Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.1988, Blaðsíða 4
28
MÁNUDAGUR 14. MARS 1988.
Iþróttir
Körfubolti
um helgina
Úrvalsdeild:
ÞÓR-UBK
97-95 (87-87) (43-44)
Stig Þórs: Eiríkur Sigurðsson 20, Guð-
mundur Bjöntsson 20, Björn Sveinsson
17, Bjami Össurarson 9, Ágúst Guö-
mundsson 9, Jón Héðinsson 8, Konráð
Ós, - m 6, Jóhann Sigurösson 6, Ein-
ar Karlsson 2.
Stig UBK: Kristján Rafnsson 22', Krist-
inn Albertsson 17, Guðbrandur Stefáns-
son 17, Sigurður Bjarnason 13, Hannes
Nesley 11, Ólafur Adolfsson 10, Óskar
Baldursson 5.
Áhorfendur 60.
VALUR-UMFN
92-94 (49-55)
Stig Vals: Leifur Gústafsson 28, Bárð-
ur Eyþórsson 18, Einar Ólafsson 12,
Tómas Holton 12, Torfi Magnússon 6,
Jóhann Bjamason 5, Þorvaldur Geirs-
son 5, Svali Björgvinsson 4, Bjöm Zoega
2.
Stig UMFN: Valur Ingimundarson 31,
ísak Tómasson 27, Helgi Rafnsson 14,
Teitur Örlygsson 11, Ellert Magnússon
4, Sturla Örlygsson 4, Friðrik Rúnarsson
3.
Áhorfendur 110.
HAUKAR - ÍR frestað til 17.3.
UMFN .15 13 2 1329-1115 26
ÍBK 14 11 3 1094-930 22
Valur 14 8 6 1114-977 16
KR 14 8 6 1136-999 16
UMFG 14 7 7 1024-1016 14
Haukar 13 7 6 964-920 14
ÍR 13 6 7 951-977 12
Þór 15 2 13 1126-1456 4
UBK 14 1 13 807-1155 2
1. deild karla:
Tindastóll - leynir .104-83
Skallagrímur fA. 51-82
HSK - Léttir
Tindastóll... „13 12 1 1189-900 24
is .12 10 2 882-686 20
UÍA .12 10 2 823-709 20
ÍA .12 5 7 776-836 10
HSK . 12 5 7 758-817 10
Léttir .13 5 8 810-898 10
Reynir .12 2 10 699-850 4
Skallagr 12 0 12 763-1006 0
1. deild kvenna:
UMFG-ÍR..
ÍBK UMFG
ÍR - Haukar 63-59
ÍBK .. 15 12 3 895-657 24
ÍR .. 16 12 4 894-744 24
ÍS „14 10 4 665-572 20
Haukar „15 7 8 767-765 14
UMFG „16 6 10 591-756 12
UMFN „15 3 12 562-689 6
KR „15 3 12 615-806 6
Stigahæstir i úrvalsdeild:
Valur Ingimundarson, UMFN.309
Guðni Guðnason, KR.........271
Birgir Mikaelsson, KR......263
Guðmundur Bragason, UMFG 253
Henning Henningss., Haukum 218
Karl Guðlaugsson, ÍR.......216
Guðjón Skúlason, ÍBK.......214
• Valur Ingimundarson hefur
skorað flest stig í deildinni.
• Torfi Magnússon, fyrirliði Vals, reynir körfuskot í gærkvöldi, Valur Ingimundarson, fyrirliði og þjálfari UMFN, er
til varnar. DV-mynd Brynjar Gauti
Úrvalsdeildin:
Sá gamli
afgreiddi
Breiða-
blik
-Blikarnánastfallnir
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
„Gamli jaxlinn" Eiríkur Sigurðs-
son var maðurinn að baki sigri Þórs
yfir Breiðabliki er botnliðin mættust
í úrvalsdeildinni á Akureyri um
helgina. Framlengja þurfti leikinn til
að fá fram úrslit og þá fór Eiríkur á
kostum og Þórsarar geta þakkað
honum að þeir unnu sigur, 97-95.
Blikarnir komust yfir í framleng-
ingunni, 89-87, en Eiríkur jafnaði og
síðan komst Þór yfir, 93-90, er 2 mín.
voru eftir. Blikarnir jöfnuðu, 93-93,
en þá kom þriggja stiga karfa frá
Eiríki lengst utan af velli og eftir að
Blikarnir höfðu minnkað muninn í
eitt stig var það Eiríkur sem átti síð-
asta orðið og skoraði úr vítaskoti.
Blikarnir eru því nær örugglega
fallnir í 1. deild og Þórsarar eru ekki
sloppnir við fallið. Það kemur að öll-
um líkindum í þeirra hlut að leika
við næstefsta lið 1. deildar um sæti
í úrvalsdeildinni og þá leiki er Þór
ekki búinn að vinna.
