Dagblaðið Vísir - DV - 08.07.1988, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 08.07.1988, Blaðsíða 15
FÖSTUDAGUR 8. JÚLÍ 1988. 15 Flugstöðvartineyklslið: Ber enginn ábyrgð? Á þeim mánuöum, sem liönir eru síðan fjallað var á Alþingi um flug- stöðvarhneykslið svonefnda, hefur smátt og smátt komið í ljós og sann- ast flest það sem við alþýðubanda- lagsmenn héldum þar fram. Tvennt má þar sérstaklega nefna. Hiö fyrra er að þrátt fyrir að kostn- aður við verkið væri þegar á síð- - asta ári kominn tæpar 900 milljónir króna fram úr upphaflegri áætlun ætti enn eftir að bætast við ósóm- ann. Hið síðara að það væri ætlun þeirra flokka og einstaklinga, sem málinu tengjast, aö skjóta sér með öflu undan ábyrgð og enginn ein- asti maður yrði látinn svara fyrir mistök sín í þessu sambandi. Sjálfstæðisflokkurinn, sem rak Albert fyrir meint mistök við skattaframtal, hefur ekki hróflað við peði hvað þá snert við silkihúf- unum sem hneykslinu tengjast. Með þögn sinni og aðgerðaleysi, ef frá eru taldir tflburðir krata í upp- hafl, eru samstarfsflokkar íhalds- ins í núverandi ríkisstjóm að hjálpa þeim til að hylma yfir ó- skundann. Flugstöðvarmálið í grófum dráttum. Rétt er að rifia upp nokkur helstu atriði málsins. 1. ByggingflugstöðvaráKeflavík- urílugvelli er sérstakt af- kvæmi, nánast frumburður, ríkisstjórnar Steingríms Her- mannssonar því í aðdraganda myndunar þeirrar ríkisstjórn- ar gerðu Framsóknarflokkur og Sjálfstæðisflokkur sérstakt samkomulag og bókun um mál- ið sem dagsett er 25. maí 1983. Málið var frá upphafi rekið áfram á pólitískum fremur en faglegum forsendum enda þessi framkvæmd ein hin fyrsta sem tengdist stórfelldum hemaðar- umsvifum ríkisstjómar Stein- gríms Hermannssonar. 2. Snemma á þinginu ’83-’84 flutt- um við þrír þingmenn Alþýðu- bandalagsins tillögu um að KjaHarinn Steingrímur J. Sigfússon alþingismaður fyrlr Alþýðubandalagið hanna skyldi minni og hag- kvæmari flugstöðvarbyggingu á Keflavíkurflugvelli sem reisa mætti í áföngum og taka fyrr í notkun. Við vömðum við hætt- unni á óheyrilegum kostnaði og óhagkvæmni samfara þeim glæfralegu áformum sem uppi voru um bygginguna. fllu heilli var ekki farið að okk- ar ráðum, enda hafði eins og áður sagði verið tekin pólitísk ákvörðun um að keyra málið áfram hvaö sem tautaði og raulaði. 3. í stuttu máli má síðan segja að áætlanagerð, stjórn og fram- kvæmd verksins hafi verið ein samfelld sorgarsaga. í vandaðri skýrslu Ríkisendur- skoðunar um byggingu flug- stöðvarinnar er þetta ítarlega rakið og visast til þess. Ef tekin era aðeins nokkur stærstu og alvarlegustu mis- tökin, en öðru sleppt, má nefna eftirfarandi: - Stjóm verksins öfl meira og minna í molum. Ekkert stjórnkerfi sem hæfir verki af þessari stærðargráðu var sett upp. - Áætlanagerð ónóg og handa- hófskennd. Engin framreiknuð kostnaðaráætlun á grundvelli raunhæfrar framkvæmdaáætl- unar virðist hafa verið til á verktímanum. - Hönnunarþátturinn í hinum megnasta ólestri. SífeUdar breytingar og hringl einkenndu framkvæmdatímann. Sýnu verst og dýrust urðu þó afglöp í sambandi við hönnun loft- ræstikerfis en í skýrslu Ríkis- endurskoðunar segir á einum stað að „hönnim loftræstikerfis hafi algerlega hrunið". - SamkruU við herinn og sú kvöð að nota ýtrastu staðla ameríska hersins og amerískan búnaö kostaði ómælt fé og fyr- irhöfn. í kaupbæti fylgdi ýmiss konar fáránleiki, svo sem rammgerðar engisprettuvamir og er byggingin eflaust engi- sprettuheld þó hún haldi hvorki vatni né vindi. - Upplýsingum um stækkun, breytingar og stórfeUda um- frameyðslu var haldið leyndum árum saman fyrir fiárveitinga- valdinu. Það er ekki fyrr en 29. apríl 1987, fiórum dögum eftir kosningar, aö skýrt er frá um- frameyðslu áranna 1985 og 1986. - Sú póhtíska ákvörðun að opna flugstöðina (að nafninu til a.m.k.) hvaö sem það kostaði fyrir kosningarnar í aprU 1987, þrátt