Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.1988, Blaðsíða 40

Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.1988, Blaðsíða 40
56 MÁNUDAGUR 27. JÚNÍ 1988. Jarðarför Brandur Ágúst Vilhjálmsson lést 17. júní sl. Hann var fæddur 27. ágúst árið 1900 í Hátúni, Nesi í Norðfirði. Foreldrar hans voru Vilhjálmur Stefánsson og Sveinhildur Hildi- brandsdóttir. Brandur giftist Hall- dóru Björnsdóttur, en hún lést árið 1987. Brandur stundaði sjómennsku fram yflr lok síðari heimsstyrjaldar- innar. Eftir að hann kom í land starf- aði hann við byggingarvinnu. Útfór hans verður gerð frá Fossvogskirkju í dag kl. 15. Kjartan Þorgilsson lést 17. júni sl. Hann fæddist að Knarrarhöfn í Hvammssveit 1. nóvember 1905. Voru foreldrar hans hjónin Þorgils Friðriksson og Halldóra Ingibjörg Sigmundsdóttir. Kjartan lauk kenri- araprófi frá Kennaraskóla íslands vorið 1940. Hann kenndi á ýmsum stöðum en frá árinu 1951 og til starfs- loka, 1974, var Kjartan kennari viö Melaskólann. Útfór hans verður gerð 6>á Neskirkju í dag kl. 13.30. Bjarna Guðmundssonar, Grænuhlíð 20, Reykjavík, fer fram frá Fossvogs- kirkju þriðjudaginn 28. júní kl. 15. Jarðsett verður í Hafnarfjarðar- kirkjugarði. Sigurður Tryggvason, fyrrverandi sparisjóðsstjóri frá Þórshöfn, er lést 18. júni sl., verður jarðsunginn frá Gamanleikhúsiö í leikför um Evrópu Gamanleikhúsið, sem nú er á þriðja starfsári, heldur utan þann 30. júní nk. í leikfór til Evrópu. í leikförinni eru sjö félagar ffá Gamanleikhúsinu. Ferðin hefst á leiklistarhátíð í Almelo í Hollandi og stendur sú hátíð yfir í tiu daga. Þvi næst hittir hópurinn þijá unga leikara Húsavíkurkirkju miðvikudaginn 29. júní kl. 14. Sveinn S. Einarsson verkfræðingur verður jarðsunginn frá Dómkirkj- unni miövikudaginn 29. júní kl. 15. Útfor Péturs Thomsen ljósmyndara fer fram frá Fossvogskirkju í dag 27. jiiní kl. 13.30. Þuríöur Bárðardóttir, Meltröð 2, Kópavogi, lést í Landakotsspítala að kvöldi 20. júní. Útforin fer fram frá Kópavogskirkju þriðjudaginn 28. júní kl. 13.30. Hjörtur Líndal Sigurðsson, Skaga- braut 46, Akranesi, lést í Sjúkrahúsi Akraness 15. júni. Jarðarfórin fór fram í kyrrþey að ósk hins látna. Auðbjörg Káradóttir, Ósbakka, Skeiðum, verður jarðsungin frá Ól- afsvallakirkju þriðjudaginn 28. júní kl. 14. Sætaferð verður frá BSÍ kl. 12 og einnig frá Fossnesti, Selfossi, kl. 13. Andlát Sölvi Elíasson bifreiðarstjóri, Ein- holti 9, andaðist í Borgarspítalanum þriðjudaginn 21. júni. Elín Björnsdóttir, Lynghvammi 4, Hafnarfirði, andaðist í St. Jósefsspít- ala, Hafnarfirði, 23. júní. Vilmunda Einarsdóttir frá Vest- mannaeyjum lést að morgni 23. júní í Landspítalanum. Ingibjörg Signý Frímannsdóttir, Holtabraut 10, Blönduósi, lést 24. júni. TiUcynningar frá Hólmavík og verður þá haldið til Vín- ar í Austurríki á leiklistarhátíð sem standa mun í sextán daga. Auk þess að sýna söngleikinn Kötturinn sem fer sínar eigin leiðir faer hópurinn tækifæri til að sjá önnur leikrit og hitta og kynnast krökkum frá öðrum