Dagblaðið Vísir - DV - 03.08.1988, Síða 19
MIÐVIKUDAGUR 3. ÁGÚST 1988.
19
DV
Karlmaðurinn „framagjam" en
konan „frekjudós og padda"
- segir í skoðanakönnun meðal kvenna
Aima Bjamason, DV, Denver
Það er betra aö eiga karlmann fyr-
ir vinnufélaga en konu því ef út af
bregður eru kvenkyns vinnufélagar
miklu líklegri til að „reka rýtinginn
í bakið á fólki“.
Þetta varð niðurstaða skoðana-
könnunar meðal 926 lesenda tíma-
ritsins Glamour, sem er útbreitt í
Bandaríkjunum og er nær eingöngu
lesið af kvenfólki.
35% lesendanna sögðu að kven-
kyns vinnufélagar þeirra væru til-
búnir aö beita lævísi og undirferli í
samkeppni við vinnufélaga sína. Að-
eins 11% sögðu að karlkyns vinnufé-
lagar væru tilbúnir að beita lævís-
legu brögðunum.
Aðeins 5% sögðu að kvenkyns
vinnufélagar beittu heiðarlegum að-
ferðum í samkeppnisstríðinu en 15%
töldu aö karlkyns vinnufélagar væru
heiðarlegir í sinni samkeppni.
42% sögðust eiga harma að hefna
gagnvart kvenkyns vinnufélaga í
þessum efnum, aðeins 7% sögðust
eiga karlkyns vinnufélaga sök að
gjalda.
Þrátt fyrir allt þetta kváðust 73%
kvennanna vera ánægðar með að
vinna með öðrum konum en 23%
kváðust helst vilja vera lausar við
það ef þær gætu.
Karl og kona ekki
dæmd á sama grundvelli
Ritstjóri Glamour telur að skýringa
á þessum niðurstöðum sé m.a. að
leita í þeirri staðreynd að konur setji
karlkyns vinnufélaga alls ekki í
sama flokk og kvenkyns vinnufélaga,
þess vegna sé dómurinn í ýmsum til-
feflum ekki byggöur á sama grund-
velli.
„Þegar karlmaður er frekur og ýt-
inn á kostnað annarra er það oft
skýrt eða afsakað með því að hann
sé framagjarn og vilji ná sem lengst.
Þegar kona hegðar sér á sama hátt
Rob Camilletti, sambýlismaður
Cher, virðist nú hafa tekið Sean
Penn sér til fyrirmyndar.
Reyndi að aka
yflr Ijósmyndara
Rob Camifletti, hinn 23 ára
gamli sambýlismaður Cher, var
handtekinn nýlega fyrir aö hafa
gert tilraun til aö aka yfir Ijós-
myndara fyrir utan hús söng-
konunnar.
Rob, sem er barþjónn, kringlu-
bakari og leiklistarnemi, var sett-
ur í varðhald vegna gruns um að
hafa ráðist á mann með hættu-
legu verkfæri, bifreið. Chér hélt
strax til lögreglustöövarinnar þar
sem hann var í haldi og fékk hann
lausan gegn 96.000 króna trygg-
ingu.
Lögreglan sakaði Rob um að
hafa reynt að aka yfir lausa-
mennskuijósmyndara, Peter
Brandt, á svörtum Ferrari. Peter
tókst að stökkva til hflðar ogfékk
ekki skrámu en bíllinn lians, sem
var á stæöi rétt hjá, skemmdist
illa.
Cher var inni í hinni 138 mifljón
króna villu sinni þegar atburður-
inn átti sér stað og sagöi lögregl-
unni aö hún hefði ekki orðið vitni
aö því sem gerðist.
Samkvæmt skoðanakönnun tímaritsins Glamour telja um 35% kvenna að kynsystur þeirra væru tilbúnar til að
beita lævísi og undirferli í samkeppni við vinnufélaga sína.
er hún oft stimpluð af öðrum,-og þá
ekki síst kynsystrum sínum, „sem
frekjudós og óþolandi padda,“ segir
ritstjórinn, Judy Coyne.
