Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.1988, Blaðsíða 39
MÁNUDAGUR 27. JÚNÍ 1988.
55
Fólk í fréttum
Þórarinn lyrfingsson
Þórarinn Tyrfingsson, formaður
Samtaka áhugafólks um áfengis-
vandamálið, hefur nýlega verið í
fréttum DV vegna umræðna um
ölvunarakstur. Þórarinn er fæddur
20. maí 1947 í Rvík og varð stúdent
frá MR 1967. Hann lék handbolta
með meistaraflokki ÍR 1964-1975,
og 1983. Þórarinn var í unglinga-
landsliðinu í handbolta 1965 og var
í stjórn handknattleiksdeildar ÍR
1964-1970, formaður 1981-1982.
Hann lauk læknisfræðiprófi frá HÍ
1975 og var heilsugæslulæknir á
Hvammstanga 1977-1979. Þórarinn
hefur verið læknir á sjúkrastofn-
unum SÁÁ frá 1979 og hefur unnið
að skipulagningu meðferðarmála
hjá SÁÁ frá 1980. Hann hefur verið
yfirlæknir á Sogni 1980-1986 og á
Staðarfelli frá 1980. Þórarinn hefur
verið yfirlæknir sjúkrastöðvarinn-
ar á Vogi frá 1984 og var í stjórn-
skipaðri nefnd sem gerði tillögur
til úrbóta í áfengisvömum 1984-
1986. Hann var kosinn formaður
SÁÁ 9. júní 1988.
Þórarinn kvæntist 7. apríl 1969
Hildi Guðnýju Bjömsdóttur, f. 26.
apríl 1944, kennara. Foreldrar
hennar em Björn Einarsson, raf-
magnstæknifræðingur í Kópavogi,
og kona hans, Gunnvör Braga Sig-
uröardóttir, dagskrárstjóra bama-
efnis Ríkisútvarpsins. Böm Þórar-
ins og Hildar eru Halldóra Kristín,
f. 23. desember 1968, stúdent, Tyrf-
ingur, f. 25. febrúar 1970, Björn
Logi, f. 16. febrúar 1972, ogHildur,
f. 29. apríl 1977. Sonur Þórarins og
Erlu Maríu Indriðadóttur er Birgir,
f. 29. september 1968, stúdent. Dótt-
ir Þórarins og Sigrúnar Ólafsdóttur
er Ingunn Edda, f. 15. mars 1969.
Bræður Þórarins em Þórður, f. 17.
janúar 1944, tæknifræðingur í
Rvík, kvæntur Mitta Bæhrenz
skrifstofumanni, og Pétur, f. 18.
maí 1953, ráögjafi hjá SÁÁ, kvænt-
ur Svövu Guðmundsdóttur, sem
lést 1987.
Foreldrar Þórarins eru Tyrfingur
Þórarinsson, húsasmíðameistari í
Rvík, sem lést 12. apríl 1985 og kona
hans, Lára Þórðardóttir. Föður-
systir Þórarins er Guðríður, móðir
viðskiptafræðinganna Þórarins og
Þórunnar Klemenzbarna. Tyrfing-
ur er sonur Þórarins, trésmiðs og
múrara í Borgarnesi, Ólafssonar
b. á Einifelh í Stafholtstungum,
Ólafssonar. Móðir Ólafs var Guð-
ríður Magnúsdóttir, b. í Ausu í
Andakíl, Ölafssonar og konu hans,
Ingibjargar Jónsdóttur, b. í Efra-
skaröi, Magnússonar. Móðir Jóns
var Þórunn Jónsdóttir, systir
Steins biskups.
Móðir Þórarins var Ólöf Sigurð-
ardóttir, b. á Mófellsstöðum í
Skorradal, Sigurðssonar, prests í
Vátnsfirði, Þorbjarnarsonar, gull-
smiðs á Lundum, Ólafssonar, föður
Ólafs, afa Ragnhildar, ömmu
Bjarna Benediktssonar forsætis-
ráðherra og Tómasar Helgasonar
prófessors. Ólafur var einnig lang-
afi Jóns, fóður Þorsteins frá Hamri.
