Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.1988, Blaðsíða 33
MÁNUDAGUR 27. JÚNÍ 1988.
49 .
Fréttir
Norðurfandamótið í bridge:
Danir í efstu sætunum
Dönsku sveitirnar hafa forustu í
báðum flokkum eftir tvær fyrstu
umferðirnar á Norðurlandamótinu í
bridge, sem hófst að Hótel Loftleiöum
í gær að viðstöddum fjölmörgum
áhorfendum. í opna flokknum hefur
danska sveitin góða forustu eftir
stórsigra á Svíþjóð og Finnlandi. í
kvennaflokknum er munurinn hins
vegar lítill. íslensku sveitunum hef-
ur ekki gengið alveg nógu vel. í opna
flokknum er ísland þó í þriöja sæti,
11 stigum á eftir Dönum. I fyrstu
umferðinni sigraöi ísland Færeyjar
með 21-9 og voru þaö nokkur von-
brigði því eftir fyrri hálfleikinn
stefndi í stórsigur. ísland var 51 impa
yfir, 67-16, en tókst ekki að fylgja
þessu eftir. Tapaði síðari hálfleikn-
um meö 13 impa mun. í gærkvöldi
tapaði ísland fyrir Svíum með Utlum
mun, 12-18. I kvennaflokki er ís-
lenska sveitin í neðsta sæti. Tapaði
báðum leikjum sínum með miklum
mun. í báðum flokkum verður spiluð
tvöföld umferð, 10 umferðir í opna
flokknum en 6 í kvennaflokki. Þriðja
umferð hófst kl. 11 í morgun ogíjórða
umferð verður spiluð í kvöld.
Langmest hefur komið á óvart stór-
sigur Dana í opna flokknum á hinni
sterku sveit Svía, 23-7, í fyrstu um-
ferðinni en í sænsku sveitinni spila
tveir af núverandi Evrópumeistur-
um Svía. Danir tóku strax forustuna
í leiknum. Unnu fyrri hálfleikinn
51-16 og gáfu ekki eftir í þeim síðari,
32 -20., Danska sveitin fékk stór-
sveiílu í eftirfarandi spih.
Frá leik íslands og Færeyja í fyrstu umferðinni. Sævar Þorbjörnsson, lengst til vinstri, og Karl Sigurhjartarson spila við Trygve Vestergárd og Áka Mou-
ritsen. Spil frá leiknum er í litla bridgeþættinum í dagbókinni. DV-mynd S
* KD95
V Á106
♦ 2
+ K10764
♦ —
V KD84
♦ ÁKG543
*■ DG2
♦ ÁG108763
V 97
♦ 6
+ 983
V G532
♦ D10987
-1. Á r
Suður gaf. Allir á hættu. í opna salnum
voru Svlarnir Morath og Bjerregárd í N/S
en Werdelin og Lars Blakset A/V. Sagnir:
Suöur Vestur Norður Austur
34 dobl 4* dobl
pass 54 5* 6«
pass pass dobl p/h
Morath spilaði út spaöakóng og Lars
var fljótm- að vinna spilið. Trompaði
kónginn. Tók tígulás og svínaði laufgosa.
Spilaði blindum inn á tromp. Þá hjarta á
kóng. Morath drap en það var eini slagur
vamarinnar. 1540 til Danmerkur. Á hinu
borðinu fengu Danir aö spila 5 spaða í
N/S doblaða. Það gerði 500 og Danir imnu
þvi 1040 á spilinu eða 14 impa. Spiluð
voru sömu spil á öllum borðimum í báð-
um flokkum og voru Blakset og Werdelin
Bridge
Hallur Símonarson
hinir einu sem fóru í 6 tígla. Fimm spaö-
ar doblaðir aimennt spilaðir.