fyrir að hönnunarmistök og framkvæmdaerfiðleikar mæltu með hinu gagnstæöa, kostaði tugi ef ekki hundrað miUjóna. Enginn vafi er á því að kosningahátið Sjálfstæðis- flokksins í Reykjaneskjör- dæmi, sem svo hefur verið nefnd (vígsla flugstöðvarinn- ar), er dýrasta samkoma sinnar tegundar hérlendis. - Þegar uppvist varð um gifur- legan kostnað og umfram- eyðslu við byggingu flugstööv- arinnar reyndu aðstandendur mannvirkisins, einkum bygg- ingamefnd, að koma á fram- færi fólskum upplýsingum um upphaflega kostnaðaráætlun og lækka þannig tölur um um- frameyðslu. í fréttatilkynningu byggingarnefndar þann 14. ágúst 1987 er því haldið fram að upphafleg kostnaðaráætlun hafi verið 42 miUjónir Banda- ríkjadala og kostnaður síðan framreiknaður frá þeirri tölu. Hið rétta er að upphaflega kostnaðaráætlunin (og sú eina sem í raun var gerð) hljóðaði upp á 33,5 núlljónir Bandaríkja- dala og verðhækkanir á bygg- ingartíma vora áætlaðar 8,5 miUjónir. Þessi tilraun byggingarnefndar til að falsa staðreyndir sér í hag í opinberri fréttatilkynningu hefði ein sér viðast hvar á byggðu bóU dugað til þess að nefndarmenn væru látnir víkja, en ekki á íslandi. Opinber rannsókn er þjóðarnauðsyn Þegar ljóst var að viðkomandi aöUar ætluðu sér aö sópa öUu sam- an undir teppið fluttum við þing- menn Alþýðubandalagsins tUlögu til þingsályktunar um rannsókn á ábyrgð manna í sambandi við þetta hneyksU. í stað þess að fagna slíkri tiUögu, samþykkja hana og hreinsa þannig þá sem hreinsaðir yrðu en draga fram ábyrgði annarra, kaus meirihlutinn á Alþingi að hjúpa máUð þögn. SífeUdar uppákomur í hinni nýju flugstöð, sem hvorki reyndist halda vatni né vindum, vera hálfkörað að flestu leyti og nú síðast heUsu- spUlandi vinnustaður, hafa hins vegar haldið máhnu vakandi. Stærstu og verstu mistök þessa máls eru þó þau að rannsaka ekki tU fulls ábyrgð einstakra aðUa og láta þá sem ábyrgö bera taka afleið- ingunum. A meðan það er ekki gert hljóta menn að spyrja sig hvort það sé eðlUegt; að Geir Hallgrímson, fyrr- verandi utanríkisráöherra, sé seðlabankastjóri, - að Matthías Á. Mathiesen, einnig fyrrverandi ut- anríkisráðherra, sé alþingismaður og ráðherra, - að Garðar HaUdórs- son, arkitekt og hönnunarstjóri byggingarinnar og meðUmur í byggingamefnd vamarsvæða ásamt fleira, sé áfram húsameist- ari ríkisins, - að fyrrverandi fiár- málaráðherrar, Albert Guðmunds- son og Þorsteinn Pálsson, séu al- þingismenn og sá síðarnefndi einn- ig ráðherra, - að Steingrímur Her- mannsson, fyrrverandi forsætis- ráðherra, ábyrgðaraðUi ríkis- stjórnar og einnig fagráðherra húsameistara, sé nú alþingismaöur og ráðherra, - að Sverrir Haukur Gunnlaugsson, fyrrverandi for- maður byggingamefndar, sé nú sendiherra o.s.frv. Þaö lýsir þverbrestum í stjórn- kerfi og réttarfari landsins af óþol- andi stærðargráðu ef ábyrgö og aðUd svo háttsettra manna að þessu reginhneyksU verður þöguð í hel. Steingrímur J. Sigfússon „Sífelldar uppákomur í hinni nýju flug- stöð, sem hvorki reyndist halda vatni né vindum, vera hálfköruð að flestu leyti og nú síðast heiIsuspiUandi vinnu- staður, hafa hins vegar haldið málinu vakandi.“ Hvort þekkirðu Þingvelli? Nú er orlofstíminn hafinn og með hverjum deginum sem Uður hugsa fleiri sér til hréyfings. Misjafnt er eins og gengur hvert ferðinni er heitið; margir fara til útlanda, aðal- lega vegna þess að þeir telja það áhugaverðara til afspurnar, en sumir halda sig á heimaslóðum - og þeim fer ört fiölgandi sem betur fer. Það er líka margt forvitnilegt á ísa-köldu-landi og gildir nánast einu hvar menn bera niður. ' Tilefni þessarar greinar er þó bók - eða réttara sagt innihald hennar ■- sem mér barst í hendur fyrir skömmu . . . af hreinni tilviljun. Bókin ber það einfalda nafn „Þing- vellir" og er höfundur hennar Björn Th. Björnsson (ábyggUega sá eini og sanni, þ.e.a.s. listfræðingur- inn