Móðir Ölafar var Þómnn Torfa-
dóttir, systir Þórðar, langafa Guð-
rúnar, móður Jóns B. Jónassonar,
skristofustjóra í sjávarútvegsráðu-
neytinu.
Móðir Tyrfings var Jónína Krist-
ín Jónasdóttir, sjómanns í Skáholti
í Rvík, Ólafssonar b. i Efraseli á
Stokkseyri, Jónssonar, bróður
Filippusar, langafa Kristínar, móð-
ur Jóns Þorgilssonar, sveitarstjóra
á Hellu. Móðir Jónasar var Guðný
Þórðardóttir, b. á Yrjum á Landi,
Lafranzsonar og konu hans, Önnu
Árnadóttur, b. og skálds i Duf-
þekju, Egilssonar, bróður Rósu,
langafa Málhildar, ömmu Hilmars
Jónssonar stórtemplars. Rósa var
einnig langamma Gróu, langömmu
Jónatans Þórmundssonar prófess-
ors.
Móðir Jónínu var Kristín, systir
Magnúsar „rokkadrejara", langafa
Megasar. Kristín var dóttir Ás-
bjamar, húsmanns á Grímarsstöö-
um í Andakíl, Magnússonar og
konu hans, Kristínar Magnúsdótt-
ur.
Móðursystir Þórarins er Ragn-
hildur, deildarstjóri í heilbrigðis-
ráðuneytinu. Lára er dóttir Þórðar,
b. á Högnastöðum í Þverárhlíð,
bróður Helgu, ömmu Pálma Gísla-
sonar, formanns Ungmennafélags
íslands. Þórður var sonur Jóns, b.
og skálds á Háreksstöðum í Norö-
urárdal, bróður Jóhanns, alþingis-
manns í Sveinatungu, afa Jóns Sig-
urðssonar, forstjóra Miklagarðs.
Jón var sonur Eyjólfs, b. og skálds
á Hvammi í Hvítársíðu, Jóhannes-
sonar og konu hans, Helgu Guð-
mundsdóttur, b. á Sámsstöðum í
Hvítársíðu, bróður Sigurðar, afa
Jóns Helgasonar prófessors. Guð-
mundur var sonur Guðmundar, b.
á Háafelh, Hjálmarssonar, ætt-
fóður Háafellsættarinnar. Móðir
Þórðar var Ragnhildur Þórðardótt-
ir, b. á Brekku í Norðurárdal, Jóns-
Þórarinn Tyrfingsson.
sonar og konu hans, Halldóru Tím-
otheusdóttur.
Móðir Láru var Gunnvör Magn-
úsdóttir, sjómanns á Akranesi,
Helgasonar og konu hans, Guðrún-
ar Jónsdóttur eldra, b. í Síðumúla,
Sveinssonar, bróður Jóns yngra,
afa Guðmundar Böðvarssonar
skálds á Kirkjubóli. Móðir Guðrún-
ar var Þórdis Jónsdóttir, b. á Tóft-
arhring í Hvítársíðu, Jónssonar og
konu hans, Guðrúnar, systur Jóns,
langafa Halldórs H. Jónssonar
arkitekts, fóður Garðars, húsam-
eistara ríkisins. Guörún var dóttir
Halldórs fróða, b. á Ásbjarnarstöð-
um, Pálssonar og konu hans, Þór-
dísar Einarsdóttur.
Afmæli
Anna Sigmundsdóttir
Anna Sigmundsdóttir, Hátúni 10,
Reykjavík, varð sjötíu og fimm ára
á laugardaginn.
Anna fæddist á Hofsósi, dóttir
Sigmundar, f. 3.9.1885, d. 15.3.1958,
bónda og verkamanns þar, Sig-
mundssonar, bónda á Bjarnarstöð-
um, Unadal, Símonarsonar og
Helgu Bjarnadóttur frá Mann-
skaðahóli. Móðir Önnu var Sigur-
rós, f. 8.6. 1886, d. 10.5. 1877, Guð-
mundsdóttir, bónda á Torfhóh, Ós-
landshhð og Háagerði, Höfða-
strönd, síðast Hofsósi, Þórðarson-
ar, og Jóhönnu Marenar Jóhanns-
dóttur frá Mýrarkoti. Anna var
uppfóstruð hjá móðurbróður sín-
um, Þórði, trésmið á ísafirði, og
Magneu Þorláksdóttur.
