Dagblaðið Vísir - DV - 08.07.1988, Blaðsíða 6
6
FÖSTUDAGUR 8. JÚLÍ 1988.
Viðskipti
Harðari samkeppni hefur leitt
til aukins samruna fyrirtækja
- JL og Volundur, Sveinn bakari og Nýja kökuhúsið og svo mætti lengi telja
Fjöldi fyrirtækja hefur sameinast á
undanfórnum mánuðum, sérstak-
lega í verslun og þjónustu þar sem
mesta samkeppnin virðist ríkja í við-
skiptalífmu. Þessa samruna hefur
gætt í ríkari mæli en á undanfórnum
árum. Þekkt dæmi um samruna fyr-
irtækja í vor og síðastliðinn vetur er
byggingavöruverslanirnar JL og
Völundur, auglýsingastofurnar
Svona gerum við og Octavo, bakaríin
Sveinn bakari og Nýja kökuhúsið og
tímaritaútgáfan Vikan og Sam-
útgáfan.
Of mörg fyrirtæki á íslandi
„Ég tel að það séu of mörg fyrir-
tæki á íslandi fyrir ekki stærri mark-
að. Rekstrareiningamar eru of marg-
Peningamarkaður
INNLÁNSVEXTIR (%) hæst
Innlán óverðtryggð
Sparisjóösbækurób. 23-26 Sp.lb
Sparireikningar
3jamán. uppsógn 23-28 Sp,Ab
6mán.uppsögn 24-30 Sp,Ab
12mán. uppsögn 26-32 Ab
18mán. uppsögn 39 Ib
Tékkareikningar, alm. 9-13 Ib.Sp
Sértékkareikningar 10-28 Ab
Innlán verðtryggð Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 2 Allir
6 mán. uppsögn 4 Allir
Innlán með sérkjörum 20-36 Lb,Bb,- Sp
Innlán gengistryggð
Bandaríkjadalir 6-7 Vb
Sterlingspund 7-8 Vb.Ab
Vestur-þýsk mörk 2,25-3 Ab.Vb
Danskar krónur 7,25-8,50 Vb.Ab
ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst
Útlán óverðtryggð
Almennirvixlar(forv.) 37-39 Vb.Sb,-
Úb
Viðskiptavíxlar(forv.) (1) kaupgengi
Almennskuldabréf 37-41 Sb
Viðskiptaskuldabréf (1) kaupgengi Allir
Hlaupareikningar(yfirdr.) 39-42 Lb.Bb,-
Útlán verðtryggð Sb
. Skuldabréf 9,25 Vb.lb
Otlán til framleiðslu
Isl. krónur 34-41 Vb.Úb
SDR 7,75-8,50 Lb.Úb,- Sp
Bandaríkjadalir 9,25-10 Lb.Úb,- Sp
Sterlingspund 10-10,75 Úb.Sp
Vestur-þýsk mörk 5,25-6,00 3,5 Úb
Húsnæðislán
Lífeyrissjóðslán 5-9
Dráttarvextir 52,8 4,4 á mán.
MEÐALVEXTIR
Cverötr. júlí 88 38,2
Verðtr. júli 88 9,5
ViSITÖLUR
Lánskjaravísitala júli 2154 stig
Byggingavisitalajúlí 388 stig
Byggingavisitala júlí 121.3stig
Húsaleiguvísitala Hækkaói 8% 1. júlí.
VERÐBRÉFASJÓÐIR
Gengi bréfa verðbréfasjóða
Ávöxtunarbréf 1,6699
Einingabréf 1 3,033
Einingabréf 2 1,752
Einingabréf 3 1,901
Fjölþjóöabréf 1,268
Gengisbréf 1,340
Kjarabréf 2,893
Lífeyrisbréf 1.525
Markbréf 1,507
Sjóösbréf 1 1,463
Sjóösbréf 2 1,283
Tekjubréf 1,428
Rekstrarbréf 1,2072
HLUTABRÉF
Söluverö að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv.:
Almennar tryggingar 115 kr.
Eimskip 252 kr.
Flugleiðir 231 kr.
Hampiðjan 112 kr.
lönaöarbankinn 156 kr.
Skagstrendingur hf. 158 kr.
Verslunarbankinn 117 kr.
Útgeröarf. Akure. hf. 123 kr.
Tollvörugeymslan hf. 100 kr.
(1) Við kaup á viðskiptavixlum og við-
skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja
aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi,
kge. Búnaðarbanki og Samvinnubanki
kaukpa viðskiptavlxla gegn 31 % ársvöxt-
um og nokkrir sparisj. 30,5%.
Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn,
Bb= Búnaðarbankinn, lb = lðnaöar-
bankinn, Lb= Landsbankinn, Sb =
Samvinnubankinn, 0b= Útvegsbankinn,
Vb = Verslunarbankinn, Sp = Sparisjóð-
irnir.
Nánarl upplýsingar um penlngamarkaö-
inn birtast I DV á fimmtudögum.
Magnús Hreggviðsson, eigandi
Frjáls framtaks. Fyrst yfirtók fyrir-
tækið blaðið Áfanga, síðan Fiski-
fréttir, þá tímaritaútgáfuna Fjölni af
Anders Hansen og loks bættist Gest-
gjafinn við í safnið í vetur.
ar og of smáar. Þetta veldur því aftur
að lífskjör á íslandi gætu verið betri
ef fleiri fyrirtæki sameinuðust enda
næðist þannig aukin hagræðing
fram,“ segir Magnús Hreggviðsson,
stjómarformaður Frjáls framtaks,
en fyrirtækið er umsvifamikið á
tímaritamarkaðnum og hefur tekið
mörg blöð yfir á undanfornum miss-
erum.
Fyrsti samruni Frjáls framtaks
Fyrsti samruni Frjáls framtaks var
þegar fyrirtækið tók ferðablaðið
Áfanga yfir. Síðan bættust Fiskifrétt-
ir í safnið og þar næst tímaritaút-
gáfan Fjölnir, sem var í eigu Anders
Hansen, en þekktasta blað Fjölnis
var Mannlíf. Onnur blöð í eigu Fjöln-
is vom Viðskipta-og tölvublaðið,
Bóndinn og Hús og garður. Loks
yfirtók Fijálst framtak matargerðar-
blaðið Gestgjafann í vetur en það var
í eigu Hilmars Jónssonar matreiðslu-
meistara.
Að sögn Magnúsar Hreggviðssonar
munar ekki svo miklu fyrir fyrirtæki
eins og hans, sem gefur út mörg blöð,
Sveinn bakari Kristdórsson. Hann
yfirtók Nýja kökuhúsið á dögunum
sem vakti mikla athygli.
að bæta við sig einu til viöbótar. „Þar
með lækkar sameiginlegur kostnað-
ur eins og skrifstofuhald, dreifing og
annar kostnaður sem er svonefndur
fastur kostnaður og fyrirtækið þarf
að greiða hvort sem blöðin eru mörg
eða fá. Með því að bæta við blöðum
hefur mér tekist að lækka fastan
kostnað á hvert blað úr 50 prósentum
niður í 20 til 25 prósent og ná þannig
fram aukinni nýtingu og hagræð-
ingu.“
Deilt í þrennt gengi ekki upp
Loks segir Magnús: „Ef allri útgáfu
yrði skipt upp í þrjár rekstrareining-
ar, þijú fyrirtæki, myndi engin
þeirra ganga í dag. Það er munurinn
og skýrir vel hvers vegna fyrirtæki,
sem eiga í harðri samkeppni á tak-
mörkuðum markaði, sjá sér hag í aö
renna saman í eitt.“
Þekkt fyrirtæki
En lítum nánar á þekkt fyrirtæki
sem hafa runnið saman undanfama
mánuði og ár. Þau eru:
JL-Völundur
Vikan-Samútgáfan
Hrafn Bachmann kaupmaður. Fyrir-
tæki hans, Kjötmiöstöðin, yfirtók
Garðakaup í vetur.
Fijálst framtak-Fjölnir
Fijálst framtak-Gestgjafinn
Kjötmiðstöðin-Garðakaup
Nóatún-Verslunin Kópavogur
Sveinn bakari-Nýja kökuhúsið
Svona gerum við-Oktavo
GBB-Auglýsingaþjónustan
Bjami Dagur-Ernst Bachmann
Kron-Víðir
Kron-Kaupgarður
Skrifstofuvélar-Gísli J. Johnsen
Jöfur-Hafrafell (Peugeot)
Jöfur-Chrysler
Globus-Töggur (Saab)
Hagkaup-Nýibær
Þess má geta að Hagkaup tók versl-
unina Nýjabæ á Eiðistorgi, húsnæði
og tæki, á leigu til tíu ára. Þar er því
ekki um sameiningu að ræða í orðs-
ins fyllstu merkingu.
Frægur er samruni fyrirtækjanna
BÚR og ísbjarnarins sem varö fyrir
nokkrum árum. Svo fariö sé enn aft-
ar í tímann má minna á sammna
Dagblaðsins og Vísis fyrir rúmum
sex árum. Og að sjálfsögöu má ekki
gleyma samruna Loftleiða og Flugfé-
lags íslands.
