Dagblaðið Vísir - DV - 03.08.1988, Side 17

Dagblaðið Vísir - DV - 03.08.1988, Side 17
MIÐVIKUDAGUR 3. ÁGÚST 1988. 17 Þvagleki Kona skrifar: Vegna greinar sem birtist í DV þann 27. júlí síðastliðinn um þvag- leka vil ég benda á að þar gætir bæði misskilnings og vankunnáttu. Ég hef átt við vandamálið, þvagleka, að stríða og minn læknir sendi mig til sjúkraþjálfara sem lét mig gera æf- ingar, en þær hjálpuðu mér til að fá fullkominn bata. Frábær þjónusta Farþegi sem ferðast mikið hringdi: Ég hef tekið eftir því að mikiö hefur verið kvartað undan ferðaskrifstof- unum, oé langar mig hér að leggja orð í belg. Á undanfórnum árum hef ég gert mikið af því að ferðast, með fjöldanum öllum af ferðaskrifstofum. Því miður er reynsla mín yfirleitt slæm af þjónustu þeirra. Ég hef notað ferðaskrifstofurnar Sólarflug, Sam- vinnuferðir/Landsýn og Ferðaskrif- stofu Reykjavíkur og þaö hefur alltaf einhveiju verið ábótavant í þjónustu þeirra. En síðan átti ég viðskipti við ferða- skrifstofuna Úrval og ég verð að segja að þar fékk ég frábæra þjónustu. Starfsfólkiö á þeirri ferðaskrifstofu er auk þess til fyrirmyndar, og hvert orð sem sagt var á þeirri skrifstofu stendur. Mér finnst ástæða til að geta þess sem vel er gert. Bankamir stela ogljúga Júlli hringdi: Alveg blöskar mér þau tíðindi að innstæður sparifjáreigenda í bönk- um rýma á meðan sömu bankar lána mönnum á okurvöxtum. Það er ekki langt síðan bankar auglýstu hver um annan þveran að fólk skyldi nú aldeilis leggja inn á bankabækurnar því þar fengjust vextir og verðbætur. En svo kemur á daginn aö aðeins sumar sparibæk- ur bera véxti umfram verðbólgu og þessa miklivægu staðreynd vom bankarnir ekkert aö auglýsa. Ef ekki hefðu komið til fréttir blaða og sjón- varps heföu bankarnir komist upp meö að þegja um það að saklaust fólk tapar tugmilljónum á ári því inn- stæður þess eru ekki verðtryggðar. Það var sú tíð að gamalmenni vom gerð að öreigum með því að innstæð- ur þeirra voru látnar brenna á verð- bólgubáli. Á sama tíma lánuðu bank- ar sem mest þeir máttu og fitnuðu á vax'tamuninum. Maður hélt að þessi vitfirring gengi yfir en fréttir síðustu daga benda til annars. Ef bankastjórar og pólitíkusar ætl- ast til að fólk sýni ráðdeild og leggi til hhðar hluta tekna sinna verður að kreíjast þess að allt sparifé lands- manna sé verðtryggt, ekki bara sum- ar sparifjárbækur. ■ Lesendur Bifreið lesanda fær hvergi að vera i friði fyrir herskara stöðumælavaröa. Herflokkar stöðu- mælavarða Bíleigandi hringdi: Ég er svo „óheppinn" að vera einn af þeim sem vinnur í gamla mið- bænum, og á því í sífelldum vand- ræðum þegar ég mæti í vinnu að ná mér í bílastæði. Hingað til hef ég oft- ast verið í friði þar sem ég hef lagt, í hliðar- eða íbúðagötum nokkuð frá vinnustaðnum. Þar hefur bifreið aldrei verið sektuð áður, enda leggja íbúar jafnt sem aðrir þar. En nú upp á síðkastið virðist eins og heill herskari unghnga, sem gegna starfi stöðumælavarða, gangi hreint út um allt og skrifi sektarmiða hver í kapp við annan. Ég er að verða vit- laus á þessu því sektarmiðarnir hlað- ast upp og ég get hvergi orðið