Dagblaðið Vísir - DV - 03.08.1988, Blaðsíða 15
MIÐVIKUDAGUR 3. ÁGÚST 1988.
15
„Gefið okkur Barrabas*1
Vöruverö hækkar strax i kjöltariö, fyrst á innfluttum vörum og siöan á
innlendum, og verðbólga vex að sama skapi,“ segir m.a. i greininni.
Fáar þjóðir ættu að hafa meiri
reynslu af því að lækka gengi gjald-
miðils síns en íslendingar. Menn
hafa nefnt þessa áðgerð ýmsum
nöfnum. Á þeim árum, þegar geng-
isfelling var einhver óvinsælasta
aðgerð sem stjómvöld gátu gripið
til, en var jafnframt því sem næst
daglegt brauö, þá bjuggu menn til
ýmis nýyrði um þetta fyrirbæri.
„Gengisaðlögun", „gengissig",
jafnvel „gengissig í einu stökki“.
Þetta voru menn að gera til þess
að víkja sér undan þvi aö þurfa að
nota hið fjarska óvinsæla orð
„gengislækkun" um ráðstafanir
sínar, en þá var svo komið, vegna
tíðra ráðstafana af sama tagi, að
verðbólga á íslandi var upp á hálft
annað hundrað prósent og í al-
þjóðaviðskiptum þótti íslenzki
gjaldmiðillinn talsvert óstöðugri en
fólsuð mynt.
Fljótir að gleyma
Enda þótt ekki hafi mikið vatn til
sjávar runnið síðan þetta var virð-
ast margir íslendingar gersamlega
hafa gleymt því ástandi þegar
breytingar á gengi krómmnar urðu
á tíu daga fresti og fá orð vora lík-
legri til þess að fæla burtu kjósend-
ur en einmitt orðið „gengisfelling“.
Þvert á móti er þetta orð, „gengis-
felling“, á góðri leið með að veröa
mest brúkaða og þar með hið allra
vinsælasta hjálpræðisheiti í munni
manna í efnahagsumræðu sumars-
ins. Vinsælasti stjómmálamaður á
íslandi, Steingrímur Hermanns-
son, hefur gert orðið „gengisfell-
ing“ að því vörumerki, sem allar
orðræður hans hefjast og enda á.
Tíminn, sem í blaðhaus segist hafa
boðað frjálslyndi og framfarir í sjö-
tíu ár, gæti með stolti bætt við þá
upptalningu, „og gengisfellingu
líka“, svo vinsæl er hún orðin.
Þingmenn álykta um hana og fólkið
Kjállarinn
Sighvatur Björgvinsson
alþingismaöur
virðist hrópa á hana. „Gefið okkur
Barrabas!"
Krafa fólksins?
Fyrir tæpum tvö þúsund áram
hrópuðu íbúar Jerúsalem á Barra-
bas, báöu um að ræningjanum yrði
sleppt lausum. Sé krafan um geng-
isfellingu krafa fólksins á íslandi
þá er það að biðja um hið sama og
íbúar Jerúsalem báðu um fyrir tvö
þúsund árum. Þá er fólkiö að biöja
um að Barrabasi, ræningjanum,
verði sleppt lausum. Áhrif gengis-
fellingar, sjálfur tilgangur hennar,
er nefnilega sá að ræna af kaupi
fólksins alveg eins og Barrabas
gerði hér forðum tíð. Hefur ís-
lenzka þjóðin virkilega gleymt
þessu? Lokar hún augunum fyrir
sinni eigin reynslu eða hafa ein-
hveijir nútíma Farísear tryllt hana
eins og íbúa Jerúsalem forðum.