Sigurður Gísli,
stjórnarformaður Hagkaups
Sigurður Gísli Pálmason, stjómar-
formaður Hagkaups, segir aö með
því að fyrirtæki sameinist sé fyrst
og fremst verið að sækjast eftir meiri
hagræðingu, meiri nýtingu. „Menn
ná að bæta við reksturinn án þess
að auka yfirbygginguna,“ segir Sig-
urður.
„í okkar tilviki úti á Eiðistorgi tók-
um við á leigu verslun sem var í full-
um rekstri. Það er núklu minna mál
og kostnaðarminna en að setja hana
á stofn frá gmnni. Þetta er sjötta
Hagkaupsbúðin og ljóst að viö getum
rekið hana hlutfallslega miklu ódýr-
ara en ef við rækjum hana eina og
sér,“ segir Sigurður.
í næstsíðasta hefti Vísbendingar,
efnahagstímarits Kaupþings, er fjall-
aö almennt um sammna fyrirtækja
bæði erlendis og hérlendis. Þar segir:
„Það er varla tilviljun, að í þeim
atvinnugreinum sem em stjómvöld-
um þóknaniegar, í þeim skilningi að
þær hafa notið ýmiss konar fyrir-
greiðslu af hálfu ríkisins, er afar lítið
um eigendaskipti og samruni fyrir-
tækja er fátíður. Þegar þeim sem
stunda búrekstur eru tryggöar
ákveðnar tekjur, er ekki við því að
búast að þeir reyni að finna hag-
kvæmustu leiö í búvöruframleiðslu.
Og þegar þeim sem stunda frysti-
húsarekstur eru tryggöar ákveðnar
tekjur fyrir framleiðslu sína í gegn-
um gengisskráningu og með annarri
fyrirgreiðslu, þá er ekki heldur við
því að búast að þeir leiti hagkvæm-
ustu leiða.“
2 plús 2 verða 5
Aö lokum um samruna fyrirtækja.
Hagfræðin útskýrir þetta fyrirbæri
meðal annars með því að segja að 2
plús 2 verði 5 eftir sameininguna.
-JGH
Vax lýfur einokun IBM hjá Skýrr
Búið er að opna Vax-tölvum að- aðeins verið fyrir IBM-tölvur. um 2300 og em þeir dreifðir viðs í Vax-tölvuna. Þá geta menn valið
gang að tölvuneti Skýrr, Skýrslu- Þetta kemur fram í nýjasta tölu- vegar um landið. tölvunet Skýrr með einni skipun í
véla rikisins og Reykjavíkurborg- blaði Skýrr-frétta. Tölvunet Skýrr Notendum Vax-tölva, sem fá að- aðalvalmynd á skjánum á Vax-
ar. Vaxerfyrstatölvansemkemur hefur vaxið hratt á undanfornum gang að neti Skýrr, er búin einfóld tölvunni.
inn í netið en þaö hefur tiJ þessa árum. Skráðir notendur þess era leiö í það. Forritið Lóðsinn er sett -JGH
Mikil
laxa-
gengd í
Látravík
Bæring Cecflsson, DV, Grundaifirði:
Það stefnir í algjört met í sumar
hjá Jóni Sveinssyni í hafbeitarstöð-
inni í Látravík, skammt fyrir vestan
Grundarfjörð. Óhentjumikil laxa-
gengd er og hátt á annað þúsund lax-
ar hafa þegar verið handsamaðir.
Mikill lax er í gildrunum í lóninu
fyrir framan og kraumar þar eins og
í síldartorfu.
Nú er farið að flytja laxinn í vötn
og veiðiár, byggt þar upp með laxi frá
Jóni í Látravík, og síðan era seld
veiðileyfi fyrir stangaveiðimenn.
Þetta er góð atvinnugrein og mikil
eftirspum.
Lax færður úr gildrunum.
DV-mynd Bæring
Tæpar 10
milljónir í
styrki til
vöruþróunar
Vöruþróunar- og markaðsdeild
Iðnlánasjóðs íslands veitti tæplega
10 milljónum króna í styrki til vöra-
þróunar í iðnaði á síðasta ári. Alls
ráðstafaði sjóðurinn um 39 milljón-
um króna til vöruþróunar en um 29
milljónir vora lán.
Lánin báru 5 prósent vexti allt síð-
asta ár en frá 1. janúar hefur verið
heimilað að hafa vexti lægri en 5
prósent í ákveðnum tilvikum sam-
kvæmt blaðinu Á döfinni sem Félag
íslenskra iðnrekenda gefur út.
Styrkimir fóru að mestu í frumat-
huganir, smíði frumgerða, nýja
hönnun, tilraunir, framleiðsluaðlög-
un, endurbætur og fleiri vöruþróun-
arverkefni. .jgh