Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.1988, Qupperneq 39

Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.1988, Qupperneq 39
MÁNUDAGUR 28. MARS 1988. 55 Eitt og sama fyrirtækið „Þetta hefur gengiö frábærlega vel í alla staöi, bæöi hér úti og á skrifstof- um fyrirtækjanna heima. Viö vinnum aö þessu eins og þetta sé eitt og sama fyrirtækiö, það gerist bara af sjálfu sér,“ sagði Kjartan. „Við erum hér fjórir fararstjórar frá þessum tveimur fyrirtækjum, ég og María Perello frá Samvinnuferð- um og hjónin Juan Marques og Terry Wdowiak frá Útsýn, og viö erum bara hjá einu fyrirtæki í vinnu okkar hér. Farþegarnir átta sig strax á því að þetta er eitt og sama fyrirtækið hér á Kanarí, sama hvort þeir hafa keypt sína ferð hjá Útsýn eöa Samvinnu- ferðum heima, og það eru allir ánægðir með það. Við tökum hér á móti 170 manns á þriggja vikna fresti, og þaö hefur alltaf verið fullt hjá okkur síðan fyrir jól og þær ferðir, sem eftir eru, eru einnig uppseldar. Mikið um að vera Við ákváöum strax að bjóða upp á aðra og meiri þjónustu en hér hefur verið. Farþegamir fá mikið af upp- lýsingum á íslensku um leið og þeir koma. Við erum hér með ýmsa íþróttakennslu, eins og mini-golf, tennis og golf á alvöruvöllum sem eru hér mjög góðir. Við erum einnig með mikið af ferð- um fyrir farþegana, einar 12 ferðir fyrir hvem hóp. Þar eru ýmsar nýjar ferðir, eins og til Marraces í Marokkó og til Gambíu í svörtustu Afríku og einnig má nefna helgarferðir með farþegaskipi þar sem við heimsækj- Kjartan L. Pálsson fararstjóri: milli fararstjóra þeirra og okkar. Það er nú samt svona og svona að þurfa aö versla við aðalkeppinautinn á staðnum, en það þurfum við að gera hvað varðar flugiö hingaö. Til þessa hafa Flugleiðir þó aðeins einu sinni seinkað ílugi hjá okkur og þetta er betri útkoma en ég reiknaði með fyr- irfram". - Hefur ekki veðrið leikið við ykkur í vetur? „Veörið hefur verið ágætt, sól og blíöa, nema hluta af desember og í febrúar, en þá rigndi hér og var skýj- að. Eyjarskeggjar voru alsælir með það, en á slíkum dögum er oft eríitt að vera fararstjóri. Okkur er oft kennt um það hvernig veðrið er, án þess að það sé þó meint í alvöru. Fólk sem kemur hingað „hefur keypt sól“ og þegar hana vantar er eitthvaö að. Annars er oft skrítið að vera hér í hitanum og hlusta á fréttir í útvarp- inu að heiman, þar sem sagt er frá frosti, snjókomu og kulda, og að menn séu að skjóta ísbimi. Það er allt of fjarlægt til að vera trúlegt þeg- ar maður dvelst í 25 stiga hita og sól“. MILLTEX innimálning meó7eöa20%gljáa-BETT vatnsþynnt plastlakk meó 20 eóa35% gljáa - VITRETEX plast- og mynsturmálning - HEMPELS lakkmálningogþynnir- CUPRINOLíúavarnarefni, gólf-og húsgagnalökk, málningaruppleysir ofl. - ALCRO servalakk og spartl - MARMOFLOR gólfmálning - BREPLASTA spartl og fylliefni - Allar stærðir og geróir afpenslum, rúllum, bökkum, límböndum ofl.ofl. Kynniö ykkur veröiö og fáió góó ráó í kaupbæti. venttcí oq, viðkzlcí eiy*ta, Litaval SÍÐUMÚLA 32 SÍMI 68 96 56 KYOLIC Lyktarlausi hvítlaukurinn kominn aftur. 