Karlmaðurinn betri
viðureignar
Niðurstöður skoðanakönnunar-
innar benda einnig í þá átt að karl-
kyns yfirmenn og stjómendur séu
ákveðnari og skýrari varðandi hvers
krafist er af starfsfólkinu.
Þeir em einnig taldir fúsari til aö
hækka launin ef vel er unniö og ólík-
legri til að bera fjölskylduvandamál
sín upp við alla aðra á vinnustaðn-
um. En meirihlutinn telur þó aö karl-
kyns yfirmenn skilji miklu verr en
kvenkyns yfirmenn ýmsa erfiöleika
sem starfsfólkið á við að stríða 1
einkalifi sínu.
Aflar niðurstöðumar, sem fram
komu í skoðanakönnuninni meöal
lesenda Glamour, em mjög svipaðar
þeim rannsóknum sem lágu aö baki
bók Judith Briles, sem kom út í fyrra
og bar heitið „Woman to Woman:
From Sabotage to Support" eða laus-
lega þýtt Milfl kvenna: Allt frá bak-
tali til stuðnings.
Landnám
í Vatnsfirði
Sigmjón J. Sigurðsson, DV, ísafiröi:
í ár em sextíu ár liðin frá því að
skátastarf hófst á ísafirði. Af því til-
efni ætla skátafélögin á ísafirði, Ein-
herjar og Valkyrjan, að halda skáta-
mót í sumar. Það verður haldið dag-
ana 10. til 14. ágúst í Vatnsfiröi í
Vestur-Baröastrandarsýslu. Eink-
unnarorð mótsins er Landnám.
Dagskrá mótsins verður mjög fjöl-
breytt. Boðið verður upp á siglingar
á vatninu, þrautabrautir, klifur-
pósta, vatnasafarí, hestaferðir, sigl-
ingu um Breiðafjörð, ferð á Látra-
bjarg og margt fleira. Fjölskyldubúð-
ir veröa starfræktar á mótinu fyrir
fjölskyldur skáta og eldri skáta.
Laugardaginn 13. ágúst verður al-
mennur heimsóknardagur. Þá er til-
valiö fyrir þá sem vilja sjá skáta í
leik og starfi að nota tækifærið og
koma í heimsókn. Fjöldi skáta mun
verða á mótinu, hvaöanæva af
landinu. Þá hafa tveir skátar frá
Finnlandi tilkynnt komu sína á mót-
ið.
Mótsstjóri verður Haraldur Júlíus-
son.
Ungir skátar biða óþreyjufullir ettir þvi aö steikin veröi tilbúin á grillinu.
Ekki er að efa aö mikið verður grillað i Vatnsfirðinum á landnámsmótinu.
Sviðsljós
Ólyginn
sagði...
Karl
prins
mun hafa tekið alveg fyrir það
að tengdamóðir hans flytti inn til
þeirra Díönu. Á hann aö hafa
hótað að ef sú gamla kæmi þá
myndi hann flytja út. Díana hafði
hugsað sér að leyfa mömmu sinni
að dvelja hjá þeim um tíma þar
sem hún gekk nýlega í ge'gnum
skilnað. Karl á að hafa sagt vin-
um sínum að nöldrandi tengda-
mamma væri síst af öllu það sem
hið ótrausta hjónaband hans
þarfnaðist.
Brigitte
Bardot
- sem er alræmd fyrir ást sína
á dýnun - stóð í 20 mínútur i
miðborg Parísar í hellidembu og
hélt regnhlíf sinni yfir hundi sem
bundinn var við girðingu. Þegar
eigandinn kom loksins fékk hann
aldeilis að kenna á því, því Brig-
itte barði hann ofurnett og létt í
höfuðið með sömu regnhlíf.
Madonna
varð fyrir þeirri óskemmtilegu
reynslu að sérlega ákafur aðdá-
andi hennar stökk upp á sviðið
þegar hún var að leika á Broad-
way. Madonna öskraði og æpti,
og mótleikara hennar tókst að
halda náunganum uns verðir
komu til að fjarlægja hann. Hún
hefur nú ráðið tvo verði í viðbót
til að standa fyrir framan sviðið.