Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.1988, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.1988, Blaðsíða 2
2 MÁNUDAGUR 27. JÚNÍ 1988. Fréttir Rennsli Hólsár ógnar landgræðslusvæðum - reynt að breyta rennsli árinnar með því „Rennsli Hólsár hefur verið til vandræða á annan áratug. Áin hend- ist ýmist í austur eða vestur og erfitt hefur reynst að hemja hana,“ sagði Sigurbjartur Guðjónsson í Þykkvabæ í samtaii við DV. „Áin stíflast af framburði og vatn rennur á kambinn milli byggðar og sjávar. í slíkum tilfellum getur áin runnið ýmist vestur í átt að Þjórsá eða aust- ur til byggðar í Landeyjum.-* Heimamenn í Þykkvabæ og land- græðsla ríkisins hafa, ásamt öðrum aðilum, unnið að því að fylla upp í ós Hólsár, þ.e. hleypa ósnum út. Os- inn er ótryggur og hefur stíflast af framburði. Áin hefur því sótt vestur á bóginn, allt að 6 km leið og flætt yfir landgræðslusvæði neðan við byggðina í Þykkvabæ. Sökum þessa hefur vatnsborð í afrennslisskurðum hækkað um allt að 70 cm sem tefur mjög fyrir framrennsh. Þetta er í sjötta sinn sem reynt er að hleypa ósnum út á þennan hátt. Fyrir tveimur árum var gerð álika að fylla upp í ósana tilraun en hún tókst ekki sem skyldi. Því var ákveðið að reyna á nýjan leik, og hafa heimamenn safnað bíl- hræum og öðru jámrush til að ryðja út i ósinn og reyna þannig að hefta rennsh árinnar vestur á bóginn. Framkvæmdir hafa staðið í rúma viku og lauk um helgina. „Við höfum verið nokkuð óheppnir með veöur, en vonir standa til að nú hafi tekist að beina ánni í réttan far- veg,“ sagði Sigurbjartur Guðjónsson. -StB Þeir feðgar Guðni Guðlaugsson og Robert Karel Guðnason hafa unnið að því að fylla Hólsárós með bílhræjum og öðru járndrasli. Ástæðan er sú að Hólsá hefur flætt vestur á bóginn yfir landgræðslusvæöi neðan við byggð- ina í Þykkvabæ. Heimamenn gáfu aflóga bila og annað ónothæft sem síðan var rutt út í ós. DV-mynd Brynjar Gauti Dalasýsla: Ekki verður úr sameiningu sveitarfélaganna að sinni Ekki verður úr sameiningu allra sveitarfélaga í Dalasýslu aö sinni. Þó að meirihluti kjósenda, 54,6 pró- sent á móti 43,7 prósentum, kysi að hin átta sveitarielög sýslunnar sameinuðust, fékk sameiningar- hugmyndin ekki meirihluta nema í þremur sveitarfélögum. „Ég þori ekki að segja neitt um framhaldiö. Menn skoða vonandi hug sinn og að hkindum veröa nýj- ar kosningar í framhaldi af ein- hvers konar viðræðum. Áróðurinn gegn þéttbýlinu varð einna hávær- astur rétt fyrir kosningar. Við reyndum að rökstyðja breyting- amar en þegar tilfinningar stjórna málfiutningi hinna er ekki auövelt að eiga viö þaö. Nú bíöum viö eftir því að fhunkvæði að breytingum á þessu áratugagamla kerfi komi firá andsameiningarsinnum,“ sagði Sigurður Rúnar Friðjónsson, form- aður sameiningamefndar sveitar- félagasýslunnar, ísamtahviðDV. Andstaðan við sameiningu var sterkust í Saurbæjarhreppi, þar sem aðeins um 15 -prósent vom fylgjandi, og Skarðshreppi sem er meðal minnstu sveitarfélaganna. í miðhreppunum, Laxárdals-, Hvamms- og Fehsstrandarhreppi, var sameiningin samþykkt Vom flestir fylgjandi í Laxárdalshreppi þar sem Búöardalur er. -hlh Drukkinn farþegi í strætó: Ég sný af þér hausinn „Ég sný af þér hausinn. Þú munt sjá eftir þessu. Ég gleymi aldrei and- htum,“ öskraði drukkinn maður að Rúnari Gunnarssyni strætisvagna- bílstjóra. Drukkni maðurinn kom í strætisvagn í Áifheimum, viö Glæsibæ, á laugardaginn. Maðurinn hafði mörg stór orð um hvemig hann ætlaði að hefna sín. Rúnar Gunnarsson neitaði mann- inum að ferðast með vagninum, fyrst og fremst vegna þess aö maðurinn borgaði aöeins eina krónu í fargjald og eins vegna framkomu mannsins. Rúnar kallaöi til lögreglu. Þegar lög- regla kom og sá hver maðurinn var vom fyrstu orð annars lögreglu- þjónsins. „Nú ert það þú enn einu sinni.