Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.1988, Qupperneq 7
MAnMöAGUR'27. JÍJW'l/98§.
7
Stórkostleg breyting á Bónusreikningi:
MEIRIMÖGULEIKAR \
EN M)UR HAFA KKKST
ÁINNLÁNSREIKNINGI
Vextirnir hækka með innstæðunni og
geta orðið a.m.k. 7% umfram verðbólgu
Frá og með 1. júlí munu
eigendur Bónusreikn-
inga Iðnaðarbankans
njóta ýmissa sérréttinda sem eru
einsdæmi á óbundnum reikning-
um bankanna.
Veigamesta breytingin er sú
að tekin verða upp vaxtaþrep,
þannig að vextirnir hækka eftir
því sem innstæðan verður hærri.
Vaxtaþrepin eru 4 talsins:
1. vaxtaþrep fyrir innstæðu
allt að 50.000 kr.
2. vaxtaþrep fyrir innstæðu á
bilinu 50.000-200.000 kr.
3. vaxtaþrep fyrir innstæðu á
bilinu 200.000 - 500.000 kr.
4. vaxtaþrep fyrir innstæðu
yfir 500.000 kr.
Vextirnir hækka um 1% í
hvert sinn sem nýj u þrepi er náð.
Þannig verða öruggir vextir í
hæsta þrepi a.m.k. 7% umfram
verðbólgu sem er það hæsta sem
þckkist á óbundnum skipti-
kjarareikningum bankanna.
Vernd gegn verðbólgu.
Samanburður á verðtryggðum
og óverðtryggðum kjörum
tryggja eigendum Bónusreikn-
inga vernd gegn verðbólgu. Á
sex mánaða fresti eru borin sam-
an verðtryggð og óverðtryggð
kjör hvers váxtaþreps og gildir
sú ávöxtun sem hærri er. Þannig
geta eigendur Bónusreikninga
verið vissir um, að fá ávallt betri
ávöxtunina hverj u sinni.
Innstæðan er alltaf
laus.
Innstæða á Bónusreikningi er
laus til útborgunar hvenær sem
er og án uppsagnar. Kostnaði
við úttekt er haldið í lágmarki og
reiknast einungis á það sem tek-
ið er út, þó ekki ef um er að ræða
vexti tveggja síðustu vaxtatíma-
bila.
Ýmis sérréttindi.
Auk þess sem að framan
getur njóta eigendur Bónus-
reiknings ýmiss konar þjónustu
og sérréttinda, s.s. afsláttar-
þjónustu, sparnaðarþjónustu, fá
glæsilega möppu og síðast en
ekki síst fá ellilífeyrisþegar og
hlutafjáreigendur Iðnaðarbank-
ans sérstökkjör.
Sérstaktboð:
EUilífeyrisþegar fá
hærrí vexti strax
„Okkur hjá Iðnaðar-
bankanum langar til
þess að koma til móts
við þessa hópa á myndarlegan
hátt“, segir Birna Einarsdóttir,
forstöðumaður markaðssviðs
bankans.
„Ellilífeyrisþegar njóta þeirra
sérstöku kjara á Bónusreikningi
að inneign þeirra fær strax vexti
2. þreps þótt hún sé undir50 þús-
und krónum. Sama regla gildir
um hluthafa bankans."
Birna segist vonast til þess að
þessi tilhögun falli í góðan jarð-
veg enda telji hún að þarna sé
um góðan kost að ræða, fyrirlág-
ar jafnt sem háar innstæður.
Iðnaðarbankinn -nútímabanki enn einu sinni fyrstur með nýjungar. Það má búast við því að ásóknin verði mikil
i nýja Bónusreikninginn.
Valur Valsson, bankastjóri:
Kostur sem sker sig úr og hentar
jafnt einstaklingum sem fyrirtækjum
„Bónusreikningur sker
sig áþreifanlega úr
öðrum bankareikning-
um í þessari breyttu mynd“, seg-
ir Valur Valsson, bankastjóri.
„Þessi breyting er gerð til þess
að sameina á einfaldan hátt kröf-
ur sparifjáreigenda um góða
ávöxtun, sveigjanleika og
öryggi.
Ég tel Bónusreikning góðan
kost fyrir alla þá sem vilja varð-
veita og ávaxta fé sitt, jafnt lágar
upphæðir sem háar og jafnt til
lengri tíma sem styttri.
Valur Valsson, bankastjóri,
ánægða viðskiptavini.
Einnig er það veigamikið at-
riði að jafnhliða góðri ávöxtun
°g öryggi er Bónusreikningur
alltaf laus, fólk getur gripið til
peninga sinna þegar því hentar,
fyrirvaralaust.
BÍNUS
REKNINGUR
-borgarsig
AUt á sínum stað:
Glæsilegmappa
fylgirhverjum
Bónusreikningi
Allir Bónusreiknings-
eigendur fá glæsilega og
gagnlega möppu, þar
sem auðvelt er að varðveita alla
pappíra varðandi reikninginn á
einum stað, s.s. inn- og útborg-
anir, yfirlit, stofnskírteini upp-
lýsingar og reglur, auk þess
ýmiss konar gögn sem.að gagni
koma.
Bónusreikningur er óvenjulegur á fleiri sviðum en vöxtum. Reikningnum
fylgja ýmsir gagnlegir hlutir.
Eigendur Bónusreiknings fá
afslátt af vörum og þjónustu
"Yr; _ Sú nýjung verður tekin
upp samhliða öðrum
Á.:£. breytingum á Bónus-
reikningnum, að gefið verður út
sérstakt afsláttarkort - Bónus-
kort.
Bónuskortið verður afhent
eigendum Bónusreikninga og
veitir þeim verulegan afslátt hjá
nokkrum völdum fyrirtækjum á
fjölbreyttum sviðum s.s. versl-
unum, veitingastöðum, leikhús-
um o.fl.
Bónuskortið er í handhægu
formi og auðvelt að hafa það í
veskinu.
bónuskort
®MnðartanUiin
xnAKoirr
°w»nt
Bónuskort veitir afslátt á ýmsum
stöðum.
Þessi síða er auglýsing
frá Iðnaðarbankanum.
0 iðnaöariiankinn