Skottulækning
Gengisfelling er ekki og hefiir
aldrei verið úrræði í efnahagsmál-
um. Hún læknar hvorki eitt né
neitt heldur er hún aðeins vitnis-
buröur um að stjóm efnahagsmála
hafi mistekist. Þar á ég ekki aöeins
við þá stjóm efnahagsmála, sem
Alþingi og ríkisstjóm hafa með
höndum, heldur ekki síður þá þætti
efnahagsstjómunar sem lána-
markaöurinn og aðilar vinnu-
markaöarins hafa á sínu valdi.
Gengisfelling er aöeins vottfesting
á því að allir þessir aðilar og sljóm-
völd meðtalin hafi ekki reynst hlut-
verki sínu vaxnir. Gengisfellingin
breytir engu um þá röngu stjórnun.
Hún er engin trygging fyrir því að
þau mistök og afglöp, sem hún er
niðurstaðan af, endurtaki sig ekki.
Miklu fremur er hún líkleg til þess
að sömu mistökin og sömu afglöpin
í efnahagsstjómun haldi áfram því
með gengisfellingunni hafa menn í
rauninni gefist upp á að lagfæra
mistökin og leiðrétta afglöpin.
Þannig má segja að sérhver gengis-
felling feli í sér frækom þeirrar
næstu.
Kauplækkun meö lögum
Afleiðingar gengisfellingar ættu
að vera öllum íslendingmn alkunn-
ar. Vöraverð hækkar strax í kjöl-
farið, fyrst á innfluttum vöram og
síðan á innlendum, og veröbólga
vex aö sama skapi. Mig undrar að
þeir hinir sömu aðilar, sem hávær-
ast krefjast gengisfellingar, skuli
komast upp með það gagnvart al-
menningi að hneykslast manna
mest á þeim verðhækkunum, sem
óhjákvæmilega fylgja í kjölfar
hennar. Með sama hætti er það
íneö algeram ólíkindum að einnig
þessir sömu menn skuli komast
upp með að mótmæla því aö í kjöl-
far gengisfellingar hækki láns-
kjaravísitala og íjármagnskostnað-
ur, sem auðvitaö hljóta að taka mið
af verðbólgustigi í landinu. Að
krefjast gengisfellingar er að krefj-
ast aukinnar verðbólgu og hækk-
aðrar lánskjaravísitölu og hækk-
aðra vaxta. Að kreíjast gengis-
lækkunar og lækkaðra vaxta og
minni verðbólgu er sama og að
heimta að sólin skíni á nóttunni eða
ár renni upp í móti. Sú þjóð er
heimsk þjóð sem ekki sér það á
augabragði. Erum við íslendingar
heimsk þjóð?
Því aðeins kemur gengisfelling
útflutningsatvinnuvegunum að
gagni að kostnaðarhækkanir komi
ekki á móti og vegi upp á móti því
aö með gengislækkuninni fá út-
flytjendur aö vísu fleiri en jafn-
framt verðminni krónur fyrir af-
urðir sínar. Því aðeins kemur geng-
isfelling útílutningsatvinnuvegun-
um aö gagni aö komið sé í veg fyrir
að launakostnaður hækki i sam-
ræmi við hækkandi verðlag. Krafa
um gengislækkun er því krafa um
að kaup sé bundið fast og fái ekki
að hækka til samræmis við verð-
hækkunaráhrif gengislækkunar-
innar. M.ö.o. krafa um kauplækk-
un með lögum. Hefur þjóðin gleymt
þeim lærdómi ítrekaðrar reynslu?
Ef fólkið í landinu telur tímabært
að lækka launin sín til þess að ráða
bót á efnahgasástandinu, þá gott
og vel. Látum þá svo vera. En væri
þá ekki nær að landsmenn orðuðu
það heiðarlega, beint og undan-
bragðalaust í staðinn fyrir að kalla
á að menn láti Barrabas, ræningj-
ann, lausan?
