Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.1988, Blaðsíða 45

Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.1988, Blaðsíða 45
w r/íjí' r>' MÁNUDAGUR 27. JÚNÍ 1988. 6i' Sviðsljós Fylkir með nýjan völl Allir yngri fiokkar Fylkis samankomnir á nýja grasvellinum. Krakkarnir raða sér upp til myndatöku. Eins og sjá má var veðrið ekki með besta móti og því eins gott að vera vel búinn. DV-myndir EJ íþróttafélagið Fylkir vígði nýjan grasvöll á kvennadaginn, þann 19. júní. Ekki viðraði nú vel til vígslunn- ar en fólk lét það lítið á sig fá. Lúðra- sveit lék, Jóhannes Óli Garðarsson, formaöur Fylkis, flutti ræðu, flokkar Fylkis gengu inn á leikvanginn og svo skemmtilega vildi til að Fylkir átti heimaleik í 2. deild íslandsmóts- ins þennan dag og þótti þá upplagt aö leika hann á nýja grasvelhnum. Leikið var við Tindastól og unnu heimamenn, 3-2. Einnig voru verð- laun veitt 3. og 6. flokki en þeir urðu ReyKjavikurmeistarar. Framkvæmdir við völlinn hófust 1985 og var hann tyrfður árinu seinna. Ekki var þó hægt að taka hann strax í notkun þvi hann var ekki nógu breiður en alls er nú völl- urinn 75X130 m. Unnið er að teikn- ingum að íþróttahúsi og munu fram- kvæmdir vonandi hefjast í haust. Kostnaður við grasvöllinn var um 8 milljónir króna og mun hann vera að fúllu greiddur. Gekk vallargerðin nokkuð vel og unnu félagsmenn mik- ið við hana sjálfir í sjálfboðavinnu. DV gegn Ingvari Helgasyni Eigi alls fyrir löngu var háð hörð barátta inni í Laugardal. Ekki var hér um úrslitaleik í Evrópumótinu að ræða heldur voru það vaskir sveinar DV og umboðs- og heildversl- unar Ingvars Helgasonar sem þar áttust við. Var fótboltaleikur þessi æsispennandi, að sögn áhorfandans, og lauk honum með sigri liðs DV. Sá eitilharði Vestmannaeyingur, Ragn- ar Siguijónsson, skoraði bæði mörk DV en menn Ingvars Helgasonar, eða Trabantliðsins eins og það var kallað í gamni af keppnismönnum DV, náði að skora eitt mark. Það var Hilmar Ámason sem skoraði það mark. Eirikur Jónsson, safnstjóri DV, gefur á Róbert Róbertsson (i DV-treyju). Vestmannaeyingurinn Ragnar Sigurjónsson á fullri feró við að skora fyrsta mark DV. DV-myndir S Allt er nú gert til að ná athygli! Þetta fljóö mætti á Ascotveðreiðamar með hatt sem virtist vera nákvæm eftirliking blómapotts. Henni yrðl alveg örugglega gefið auga ef hún labbaði niður Laugaveglnn svona. Símamynd Reuter Meira en átta hundruð drengirdvelja í sumarbúðunum í Vatnaskógi á hverju sumri og eru þeir á aldrinum 10-13 ára. Sumar- búðir KFUM hafa nú starfað í 65 ár og virð- ast vinsældir þeirra síður en svo vera að minnka. Aðalmarkmið sumarbúðanna er kristileg fræðsla í anda KFUM en meirihluti dagsins hjá strákunum fer þó í íþróttir og leiki. Strákarnir hafa nóg að gera allan dag- inn og leggjast til hvílu þreyttir en ánægðir. Á myndinni má sjá úrslitaleik í knattspyrnu og sjást þarna eigast við lið landsliðsins og pressunnar. Leiknum lyktaði reyndarmeð sigri pressunnar eftir framlengdan leik og vítaspyrnukeppni. Sjá nánar um sumarbúðirnar í Vatnaskógi í Lífsstíl á morgun. Blómafrjókorn seldust fyrir 60 milljónir á síðasta ári hér á landi. Frjókornin hafa því slegið öllum fótanuddtækjum við í sölu. Á sama tíma stórjókst tíðni svæsinna ofnæmissjúkdóma. Vilja læknar meina að mörg þessara tilfella megi rekja beint til neyslu blómafrjókorna. Nú hefur nýtt undraefni skotið upp kollinum. Er hér um að ræða hvítlaukspilluren líkur benda til að sala þeirra verði síst minni en á blómafrjókornum. I Lífsstíl á morgun verður fjall- að nánar um þessi undraefni, svo og náttúrulyf almennt.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.