Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.1988, Side 33
FÖSTUDAGUR 4. MARS 1988.
49
Fólk í fréttum
Ingibjörg Haraldsdóttir
Ingibjörg Haraldsdóttir rithöf-
undur fékk Menningarverölaun
DV á flmmtudaginn fyrir þýöingu
sína á Fávitanum. Ingibjörg er
fædd 21. október 1942 í Rvík og
varð mag. art. í kvikmyndastjóm
frá kvikmyndaháskólanum í
Moskvu 1969. Hún var við leik-
hússtörf í Teatro Estudio í Havana
á Kúbu 1970-1975 og var kvik-
myndagagnrýnandi Þjóöviljans
1976-1985 og blaöamaður þar
1978- 1981. Ingibjörg hefur verið í
ritnefnd Tímarits Máls og menn-
ingar frá 1977, formaður Vináttufé-
lags íslands og Kúbu frá 1977 og
var í miðstöð Rauðsokkahreyfing-
arinnar á íslandi 1978-1980. Hún
var í undirbúningsnefnd kvik-
myndahátíðar listahátíðar
1979- 1980 og stundakennari í
þýskri kvikmyndagerð við HÍ1979,
1980 og 1982. Ingibjörg er höfundur
Ijóðabókanna Þangað vil ég fljúga,
1974, og Orðspor daganna, 1983.
Hún hefur þýtt eftirtaldar bækur:
Manuel Scorza: Rancas - þorp á
heljarþröm, 1980; Mikhaíl Búlga-
kof: Meistarinn og Margaríta, 1981;
Manuel Scorza: Hinn ósýnilegi,
1982; Leikvöllurinn okkar, barna-
saga frá Venezúela, 1983; Fjodor
Dostojevskí: Glæpur og refsing,
1984; Fávitinn, I. bindi, 1986 og 2.
bindi 1987; Fjöður hauksins hug-
prúða og fleiri rússnesk ævintýri,
1987. Meðal leikrita, sem Ingibjörg
hefur þýtt, eru Nornin Baba-Jaga,
1979; Antonía Scarmeta: Brennandi
þolinmæði, 1986, og Anton Tjekov:
Vanja frændi, 1988.
Ingibjörg giftist 1966 Idelfonso
Ramos Valdés, kvikmyndaleik-
stjóra á Kúbu, þau skildu 1977.
Sonur Ingibjargar og Idélfonso er
Hilmar Ramos, f. 13. júní 1975. Ingi-
björg giftist aftur 2. apríl 1981 Eiríki
Guðjónssyni bankafulltrúa, f. 15.
janúar 1954. Foreldrar hans eru
Guðjón Einarsson, skrifstofustjóri
hjá Vouge, og kona hans, Kristin
Eiríksdóttir kennari. Dóttir Ingi-
bjargar og Eiríks er Kristín, f. 3.
nóvember 1981. Systkini Ingibjarg-
ar eru Rannveig, f. 17. febrúar 1945,
rektorsritari við MS, og Þröstur, f.
1. september 1950, blaðamaður í
Rvík.
Foreldrar Ingibjargar eru Har-
aldur Björnsson, verka-, sjó- og
afgreiðslumaður í Rvík, og kona
hans, Sigríður Elísabet Guðmunds-
dóttir. Haraldur er sonur Bjöms,
húsasmiðs í Ytri-Fagradal og í
Rvík, Friðrikssonar, b. á Gestsstöð-
um í Tungusveit, Magnússonar, b.
á Skáldsstöðum í Reykhólahreppi,
Jónssonar, bróður Sigurðar, lang-
afa Geirs Hallgrímssonar seðla-
bankastjóra. Móðir Magnúsar var
Guðrún, systir Sigríðar, ömmu
Matthíasar Jochumssonar skálds.
Guðrún var dóttir Ara, b. á Reyk-
hólum, Jónssonar og konu hans,
Helgu Árnadóttur, prests í Gufu-
dal, Ólafssonar, lögsagnara á Eyri,
Jónssonar, langafa Jóns forseta.
