Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 03.08.1988, Qupperneq 10

Dagblaðið Vísir - DV - 03.08.1988, Qupperneq 10
10 MIÐVIKUDAGUR 3. ÁGÚST 1988. Útlönd Þrettan fórust Þrettán manns fórust þegar far- þegaflutningabifreiö rakst á vöru- flutningabifreið á þjóðvegi í Mex- íkó í gær. Þrettán aörir slösuðust við áreksturinn, sumir þeirra al- varlega. Að sögn lögreglunnar mun öku- maöur vöruflutningabifreiöarinn- ar liafa misst stjóm á ökutæki sínu á þjóðveginum og við það ekiö í veg fyrir fólksflutningabifreiðina sem var á ferð í gagnstæða átt. Ökumað- ur vöruflutningabifreiöarinnar hljópst á brott frá slysstaö og er hans nú leitað. Slysið átti sér staö um sextíu kíló- metra suöur af borginni San Luis Potosi sem er inni í miðju landi Slysið átti sér stað um sextiu kiló- metra suður at San Luis Potosi. Marco kominn í faðm fjölskyldunnar eftir nær hálfs annars árs dvöl hjá mannræningjum. Simamynd Reuter Sautján mánuði s haldi Átta ára gamall ítalskur drengur, Marco Fiora, var í gærmorgun lát- inn laus eftir að hafa verið í klóm mannræningja í sautján mánuði. Marco, sem rænt var frá heimili sínu f marsmánuöi á síðasta ári, var látinn laus í afskekktu fjalla- héraði á sunnanverðri Ítalíu að • sögn lögreglunnar. Marco var við góða heilsu en ákaflega þreyttur. Aö sögn lögreglu em úlnliöir hans mjög sárir en hann mun hafa veriö hlekkjaöur. Mannræningjarnir kröfðust upp- haflega lausnarfjár fyrir Marco sem nam meira en hundrað og fimmtíu milijónum íslenskra króna. Lögreglan segir hins vegar að foreldrar drengsins, sem ekki hafa miklar tekjur, hafi aðeins get- að greitt inn á lausnargjaldiö sem nemur tæplega tíu milljónum króna. Segir lögreglan að mann- ræningjamir hafi að líkindum látiö Marco lausan nú vegna mikillar leit- ar lögreglu á svæði því þar sem þeir höfðu hann í haldi Dauðadómur staðfestur Hæstiréttur Indlands staðfesti í gær dauðadóma yfir tveim aöilum sem sakaðir vom um aöild aö moröinu á Indiru Gandhi, forsætisráöherra landsins, í október árið 1984. Rétturinn sleppti hins vegar þriðja aöilanum úr haidi. Rétturinn felldi samhljóða úrskurði sem staðfesta dauðadómana yfir Satwant Singh, lífverðinum sem skaut forsætisráðherrann, og Kehar Singh, fyrrum starfsmanniríkisms, sem talinn var eiga aðild að morðinu. Rétturinn hafnaði hins vegar sakfellingu Balbir Singh, lögreglumanns frá Delhi, og fyrirskipaði að hann yrði látinn laus samstundis. Fjörutíu og sjó ára fangelsi Dómari í Newark í Bandaríkjun- um dæmdi í gær unga konu til fjörutíu og sjö ára fangelsisvistar fyrir að hafa brotiö af sér kynferð- isiega gegn um tuttugu ungunr bömum. Konan, Mai-garet Kelly Michaels, sem er tuttugu og sex ára gömul, var í apríl siðastliðnum fundin sek um að hafa misnotaö kynferöislega tuttugu af börnum þeim sem hún hafði umsjón með á bamaheimili í Maplewood í New Jersey. Verjandi stúlkunnar sagði í gær að dóminum yröi áfrýjað. Sagði hann aö öryggi hennar væri ógnað í venjulegu fangelsi og yfirvöld yrðu að ábyrgjast að henni yröi Margaret Kelly Michaels hlýðir á ekki gert neitt mein því hótanir úrskurð dómara í gær. hefðu borist gegn henni. Michaels simamynd Reutor getur sótt um náöuneftirfjórtán ár. Mannleg mistók Rannsóknarnefnd á vegum banda- ríska sjóhersins, sem sett var á lagg- irnar til að rannsaka ástæður árásar bandarísku freigátunnar Vincennes þann 3. júlí sl. á íranska farþegaþotu þegar 290 manns létu lífið, hefur komist að þeirri niðurstöðu að um mannleg mistök hafi verið að ræða segir í fréttum bandarísku sjón- varpsstöðvarinnar ABC. Skýrsla nefndarinnar hefur ekki verið gerð opinber en samkvæmt heimildum fréttastofunnar er ekki við tölvukerfi freigátunnar að sakast eins og áður hefur verið haldið fram. Ráðamenn í vamarmálaráðuneytinu höfðu haldið því fram að tölvukerfið hefði bmgðist og samkvæmt upplýs- ingum þess hefði Airbus A 300 vélin verið írönsk orrustuflugvél. Tölvu- kerfið, Aegis, mat stöðuna rétt sam- kvæmt niðurstöðu