góðkunni). Rétt þykir aö geta þess að bókin hefur undirtitilinn: „Staðir og leiðir“. Fremur uppsláttarrit Bók. Jú, víst er hér um bók að ræða en mér finnst sú ritsmiö, sem er viðfangsefni þessarar greinar, fremur eða ekki síður vera eins konar uppsláttarrit ef ekki hreinn og klár leiösögubæklingur. Þegar menntamálaráð íslands varð 50 ára fyrir tíu árum eða svo mun það hafa verið ákveðið - með góðum fyrirvara, skilst mér - að Kjallariim Þorsteinn Valgeir Konráðsson nemi i prentiðn gefa út rit um „þjóðgarða íslands, fólkvanga og friðlýst svæði“ eins og höfundur skrifar í lokaorðum. Þessi bók, sem hér er vitnað til, átti þess vegna í fyrstu ekki að verða ritverk í sérstakri bók heldur aðeins einn kafli í allsherjar-rit- smíð um það efni sem að ofan greinir. Björn Th. mun hins vegar hafa „gengið meö Þingvelh í maganum" um nokkurra ára skeið og áður en yfir lauk var hann kominn með hátt í 200 síðna ritgerð. Það var því samþykkt af menntamálaráði ís- lands að þessi fróðleikur skyldi gefinn út á sérstakri bók. En þar sem einn „kjallari" má ekki saman standa nema í mesta lagi af 800-1000 orðum er ekki rými tU að rekja efni þessarar bókar um Þingvelli lið fyrir lið. Þess vegna verð ég eiginlega að láta nægja að vekja athygli fólks - íslendinga sem annarra - á þessu stórgóða verki Bjöms Th. Björnssonar sem hann nefnir „ÞingvelUr - staðir og leið- ir“. Verðugt verkefni Þarna er hver staður, hvert leiti, hver stígur, gjá, dalur, hóll, já, sér- hver planta og gras nefnd sínum réttu nöfnum. Mér segir svo hugur eða telst svo til að um eða yfir eitt þúsund ör- nefni sé að finna í þessari bók þannig að af nógu er að taka ef fólk viU kynna sér þennan stað „þar sem alþingi feðranna stóð“. Helgaríerð er góð byrjun í þessari þekkingar- og fróðleiksleit en það er ómaksins vert - virkUega - með bókina „Þingvelli" í höndunum - að eyða nokkrum dögum á þessum staö. Til skamms tíma var talið að um 75 tegundir plantna og/eða grasa væru á Þingvallasvæðinu en nýleg- ar og nákvæmari rannsóknir benda tU að hér sé um 90 tegundir að ræða. Úr nógu er því aö moða. Þessari bók, sem hér hefur verið umfiöllunarefni, fylgir mjög ná- kvæmt yfirlitskort og gefur það henni aukið og enn kröftugra gildi. En enda þótt þetta yfirlitskort hefði ekki fylgt er þessi bók verð- ugt lesefrú - að minnsta kosti sér- hveijum íslendingi. Á Björn Th. Bjömsson þakkir skUið fyrir þetta snilldarverk. Misjöfn vinnsla Ég sé það að þessi bók er brotin um og sett í Auglýsingastofunni hf. Þeir þættir bera þess greinUeg merki að þar hafa fagmenn hvergi komið nærri. AUt letrið eins og það leggur sig er sett ójafnt að aftan og mér er nær að halda að það sé eins- dæmi enda þótt víðar væri leitað en í henni veröld. Spássíur eru út og suður og „bUndmatríal" (eyður og tóm) hvergi sparaö. Þó er bókin sett á fremur smáu letri þannig að þessi umbrotsmáti er ekki á hafður að því er virðist til aö fiölga blaðsíð- um. Að setja vissar greinar í tímariti eða jafnvel einstaka kafla í bók óreglulega (að aftan eða framan) á vissulega rétt á'sér en að láta frá sér heilt rit með slíku sniði er út í hött. Undirritaður hefur að vísu ekki verið við nám í prentverki nema rúmlega þrjátíu ár og er honum þess vegna e.t.v. nokkur vorkunn að setja fram þessa gagnrýni. En honum (undirrituðum) er sama. Og svo eru það blaösíðutöUn. Þau eru jafnstór mUlifyrirsögnum. Ég bara spyr: Er nema von að manni sárni? Hins vegar er bókin prentuð í Odda og er sá þáttur ágætlega úr garði gerður. Myndir, bæði í Ut og svarthvítar, skUa sé vel en hefði að visu sjálfur kosið að farfagjöf (prent- sverta) væri jafnari í meginmáU. Þorsteinn Valgeir Konráðsson „Björn Th. mun hins vegar hafa „geng- ið með Þingvelli í maganum“ um nokk- urra ára skeið og áður en yfir lauk var hann kominn með hátt í 200 síðna rit- gerð.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.