Móðir Björns var Ingibjörg Björns-
dóttir, b. á Klúku í Miðfirði, bróður
Sæmundar, langafa Jóhönnu, móð-
ur Huldu Jensdóttur, forstöðukonu
Fæðingarheimilis Reykjavíkur.
Systir Bjöms á Klúku var Ólöf,
langamma Gríms, langafa Vigdísar
Grímsdóttur rithöfundar. Sæ-
mundur var sonur Björns, prests í
Tröllatungu, Hjálmarssonar og
konu hans, Valgerðar Björnsdótt-
ur, systur Finnboga, langafa.
Finnboga Rúts, fóöur Vigdísar for-
seta. Móðir Ingibjargar var Helga,
systir Guðlaugar, ömmu Snorra
Hjartarsonar skálds. Helga var
dóttir Sakaríasar, b. á Heydalsá,
Jóhannssonar, prests á Brjánslæk,
Bergsveinssonar, föður Guðrúnar,
langömmu Ólínu, ömmu Jóns Atla
Kristjánssonar, forstjóra OLÍS.
Móðir Haraldar var Ingibjörg Har-
aldsdóttir, b. á Hvalgröfum á
Skarðsströnd, Brynjólfssonar, b. í
Kjörvogi, Jónssonar. Móðir Brynj-
óífs var Hólmfríður Jónsdóttir,
systir Steinunnar, langömmu Þór-
halls, fóður Ólafs Gauks. Bróöir
Hólmfríðar var Þórður, langafi
Friðjóns Þórðarsonar alþingis-
manns og Gests, fóöur Svavars
alþingismanns. Móðir Ingibjargar
var Septemborg Loftsdóttir, b. á
Víghólsstöðum, Jónssonar, bróður
Saura-Gísla og Jóhönnu,
langömmu Jóhannesar Gunnars-
sonar, formanns Neytendasamta-
kanna.
Meðal móðursystkina Ingibjarg-
ar eru Emma, móðir Gunnars
Kristjánssonar, prests á Reynivöll-
um, og Friðrikka, móðir Hafsteins
Austmanns listmálara. Sigríður er
dóttir Guðmundar, verkamanns í
Rvík, Magnússonar, bróður Jóns,
fóður Guðgeirs, bókbindara og for-
seta ASÍ. Móðir Guðmundar var
Ingibjörg Haraldsdóttir.
Ingibjörg Jónsdóttir, systir Jóns,
langafa Friðmeyjar, móður Krist-
ínar Ástgeirsdóttur varaþing-
manns. Móðir Ingibjargar var
Agatha Einarsdóttir, b. á Fremra-
Hálsi, Bjömssonar. Móöir Einars
var Úrsúla Jónsdóttir, b. á
Fremra-Hálsi, Ámasonar, ættfóður
Fremra-Hálsættarinnar. Móðir
Sigríðar var Rannveig Majasdóttir,
sjómanns í Bolungarvík, Elíasson-
ar og konu hans, Sólveigar Jóns-
dóttur.
Geirmundur Júlíusson
Kona Geirmundar er Guðmunda
Regína, dóttir Sigurðar Þorkels-
sonar, útvegsbónda frá Látrum í
Aðalvík, og Ólínu Sigurðardóttur,
Gíslasonar, útvegsbónda að Látr-
um í Aðalvík.
Geirmundur og Guðmunda Reg-
ína eiga sjö börn. Þau eru Halldór,
bifreiðarstjóri á ísaflrði, f. 29.1.
1930, kvæntur Guðnýju Eygló Her-
mannsdóttur frá Látrum í Aðalvík,
og eiga þau séx börn og sex barna-
börn; Gunnar, húsgagnasmiður í
Kópavogi, f. 15.4. 1931, kvæntur
Gunnhildi Magnúsdóttur frá
Reykjafirði við Djúp, og eiga þau
flmm börn og átta barnabörn; Geir,
sjómaður í Sandgerði, f. 25.5.1932,
kvæntur Sigríði Sigfúsdóttur frá
Þórshöfn, og eiga þau íjögur börn
og átta barnabörn; Helgi sjómaður,
f. 17.11.1934, kvæntur Ernu Magn-
úsdóttur frá ísafirði, og eiga þau
sex börn og þrjú barnabörn; Ásta-
hildur, húsmóðir í Ólafsvík, f. 19.6.