skýrslunnar. Einnig segir í skýrslunni að íranska vélin hafi verið að hækka flugið en ekki að lækka það. Einnig segir í fréttum ABC að véhn hafi verið á mun minni hraða en eðlilegt hafi verið fyrir orrustuflugvél. Þann 3. júlí, þegar vélin var skotin niður, sagði Willam Crowe, formað- Skopmyndateiknarinn Lurie telur greinilega að framgöngu Olivers North sé stýrt af öðrum. Bandarisk rannsóknarnefnd hefur komist að þeirri nióurstöðu að um mann- leg mistök hafi verið að ræða þegar bandarísk freigáta skaut niður íranska farþegaþotu af Airbus A300 gerð. Símamynd Reuter ur herforingjaráðs Bandaríkjanna, að vélin heföi verið að lækka flugið og auk þess héfði ýmislegt bent til þess að vélin væri írönsk orrustu- flugvél. Crowe hefur ekki svarað fréttum ABC-fréttastofunnar. Dagblaðið New York Times hefur einnig birt fréttir þess efnis að tölvu- kerfiö í Vincennes freigátunni hafi brugðist og að mennirnir um borð hafi rangtúlkað niöurstöður þess. Reuter Mercedes Benz að hefja vopnaframleiðslu? Gizur Helgason, DV. Reeisnæs Mennimir sem sitja á v-þýska ríkiskassanum lögðust undir feld sl. laugardag til þess að finna út þá fiárupphæð sem á að gera Da- imler-Benz samsteypuna aö stærsta vopnaframleiðsiufyrirtæki V-Þýskalands síðan að stórveldis- tíma Krupp-samsteypunnar iauk við síðari heimsstyrjöidina. Gerald Stoltenberg fjármálaráð- herra og Martin Bangemann viö- skiptamálaráðherra settust á rök- stóla með helstu ráðgjöfum. sínum til að telja alla þá milljarða vestur- þýskra marka sem þarf til að fá Benz-sajnsteypuna til að taka þátt í fyrirtækinu. Mercedes Benz fyrirtækasam- steypan í Stuttgart er stærsta fyrir- tæki V-Þýskalands og teygir anga sína vitt og breitt Velta fyrirtækis- ins á síöasta ári var 67 milljarð- ar vestur-þýskra marka og hjá fyrirtækinu vinna 326 þúsund manns. Þegar fyrirtækið sölsaði undir sig rafmagnstækjasamsteypuná AEG, fiugvélaverksmiðjuna Dornier og fiughreyflaverksmiðjuna MTU (Motoren-und-Turbinen-Union) þá var fyrirtækið um leið að ná tækni- og vísindalegri samsteypu með góðan grundvöll fyrir vopnafram- leiðslu. Bonn-stjómin hefur nú í rúmlega eitt ár reynt aö fá> Daimler-Benz til að yfirtaka flug- og geimferða- fyrirtækið MBB (Messerschmidt- Bulkow-Blohm) en það fyrirtæki hefur vantað tjármagn til að standa jafnfætis bresku og frönsku fyrir- tækjunum, British Aerospace og Aerospatiale. EfMBB rynni saman við Daimler-Benz myndi evrópska vopnaframleiöslan verða sam- keppnishæf við þá bandarísku. Kaupir30 prósent Ðaimler-Benz hefur sýnt áhuga á þvi að kaupa þrjátíu prósent af hlutabréfunum í MBB og síðan sraám saman að kaupa upp þann hluta sem v-þýska ríkið á í fyrir- tækinu. Ef Daimler-Benz kaupir MBB þá fylgja með í kaupunum skriðdreka- verksmiðjan Grauss-Maffei og þýski hluti evrópska Air-bus verk- efnisins, Deutche Airbus AG. Air- bus verkefhið hefúr fram aö þessu sogið feiknalegar Jjárupphæðir úr v-þýska ríkiskassanum eöa um fimm milljarða v-þýskra marka fram að þessu og taíið er að aðrir fimm milljarðar verði komnir í verkeíhið fyrir árslok 1991 og enn aðrar fimm milljónir fyrir 1994. Daimler-Benz hefur þvetekið fyrir að taka þátt í þessum framlögum enda auðskiljanlegt. Deilt um leyni- skjöl Dómarinn í máli Olivers North, fyrrum starfsmanns bandaríska þjóöaröryggisráðsins, sem sakaður er um samsæri vegna íranshneyksl- isins, sem svo hefur verið nefnt, ák- vað í gær að fundað skyldi um málið fyrir luktum dyrum vegna áhrifa sem leyniskjöl þau er North vill fá afhent gætu haft á gang þess. Dómar- inn ákvað að fundað skyldi um áhrif leyniskjalanna á alla þætti málsins nema kærurnar um samsæri sem eru í raun þungamiðja þess. Dómarinn hefur hótað að vísa sam- særisákærunum frá vegna neitunar stjórnvalda um að aíhenda skjöl sem tengjast framkvæmd vopnasölunnar til Iran. í skjölum þessum er meðal annars að fmna upplýsingar um það hvemig máhð var fjármagnað og hverjir vissu af því.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.