löndum með sömu áhugamál. Félagar í Gamanleikhúsinu eru 43 talsins á aldrinum 10-15 ára. Dómar félagsdóms Út eru komnir Dómar félagsdóms, vni. bindi 1976-1983, ásamt registri. Ritiö er 304 bls. að stærð og hefur félagsdómur útgáfu þess með höndum. Samantekt þessa bindis annaðist Bjami K. Bjama- son hæstaréttardómari, fyrrum forseti félagsdóms. Hiö islenska bókmenntafé- lag, Þingholtsstræti 3, Reykjavík, mun annast dreifmgu og sölu Dóma félags- dóms. Á afgreiðslu Bókmenntafélagsins má einnig fá eldri bindi þessa efnis. Af- greiðslan er opin daglega kl. 8-16. Nýr formaður Lagnafélags íslands Á aðalfundi Lagnafélags íslands, sem haldinn var nýlega í ráðstefnusal Hótel Loftleiða í Reykjavik, var Jón Siguijóns- son, yfirverkfraeðingur hjá Rannsóknar- stofhun byggingariðnaðarins, kosinn formaðiu: félagsins. Aðrir í stjóm LAFÍ em Rafn Jensson varaformaður, Guð- mundur Halldórsson ritari, Valdimar K. Jónsson gjaldkeri, Jónas Valdimarsson, Snæbjöm Kristjánsson og Grétar Kristj- ánsson. Formaöur fagráðs er Guöni Jó- hannesson. Á þessu öðm starfsári félags- ins hefur mest áhersla verið lögð á fræðslu- og kymúngarmál. Félagar í Lagnafélagi íslands em rúmlega 400. Skrifstofa félagsins er að Skipholti 35, Reykjavik. Meiming___________________________________________dv Skáldið sem ekki vill vera skáld halds og trausts. Listamanninum er margt betur gefið en söngur og því hjálpaði það mikið upp á að hafa söngkonurnar með. Stemningin í Laugardalshölll á fóstudagskvöldið var gífurleg enda komst Cohen við og kvað Auden hafa haft rétt fyrir sér á sínum tíma um land og þjóð. Það sér fyrir end- ann á hljómleikaferð meistarans um Evrópu að þessu sinni. En koma tímar og nýjar plötur. Hann verður á ferðinni að nýju áður en langt um líður. Vonandi staldrar þá Leonard Cohen við á leið sinni yfir hafið og vísiterar söfnuð sinn. Þið sem ekki komust á tónleikana að þessu sinni ættuð ekki að láta happ úr hendi sleppa næst. ÁT Þá er það á hreinu svo ekki verður um villst: Leonard Cohen - ljóða- skáldið kanadíska sem neitar að vera ljóðskáld - á stóran og dyggan hóp aðdáenda hér á landi. Hópur- inn hlýddi á meistara sinn á fóstu- dagskvöldið í fullar þrjár klukku- stundir og neitaði að sleppa honum af sviðinu. Stemningin var tryllt. í fullu ósamræmi við ómþýöa og ró- andi tónlist Cohens og félaga hans. Það fór ekkert á milli mála strax í upphafi að Leonard Cohen hafði úr nógu efni að moða. Tónleikamir hófust á einu þekktasta lagi hans frá níunda áratugnum, laginu Dan- ce Me To The End Of Love. Síðan kom Ain’t No Cure For Love af nýjustu plötunni og þar á eftir hvert þekkta lagið á fætur öðru. Uppbygging tónleikanna var með stundaglassniöi. Vel þekkt lög Listahátíð Ásgeir Tómasson fyrsta kastið, þá fluttir minna þekktir ópusar og síðan endað á stóru númerunum, svo sem Suz- anne og So Long Maryanne. Átta manna hljómsveit var með Leonard Cohen á sviðinu. Fjöl- hæfir spilarar og söngvarar sem fóru fum- og áreynslulaust með sín hlutverk. Enda var