Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.1988, Side 10
10
MÁNUDAGUR 28. MARS 1988.
Uflönd
Felldu sjö
manns í fyrirsát
Lik eins hinna föllnu dregið út úr bifreið á tilræðisstaðnum. Sjö féllu í fyrirs-
átinni sem talið er að skæruliðar kommúnista hafi staðið að.
Simamynd Reuter
Talið er að skæruliðar úr fylking-
um kommúnista hafi staðið að fyrir-
sát sem borgarstjóra einnar af
útborgum Manila, höfuðborgar
Filippseyja, var gerð í morgun. Sjö
aðstoðarmenn borgarstjórans voru
felldir í fyrirsátinni, en borgarstjór-
inn sjálfur komst undan, sem og einn
af aðstoðarmönnum hans.
Talið er fullvíst að tilræðismenn-
irnir hafi verið kommúnistar þar
sem aðgerðin bar öll einkenni að-
ferða morðsveita þeirra á Filippseyj-
um. Þetta er blóðugasta aðgerð sem
þeir hafa efnt til í höfuðborginni
sjálfri til þessa.
Á morgun halda kommúnistar upp
á nitján ára afmæli stofnunar skæru-
liðahers síns á Filippseyjum, Nýja
Alþýðuhersins.
Að sögn lögreglunnar særðist borg-
arstjórinn, Prospero Oreta, í árásinni
í gær. Meðal þeirra sem létu lífiö í
árásinni á bifreið borgarstjórans
voru tveir hermenn, lögreglumaður,
einn náinn aðstoðarmaður borgar-
stjórans og bifreiðarstjóri hans.
Talsmenn lögreglunnar segja að
árásin hafi verið mjög nákvæmlega
skipulögð. Sjónarvottar segja að sex
menn hafi tekið þátt í henni og að
þeir hafi beitt sjálfvirkum vopnum.
Á síðustu íimmtán mánuðum hafa
launmorðingjar kommúnista myrt'
meir en eitt hundrað lögreglumenn
og embættismenn í Manila.
Lögreglan i Moskvu lokaði í gær öllum hliðum armenska kirkjugarðsins
í Moskvu til þess að koma í veg fyrir mótmælaaðgerðir þar.
Símamynd Reuter
Armenar efna
til verkfalla
Armenar í Nagorno-Karabakh í
Sovétríkjunum hafa nú efnt til
verkfalla í mótmælaskyni viö þá
ákvörðun stjórnvalda í Moskvu að
heimila þeim ekki að snúa aftur til
Armeníu. Að sögn sovéskra fjöl-
miðla hafa verkföllin stöðvað
starfsemi flestra fyrirtækja í Step-
anakert, höfuðborg héraðsins, og
er aðeins hægt að halda mikilvæg-
ustu fyrirtækjum og þjónustu
gangandi.
Að sögn talsmanna andófsmanna
hafa staðið mótmælaaðgerðir í
borginni alla helgina en verkfóllin
þar hófust á fóstudag. Fjölmiðlar
segja hins vegar að allt sé með
kyrrum kjörum þar þótt spenna
ríki og fjölmennt lögreglulið fari í
eftirlitsferðir um borgina.
Yfirvöld í Yerevan, höfuðborg
Armeníu, báðu í gær almenning
um að taka ekki þátt í mótmæla-
göngu sem ætlunin var að halda
þar. Var þeim sem efna vildu til
slíkra aðgeröa gert að tilkynna þær
til yfirvalda með tíu daga fyrirvara.
Yfirvöld í Moskvu höfðu einnig
nokkurn viðbúnað vegna mótmæla
Armena um helgina. Meðal annars
var öllum hliðum armenska
kirkjugarðsins í Moskvu lokað af
ótta við að draga myndi til mót-
mæla og átaka við hann.
Honda Civic arg. 1986, 3ja
dyra, ek. 30 þús., sjáifsk. Verð
400.000
mm
Talbot Horizson arg. 1982, ek
42 þús. Verð 150.000
Chevrolet Citation arg. 1980.
Verð 100.000.
m m
Saab 900 GL árg. 1982, 3ja
dyra, ekinn 60.000. Verð
275.000. Ágætt ástand.
I -
,.o'
Peugeot 505 SR árg. 1982, ek.
50 þús., vökvast., sjálfsk.
Verð 350.000
Skoda 120 LS árg. 1986, hvit
ur, ek. 30 þús. Verð 140.000
MMC Sapporo GLS 2,0 arg.
1983, beinsk., vökvast., ekinn
JOFUR HF
Nýbýlavegi 2.
Sími 42600.
Galant-2,0 árg. 1980, sjálfsk
ek. 100 þús. Verð 115.000
78.000 km. Verð 350.000
Opið laugardaga 1-5. Opið virka daga 9-6
Sér
tilboð
Mitsubishi Coit árg. 1983, ek.
58 þús., 3ja dyra. Verð
215.000
Toyota Tercel 4x4 station arg.
1985, bíll í sérflokki, ekinn
41.000 km. Verð 500.000.
Alfa Romeo 33 Giardinetta
4x4 st. árg. 1987, ekinn 25.000.
Verð 630.000.
Skoda 130 L árg. 1986, topp-
luga, sportfelgur. Verð
170.000
Mazda 323 GLX árg. 1986,
ekinn 27.000 km, rauður, fal-
legur bill, sjálfsk., létt stýri.
Verð 480.000.
Volvo 244 DL árg. 1982, rauð
ur, ek. 90 þús. Verð 345.000