Úrsht í leikjunum í gær urðu þessi:
Opin flokkur
Fyrsta umferð. ísland - Færeyjar
21-9 (98-60), Danmörk - Svíþjóð 23-7
(83-36) og Noregur - Finnland 15-15
(72-70). Ónnur umferð. Svíþjóð - ís-
land 18-12 (61-44), Danmörk - Finn-
land 21-9 (97-58) og Noregur - Fær-
eyjar 20-10 (71—39).
Staðan er þannig. 1. Danmörk, 44
stig. 2. Noregur, 35 stig. 3. ísland, 33
stig. 4. Svíþjóð, 25 stig. 5. Finnland
24 og 6. Færeyjar, 19 stig. í dag sphar
ísland við Finnland en við Noreg í
kvöld og veröur sá leikur sýndur á
sýningartöflunni.
Kvennaflokkur
Fyrsta umferö. Danmörk - ísland
25-4 (86-14) og Svíþjóð - Noregur
17-13 (55-39). Önnur umferð. Noreg-
ur - ísland 25-3 (108-29) og Svíþjóð -
Danmörk 16-14 (71-63). -hsím
Jóhann sækir í sig veðrið í Betfört:
Jusupov slapp með jafntefli
- Kasparov hefur tekið fovystuna eftir sigur Karpovs gegn Ehlvest
Að loknum tíu umferðum af fimm-
tán á heimsbikarmótinu í Belfort í
Frakklandi hefur Jóhann Hjartarson
hlotið 4 v. og er í 9.-13. sæti ásamt
stórmeisturunum Andersson,
Beljavsky, Jusupov og Speelman.
Jóhann gerði tvö jafntefh um helg-
ina, við áskorendurna Sokolov og
Jusupov. Skák hans við Sokolov var
í járnum ahan tímann, samið var um
jafntefli eftir 25 leiki. Hins vegar var
Jóhann óheppinn að geta ekki leitt
skákina við Jusupov til sigurs. Hann
hafði mjög góða stöðu en Jusupov
varðist vel og eftir 48 leiki slíðruðu
þeir sverðin.
Eistlendingurinn Ehlvest hefur
misst forystuna í hendur heims-
meistarans Kasparovs. Ehlvest vann
Beljavsky á laugardag en það var
Anatoly Karpov sem dró hann niður
af tindinum. Karpov vann í gær eftir
að hafa teflt hratt og frábærlega vel.
Sjálfur er Karpov í 3. sæti með 6 vinn-
inga og biðskák við Hiibner þar sem
V-Þjóðveijinn er að berjast fyrir jafn-
tefli. Kasparov hefur 7,5 v. og Ehlvest
7 v. Á eftir Karpov koma Sokolov og
Spassky með 6 v., Hubner hefur 5,5
og biðskákina við Karpov, Ribh hef-
ur 5,5 v., Short 5 v., síðan Jóhann
með 4 v. í fríðum hópi og lestina reka
Timman, Nogueiras og Ljubojevic,
sem hefur nú tapað þremur skákum
í röð, ahir með 3,5 v.
Tíunda umferðin, sem tefld var í
gær, var sú skemmtilegasta í mótinu
fram að þessu. Einungis þremur
skákum lauk með jafntefh, þar af
lögðu Nogueiras og Spassky einir
niður vopn á óteflda skák. Short og
Beljavsky og Jóhann 'og Jusupov
börðust til þrautar. Kasparov vann
Andersson, Sokolov vann
Ljubojevic, Hubner vann Timman
auðveldlega, Karpov vann Ehlvest
eins og fyrr sagði og Ribli, sem haföi
gert níu jafntefli í röð, knésetti Speel-
man.
í níundu umferð, sem tefld var á
laugardag, gerðu Timman x)g Ribli,
Speelman og Nogueiras, Andersson
og Short og Jóhann og Sokolov jafn-
tefli, Ehlvest vann Beljavsky, Ka-
sparov vann Ljubojevic og Spassky
lagði Jusupov óvænt efhr að hafa náð
glæsilegri mátsókn eftir flókna mið-
taflsstöðu. Biðskák Short við
Ljubojevic úr áttundu umferð lauk
með sigri Short.
