Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.1988, Page 8
8
MÁNUDAGUR 27. JÚNÍ 1988.
Viðskipti_______________________________________________________________dv
Bankastjóramál Landsbankans:
Sverrir kominn - Valur næstur?
Maöur tengdur bankaráði Lands-
bankans, og sem DV hefur rætt viö
um ráöningu næsta bankastjóra
Landsbankans, segist reikna með að
Valur Amþórsson verði ráðinn
bankastjóri Landsbankans í stað
Helga Bergs. Og þaö gera reyndar
fleiri sem þekkja til málanna. Einn
af heimildarmönnum DV segir að
Framsóknarflokkurinn leggi áherslu
á aö vera meö geysilega sterkan
mann í Landsbankanum. Og Þor-
steinn Pálsson forsætisráðherra,
segir að hvort sem menn viiji viður-
kenna það eða ekki, sé áratugahefð
fyrir því hjá öllum flokkum að pólit-
ísks jafnvægis sé gætt við ráðningu
bankastjóra ríkisbankanna og að
hann hafi ekki orðið var við að sú
hefð hafi breyst frá því að Sverrir
Hermannsson var ráðinn banka-
stjóri Landsbankans.
En um það hvort Valur Amþórs-
son yrði næsti bankastjóri Lands-
bankans svaraði Þorsteinn Pálsson
forsætisráðherra DV: „Þú veröur að
spyrja bankaráðið að því.“
Peningamarkaður
INNLÁNSVEXTIR Innlán óverðtryggð (%) hæst
Sparisjóðsbækurób. Sparireikningar 18-20 Ab
3jamán.uppsögn 18-23 AL
6mán.uppsógn 19-25 Ab
12mán. uppsögn 21-28 Ab
18mán. uppsögn 28 Ib
Tékkareikningar, alm. 8-10 Ab.Sb
Sértékkareikningar Innlán verðtryggð 9-23 Ab
Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 2 Allir
6 mán. uppsögn Innlánmeð sérkjörum 4 20-30 Allir Vb
Innlángengistryggð
Bandarikjadalir 6-6,50 Vb.Sb
Sterlingspund 6,75-8 Úb
Vestur-þýsk mörk 2,25-3 Ab
Danskarkrónur 8-8,50 Vb
ÚTLÁNSVEXTIR Útlán óverðtryggð (%) lægst
Almennirvíxlar(forv.) 30-32 Bb.Lb
Viðskiptavixlar(forv.)(1) kaupgangi
Almennskuldabréf 31-34 Bb.Lb
Viðskiptaskuldabréf(l) kaupgengi Allir
. Hlaupareikningar(yfirdr.) Útlán verðtryggð 33-35 Sp
. Skuldabréf Utlán til framleiðslu 9,5 Allir
Isl.krónur 29,5-34 Lb
SDR 7,75-8,50 Lb
Bandaríkjadalir 9,00-9,75 Úb
Sterlingspund 9,75-10,50 Lb.Bb,- Sb.Sp
Vestur-þýsk mörk 5,25-6,00 Úb
Húsnæðislán 3,5
Lífeyrissjóðslán 5-9
Dráttarvextir 44,4 3,7 á
mán.
MEÐALVEXTIR
överótr. júnf 88 32
Verðtr. júnl 88 VlSITÖLUR 9,5
Lánskjaravisitala júni 2051 stig
Byggingavisitala júní 357,5 stig
Byggingavísitalajúni 111.9 stig
Húsaleiguvísitala Hækkaði 6%1. aprll.
VERÐBRÉFASJÓÐIR
Gengi bréfa verðbréfasjóða
Ávöxtunarbréf 1,15733
Einingabréf 1 2,888
Einingabréf 2 1,669
Einingabróf 3 1,851
Fjolþjóðabréf 1,268
Gengisbréf 1,340
Kjarabréf 2,893
Lifeyrisbróf 1.452
Markbréf 1,507
Sjóösbréf 1 1,399
Sjóösbréf 2 1,246
Tekjubréf 1,428
Rekstrarbréf 1,1412
HLUTABRÉF
Söluveró aö lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv.:
Almennar tryggingar 115 kr.
Eimskip 234 kr.
Flugleiðir 212 kr.
Hampiöjan 112 kr.
Iðnaöarbankinn 148 kr.
Skagstrendingur hf. 220 kr.
Verslunarbankinn 114 kr.
Útgerðarf. Akure. hf. 121 kr.
Tollvörugeymslan hf. 100 kr.
(1) Við kaup á viöskiptavíxlum og við-
skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja
aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi,
kge. Búnaðarbanki og Samvinnubanki
kaukpa viöskiptavixla gegn 31% ársvöxt-
um og nokkrir sparisj. 30,5%.
Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn,
Bb= Búnaðarbankinn, lb = lðnaðar-
bankinn, Lb = Landsbankinn, Sb =
Samvinnubankinn, Ob = Útvegsbankinn,
Vb = Verslunarbankinn, Sp = Sparisjóð-
irnir.