1936, gift Kristófer Edilonssyni, bif-
reiðarstjóra í Ólafsvík, og eiga þau
fjögur börn og þrjú barnabörn;
Baldur, skrifstofumaður hjá Mjólk-
ursamlagi ísfirðinga á ísafirði,
kvæntur Karitas Pálsdóttur frá
ísafirði, og eiga þau fjögur börn og
þrjú barnabörn, auk þess sem
Baldur á eína dóttur frá því fyrir
hjónaband og á hún tvö börn; Karl,
framkvæmdastjóri á ísafirði, f. 13.3.
1939, kvæntur Rannveigu Hjaltad-
óttur frá Dalvík, og eiga þau þrjú
börn.
Geirmundur átti ellefu systkini
en tvö þeirra eru látin, þau Jón
Ólafur og Júlíana Guðrún. Eftirlif-
andi systkini hans era Guöfmna
Ingibjörg, Sigurlína Élísa, Jóhann
Hermann, Guðmunda Sigurfljóð,
Guðmundur Snorri, Þórður Ingólf-
ur, Júdit Fríða, Betúela Anna og
Guömundur Þórarinn.
Foreldrar Geirmundar vom Júl-
íus Geirmundsson, f. á Látranesi
85 ára Sigríður Jónsdóttir, Birkigrund 33, Kópavogi, er sjötíu og fimm ára í dag.
Lóra Ólafsdóttir, Leirubakka 18, Reykjavík, er áttatíu og fimm ára í dag. 70 ára
80 ára Guðný Einarsdóttir, Geitlapdi 6, Reykjavík, er áttræð í dag. Margrét Víglundsdóttir, Sundabúð 2, Vopnafirði, er áttræö í dag. Fríða Pétursdóttir, Hvassaleiti 58, Reykjavik, er sjötug í dag. Jón Pétursson, Álftamýri 2, Reykja- vík, er sjötugur í dag. Stefán Egilsson, Hafnargötu 82, Kefla- vík, er sjötugur í dag. Júliana Ólafsdóttir, Strandgötu 17, Patreksfirði, er sjötug í dag.
75 ára 60 ára
Björn Guðmundsson, Miðtúni 2, Reykjavik, er sjötíu og fimm ára í dag. Guðrún Þ. Sigurðardóttir, Frakkastíg 13, Reykjavík, er sextug í dag.
Geirmundur Júlíusson trésmið-
ur, Strandgötu 17, Hnífsdal, er
áttræður í dag. Geirmundur fæd-
dist á Atlastöðum í Fljótavík og fór
tæplega eins árs í fóstur til afa síns
og ömmu, Geirmundar Guðmunds-
sonar og Sigurlínu Friðriksdóttur,
en þau bjuggu þá að Stakkadal í
Aðalvík. Skömmu síðar fluttu þau
að Borg í Skötufirði en 1911 fluttu
þau til Atlastaða í Aðalvík þar sem
afi hans hafði byggt sér bæ í ná-
býli við Júlíus son sinn. Geirmund-
ur fór svo aftur til foreldra sinna,
ásamt ömmu sinni, þegar afi hans
andaðist 1921.
Geirmundur var fimmtán ára
þegar hann byrjaöi á vertíð á Látr-
um en í þá daga var ekki róiö frá
Fljótavík. Hann flutti svo að Látr-
um 1929 og stundaði þar búskap og
sjóróðra. Geirmundur flutti svo
aftur til Atlastaða áriö 1938 og
byggði sér þar nýbýh sem var kall-
að Skjaldbreið. Húsið byggði hann
sjálfur og er það aö mestu leyti
smíðað úr rekaviði. Geirmundur
reri með línu á Utlum árabát. Hann
keypti svo fimm tonna trillu 1945
og sótti á henni frá Látrum en flutti
ári síðar til Hnífsdals. Þar varð
hann fyrir því óláni að missa bát-
inn sinn er hann slitnaöi upp í
sunnanroki og eyðilagðist.