Sighvatur Björgvinsson
„Ahrif gengisfellingar, sjálfur tilgang-
ur hennar, er nefnilega sá aö ræna af
kaupi fólksins alveg eins og Barrabas
geröi hér forðum tíö.“
Stiómarsamstaifið
„Góðar fréttir berast þó af mörkuðum okkar og sjómennirnir halda áfram
eins og ætíð endranær að mala þjóöinni gull og gjaldeyri," segir greinar-
höfundur.
Sljómarsamstarfið er ágætt og á
eftir að verða enn betra. Þjóðinni
hefur orðið starsýnt á ýmsa smá-
hnökra í þessu samstarfi sem era
bara eðlilegir í þriggja flokka stjóm
sem starfar, eins og eðlilegt er í
lýðræðisríki, fyrir opnum tjöldum.
Ekki er pukriö og baktjaldamakkið
betra. Þá hafa ýmsir orðið til þess
að benda á suma ráðherrana og
sagt þá háværa í ríkisstjóminni.
Þeir láti of gjarnan sverfa til stáls
um sín mál og sé sama um ríkis-
stjómina. Svona gagnrýni er auö-
vitað ekki sanngjöm, alhr hafa ráð-
herramir mikinn áhuga á sínum
málaflokkum og skila því starfi vel
sem þeir hafa heitið að rækja fyrir
þjóð sína í fjögur ár.
Gullkrónur - verðbólgupus
Verkefni þessarar stjómar era
mörg. Upp úr hefur staðið glíma
hennar við verðbólgudrauginn og
viðleitni hennar að tryggja gull-
krónur í vasa launþega. Það er ekki
stórmannlegt að gjalda öðram fyrir
störf í svikinni mynt og greinilegt
er að þessi stjóm vill ekki láta slíkt
um sig spyijast. Talsverð undir-
alda verðbólgu var í hagkerfinu
þegar þessi stjóm var sett á stofn
og var mikið átak gert í ríkisfjár-
málunum til þess að tryggja aö rík-
isvaldið væri ekki sökudólgurinn
að þessu leyti. í framhaldi af þvi
kom svo erfið staða okkar á er-
lendu mörkuðunum fyrir útflutn-
ingsafurðir okkar og má segja að
við séum í miðjum klíðum að fást
við þá erfiðleika. Af þeim stafar það
verðbólgupus, sem gengur yfir
liagkerfið um þessar mundir, með
tilheyrandi skammtíma vaxta-
hækkunum.
Aflamet - staöa dollars
Góðar fréttir berast þó af mörg-
um mörkuðum okkar og sjómenn-
imir halda áfram eins og ætíö
KjaHarinn
Guðlaugur Tryggvi
Karlsson
endranær að mala þjóðinni gull og
gjaldeyri. Aflamet era slegin og
ýmsir markaðir okkar hafa batnað
talsvert undanfarið. Óvissan um
framtíðarstöðu dollarans er auð-
vitað nokkur, en hagstæðar tölur
um minnkandi viöskiptahalla
Bandaríkjanna vekja mönnum
aukna trú á stöðu þessarar helstu
viðskiptamyntar okkar. Auðvitað
snýst allt um forsetakosningamar
í Bandaríkjunum núna. Eftir þær
má enn búast viö átaki þessarar
voldugustu þjóðar heims til þess
að koma reiðum á hlutina heima
fyrir, sem öragglega mun styrkja
útflutningsgreinar okkar, efla þjóð-
arhag uppi á Fróni, hversu lang-
sótt sem það sýnist nú við fyrstu
sýn.