Anna tók ljósmæðrapróf haustið
1939 en réð sig aldrei í fast starf sem
ljósmóðir. Þó tók hún á móti börn-
um á Siglufirði þar sem hún var
lengst af búsett.
Anna giftist Jóni, f. 21.4. 1890, d.
27.6. 1969, bónda á Minna-Grindli,
síðar rafstöðvarstjóra á Siglufirði,
Kristjánssonar, bónda á Lamba-
nesi, Fljótum, Jónssonar, og Sigur-
laugar Sæmundsdóttur frá Haga-
nesi. Böm Önnu og Jóns: Páll, lést
á fyrsta ári; Erling Þór, f. 11.6.1945,
vélvirkjameistari, Siglufirði,
kvæntur Sólrúnu Magnúsdóttur
frá Siglufirði; Edda Magnea, f. 25.9.
1949, gift Gísla Kjartanssyni lög-
fræðingi.
Sambýhsmaður Önnu er Guð-
Anna Sigmundsdóttir.
mundur Bernharðsson rithöfund-
ur frá Ástúni, Ingjaldssandi.
Anna dvelst um þessar mundir á
heilsuhæli Náttúrulækningafé-
lagsins í Hveragerði.
Guðmundur Gunnarsson
Óskar Steinþórsson
Óskar Steinþórsson bifreiða-
stjóri, Skipholti 49, Reykjavík, er
75 ára í dag.
Óskar fæddist í Miðfjarðarseli,
Skeggjastaðahreppi í Bakkafirði,
sonur hjónanna Stefaníu Stefáns-
dóttur og Steinþórs Árnasonar.
Mestan hluta starfsævinnar vann
Óskar hjá Hinu íslenska steinohu-
félagi, núna Esso. Hann hóf störf
hjá félaginu árið 1941 og starfaöi
lengst af sem bílstjóri en síðustu
árin var Óskar næturvörður hjá
Esso. Óskar fór á eftirlaun fyrir
nokkrum árum.
Óskar er kvæntur Guðfinnu Sig-
urðardóttur, f. 8.1. lðÍ2 á Akureyri,
og eiga þau fjögur börn. Þau eru
Stefán, sviðsmaður, Sigrún, ritari,
Helga, hárgreiðslukona, og Óskar
Árni, bókavörður.
Óskar verður að heiman í dag.
Oskar Steinþórsson.
Til hamingju með daginn
Guðmundur Gunnarsson verk-
fræðingur, Safamýri 85, Reykjavík,
varð sextugur á laugardaginn.
Guðmundur fæddist á Akureyri,
sonur hjónanna Gunnars, f. 29.8.
1895, d. 16.5. 1969, lögregluþjóns
Jónssonar, bónda á Keldhólum,
Vallahreppi, Suður-Múlasýslu, og
Sólveigar, f. 6.7. 1903, Guðmunds-
dóttur, bónda í Sauðhaga, Valla-
hreppi, Andréssonar Kjerúlfs. Sól-
veig lést í nóvember á síðasta ári.
Guðmundur varð stúdent frá MA
óg nam verkfræði við HÍ og DTH í
Kaupmannahöfn. Heimkominn
vann Guðmundur m.a. hjá Regin
hf. og var bæjarverkfræðingur á
Akranesi. Ásamt öðrum stofnaði
hann verkfræðistofuna Hönnun sf.
og síðar Virki hf. Guðmundur hef-
ur hannað fjölda laxeldisstöðva og
Sævar Öm Jónsson, Marbakka
12, Neskaupstað, er fertugur í dag.
Sævar er fæddur í Neskaupstað.
Foreldrar hans eru Gíslína Sigur-
jónsdóttir frá Neskaupstað og Jón
Karlsson úr Reykjavík.
Sævar er kvæntur Rannveigu, f.
29.6. 1950, dóttur Þorbergs Á. Jón-
sonar frá Dýrafirði og Guðrúnar
Guómundur Gunnarsson.