Geirmundur stundaði þá sjó-
mennsku á vélbátum frá Hnífsdal
og vann síðar í fiski í hraðfrysti-
húsinu í Hnífsdal en 1958 stofnaði
hann ásamt öðrum Trésmiðjuna
hf. í Hnífsdal og annaðist rekstur
hennar frá 1963-84. Þá tók sonar-
sonur Geirmundar við rekstrinum
en Geirmundur starfar enn við tré-
smiðjuna þegar heilsan leyfir.
Geirmundur var formaður Bygg-
ingarfélags verkamanna í Hnífsdal
í mörg ár en hann hefur byggt þar
marga bústaði verkamanna, auk
annarra bygginga, smárra sem
stórra.
Afmæli
Guðrún Valdimarsdóttir
an.
Geirmundur Júlíusson.
Guðrún Valdimarsdóttir,
Hamrahlíð 17, Reykjavík, er sjötíu
og fimm ára í dag. Hún fæddist að
Lambanesi í Saurbæjarhr. í Dala-
sýslu, dóttir Valdimars Guö-
brandssonar og Guönýjar
Stefánsdóttur. Valdimar var sonur
Guðbrands í Stykkishólmi, Jóns-
sonar, b. í Miklagarði í Saurbæj-
arhr. í Dölum, Jónssonar og konu
Guðbrands, Guörúnar Gottskálks-
dóttur, b. í Þormóðsey, Guðbrands-
sonar.
Guðrún flutti til Reykjavíkur
með foreldrum sínum 1929 en þar
gifti hún sig og hefur búið þar síð-
Guörún eignaðist fimm börn og
eru þrjú þeirra á lífi. Þau eru: Vald-
imar, búsettur í Sandgeröi, starfs-
maður hjá íslenskum aöalverktök-
um á Keflavíkurflúgvelli; Ingi
Rúnar, skipstjóri í Hafnarfirði; og
Guðný, húsmóðir í Hafnarfirði.
Ömmubörn Guðrúnar eru nú orðin
tíu en langömmubörnin tólf. •
Guðrún átti fjögur systkini sem
öll eru látin. Þau voru: Ólöf Ste-
fanía, saumakona i Reykjavík;
Valentínus Ólafur, bifreiöarstjóri í
Reykjavík; Aðalheiður Ingibjörg,
húsmóðir í Reykjavík; og Valdís.
Guðjón Finndal Finnbogason
að Látrum í Aöalvík 5.6. 1884, og
kona hans, Guðrún Jónsdóttir, f.
að Steinstúni í Árneshreppi 18.6.
1884. Móðurforeldrar Geirmundar
voru Jón Guðmundsson, húsmað-
ur á Steinstúni, f. 1854, og kona
hans, Elísa Ólafsdóttir frá Osi, Ól-
afssonar. Foreldrar Jóns voru
Guðmundur Ólafsson á Dröngum
og kona hans, Guðrún Sigurðar-
dóttir. Foreldrar Guðmundar voru
Óíafur Andrésson á Eyri í Ingólfs-
firði og kona hans, Guðrún Björns--
dóttir. Guðrún, kona Guðmundar,
var dóttir Siguröar á Dröngum,
Alexíussonar.
Föðurafi Geirmundar var sonur
Guðmundar, b. í Kjaransvík,
Snorrasonar, b. í Hælavík, Bry-
njólfssonar, og konu Guðmundar,
Sigurfljóðs ísleifsdóttur, b. á He-
steyri, ísleifssonar. Kona Snorra
var Elísabet Hallvarðsdóttir. For-
eldrar Sigurlínu voru Friðrik, b. í
Neðri-Miðvík, sonur Jóns, b. þar,
Jónssonar og Helgu Þorgilsdóttur,
og kona Friðriks, Júdit Jónsdóttir
á Sléttu, Jónssonar.
Sigmundur P. Lárusson, Langagerði
86, Reykjavík, er sextugur í dag.
