Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.1988, Blaðsíða 42

Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.1988, Blaðsíða 42
58 MÁNÍJDAGUR 27. JÚXÍ 1988. ERT ÞÚ í HÚSGAGNALEIT? *■ Barokk sófasett + 2 litlir stólar + sófaborð. Verð aðeins kr. 112.000. JÁ, ALLT ÞETTA FYRIR KR. 101.000 STGR. VALHÚSGÖGN HF. Armúla 8, símar 82275/685375 IS/3M TELEFAX Nauðsynjatæki ■ TELEFAX FYRIR: Banka • Innflytjendur • Útflytjendur • Lögreglu • Tryggingafélög • Dagblöð • Verkfræöistofur • Auglýsingastofur • Prentsmiðjur • Opinberar stofnanir • o.fl. • o.fl. ÞAÐ BESTA VERÐUR ODYRAST ARVÍK5’ NAFNNUMER kenn'Ta^a i' 83-;-69 ARMUU 1 • POSTMOlF 80X • /26 REYiCAV.K • SlMi 667222 • TELEX 3C12 • TELEFAX 687295 Árf.: 1000-1008-1009 Við seljum gúmmístígvél í öllum stærðum. Hvergi hagstæðara verð. Og gæðin eru viðurkennd. HAGKAUP Sviðsljós Kók ritskoðaði sýningu Mandelatónleikanna í Bandarikjunom Eins og víöar um heiminn voru styrktartónleikar þeir, sem haldnir voru í þágu Nelsons Mandela, sýndir í Bandaríkjunum. Ekki voru þeir þó sýndir þar í fullri lengd því hljóm- leikamir voru ritskoðaðir og var efni fellt niður. Má þetta furðulegt teljast í landi sem státar sig af fullu mál- frelsi. Svo vildi þó til að Coca Cola fyrir- tækið styrkti útsendinguna í Banda- ríkjunum og þar sat fólk við frá fyrir- tækinu og hafði gætur á öllu. Því fengu bandarískir áhorfendur hvorki að heyra kveðju Winnie Mandela né boðskapinn frá fangels- inu þar sem Nelson Mandela situr. Leikkonan Whoopi Goldberg, sem „Við erum vonandi hér í dag sem fulltrúar venjulegs fólks, fólks frá heimabæ okkar, landi okkar, landi ykkar, öllum löndum og heimsálfum sem vilja sjá enda bundinn á þau morð, þá þjáningu og það harðræði sem á sér stað í Suður-Afríku“ - Jim Kerr, söngvari Simple Minds. var annar kynnir tónleikanna, sagði að hún hefði fengið ströng fyrirmæli um það að forðast að skipta sér af stjómmálum. Hún og aðrir banda- rískir listamenn létu þau tilmæh sem vind um eyru þjóta og kölluðu Suð- ur-Afríku hryðjuverkaríki og gagn- in árið 1964 er hann fékk lífstíðar- dóm fyrir tilraun til að binda enda á kynþáttastefnu stjórnvalda í Suður- Afriku. rýndu stefnu Margaretar Thatcher og Ronalds Reagan. í Bretlandi sýna skoðanakannanir aö mikill meirihluti landsmanna var fylgjandi því að tónleikarnir væru sýndir óstyttir þar. BBC ákvað að sýna þá alla þrátt fyrir mótmæli íhaldsmannsins Johns Carhsle og 26 annarra íhaldsmanna. John Carhsle ver ávaht kynþáttastefnu stjórnar- innar í Suður-Afríku og er virkur í þrýstihópi sem beitir sér fyrir mál- efnum hvíta minnihlutans þar. Breskir hstamenn hafa mjög varið ákvörðun BBC að sýna tóníeikana í hehd sinni þrátt fyrir stjórnmálaleg- an þrýsting að gera það ekki. Söngvari Simple Minds, Jim Kerr, sagði að hann neitaði því ekki að tónleikarnir væru mótmæli en benti á að þeir væru í Bretlandi og að hann vissi ekki betur en slík hegðun væri leyfileg þar. Einn félagi hljómsveit- arinnar Marilhon tók undir með Jim Kerr. Taldi