20 mánaða kæli- tæknivinnsla gerir KYOLIC algerlega jafngildi hráhvítlauks. Engin sambærileg hvítlauksræktun eða framleiðsla fyrir- fínnst í veröldinni. IÍYOLIC, líkami þinn finnur fljótt muninn. Fréttir segir Kjartan L. Pálsson fararstjóri um samvinnu Samvinnuferða og Utsýnar á Kanaríeyjum Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri: _______t______________________________ Þegar „risarnir" í ferðaþjón- ustunni hér á landi, Samvinmíferð- ir-Landsýn og Útsýn, ákváðu að slá sér saman um Kanaríeyjaflug sl. haust, voru þeir margir sem spáðu því að sú samvinna gæti ekki gengið upp. Ekki bætti úr skák að sá aðili sem þessi fyrirtæki versla við með flug, það er að sgja Flugleiðir, ákvað að veröa áfram á markaðnum með ferð- ir til Kanaríeyja í samvinnu við aðrar minni ferðaskrifstofur. Því var þá haldið fram að markaðurinn hér og áhuginn á Kanaríeyjaferöum væri ekki það mikill að þetta gæti gengið upp. Kanaríklúbburinn, sem Flug- leiðir höföu rekið undanfarin ár í samvinnu við Samvinnuferðir og Útsýn, sýndi 8 milljóna króna tap á síðasta ári. Þetta mikla tap varð m.a. til þess að Samvinnuferðir og Útsýn sögðu sig úr Kanaríklúbbnum og ákváðu að fara saman út í ferðir til Kanarí í vetur. En hvemig hefur þetta samstarf svo gengið á sjálfum „vígvellinum", Kanaríeyjum. Við ræddum við Kjart- an L. Pálsson, fararstjóra Samvinnu- ferða, en hann hefur starfað sem fararstjóri hjá „Samsýn“, eins og hann kallar sjálfur samstarf fyrir- tækjanna á Kanaríeyjum, síðan í nóvember. um tvær eyjar hér, Tenerife og La Palma. MikÚ þátttaka hefur verið í þessum ferðum, sérstaklega þeim nýju. Hingað kemur sama fólkið ár eftir ár, sumir jafnvel í 10. eða 12. skipti, og þetta fólk fær ferðir sem ekki hafa verið á boðstólum áður. Við höfum ekki heyrt neitt nema ánægjuraddir frá fólkinu þegar það hefur kvatt okkur. Um fjárhagshliðna á þessu er mér ekki kunnugt. Hún ætti þó að vera í lagi, því forstjórar Samvinnuferða og Útsýnar, Helgi Jóhannsson og Helgi Magnússon, voru hér á dögun- um að skoða nýja gistimöguleika og fleira fyrir næsta vetur og varla væru þeir að því ef útkoman í vétur hefði verið mjög slæm. - Hvemig hefur samstarfið við Flug- leiðir gengið? „Það er í sjálfu sér ósköp lítið sam- starf, en ekki nein vonska eða læti á - Verðið þið fararstjórarnir áfram við störf á Kanarí í sumar? Vilja annað á sumrin „Nei, það hefur ekki gengið að selja íslendingum ferðir hingað á sumrin. Þeir vilja líklega meiri sól og hita en hér er, en hér verður aldrei meir en 27 stiga hiti á sumrin. Hingað sækir þá fólk frá meginlandi Spánar, Ítalíu, Portugal og víðar sem er að flýja hit- ann heima hjá sér. En ég held að það sé vel þess virði að bjóða íslending- um Kanaríeyjaferðir á sumrin. Það er gott að vera hér á hvaða árstíma sem er. Við, fararstjórarnir hjá Samvinnu- ferðum og Útsýn, fórum flest annaö í vinnu í sumar. Þau hin fara yfir á Mallorca eða Costa del Sol. Ég fer yfir til Mallorca um páskana og verð þar með golfhópa og fleira. Svo liggur leiðin heim til Islands og ég tek mér að mestu frí frá fararstjóm í sumar. Það yrði þá fyrsta sumarið í fimm ár sem ég yrði heima. Það má svo vel vera að við verðum hér öll næsta vetur, en um það hefur ekki verið rætt enn. Hér hefur verið gott að vera og það er gaman að taka þátt í þessu samstarfi sem margir reiknuðu með að myndi ekki ganga,“ sagði Kjartan L. Pálsson að lokum. „Hefur gengið frábær- lega vel í alla staði“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.