Dagblaðið Vísir - DV - 08.07.1988, Blaðsíða 32
52 • 25 • 25
FRÉTTASKOTIÐ
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu besta fréttaskotiö í hverri viku greiðast 5.000 krón-
þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- ur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við
ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. Fyrir fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritstj'* rn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022
FÖSTUDAGUR 8. JÚLÍ 1988.
Vélhjól á 126
kílómetra
hraða
á Nýbýlavegi
í nótt stöðvaöi lögreglan í Kópavogi
vélhjól sem ekið var á 126 kílómetra
hraða á Nýbýlavegi. Tvennt var á
hjólinu.
Undanfarnar fimm vikur hefur lög-
reglan í Kópavogi kært nærri tvö
hundruð ökumenn fyrir of hraðan
akstur. Ökumenn fæddir á árunum
1960 til 1969 eru fjölmennastir í þeim
hópi. Kópavogsbúar eru í miklum
minnihiuta þeirra kærðu.
-sme
Útafakstur
í Skötufírði
Erlend hjón sluppu slysalaust er
þau óku út af veginum í Skötufirði
við ísafjarðardjúp. Þau voru á bíla-
leigubíl frá Flugleiðum. Bíllinn er
mikið skemmdur ef ekki ónýtur.
-sme
Olíuborpallurinn:
Engir
Islendingar
voru þar
í vinnu
„Við vitum ekki til þess að neinir
íslendingar hafi veriö við vinnu á
olíuborpallinum Piper Alpha,“ sagði
blaðafulltrúi lögreglunnar í Aber-
deen við DV í gær.
Lögreglan fékk lista yfir rúmlega
, tfkOO starfsmenn olíuborpallsins í gær-
dag og þar var mestmegnis að finna
Breta, nokkra Evrópubúa og menn
frá Afríku.
-hlh
- sjá bls. 8
LOKI
Þeir segja að laxinn gleypi með
sporðinum undir Gullinbrú.
Ólafur Ragnarsson í tívolí:
Höfum óskað eftir
gjaldþrotameðferð
- tiyggt að tívdíið verður opið
Sfjórn Skemmtigarðsins hefur leysir það undan rekstrinum. fyrirffam greidd leiga. Það verður
ákveðið að óska eftir að félagið Leigusamningamir gilda út þetta mál skiptaráðanda að taka á því
verði tekið til gjaldþrotameöferðar. ár. Vegna innsetningarmáls sem máli. Ég veit ekki hvort Sigurður
Þessi ákvörðun var tekin eftir aö var höfðað gegn Sigurði Kárasyni, Kárason hefur varið þeim verð-
Hæstiréttur felldi úr gildi greiðslu- fyrrverandi framkvæmdasljóra, mætum í þágu félagsins eða hvort
stöðvun sem félagið hafði fengið. hafabókhaldsgögnnú veriðafhent. þau eru til staðar eða ekki,“ sagði
Búiö er að leigja alla starfsemi fé- Löggiltur endurskoðandi fékk Ólafur Ragnarsson, sfjómarform-
lagsins. Leigutakar era sex ein- gögnin samkvæmt sérstökum aður tívolisins.
staklingar. Flestir þeirra voru starfssamningi við okkur. Ég hef Ólafur sagði að nú þegar starfs-
starfsmenn fyrirtækisins. ekki séð gögnin enn. Sigurður fólkiðværitryggtumaöstarfsemin
„Skiptaráðandi verður bundinn Kárason telur sig hafa haidsrétt á myndi halda áfram, þá væri ríkj-
af þessum leigusamningum. Þeir átta til níu milfjónum króna. Þau andi góður starfsandi og allir
tryggja þrotabúinu leigutekjur og verðmæti,víxlarogskuldabréf,eru ákveðnir í að haida fyrirtækinu
gangandi.
„Eg hef átt i viðræðum viö dansk-
an aðila sem vel þekkir til tívolísins
hér. Hann hefur komið hingað tvi-
svar áöur. Hann mun veita okkur
ráögjöf þar sem til stendur að nýta
betur það mikla pláss sem er undir
þakinu. Ætlunin er að auka og
bæta starisemina. Meðal annars
verður sérstök karnivalstemning á
laugardögum og sunnudögum,“
sagði Ólafur Ragnarsson.