Leikur Þórs og Breiðabliks var ekki
vel leikinn en ákaflega spennandi.
Aldrei munaði miklu á liðunum en
staöan i hálfleik var 44-43 fyrir Blik-
ana. Blikarnir virtust svo vera með
sigurinn í hendi sér undir lokin, þeir
leiddu, 87-84, þegar 14 sek. voru eftir
af leiknum. Bjarni Össurarson
minnkaði muninn í eitt stig þegar 40
sek. voru eftir og 14 sek. fyrir leiks-
lok skoraði Eiríkur úr vítaskoti og
tryggði Þór framlengingu.
Eiríkur var maður dagsins hjá Þór.
Guðmundur Björnsson, Björn
Sveinsson og Jón Héðinsson áttu all-
ir góða kafla og reyndar einnig
Bjarni Össurarson. Liðið lenti í mikl-
um villuvandræðum og voru 5 menn
komnir út af með 5 villur í framleng-
ingunni.
Breiðabliksliðið var jafnt en ærið
gloppótt í leik sínum. Kristján Rafns-
son var ágætur og einnig Guðbrand-
ur Stefánsson.
Spennuleikur á Hlíðarenda í gærkvöldi:
Vitaskot Valsara geigaði
- og Njarðvíkingar sluppu með nauman sigur, 94-92
Valsmenn voru aðeins hársbreidd
frá því að vinna sigur á UMFN, efsta
liði' úrvalsdeildarinnar þegar liðin
mættust áð Hlíðarenda í gærkvöldi.
Valsarar byijuöu mjög vel og kom-
ust 9 stig yfir um miðjan fyrri hálf-
leik, 25-16. Á þessum kafla var mikill
kraftur í Valsmönnum og pressuðu
þeir stíft. Þetta kostaði þó sitt og
komust margir þeirra í villuvand-
ræði strax í byrjun leiksins. Þegar
staðan var 31-22 tóku Njarðvíkingar
síðan góðan sprett og á sama tíma
versnaði hittni Valsara og innan
skamms var staðan oröin 33-33. Ge-
stimir bættu um betur og höfðu yfir
í hálfleik, 49-55. Valur Ingimundar-
son var sterkur á þessum kafla og
skoraði grimmt og jafnframt létu
Valsmenn mótlætið fara um of í
skapiö á sér.
Valsmenn sýndu klæmar í byrjun
síðari hálfleiks og náöu að jafna.
Munaði þar mest um stórleik Bárðar
Eyþórssonar sem skoraði fjórar 3ja
stiga körfur í röð. Það sem eftir var
skiptust liðin á að skora, Njarðvík-
ingar þó oftást á undan, þar til
Valsmenn komust yfir, 87-63, þegar
4 mín. voru eftir.
Gífurleg spenna var á síðustu mín-
útum leiksins. Þegar ein mínúta var
eftir var staðan 89-90. Leifur Gústafs-
son kom Völsurum yfir með 2 stigum
úr vítum. ísak Tómasson skoraöi
þegar 30 sek. lifðu af leik og Svah
Björgvinsson jafnaði með því að hitta
úr 1 vítaskoti þegar 12 sek. vom eft-
ir. Njarðvíkingar náðu boltanum og
var brotið á ísak. Hann brást ekki í
vítaskotunum og hitti úr báðum og
staðan 92-94. Valsmenn, sem voru
búnir að missa 5 menn út af með 5
villur, bmnuðu upp, Jóhann Bjarna-
son reyndi skot en hitti ekki, Arnar
Guðmundsson náði frákastinu en
brotið var á honum á síðustu sek-
úndu leiksins. Hann hafði því
möguleika á að jafna leikinn en hitti
ekki og Njarövíkingar fögnuðu sigri.
Valsliðið lék ágætlega í þessum leik
þó það dygði ekki að þessu sinni.
Leifur Gústafsson og Bárður áttu
báðir stórgóðan leik. Leifur tók fjölda
frákasta og lék mjög vel í sókninni.
Bárður átti þama einn sinn besta
leik. Hann lék vel bæði í sókn og
vörn, átti margar góðar sendingar
og skoraði auk þess fjórar 3ja stiga
körfur. Aðrir voru jafnir en villu-
vandræði settu sitt mark á liöið
þegar líða tók á leikinn. Valsmenn
eiga ekki að þurfa að örvænta og með
fleiri leikjum sem þessum ættu þeir
ekki aö verða í vandræðum með að
tryggja sér sæti í úrslitakeppninni.
' Njarðvíkingar náðu enn að hala
inn sigur og virðist fátt geta komið í
veg fyrir að þeir vinni deildina í ár.
ísak Tómasson var bestur Njarðvík-
inga að þessu sinni. Einnig var
Teitur Órlygsson sterkur, að
ógleymdum Val Ingimundarsyni
sem er oft ótrúlega drjúgur þótt lítið
virðist bera á honum í leikjum.
-gsm