneyri, sonur Þórðar Jónsson- ar og Helgu Gísladóttur, vinnuhjúa á Geitabergi í Svínadal, og kona hans, Guðbjörg, dóttir Halldórs Halldórssonar og Guðbjargar Er- lendsdóttur, hjóna í Gröf í Lundar- reykjadal. Engilbert tekur á móti gestum í Kiwanishúsinu á Akranesi, laugar- daginn 20. þ.m. eftir klukkan 19. 50 ára 75 ára Helga Valdemarsdóttir, Skúlagotu 76, Reykjavík, er sjötíu og fimm ára í dag 70 ára________________________ Símon Símonarson skipstjóri, Vall- holti 19, Akranesi, er sextugur í dag. Jón Rafn Siguijónsson, Miklubraut 30, Reykjavík, er fimmtugur í dag. Haraldur Henrysson, Máshólum 15, Reykjavík, er fimmtugur í dag. Svanhildur Sigurðardóttir, Stíflu- seli 6, Reykjavík, er fimmtug í dag. Áskell Jónasson, Þverá, Reyk- dælahreppi, er fimmtugur í dag. 40 ára Hermann Bjarnason, Dalseli 13, Reykjavík, er fertugur í dag. Guðmundur G. Guðmundsson, Grettisgötu 79, Reykjavík, er fer- tugur í dag. Kristín Jónsdóttir, Fjarðarási 15, Reykjavík, er fertug í dag. Elín M. Hjartardóttir, Fjarðarási 3, Reykjavík, er fertug í dag. Sigurður Gestsson Sigurður Gestsson, b. aö Mörk H, Hvammstangahreppi, er sjötugur í dag. Sigurður er sonur Gests Ebe- nesarsonar og Magnhildar Þór- veigar Árnadóttur. Foreldrar Magnhildar vora Vilborg Pálsdótt- ir og Árni Magnússon, búsett á Akranesi. Foreldrar Gests vora Ebeneser Ámason og Ingibjörg Gestsdóttir. Þau Gestur og Magn- hildur Þórveig eignuðust dóttur auk Sigurðar, Kristjönu að nafni, en hún andaðist fyrir fimmtán árum. Sigurður Gestsson kvæntist árið 1947, Unni, f. 18.5. 1920, frá Gröf á Vatnsnesi, dóttur Ágústs Jakobs- sonar, b. þar, og konu hans, Helgu Jónsdóttur, en Ágúst og Helga eignuðust níu börn sem öll eru á lífi. Foreldrar Helgu voru Jón Egg- ertsson og Þóra Jóhannesdóttir á Ánastöðum í sömu sveit, en for- eldrar Ágústs voru Jakob Gíslason _ og Sigurbjörg Árnadóttir á Þverá í ’ Vesturhópi. Böm þeirra Sigurðar og Unnar eru fiögur: Helga, býr í Reykjavík, gift Sævari Snorrasyni, en þau eiga son og þrjár dætur og tvo dætra- syni; Jón, er bóndi á Sæbóli í Hvammstangahreppi, en kona hans er Laufey Jóhannesdóttir og eiga þau dóttur saman; Magnhild- ur, býr í Reykjavik með Níelsi Hafstein og eiga þau einn son; Ágúst, býr á Hvammstanga, kvæntur Þuríði Þorleifsdóttur og eiga þau tvo syni. Benedikt Guðmundsson Benedikt Guömundsson, Hring- braut 50, Reykjavík, er sjötíu og fimm ára í dag. Benedikt fæddist í Efri-Dal í Ögursveit í Noröur-ísa- fiarðarsýslu og ólst upp í foreldra- húsum að Hrafnabjörgum í sömu sveit. Hann fór á unglingsáranum að Múla í Nauteyrarhreppi til Stur-. laugs Einarssonar og Guðrúnar Kristjánsdóttur, en þau styrktu hann til skólagöngu á Hvanneyri og lauk hann búfræðiprófi þaðan 1936. Eftir prófið var Benedikt um tíma hjá bróður sínum að Hrafna- björgum og aðstoöaði hann við búskapinn en fór síðan að Bakka í Hnífsdal þar sem hann var í hálft annað ár. Benedikt gifti sig síðan og fór að búa aö Kirkjubóli í Korpudal þar sem hann var í fiögur ár. Benedikt bjó síðan að Veðrará í Önundarfirði í tíu ár en flutti síö- an til ísafiarðar þar sem hann stundaði almenn verkamannastörf og sjómennsku. Til Reykjavíkur kom hann 1975 og dvelur nú á Elli- og fljúkranarheimilinu Grand. Fyrri kona Benedikts var Sigur- lína, f. 12.12.1904, d. 1.8.1948, dóttir Guðmundar, b. að Bæ í Staðardal, Sigurðssonar og Arínu Þórðardótt- ur. Benedikt og Sigurlínu varð ekki barna auðið. Seinni kona Bene- dikts var Aöalheiður Bergþóra, f. 9.8. 1922, d. 1987, dóttir Líkafróns, b. aö Hrafnsfiarðareyri í Jökul- fiörðum og síðar verkamanns á Isafirði, Sigurgarðarssonar og Bjameyjar Guömundsdóttur. Benédikt og Aöalheiður eignuð- ust fiögur böm. Þau era: Sigurlína María, húsmóðir á Húsavík, f. 29.9. 1950, gift Jóni Sigurössyni for- stjóra, en þau eiga þijú böm; Soffia Dagbjört, f. 8.10. 1951, sem bjó í Reykjavík en er látin; Þorsteinn Líkafrón, verkamaöur á Dalvík, f. 22.12.1952, kvæntur Friðriku Jón- mundsdóttur, en þau eiga þrjár telpur; Gunnar Líkafrón, múrari í Reykjavík, f. 13.12. 1953, kvæntur Hrönn Jóhannesdóttur fóstra. Benedikt var yngstur átta syst- kina en á nú eina systur á lífi, Sigríði, húsmóður á Akranesi, ekkju eftir Jón Einarsson sjómann. Foreldrar Benedikts vora Guö- mundur, vinnumaður á Bjama- stöðum og b. í Efstadal, Samúels- son, f. 23.10. 1865, og kona hans, Sigríður Þorsteinsdóttir, f. 8.7.1870. Sigríöur var dóttir Þorsteins, b. að Hrafnabjörgum og síöar vinnu- manns aö Skarði, Einarssonar, Magnússonar og konu hans, Söra Benediktsdóttur frá Snæfialla- strönd, Bjömssonar. Guðmundur var sonur Samúels, húsmanns og b. aö Kleif í Mjóafirði, Magnússon- ar, b. að Brekku í Langadal.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.