Fríverslun
Stundum gleymist það hér á landi
hvílíkan arð íslenskt þjóðarbú hef-
ur haft af viðskiptunum við grann-
ann volduga í vestri. Þegar sumar
þjóðir buðu aðeins upp á vöra-
skipti og prúttuðu niöur verð eins
og hægt var buðu Bandaríkjamenn
dollara fyrir útflutninginn, sem var
nánast gull um víða veröld og alls
staðar hægt að nota. Engin þjóð,
eftir seinni heimsstyrjöldina, hefur
í raun verið trúrri hugsjóninni um
fríverslun en Bandaríkjamenn og
verið viljugri að stuðla að henni
með eigin fordæmi. í fljótu bragði
virðist það ekki vera málið uppi á
íslandi hvaða stefnu þjóðir fylgja í
verslun og viðskiptum, hvað þá að
þaö komi stjórnarsamstarfinu hér
við. Fullvíst má samt telja aö ef
Bandaríkjamenn leyfðu sér að
koma fram við ýmsar þjóðir í við-
skiptum eins og þær koma fram
viö þá og aðrar viðskiptaþjóðir sín-
ar þá væri hagur veraldarinnar
miklu verri en hann er í dag, sér-
staklega þó hjá þvílíkum verslun-
arþjóðum eins og okkur íslending-
um sem erum með um og yfir helm-
ing þjóðartekna frá greinum í al-
þjóðaviðskiptum.
Hagvöxtur-GATT
Skellur á þessu sviði myndi gera
hagstjóm á íslandi stórum erfiöari
og hætt er þá við að stjómaraðgerð-
ir hér til vemdunar kaupmáttar
yrðu erfiöar. Forsetar Bandaríkj-
anna hafa margir hveijir beitt sér
mjög hart fyrir fríverslun gagnvart
þjóð sinni og skemmst að minnast
glímu Reagans við þingið um þau
mál. Margar þjóðir um víöa veröld
eiga gífurlegan hagvöxt eftirstríös-
áranna nær eingöngu þessari af-
stöðu hinna ýmsu forseta Banda-
ríkjanna að þakka og ættu menn
ekki núna að gleyma starfi þeirra
t.d. innan GATT. Ríkisstjóm versl-
unarþjóðarinnar íslands ætti sér-
staklega að styðja þessa stefnu
hvar sem er því alls konar sam-
steypur, svæðabandalög og af-
markaöir milliríkjasáttmálar um
viðskipti geta hæglega stefnt hag
heildarinnar í voða og þar með
okkur uppi á Fróni. Þama er brýnt
að þjóðir veraldar sjái skóginn fyr-
ir einstökum tijám.
Álver - launaauki
Ýmislegt virðist á næstunni
verða til þess að styrkja stjómar-
samstarfið hér á landi. Benda má
á að nú era í burðarliðnum mögu-
legir samningar um tvö ný álver
hér á landi með tilheyrandi orku-
framkvæmdum. Ef vel tekst til
verður þetta auðvitaö til þess aö
stórauka þjóðarhag og um leið að
auðvelda aíla hagstjórn í landinu.
Engum flokkum er betur treyst-
andi en einmitt núverandi stjóm-
arflokkum til þess að standa sig í
þessum samningum. Auðvitað
skiptir höfuðmáli að gengiö sé til
svona verks af fagmennsku og
köldu hyggjuviti og annarleg sjón-
armiö látin lönd og leið. Hið heita
hjarta ríkisstjórnarinnar birtist
svo í þeim launabata sem þjóðin
fær af þeim arði sem hlýst af samn-
ingunum og framkvæmdunum.
Þessum verkefnum fylgja gífurleg-
ar gjaldeyristekjur og góður launa-
auki sé vel að verki staðiö. Hver
ráðherra fær því meira í sín mál
sem hann ber sérstaklega fyrir
bijósti og hnökramir af þriggja
flokka stjóminni munu sníðast af.
Á næsta ári verður ríkisstjómar-
samstarfið orðið svo gott að taka
má undir meö karlinum sem sagði:
„Þaö væri verra ef það væri betra.“
Guðlaugur Tryggvi Karlsson
hagfræðingur
„Engin þjóö, eftir seinni heimsstyijöld-
ina, hefur 1 raun veriö trúrri hugsjón-
inni um fríverslun en Bandaríkj amenn
og verið viljugri að stuðla að henni með
eigin fordæmi.“