Nánari upplýsingar um penlngamarkað-
inn birtast i DV á fimmtudögum.
orðið æ háværari í viðskiptaheimin-
mn aö þeú1 Valur Amþórsson og
Guöjón B. Ólafsson, forstjóri SÍS, eigi
ekki skap saman, sérstaklega ekki
eftir hrinuna um launamál Guðjóns
í vetur.
„Ég tel að fyrst Valur er ekki orð-
inn ráðherra þá sé engin staða nógu
góð fyrir hann ef hann hættir sem
stjómarformaður SÍS og kaupfélags-
stjóri KEA, nema bankastjórastaöa í
Landsbankanum. Allt annaö er nið-
ur á við fyrir Val,“ vom orð eins
viðmælenda DV.
Um mikilvægi þess fyrir framsókn-
armenn að hafa sterkan mann í
bankastjórastól Landsbankans, er
bent á að Landsbankinn er stærsti
banki landsins. Stærð hans er slík
aö hann er næstum helmingur alls
bankakerfisins.
Bankinn nauðsynlegur
stórfyrirtækjum SÍS
Einn viðmælenda DV bendir á aö
bankinn sé svo stór að hann sé í
rauninni eini banki landsins sem
geti verið viðskiptabanki stórfyrir-
tækja eins og Sambandsins og Ála-
foss. Og á því megi ekki leika neinn
vafi innan samvinnuhreyfingarinn-
ar að fyrirtæki hennar, sérstaklega
þau sem geta verið í vandræðum með
sölusamninga eins og Álafoss, séu
með Landsbankann sem sinn viö-
skiptahanka. Þess vegna verði fram-
sóknarmaðurinn að vera sterkur
sem situr í bankastjórastól Lands-
bankans.
Framsóknarmenn að
tryggja sér stöðuna
Kenningar em líka á lofti um að
framsóknarmenn séu ekki allt of
vissir um lífdaga núverandi ríkis-
sljómar og þess vegna sé það þeim
mikilvægt að koma sínum manni aö
í bankasfjórastól Landsbankans.
Bent er á mikla óánægju á ríkis-
stjóminni á miðstjórnarfundi fram-
sóknarmanna í maí síðastliðnum.
Eiirn af viðmælendum DV segir að
þeir Jónas Haralz og Helgi Bergs,
sem vom skólabræður í mennta-
skóla og miklir vixúr, hafi verið beðn-
ir um af bankaráðinu aö hætta ekki
á sama tíma. Jónas er nýhættur og
Sverrir tekinn við, Helgi Bergs hætt-
ir um áramótin og framsóknarmaður
verður skipaður í stööu hans á næstu
dögum.
Enginn þrýstingur,
segir Helgi Bergs
Helgi hefur sagt við DV að hann
hafi ekki orðiö fyrir neinum þrýst-
ingi af einum eða neinum um að
hætta, en hann verður sjötugur á
næsta ári og þarf því ekki að hætta
fyrr en þá, samkvæmt reglum bank-
ans.
„Mér fannst einfaldlega oröið tíma-
bært aö létta á mér störfum,“ sagði
Helgi Bergs við DV fyrir helgi um
ástæðu þess að hætti ári fyrr hjá
Landsbankanum en hann þarf.
„Menn eiga aö minnka við sig þegar
þeir finna að þeir eru ekki jafn ungir
og áður,“ bætti hann við.
-JGH
Sverrir Hermannsson mættur til starfa sem bankastjóri Landsbankans. Á bak viö hann standa þeir Pétur Sigurös-
son, formaður bankaráðs Landsbankans, og Kristinn Finnbogason, varaformaöur bankaráðsins. Lengst til vinstri
er Björgvin Vilmundarson bankastjóri og lengst til hægri situr Helgi Bergs, sem nú hefur sagt starfi sinu lausu.
Val Amþórsson sem næsta banka-
stjóra?
„No, comment.“
Pétur svaraði síðan spumingu DV,
um hvort nafn Vals Ámþórssonar
hefði borið á góma innan bankaráös-
ins, nákvæmlega eins: „No, comm-
ent.“
Pétur hefur samt sagt áður við DV,
mánudaginn 26. október síðastliðinn,
að hann myndi styöja Val Arnþórs-
son í stað Helga Bergs ef fram kæmi
tillaga þess efnis. „Það kemur ekki
til mála að ég, Pétur Sigurðsson,
gagnrýni Val Amþórsson í starf
bankastjóra Landsbankans," sagði
Pétur þá.