konsertinn í Reykjavík sennilega sá fimmtug- asti og fjórði sem efnt var til í hljómleikaferöinni sem nú sér fyrir endann á. Hljómsveitin var óaö- fmnanleg svo og söngkonurnar eða úurnar tvær sem voru Cohen til Fréttir DV Efstu menn á bridgemótinu. Frá vinstri Steinþór Þráinsson, Þormóður Ásvaldsson, Stefán Guómundsson, Ólafur Sigmarsson og svo sigurvegararnir, Jón og Þorsteinn Þorgeirssynir. DV-mynd Jóhann Arnason Vopnafjörður: Bridgemót með þátttöku Þingeyinga Jóhann Amasan, DV, Vopnafirði: Veglegt bridgemót var haldið hér á Vopnafirði ekki alls fyrir löngu og voru þátttakendur frá Bridgefélagi Húsavíkur, Mývatnssveitar og svo frá gestgjöfunum í Bridgefélagi Vopnafjarðar. Spiluö var tvímenningskeppni eftir barómeter-kerfi sem þýðir að staða keppenda er reiknuð út eftir hveija umferð. Verður keppnin því mjög skemmtileg fyrir áhorfendur sem keppendur. Alls tóku 22 pör þátt í mótinu og spiluð 42 spil. Það hófst kl. 13 og var ekki lokið fyrr en kl. 20.30 eftir geysispennandi keppni í síðustu umferðunum. Sigurvegarar urðu Jón og Þor- steinn Þorgeirssynir meö 535 stig. Hlutu þeir veglegan farandbikar að launum og er þetta í fyrsta skipti sem keppt er um gripinn. I öðru sæti urðu Ólafur Sigmarsson og Stefán Guð- mundsson með 511 stig. Bæði þessi pör eru í Bridgefélagi Vopnafjarðar. I þriöja sæti urðu Steinþór Þráinsson og Þormóður Ásvaldsson frá Bridge- félagi Mývatnssveitar með 499 stig. Það mun vera ætlunin að slíkt vor- mót verði árviss atburður í starfi þessara bridgefélaga og munu Mý- vetningar verða gestgjafar að ári. Hlbúinn í slaginn við íslenska vegi Júfia Imsland, DV, Höfiv Farartæki þau, sem koma með Norrænu, eru margvísleg og misjafn- lega útbúin fyrir akstur á okkar van- þróuðu vegum. Þessi ökumaður hef- ur trúlega fengiö allgrófa lýsingu á vegum og umferðarmenningu ís- lendinga því hann var ekki bara með grind til hlífðar yfir ljósin heldur líka rammgerða grind fyrir framrúðunni, ætlaða til varnar grjótkasti við mæt- ingu eða framúrakstur og ökumað- urinn býst greinilega ekki við nein- um smásteinum eftir stærð möskv- anna að dæma. Vonandi komast þessir ágætu ferðalangar með bílinn sinn óskemmdan og óbrotinn heim aftur. DV-mynd Ragnar Vopnafjörður: Jóhann Ámason, DV, Vopnafirði: Lýtingur dreginn í höfn Eskfirðingur, til hægri, kemur með Lýting til Vopnafjarðar. DV-mynd Jóhann Árnason Þegar Vopnfirðingar htu út um glugga í hádeginu á sunnudag sáu þeir hvar Lýtingur NS 250 var dreg- inn að landi. Drifu menn sig þá frá steikinni og stormuðu niður á bryggju til að athuga hvað amaði að. Þar fengust þær fréttir að stýri Lýtings hefði bilað rétt við Langa- nesið, þegar verið var aö færa skipið milli veiðisvæða. Svo heppilega vildi til að Eskfirðingur SU 9 var ekki langt undan og tók hann Lýting í tog heim til Vopnafjarðar. Það má segja að það hafi verið eins konar lán í óláni aö þetta var síðasti þorsktúrinn um tíma og átti að skipta yfir á rækju eftir túrinn.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.