Sigurjónsdóttur frá Vopnafirði.
Börn Sævars og Rannveigar eru
Birgitta Steinunn, f. 16.3.1969, unn-
usti hennar er Hörður Reynisson
frá Selfossi; Jóna Lind, f. 27.9.1971;
Særún Kristín, f. 18.7. 1985; Þor-
bergur Ingi, f. 2.6. 1987.
Sævar verður að heiman á af-
mælisdaginn.
laxastiga. Frá 1977 hefur Guð-
mundur verið forstöðumaður
tæknideildar Húsnæðismálastofn-
unar ríkisins.
Guðmundur kvæntist 27.8. 1948
Önnu, f. 12.12. 1923 á Atlastöðum,
Fljótavík, Norður-ísafjarðarsýslu,
Júlíusdóttur bónda Geirmunds-
sonar og konu hans, Guðrúnar
Jónsdóttur. Börn Guðmundar og
Önnu eru Sólveig, f. 18.11.1948, lög-
fræðingur, gift Birni Líndal lög-
fræðingi; Anna Margrét, f. 15.9.
1955, hjúkrunarfræðingur, gift
Kristni Friðfinnssyni guðfræðingi;
Gunnar Örn, f. 4.11.1956, rafeinda-
virki; Hrönn, f. 16.9.1959, gift Frank
Cicori, búsett í Bandaríkjunum;
Hlíf, f. 16.9. 1959, í sambýli með
Geir Björnssyni raftækni.
Sævar örn Jónsson
80 ára_______________________
Bára Tryggvadóttir, Hvanneyrar-
braut 23b, Siglufiröi, er áttræö í dag.
75 ára_______________________
Þórður Þorsteinsson, Grund, Svina-
vatnshreppi, er sjötíu og fimm ára í dag.
70 ára____________________
Guðmundur Þórir Magnússon, Greni-
mel 31, Reykjavík, er sjötugur í dag.
60 ára____________________________
Steingrímur Garðarsson', Hólavegi 38,
Sauöárkróki, er sextugur í dag.
Rósmundur Runólfsson húsasmíða-
meistari, Melgerði 18, Reykjavík, er
sextugur í dag.
Gestur Friðjónsson, Melabraut 30,
Seltjarnarnesi, er sextugur í dag.
50 ára__________________________
Rósa Haraldsdóttir, Laugardælum 3,
Hraungerðishreppi, er fimmtug í dag.
Erling Aðalsteinsson, Oddeyrargötu
23, Akureyri, er fimmtugur í dag.
Jósef Ingvarsson, Efstasundi 13,
Reykjavík, er fimmtugur í dag.
Guðni Fr. Aðalsteinsson, Hlíöarvegi
18, Ólafsfiröi, er fimmtugur í dag.
Friðgeir Guðmundsson, VesturbergF
51, Reykjavík, er fimmtugur í dag.
40 ára_______________________
Jón Eiríksson, Boöagranda 20, Reykja-
vík, er fertugur í dag.
Jóhann Sveinn Guðjónsson, Ásbraut
6, Hvammstanga, er fertugur í dag.
Olga Guðnadóttir, Þórunnarstræti
135, Akureyri, er fertug í dag.
Guðrún Skarphéðinsdóttir, Dalsgeröi
3e, Akm'eyri, er fertug í dag.
Eyjólfur Karlsson, Seilugranda 5,
Reykjavik, er fertugur í dag.
Jóhanna Borgíjörð, Brekkubæ, Borg-
arfjarðarhreppi, er fertug í dag.
Hjördís Þórarinsdóttir, Snæringsstöö-
um, Svínavatnshreppi, er fertug í dag.
Martin Luther King, John og Robert
Kennedy, Hipparnir og upparnir, Víetnam-
stríðið og afleiðingar þess, Þorláksmessu-
slagurinn, Davið Oddsson, Sigurður A.
Magnússon, Birna Þórðardóttir, Bjarki El-
íasson.
Um allt þetta og margt fleira
i þessari tilvöldu afmælisgjöf.
Sævar Om
Jónsson