Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.1988, Blaðsíða 48
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu
þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt-
ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. Fyrir
besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000 krón-
ur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við
fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn - Augiýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022
MÁNUDAGUR 28. MARS 1988.
Kona varð fyrir
neðanjarðariest
Valgerður Jóharmsdóttir, DV, Londan;
Þrjátíu og fjögurra ára gömul ís-
lensk kona, Margrét Björgólfsdóttir,
slasaöist lífshættulega er hún varö
fyrir neöanjarðarlest í London síö-
astliöið miövikudagskvöld.
Margrét stóö ásamt vinkonu sinni
við annan enda brautarpallsins á
Greenpark-brautarstöðinni þegar
slysiö varö. Ekki er vitað nákvæm-
lega hvað olli slysinu en konurnar
stóöu mjög tæpt á brautarpallinum
og Margrét mun annað hvort hafa
hnotið eða beygt sig fram. Skall
framendi lestarinnar á höföi hennar.
Við höggiö þeyttist Margrét aftur á
bak og skall með hnakkann í gólíið.
Margrét var flutt á Charing Cross-
sjúkrahúsið í London þar sem hún
-Jiggur nú. Hún hefur verið meðvit-
undarlaus síðan á miðvikudags-
kvöldið en var flutt af gjörgæsludeild
í gær. Hún er hættulega slösuð,-
Foreldrar Margrétar, Björgólfur
Guðmundsson og Þóra Hallgríms-
son, eru komin til London og dvelja
hjá Ólafi Egilssyni sendiherra.
Ráðist á lög-
regluþjóna
Ráðist var á tvo lögregluþjóna er
þeir voru á varðgöngu í Austur-
stræti í fyrrinótt. Lögreglumennirnir
hugðust ræða við þrjá utanbæjar-
menn sem gengu um og lömdu á
fólki. Það skipti engum togum, ungl-
ingarnir réðust á lögregluþjónana og
mátti htlu muna að þeir hefðu þá
undir en lögregluþjónunum gafst
ekki færi á að kalla til aöstoð. Svo
fóru leikar að lögreglan yfirbugaði
árásarmennina.
Árásarmennirnir fóru í yfirheyrsl-
ur hjá Rannsóknarlögreglu ríkisins
í gær en hefur nú verið sleppt laus-
um.
-PLP
BílveKa á Reykja-
nesbraut
Bílvelta varð á Reykjanesbraut,
skammt sunnan við Álverið, klukk-
an rúmlega sjö í morgun. Bíllinn,
sem er af gerðinni Benz, valt í hálku
en engin slys uröu á mönnum.
Tvennt var í bílnum.
-JBj
Bílstjórarnir
aðstoða
.25050
ssnDiBíLnsTöÐin
LOKI
Þurfa þessir menn
ekki brjóstahaldara?
„Ég met það svo að þetta sé já-
kvætt skref hjá Steingrími og ht svo
á að með þessum fundi sé utanrík-
isráðherra búinn að taka upp
formlegar víðræður við PLO,“
sagði Hjörleifur Guttormsson,
þingraaður Alþýðubandalagsins, í
samtali við DV í morgun. Hjörleif-
ur hefur óskað eftir því að viðræð-
ur Steingríms Hermannssonar
utanríkisráðherra við fulltrúa
PLO-samtakanna verði til umræðu
á fundi utanríkismálanefndar sem
hófst klukkan 10 í morgun.
„Steingrímur hefur þegar átt
formlegan fund með fulltrúa sara-
takanna í Sviþjóð og jafnframt lagt
drög að öðrum fundi meö æðstu
forystu PLO-samtakanna. Ég tel
þetta ofureðlilega afstöðu af hálfu
íslenskra stjórnvalda í ljósi at-
burða í þessum málum undanfar-
ið,“ sagði Hjörleiíur.
„Steingrlmur er talsraaður ríkis-
stjórnarinnar í utanríkismálum og
ég sé ekki að afstaða forsætisráð-
herra muni breyta þeirri afstöðu
sem Steingrimur hefur markað i
þessu máli,“ sagði Hjörleifur Gutt-
ormsson.