hann að kynþáttaað- skhnaðarstefnan væri blóöugt mannréttindamál sem ekki væri hægt að viröa að vettugi. Áður en tónleikarnir hófust gaf framkvæmdastjóri BBC út fyrirskip- un um það að þeir yrðu sýndir sem dæmigerður tónlistarviðburður og öh stjórnmálaleg umræða ætti heima í hlutlausri umfjöllun fjölmiðlanna. BBC sýndi tónleikana ekki alveg í beinni útsendingu því sjö sekúndna töf varð á útsendingunni. Áætlað hafði verið að skipta yfir í fyrirfram upptekin viðtöl við hljómsveitirnar ef einhveijar stjórnmáíaræður færu „Heiðarleikinn og mannúðin munu sigra að lokum" - Eurythmics. að heyrast af sviðinu á Wembley. Trevor Huddleston, erkibiskup og forseti hreyfingar gegn aðskilnaðar- stefnunni, sagði aö enginn hluti ágóðans rynni til afríska þjóðarráðs- ins heldur skiptist hann jafnt milli hreyfingarinnar og viðurkenndra samtaka sem hjálpa bömum í Suð- ur-Afríku. Hann sagði að aðalatriðið hefði ekki verið aö hala inn peninga heldur að vekja fólk til vitundar um þetta málefni. Tónleikarnir hefðu verið haldnir til heiðurs Mandela og th að höfða til manna um heim allan að biðja um að Mandela verði látinn laus áður en sjötugsafmæhsdagur hans rennur upp þann 18. júh nk. í thefni afmælisins hefur útgáfu- fyrirtækið Chrysalis ákveðið að gefa út nýja útgáfu af laginu „Free Nelson Mandela" með Special A.K.A. Bók með sama nafni og lagið mun koma út í enda júh á vegum Penguin. Hún mun innihalda myndir frá hljómleik- unum sem haldnir voru þann 11. júní síðastliðinn. George Michael tók framann fram yfir Brooke Shields Brooke Shields hefur nú örugglega komist yfir Gogga, því hún er nú ást- fangin upp fyrir haus af Woody Harrelson. Brooke Shields er nú í London að leika í sjónvarpsmyndaflokki með Twiggy. Þarlendir blaðamenn not- uðu því tækifærið og spurðu snótina um samband hennar og George Mic- hael. Brooke sagöi að það hefði veriö Goggi sem batt enda á samband þeirra á sínum tíma því hann hefði tekið framann og frægðina fram yfir hana. Hún bætti viö að þau hefðu skemmt sér mjög vel saman og aö hann hefði verið sannur herramað- ur. Það hefði því sært hana er hann George Michael, sem nú hefur náð talsverðum frama, var víst fyrsta stóra ástin í lífi Brooke Shields. ákvað að frægðin gengi fyrir. Brooke Shields og George Michael hittust fyrst í heilsurækt í Chicago. Hún ákvað aö taka af skarið og tala við hann því hann hafði lengi verið uppáhaldstónlistarmaður hennar. Upp úr því þróaðist samband sem stóð í nokkurn tíma fyrir tveimur árum. Kvikmyndastjaman játaði að Ge- orge hefði verið fyrsta stóra ástin sín og hún heföi verið miður sín eftir að hann gaf hana upp á bátinn. Ástar- sorgin hefði kramiö hjarta hennar. Hún hlýtur þó að vera búin aö jafna sig því nú er hún víst yfir sig ást- fangin af Woody Harrelson úr „Staupasteini" í trássi við móður sína. Og þá er bara að vona að Woody sé ekki eins eigingjam og George Michael og yfirgefi Brooke Shields eins og sökkvandi skip.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.