Jóhann og Jusupov leiddu saman
hesta sína á alþjóðamótinu í
Munchen á dögunum og þá vann
Jóhann eftir að Jusupov hafði gleymt
hróki í dauðanum. Heppnin fylgdi
Jóhanni í þeirri skák en í gær sner-
ist stríðsgæfan Jusupov í vil. Jóhann
tefldi byrjunina af miklum krafti og
eftir 20 leiki stóð sovéski stórmeistar-
inn frammi fyrir erflðum vandamál-
um. Hann varð að láta skiptamun af
hendi en eftir ónákvæmni Jóhanns
kom upp endataflsstaða sem gaf að-
eins jafntefli.
Hvítt: Artur Jusupov
Svart: Jóhann Hjartarson
Enskur leikur.
1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. g3 c5 4. Rf3 cxd4
5. Rxd4 d5 6. Bg2 e5 7. Rf3 d4 8. 0-0
Rc6 9. e3 Bc5 10. exd4 exd4 11. Bg5
Be6 12. Rbd2 Be7 13. Rb3 d3! 14. Hcl
0-0 15. Be3 Rg4 16. Bf4?
Eftir þennan leik nær Jóhann yfir-
höndinni. Betra er 16. Bc5 með u.þ.b.
jöfnum möguleikum.
16. - Dd7 17. a3 h6 18. Dd2 Hfd8 19.
Hfdl a5 20. Be3 Rge5 21. Rxe5 Rxe5
22. Rxa5 Bg4!
Skák
Jón L. Árnason
Jusupov kemst ekki hjá því að tapa
hði. Ef hrókurinn forðar sér kemur
23. - RÍ3+ 24. Bxf3 Bxf3 og síðan 25.
- Dh3 og hvítur verður mát.
23. Dc3 Bf6! 24. Db4 Bxdl 25. Hxdl Dg4
26. Hd2 Rf3 + ?
En nú er Jóhann of bráður á sér.
Eftir 26. - Hd7! hefði hvitur verið í
vondum málum. Þá er illt að hirða
b-peðið og svartur getur næst leikið
27. - Rf3 +. Eftir 27. h3 Rf3 + 28. Khl
Dh5 29. g4 kæmi einfaldlega 29. - Dh4
og valdar riddarann óbeint - þetta
afbrigði benti Spassky Jóhanni á eft-
ir skákina. Eftir mistökin í skákinni
eru enn vinningsmöguleikar fyrir
hendi en hvítur getur þó andað létt-
ar.
27. Bxf3 Dxf3 28. Dxb7 Dxb7 29. Rxb7
Hdb8 30. Rc5 Bxb2 31. Rxd3 Bxa3 32.
c5 Hb3 33. Kfl Hc3 34. Ke2 Hd8?!
Hér gaf 34. - g5! ákveðin færi. Segja
má að eftir næsta leik hvíts geti hann
ekki tapað taflinu, staðan er svo
traust.
35. h4! h5 36. Hdl g6 37. Hd2 Hd5 38.
Hdl Kf8 39. Hd2 Ke8 40. Hdl Kd8 41.
Bg5+ Ke8 42. Be3 f6 43. Hd2 g5 44.
hxg5 fxg5 45. Rf4!
Lagleg einfóldun stööunnar. Eftir
45. - Hxd2 46. Bxd2 Hxc5 47. Rxh5
blasir jafnteflið við.
45. - Hxe3+ 46. fxe3 Hxd2+ 47. Kxd2
gxf4 48. exf4 Bxc5
-og jafntefli samið.
-JLÁ
NÚFÆRÐU. .
105g MilRI JOGURI
ÞEGAR ÞÚ KAUPIR 500g DÓS!*
* miðað við verð á jógúrt í 180 g dósum.