-o)
PLO fundurinn:
Hægt að kalla
þetta formleg-
ar viðræður
- segir Steingrímur
Jón Páll Sigmarsson varð í gærkveldi Islandsmeistari í vaxtarrækt eftir harða keppni við Sig-
urð Gestsson sem unnið hefur titilinn síðastliðin 2 ár. Svo hörð var keppnin milli kappanna
að dómarar létu kalla þá þrisvar sinnum fram til samanburðar. Keppnin fór fram á Hótel ís-
landi. Á myndinni sést þegar Margrét Ástrún Einarsdóttir afhenti Jóni Páli sigurlaunin en á
milli þeirra er Sigurður Gestsson. DV-mynd jak
Þijú Norðurianda meðal flytjenda fjögurra fyrstu laganna
Þrjú Norðurlandanna eru meðal
flytjenda fjögurra fyrstu laganna
sem flutt verða í Eurovisionkeppn-
inni í Dublin þann 30. aprfl næstkom-
andi. En eins og fram hefur komiö
verða Sverrir Stormsker og Stefán
Hflmarsson fyrstir á svið í söngva-
keppninni. Næst á eftir íslendingum
er Kýpur en þar á eftir koma Svíar
og síðan Finnar.
Eftir að dregið var úr öllum 22 þátt-
tökulöndunum raðaðist listinn upp
svona: ísland, Kýpur, Sviþjóð, Finn-
land, England, Tyrkland, Spánn,
Holland, Israel, Sviss, Irland, V-
Þýskaland, Austurríki, Danmörk,
Grikkland, Noregur, Belgía, Lúxem-
borg, ítaha, Frakkland, Portúgal og
loks Júgóslavía.
-JBj
Veðrið á morgun:
Norðanátt
og bjart
syðra
Á morgun verður fremur hæg
norðlæg átt á landinu. Dálítfl él
verða með norður- og austur-
ströndinni en bjart veður sunn-
an- og vestanlands. Hiti verður
um og yfir frostmarki sunnan-
lands en 1 til 3 stiga frost norðan-
lands.
„Það er hægt að kalla þessar við-
ræður formlegar. Þessi maður er
útsendari PLO í Stokkhólmi. Svíar
telja ekkert óeðlilegt að tala við þenn-
an mann og því ákvað ég að tala við
hann. Menn geta kallað þetta form-
legar viðræður," sagði Steingrímur
Hermannsson utanríkisráðherra í
samtali við DV í morgun. Steingrím-
ur var spurður áhts á þeirri skoðun
Alþýöubandalagsins að teknar hefðu
verið upp formlegar viðræður við
PLO samtökin með fundi Steingríms
með fulltrúa samtakanna í Stokk-
hólmi nýlega.
„Ég er reiðubúinn til að hitta þessa
menn. Það hafa allir utanríkisráð-
herrar Norðurlandsnna gert,“ sagði
Steingrímur. „Ég get ekki séð að full-
trúar PLO séu svo baneitraðir að
ekki megi tala við þá. Og nú er
Shultz, utanríkisráðherra Banda-
ríkjanna, að tala við þá undir rós.
Þó að Bandaríkjamenn hafi lýst því
yfir að þeir tah ekki við PLO, látum
við það ekki binda okkar hendur.
Við greiddum atkvæði gegn því í síð-
ustu viku að skrifstofu PLO hjá
Sameinuðu þjóðunum yrði lokað og
ég get ekki séð að það sé rangt að
fræðast af þessum mönnum. Sumum
finnst það spurning hvort við eigum
að skipta okkur af heimsmálunum,
en það er andstætt minni tilfinningu.
Við leysum að vísu engin mál, en
getum verið í svipaðri stöðu og hin
Norðurlöndin og látið skynsemis-
rödd heyrast. En það hefur ekkert
verið ákveðið með fund meö Arafat,
það hefur enginn staöur eða stund
verið ákveðin og á meðan svo er ht
ég svo á að fundur hafi ekki verið
ákveðinn," sagði Steingrímur Her-
mannsson.
-oj
Gjaldþrot Nesco:
Riftunar krafist
Stærstu kröfuhafar í þrotabú
Nesco Manufacturing hafa krafist
þess að þrotabúið fái riftun á kaup-
samningum við Nesco Kringlunni,
Nesco Laugavegi og Nesco Xenon.
Það er bústjórinn, Gestur Jónsson,
sem setur þessa riftunarkröfu fram.
Kröfufrestur í búið rennur út á
morgun. -SMJ
4
í
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
é