Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.1988, Blaðsíða 43

Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.1988, Blaðsíða 43
MÁNUDAGUR 27. JÚNÍ 1988. 59 DV_______ Ólyginn sagði... Shirley McLaine getur nú farið að líta á sig sem sérfræðing Hollywood í endur- holdgunarkenningunni. Hún hitti þau hjónakorn Goldie Hawn og Kurt Russel nýlega í boði og hélt yfir þeim langa ræðu um þeirra fyrri líf. Einhvem tímann áttu þau meira að segja að hafa verið systkin í Egyptalandi, og þar með samtímamenn Móses. Goldie og Kurt hlustuöu víst á af hæverskri kurteisi. Malcolm Jamal-Warner sem leikur hinn vel uppalda son fyrirmyndarfóðurins, hefur nú beðið um frí frá þeirri rullu um stund. Hefur hann fengið tilboö um að leika kynferðisbrjálæðing í sýningu á Broadway. Bill Cosby hefur samþykkt treglega, í von um að drengurinn fari ekki að gera sér neinar grillur. Richard Gere sem sló í gegn i myndinni „An Officer and a Gentleman", hefur lengi verið eftirsóttur af konum. Nú er þó komið í ljós hvernig á aö ná í kauða, þ.e. einfaldlega að verða búddatrúar. Richard er víst yfirlýstur búddatrúarmaður og núverandi kærasta hans er sögð vera dóttir tíbesks munks. Hvernig sem það er nú hægt! _______________________Sviðsljós Tíu fatlaðir í hlaupi Krabbameinsfélagsins Heilsuhlaup Krabbameinsfélagsins ’88 fór fram þann 11. júni og var lagt af stað frá húsi Krabbameinsfélags- ins við Skógarhlíö á hádegi eftir að Guömundur Bjamason heilbrigðis- ráðherra hafði ræst keppnina. Um 400 manns tóku þátt í hlaupinu og gátu menn valið um tvær leiðir, þ.e. 4 km, sem var leiðin Skógarhlíð, Stakkahlíð, Háteigsvegur, Rauöarár- stígur, Snorrabraut, Skógarhlíð, og svo 10 km, sem voru Skógarhlíð, Stakkahlíö, Rauöarárstígur, Skúla- gata, Mýrargata, Ánanaust, Kapla- skjólsvegur, Hringbraut, Skógarhlíð. Lögð var áhersla á að hlaupið væri ekki kapphlaup og voru engin sér- stök verðlaun veitt þeim er fyrstir komu í mark, heldur var dregið úr nöfnum þátttakenda og þeir heppnu hlutu viðurkenningu. Þaö vakti athygli að tíu af þátttak- endum hlaupsins voru fatlaðir, átta blindir og tveir voru í hjólastól og má það gott teljast. Edda Bergmann var önnur tveggja sem fór hlaupiö í hjólastól. Hún sagði að um 25 einstaklingar úr trimm- klúbbnum Eddu hefðu verið með, en trimmklúbbur þessi var stofnaður í september til að fá fólk til að huga betur að heilsu sinni og hreyfa sig meira. Edda sagði að félagar í klúbbnum væru nú orðnir 42, 20 blindir og sjónskertir, fjórir í hjóla- stól og afgangurinn væri allt saman ófatlað fólk og hefðu nokkrir af þeim tekið þátt í hlaupinu sem leiöarar hinna er aöstoðar hefðu þurft við. Trimmklúbburinn hefur lagt áherslu á leikfimi, jóga og slökun og reynt hefur verið að fá fólk til að synda eða hlaupa tvisvar í viku. Einnig hefur klúbburinn staðið fyrir skemmtikvöldum til aö fá fólk til að vera jákvæðara. Þess má svo geta að Guðmundur örn Guðmundsson og Edda Bergmann létu fötlun sina ekki aftra sér frá þvi að taka þátt í heilsu- hlaupi Krabbameinsfélagsins. DV-myndir GVA klúbbur þessi er öllum opinn og ekk- ert kynslóðabil finnst þar. Edda sagöist sjálf hafa farið 4 km þó að hún hefði gjaman viljað fara 10 km því hún væri alveg í æfingu til þess, en hún hefði ekki séð sér þaðr fært vegna þess hvemig gangstétta- málum væri háttað hér á landi. Kvaðst hún vera þess fullviss að það sæjust fleiri í hjólastólum úti við, ef gangstéttir væru fleiri svo að fólk þyrfti ekki að vera á götunni, og ef gangstéttabrúnir væm lægri. Um 400 manns hlupu í dumbungsveðri, en sem betur fór hélst hann þurr. Bolungarvík: Útigrill og tjaldstæði vígt á næstumii Sigurjcm J. Sigurðsson, DV, fsafirði: Þegar fréttaritari DV átti leið um Bolungarvík fyrir stuttu bar fyrir augu hans hóp unghnga við vinnu á grasbletti neðan við íþróttamiðstöð- ina Árbæ. Þar voru á ferðinni ungl- ingar sem eru í vinnuskóla bæjarins. í vinnuskólanum eru nú um 60 ungl- ingar og verður svo út júnímánuð en þá fækkar eitthvað. Krakkarnir unnu við að tyrfa neðan við íþrótta- húsið en þar er nú unnið aö því að koma í gagnið tjaldstæði. Sett hefur verið upp hreinlætisaö- staöa fyrir væntanlega gesti tjald- stæðisins. Þá hefur bæjarsjóður Bol- ungarvíkur og ákveðið að setja upp útigrill við tjaldstæðið sem íbúar þess geta notað að vild. Útigrilhð verður væntanlega tekið í gagnið með útiveislu fyrir krakkana í vinnuskólanum um mánaðamótin. Krakkarnir að vinna víð flötina neðan við Árbæ i Bolungarvik. Þarna verð- ur tjaldstæði Bolvikinga í framtíðinni. Ætlunin er að vigja það.með útigriil- partíi á næstunni. Minnsta mótorhjól í heimi Hérna er svo hið fullkomna mótorhjól fyrir þá sem ætla aðeins í stutta ferð. Paul Ashley heitir eigandi þessa grips sem vegur 3 kiló og er 18 sentímetr- ar að lengd og hæð. Það er knúið áfram af vél úr módelflugvél og á ekki i neinum erfiðleikum með að bera Paul sem er 64 kíló og 173 sentímetr- ar. Það er lítil hætta á að maður verði tekinn fyrir of hraðan akstur á hjól- inu því það kemst aðeins upp í 13 km/klst. Hann Andrés er svo sem nógu nálægt henni Söru sinni á þessari mynd en hann verður vfðs fjarri er hún elur honum þeirra fyrsta barn. Ein elur hún barn sitt Það hefur nú verið aigengt í nokk- ur ár að feður væru viðstaddir fæð- ingu barna slnna. Eitthvað er þetta þó öðruvísi h)á hinum konunglegu þvi að hertoginn af York hefur nú stungið af til sjós og verður þar næstu sex mánuði þó að kona hans eigi von á sér í ágúst. Hertogahjónin eyddu saman helgi í Windsorkastala áður en hertoginn, Andrew prins, lagði úr höfn frá Portsmouth með hinum konunglega sjóher. Samkvæmt heimildum frá sjóhemum mun prinsinn þó fá tveggja vikna frí eftir fæðingu frum- , burðar síns. Andrew prins mun fara víða á þesS- um sex mánuðum og taka þátt í æf- ingum með sjóherjum annarra landa á Atlantshafi, sem og í Miöjarðarhafi og Indlandshafi. Hápunktin: ferðar- innar mun þó verða koma skipsins til Sydney í Astralíu þann 1. október.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.