Ekkert klárt í þessum efnum,
segir Kristinn Finnbogason
Kristinn Finnbogason sagði við DV
fyrir helgi að ekki væri nokkur hlut-
ur klár í þeim efnum hver yrði
bankastjóri í stað Helga Bergs. Um
það hvort hann ætli aö bera fram til-
lögu um Val á næsta bankaráðsfundi
sagöi Kristinn. „Ég segi ekki annaö
en að ég tel að rætt verði um banka-
stjórastööuna á næsta fundi banka-
ráösins.“
Umræddur bankaráðsfundur verö-
ur að öllum líkindum haldinn í
næstu viku þar sem Pétur Sigurðs-
son og Kristinn Finnbogason verða
í sumarfríi í þessari viku. Eitt er þó
víst, næsti bankastjóri Landsbank-
ans verður framsóknarmaður, alveg
eins og Helgi Bergs bankastjóri er
framsóknarmaður og það var Fram-
sóknarflokkurinn sem gerði hann að
bankastjóra.
Slæmt samkomulag Guöjóns
og Vals?
Aö undanfórnu hafa þær sögur
- En, Þorsteinn, nú var gert sam-
komulag um þaö við myndun ríkis-
stjómarinnar að Sverrir Hermanns-
son, Valur Amþórsson og Kjartan
Jóhannsson yrðu næstu bankastjór-
ar ríkisbankanna?
„Það var ekki gert samkomulag um
neina menn.“
Hefðin fyrir pólitískri
stöðuveitingu ekki breyst,
segir forsætisráðherra
- En var þá samið um að flokkamir
fengju sína menn í bankastjórastöð-
umar sem útht var fyrir að væm að
losna?
„Það vora engar ákvarðanir teknar
um að breyta vinnubrögðunum við
ráðningu bankastjóranna, vinnu-
brögöum sem aliir flokkar hafa und-
antekningalaust haft í áratugi.“
- Hefur þessi áratugahefð breyst efdr
öll þau læti sem uröu þegar Sverrir
Hennannsson var ráðinn í stöðuna?
„Ég hef ekki orðið var viö það. En
Fréttaljós
Jón G. Hauksson
að sjálfsögðu er það sjónarmið að
vinna á að losa ríkisbankana undan
pólitískum afskiptum. Það er bara
tómt mál að tala um að losa þessi
afskipti nema aö selja ríkisbankana,
og það vil ég gera,“ sagði Þorsteinn
Pálsson forsætisráðherra við DV.
Tekið fyrir á næsta fundi,
segir Pétur Sigurðsson
Pétur Sigurðsson, formaður
bankaráðs, segir að öragglega verði
rætt um ráöningu nýs bankasijóra í
stað Helga Bergs á næsta bankaráðs-
fundi. Ennþá er óráðiö hvenær fund-
urinn verður haldinn.
- En hefur veriö tekin ákvörðun um
Þessi mynd birtist með fréttaskýringu DV um Landsbankamálið síðastlíðið
haust þegar bankastjóramál bankans komust i hámæli. Athugið að mynd-
Innl var breytt af btaðinu, þeir Sverrir Hermannsson og Valur Arnþórsson
eru komnir í bankastjóraröðina sem er sú aftari á myndinni. Bankaráðið
situr í fremri röð. Ámi Vllhjálmsson situr lengst til vinstri. Hann sagöi sig
úr ráðinu í öllum látunum vegna Sverris.
Hlutafé Pólstækni
aukið um 20 milljónir
Sigurjón J. Sigurðsaon, DV, fsafirði:
Hlutafé Pólstækni hf. veröur aukið
um 20 milljónir, samkvæmt ákvörð-
un aðalfundar á dögunum. Hlutafé
fyrirtækisins verður þar með komið
í 65 milljónir króna. Ennfremur hef-
ur Pólstækni keypt 40 prósent í
Rekstrartækni hf. í Reykjavík.
Rekstrartækni er fyrst og fremst
hugbúnaöarfyrirtæki.
Að sögn Ásgeirs Erlings Gunnars-
sonar, framkvæmdastjóra Pólstækni
hf„ hefur með aukinni hagræöingu
að undanfómu náðst að bæta rekst-
urinn og er fyrirtækiö nú ekki rekiö
með tapi eins og var um tíma.
Pólstækni er þekkt fyrir að þróa,
framleiða og selja tæki, kerfi og hug-
búnað fyrir fiskvinnslu, útgeröarfyr-
irtæki og iðnfyrirtæki, hér á landi
sem erlendis.
-JGH
Ásgeir Erling Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri Pólstækni hf.
Nýir hluthafar
í Sameind hf.
Nýir hluthafar era komnir í fyrir-
tækið Sameind hf. í Brautarholti í
Reykjavík. Þeirra á meðal era eig-
endur Hugbúnaöar hf. í Kópavogi
ásamt þeim Sveini Áka Lúðvíkssyni
rafeindavirkja og Þór S. Ólafssyni
rafeindavirkja.
Sveinn Áki hefur tekiö við sem
framkvæmdastjóri Sameindar en
hann vann áður hjá Kristjáni Ó.
Skagfjörð. Þór S. Olafsson verður
yfirmaður viðhalds- og þjónustu-
deildar. Hann vann áður hjá Nón hf.
-JGH