-sme
„Big Countvy" til íslands:
ÆUa að taka upp
myndband hér
Gylfi Knst|ánsson, DV, Akxixeyri:
Hljómsveitin heimsfræga, Big Co-
untry, sem mun leika á útihátíðinni
á Melgeröismelum í Eyjafirði um
verslunarmannahelgina, ætlar að
gera meira hér á landi en skemmta.
Ákveðiö mun vera að nota ferðina
hingað til lands einnig til þess að
taka upp myndband með hljómsveit-
inni til þess að auglýsa væntanlega
plötu hennar.
Þetta verður til þess að hópur sá
sem kemur með hljómsveitinni hing-
að stækkar mjög. Hljómsveitin með
„fylgifiskum" telur hátt í 20 manns,
og viö þann hóp munu bætast kvik-
myndatökumenn, hljóðmenn og
fleiri, þannig að búast má við að hóp-
urinn komi til með að telja á bilinu
30-40 manns.
Undirbúningur hátíðarinnar á
Melgerðismelum, sem hefur hlotið
nafniö „Ein með öllu 88“, er nú að
komast á lokastig. Eins og fram hefur
komið skemmtir þar einnig færeyska
hljómsveitin Víkingarnir sem sér-
hæfir sig í lögum „Ðe lónli blú bojs“
og íslensku sveitimar Skriðjöklar,
Stuðkompaníið, Sáhn hans Jóns
míns og „leynihljómsveit" sem ber
hið virðulega nafn „Víxlar í vanskil-
um og ábekingur“. Sú hljómsveit er
sögð skipuö landsþekktum poppur-
um en vandlega er haldið leyndu
hverjir þeir eru. Þá verður torfæru-
keppni, leikarar Gríniðjunnar
skemmta og er þá ekki allt upptalið.
Reikna má með aö útihátíðin að
Melgerðismelum verði mesta útihá-
tíð landsins um verslunarmanna-
helgina, en á Melgerðismelum, sem
eru rétt innan Akureyrar, er mjög
góð aðstaða til að taka við þúsundum
gesta.
Ungir jafnt sem aldnir hafa stundað laxveiðar af ákafa undir Höfðabakka-
brúnni siðustu daga og hefur veiði yfirleitt verið góö. Lögreglan hefur í
nokkrum tilfellum haft afskipti af veiðimönnunum enda laxveiðar bannaðar
í sjó. Ekki eru allir á eitt sáttir um hvort veiðar undir brúnni, á útfalli, teljist
til veiða í sjó og skrifar því lögreglan aðeins niður nöfn veiðimanna. Þessi
ungi maður náði tveimur löxum undir brúnni í gær sme/DV-mynd S
Ráðning Hannesar:
Stúdentaráð einhuga
Veðrið á morgun:
Hæg
austan- og
suðaust-
anátt
Hæg austan- og suðaustanátt
verður á landinu, lítils háttar
súld við suðausturströndina en
víða bjart annars staðar.
„Það er ánægjulegt að samstaða
skyldi nást en þaö er að þakka góðri
undirbúningsvinnu. Hannes er
aukaatriði í þessu máh, aðalatriðið
er að með skipuninni er verið að lýsa
vantrausti á Háskólann og starfið
sem fram fer í honum. Slíkt getur
stúdentaráð ekki liðið,“ sagöi Sveinn
Andri Sveinsson, formaður stúd-
entaráðs.
í gær geröist sá fáheyrði atburöur
að báðar fylkingar í stúdentaráði
samþykktu samhljóða að mótmæla
lektorsstöðuveitingu menntamála-
ráðherra. Telur stúdentaráð að með
skipuninni sé vegið að fagiegu sjálf-
stæði Háskólans. Lýst er yfir fuhu
trausti á forráðamenn félagsvísinda-
deildar og að dómnefnd hafi verið
skipuð hæfum mönnum. Er ein-
dregnum tilmælum beint tíl mennta-
málaráðherra um að slík vinnubrögð
verði ekki fordæmi við stöðuveiting-
ar í framtiðinni.
í lok ályktunarinnar er þeim til-
mælum beint til ráðherra að stöðu-
veitingavald verði fært til Háskóla-
ráðs.
-JFJ