lagf lengur. Þeir eru að sekta á stöðum sem aldrei hefur verið sektaö á áður, og ekki er ljóst hvort ólöglegt er að leggja, allavega sést það ekki á merk- ingum. Ég veit aö fiöldi manns er sama sinnis og ég í þessu máli, því alhr eru að tala um þennan nýja her fólks sem fer hamforum um bæinn. Endursýnið framhaldsþætti GylQ M. hringdi: bandstæki). Margir kvarta undan því að sí- Það ætti ekki að vera mjög erfitt fellt sé verið að endursýna bíó- fyrir þá á Stöðinni að endursýna myndir á Stöð 2 og er það að mörgu framhaldsþætti, til dæmis á miðj- leyti réttmætt. En þess í stað mættu um degi, úr því þeir eru hvort eð þeir Stöðvarmenn endursýna eitt- er að halda úti dagskrá mest allan hvað af sínum bestu framhalds- daginn. Égmissitildæmisaffram- þáttum, því margir eru uppteknir haldsþættinum Spegilmyndin, sem ákveðin kvöld og geta því ekki sýndur er á mánudagskvöldum, og fylgst með einhveijum þætti sagður er. mjög góður. (þ.e.a.s. þeir sem eiga ekki mynda- . Kennarar íþróttakennari óskast að Þelamerkurskóla í Hörgárdal næsta vetur. Upplýsingar hjá skólastjóra í síma 96-26555 eða hjá formanni skólanefndar í síma 96-21923. HRARIK RAFMAGNSVEITUR RÍKISINS Útboð Rafmagnsveitur ríkisins óska eftir tilboðum í eftirfarandi: RARIK 88010 10 MVA AFLSPENNIR. Opnunardagur: Þriðjudagur 20. september 1988 kl. 14.00. Tilboðum skal skila á skrifstofu Rafmagnsveitna ríkis- ins, Laugavegi 118,105 Reykjavík, fyrir opnunartíma og verða þau opnuð á sama stað að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska. Útboðsgögn verða seld á skrifstofu Rafmagnsveitna ríkisins, Laugavegi 118, 105 Reykjavík, frá og með fimmtudegi 4. ágúst 1988 og kosta kr. 300,00 hvert eintak. Rafmagnsveitur ríkisins Laugavegi 118 105 Reykjavík LECTROSTATIC SP0T BLASTER SANDBLÁSTURSTÆKI Lectrostatic Spot Blaster er tilvalið verkfæri fyrir bíla- verkstæði, bílasprautuverkstæði í bílskúrinn o.fL, þegar unnið er við ryð, viðgerðir eftir steinkast eða aðrar skemmdir á lakki bifreiðar. A) Lokað kerfi, ekkert ryk. B) Hreinsar vel yfirborðsflöt undir blettun eöa sprautun. C) Góð nýting og hringrás á sandi. D) Tengist við loftpressu 6(1-550 l/min. Hægt að fá aukaspíssa til að blása hurðarföls og rennur. ÞYRILL HF. Skemmuvegi 6, sími 641266 á Nústendurlax-og sil- ungsveiðitíminn sem hæst. Fjöldamargirstunda þessar veiðar og því ákvað DV að líta á úrvalið í nokkrum versl- unum sem selja fatnað fyrir lax- og silungsveiðimenn. Veiðifatnaðurer yfirleitt frekar sígildur og fólk festir ekki kaup á slíkum fatnaði á hverju ári. En úrvalið er mikið og stöðugt koma fram nýj- ungar í veiðifatnaði. Við segjum nánar frá þessu í Lífsstíl á morgun. Veistu hvaðan safran er upprunnið eða af hvaða jurt piparinn er? Er karrí tínt af trjánum eða er það blanda margra kryddtegunda? Við fjöllum um krydd í Lífsstíl á morgun, hvaðan algengustu tegundirn- ar koma og til hvers þær eru notaðar. Mikið er framleitt af grautum tilbúnum til neyslu. Við höldum áfram bragðprófunum og nú tökum við fyrir grautana. Alltum krydd og grauta í Lífsstíl á morgun.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.