“ „Ég óttast ekki hótanir mannsins. Það er algengara en margrn- heldur að við lendum í útistöðum við drukkna menn. Þeir eru oft sóðalegir til fara og angra aöra farþega. Þegar við bætist að þeir neita að greiða rétt fargjald er ekki annað að gera en láta lögregluna hirða þá,“ sagði Rúnar Gunnarsson strætisvagnabíl- sfjóri númer 138. -sme Þorsteinn B. Pétursson, oddviti í Fellsstrandarhreppi: Ekki sameining heldur sundrung „Það er rangt að kalla þetta sam- einingu. Þetta hefur sundrað meiru en sameinað. Þeir sem maður hélt vera vini sína hafa unnið á móti manni. Ég tel best fyrir alla að þessar hugmyndir verði nú úr sögunni," sagði Þorsteinn B. Stefánsson, odd- viti í Fehsstrandarhreppi. Af átta hreppum feUdu fimm sam- einingartíhöguna. Þorsteinn sagði að í sínum hreppi hefði sameining verið samþykkt með eins atkvæðis mun. Tuttugu og níu vom með og tuttugu og átta á móti. „Þessar umræður aUar hafa komið Ulu á stað. Við höfum ekkert út úr þessu nema óhagræði,“ sagði Þor- steinn Pétursson, oddviti FeUs- strandarhrepps. -sme 600 manns á Jónsmessugleði í Herjólfsdal: Þjóðhátðinni þjófstartað Ómar Garðaisson, DV, Vestmannaeyjum; Jónsmessugleði var haldin í Her- jólfsdal á fóstudagskvöldið. Þeir 600 gestir, sem þar mættu, létu ekki á sig fá þó byijaði aö rigna skömmu effir miðnætti. Gestir mættu í hin- um fjölbreytfiegasta skrautfatnaði og virtust taka gleðinni sem upp- hitun fyrir þjóðhátiðina. Dansað var við undirleik hljóm- sveitarinnar Sjöund til klukkan fjögur. Að sögn lögreglu og gæslu- manna, sem vom leikmenn ÍBV í hand- og fótbolta, fór gleöin vel fram að undanskildu því að ein stúlka handleggsbrotnaði. Annars gekk aUt vel fyrir sig. Áður en dag- ur reis höfðu alhr yfirgefið svæðið og búið var að hreinsa dahnn. 500 þúsund króna endurbætur á embættisbústaðnum ein ástæðan Brottvikning sr. Gunnars Bjómssonar: - Prestafélagið óskar efHr fundi með safnaðarstjóm „Við teljum að ekki sé hægt að vikja presti frá nema fyrir mjög alvarleg brot. Safiiaðarstjómin er ekki bara að reka starísmann held- ur predikarann, þann mann sem á að leiöbeina söfnuðinum og segja honum til syndaima ef svo ber und- ir,“ sagði Siguröur Siguröarson, formaður stjómar Prestafélags ís- lands. Prestafélagið hefur nú óskað eftir fundi með stjóm Fríkirkju- safhaöarins vegna brottreksturs sr. Gunnars Bjömssonar að beiðni Gunnars. „Sr. Gunnar var rekinn með svo stuttum fyrirvara að það lítur út fyrir að alvarleg brot liggi að baki. Ef staðið verður við brottvikning- una mun sr. Gunnar þurfa að sæta kosningu ef hann sækist eftir starfi hjá öðrum söfnuðL Þetta skaðar þvi manninn mjög mikið," sagði Sig- urður. Þetta er í annaö sinn sem stjóm safnaöarins rekur sr. Gunnar. Þetta er þau tvö einu skipti sem prestur hefur mátt sæta brottvikn- ingu á þessari öld, að sögn Sigurð- ar. Fyrir tveimur árum var brott- vikntng dregin til baka eftir að Ragnar Bemburg, þáverandi stjómarfonnaður, hafði saxnið sr. Gunnari nýtt embættisbréf í kjöl- far brottrekstursins var stjómar- meirihlutinn felldur í kosningum. Sami meirihluti náði síðan aftur kjöri í raaí síöastliðnum. Ragnar Bemburg á þó ekki sæti i stjóm- inni heldur eiginkona hans, Berta Bemburg. Meðal ástæðna sem gefiiar hafa verið upp er að flestöll ákvæði embættisbréfsins hefðu verið brot- inafsr.Gunnari Samk væmt heim- ildum DV er meðal annars kveðið á um það í embættisbréfinu aö sr. Gunnar skuli standa straura af öllu viðhaldi á embættisbústað safnað- arins við Garöastræti. Á síðasta ári munu hins vegar hafa farið fram endurbætur á kostnað safiiaðarms lyrir um 500 þúsund krónur. Sr. Gunnar og tylgismenn hans munu aldrei hafa tekið embættisbréfiö alvarlega heldur litiö svo á að bisk- upinn yfir íslandi væri sá eini sem gæti sett presti embættisbréf. Við messu í gær skrifuöu 80 safn- aöarmeðlimir undir stuðningsyfir- lýsíngu við sr. Gunnar. Unnið er aö þvi að kveðja saman almennan safnaðarfund en til þess vantar beiðni frá 50 safiiaðarmeðlimum minnst. -gse

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.