Gísli Búason, Ferstiklu II, Strandar-
hreppi, er sextugur í dag.
Geirfríður Sigurgeirsdóttir, Gránufé-
lagsgötu 39, Akureyri, er sextug í dag.
Sigrún Jóhannsdóttir, Skarðshlíð
31A, Akureyri, er sextug i dag. Hún
tekur á móti gestum eftir klukkan tutt-
ugu á afmælisdaginn í húsi Karlakórs
Akureyrar, að Óseyri 6.
Sigurður Eyjólfsson, Árbakka 9, Seyð-
isfirði, er sextugur í dag._________
50 ára______________________________
Justiniano N De Jesus, Hvassaleiti 28,
Reykjavik, er fimmtugur í dag.
Erla Þorgeirsdóttir, Kópnesbraut 19,
Hólmavík, er fimmtug í dag.
Guöjón Finndal Finnbogason
iðnverkamaður, Bakkavegi 8,
Hnífsdal, er fimmtugur í dag. Guð-
jón fæddist á Atlastöðum í Fljóta-
vík í Sléttuhreppi. Þar ólst hann
upp til átta ára aldurs. Þá flutti
hann með foreldrum sínum og öðr-
um ættmennum til Hnífsdals, árið
1946, en þar með fór Fljótavíkin í
eyði.
Guðjón fór að vinna fyrir sér
fljótlega eftir fermingu og starfaði
mest í fiskvinnslu þar til hann flutti
til Reykjavíkur 1965. Hann var bú-
settur í Reykjavík í sautján ár og
starfaði þá m.a. í Ofnasmiðjunni í
fimm ár og var „plötusnúður" hjá
fyrirtækinu Brauð hf. í átta ár en
þaöan á hann góðar minningar.
Hann flutti svo aftur vestur í Hnífs-
dal þar sem hann býr enn.
Guðjón á eina alsystur og einn
hálfbróður, sammæðra. Systir
hans er Finney, húsmóðir í Reykja-
vík, f. 1944, gift Ólafi Theodórssyni
verkfræðingi. Bróöir hans er Geir
Garðarsson, verslunarmaður á
Akureyri, f. 1936, kvæntur Ragn-
heiði Jónsdóttur húsmóður.
Foreldrar Guðjóns: Finnbogi, b. á
Atlastöðum og síðar sjómaður í
Hnífsdal, Jósepsson, f. 1913, og
Anita Friðr-iksdóttir, f. 1915, d. 1984.
Finnbogi er hálfbróðir Brynhildar
Snædal, móður Þrastar Ólafssonar,
hagfræðings og framkvæmdastjóra
Dagsbrúnar. Föðurforeldrar Guð-
Leiðrétting
Þau mistök urðu í grein um Guð-
jón B. Ólafsson í Fólki i fréttum að
Á,sgeröur Jensdóttir, amma hans,
var sögð látin en hún er á hfi, níu-
tíu og sjö ára að aldri.
Guðjón Finndal Finnbogason.
jóns vom Jósep, b. á Atlastöðum,
Hermannsson og Margrét Guðna-
dóttir. Móðurforeldrar Guðjóns
voru Friðrik, b. á Ysta-Bæ að Látr-
um í Aðalvík, Finnbogason og
Þórunn Maria Þorbergsdóttir. Þó-
runn var systir Óla, afa Óla Þ.
Guðbjartssonar alþingismanns.
Guðjón og Kjartan Finnbogason
varðstjóri, faðir Magnúsar Kjart-
anssonar hljómlistarmanns, eru
systkinasynir.
Guðjón verður heima á afmæhs-
daginn.
Andlát
Óskar Kjartansson gullsmiður lést
3. mars.
Stefán Óli Albertsson, Kleppsvegi
48, Reykjavík, lést í Landspítalanum
að morgni 3. mars.
Helena Svanhvít Sigurðardóttir,
Reynimel 80, Reykjavik, andaðist í
Landakotspítala fimmtudaginn 3.
mars.
Eggert Th. Jónsson, Háaleitisbraut
155, Reykjavík, lóst 2. mars sl.