Dagblaðið Vísir - DV - 03.08.1988, Síða 30
30
MIÐVIKUDAGUR 3. ÁGÚST 1988.
liífsstfll
Eldhúsinnréttingar:
Hægt er að skipta um framhlið innréttingar fyrir lágt verð
Nokkrir mpguleikar eru fyrir
hendi til að hressa upp ? atiit eld-
húsinnréttinga. Ekki er nauðsynlegt
aö rífa niður þá gömlu og setja upp
_nyja. Gamlir hlutir taka miklum
stakkaskiptum aðeins við það að
skipt sé um framhlið.
Þannig má kaupa staðlaðar hurðir
og skipta um eða smíða sjálfur og
láta saga fyrir sig - t.d. MDF efni.
Hins vegar er úrval af eldhúsinnrétt-
ingum mikið og verðið mismunandi.
í þessum efnum á ekki að vera erfitt
að haga sér í samræmi við innihald
buddunnar. Stórbreytingar má gera
á eldhúsi - hvort heldur fyrir stórar
eða litlar upphæðir - þá gildir einu
hvort notaðar eru 10 þúsund krónur
eða 500 þúsund krónur.
Ef skipt er um framhlið á eig-
in spýtur
Margír flytja inn í eigin íbúðir með
„þolanlegri" innréttingu. Peningar
til að kaupa nýtt eru kannski ekki
fyrir hendi eins og gengur og gerist
hjá skuldugu fólki. Tökum sem dæmi
íbúðir í Breiðholti, 15-20 ára gamalt
húsnæði. Þar eru giama innréttingar
með rennihurðum í óspennandi lit-
um. Þetta þykir flestum erfitt að
vinna við.
Þennan vanda má leysa með smá
handlagni og meö litlum tilkostnaði.
MDF-efni, sem gjarna er notað í
smiði húsgagna, er selt í plötum hjá
byggingarvöruverslunum. Efnið er
mjög héppilegt fyrir smíöi skápa-
hurða. Það er þeim eiginleikum búið
að þegar það hefur verið sagað þarf
aðeins að slipa létt yfir kantana til
að ná sléttri áferð. Kantlíming er
óþörf. Einnig er gott að skrúfa í plöt-
urnar og vinna viö þaö að öðra leyti
vegna góðs þéttleika.
Plötur sem þessar er hægt að fá
sagaðar hjá seljendum að ósk kaup-
enda fyrir lítið verð. Þá er aðeins,
eftir að setja á lamir og höldur og
mála því efnið er brúnleitt. Ef hurð-
irnar eru settar þar sem rennihurðir
voru verður aðeins að setja eina stoð
(póst) þar sem hægt er að tylla löm-
unum beggja vegna. Með þessu ætti
að vera hægt að smíða nýtt andlit
*X?ront) á eldhúsinnréttingu fyrir inn-
an við 10.000 krónur. Það þarf ekki
fagmann til - aðeins áhuga og smá
lagni.
Áður hugsað um pláss ..........
Mikilvægt er að hafa eldhúsið hjá
sér vel- skipulagt. Vafalaust er eld-
húsið sá staöur heimilisins sem mest
er dvalið á. Þar er matreitt og borð-
að, lærðar lexíur og skrafað. Og hver
kannast ekki við fyrirbærið „eld-
húspartí". Hér er hjarta heimilisins
- þar er mest unniö.
Eldhúsinnréttingar eru nú á dög-
um hannaðar með það fyrir augum
Hjá Ikea eru seldar nokkrar tegundir af eldhúsinnréttingum. Þessi tegund er nýleg og kostar 71.290 kr. Efnið er úr plastlímdum spónaplötum. Sumir ráða
við að setja svona innréttingar upp sjálfir. Best er þó að ráðfæra sig við fagmann. DV-mynd S
T*"T
55S5S55IS53Í
liil
að sem þægilegast sé að vinna eld-
hússtörfin og að fólk sem vinnur þau
skaðist ekki líkamlega vegna slæmr-
ar vinnuaðstöðu.
Áöur fyrr voru innréttingar miðað-
ar við það að nýta plássið sem best,
gjarna alla leið upp í loft. Skápar
voru grynnri og til að komast í efstu
hillur þurftu margar húsmæður að
stíga upp á stól. Stærð eldhúss var
einnig minna áður fyrr en nú er. Þá
var gjama borðað í borðstofu. Eld-
húsið var aðeins hugsað fyrir mat-
seld, i mesta lagi var það vinnufólk
sem þar snæddi.
Af þessum sökum var rýmið notað
sem frekast var kostur. Það má segjá
að innréttingar hafi verið skraddara-
saumaöar í eldhúsið.
...en nú um notagildi
Að innrétta með skápum alla leið
upp í loft hefur á síðustu árum verið
afar óalgengt. Þann kost hafa þó
margir komið auga á og notfært sér.
Það er auðvitað dýrara en gefur kost
á að koma því fyrir sem ekki má
henda en er samt notað. Þetta hentar
vel í litlum íbúðum.
Eldhúsinnréttingar í dag miðast
við notagildi - þægindi. Áöur voru
rennihurðir allsráðandi, stórar og
vægast sagt hundleiðinlegar. Þungar
Heimilið
hurðir sem klemmdu margan bams-
fingur. Fölsin söfnuðu illþrífanleg-
um óhreinindum. Óhappagripir en
þóttu „smart“- þá. Tískufyrirbrigðin
taka ekki alltaf mið af notagildi.
Tæknin gerir það að verkum að
auðvelt er að taka tillit til þæginda
við hönnun. Nú eru þaö ekki renni-
hurðir. Frekar renniskúffur eða
renniskurðbretti sem næstum er nóg
að blása á til að loka. Allt hvílir þetta
á sleðum sem gera það að verkum
að ekki þarf átök til að opna og loka.
Einnig má nefna útdregnar hirslur
með grindum í.
Hæð, breidd og dýpt miðast einnig
viö þægindi. Að ekki þurfi að sjá í
iljar neins við það eitt að teygja sig
inn í skáp.
Nýting og umgengni höfð í
huga
Á margan hátt má raða upp eld-
húsinnréttingu. Áður en slíkt er
hannaö er vert að gera sér góða grein
fyrir því hvemig maður hagar sér
sjálfur. Hvernig matreitt er, hvaða
hlutir eru til að raða í skápana. Þann-
ig er best aö hafa glasa- og diskaskáp
sem næst uppþvottagrind eða jafnvel
eldhúsborðinu o.s.frv. Þetta er
smekksatriöi en vert að skoða gaum-
gæfilega áöur en innkaup og fram-
kvæmdir hefjast.
Ýmist er eldhúsið með U- eða L-
laga innréttingu, stundum í boga eða
þannig að gengið er á mfili (t.d. vask-
ur öðrum megin og eldavél hinum
megin). Nýting verður síst í hornum,
þar sem skápar mætast. Það verður
til þess að það verður að teygja sig
inn í hom á skápum. Þetta er einnig
óhagkvæmt með skúffur í huga.
Innrétting, sem höfð er beggja
vegna, nýtist þannig einna best. Þá
er auðyitað skilyrði að matarborðið
sé fyrir enda, við glugga, eða í borð-
stpfu.
í rauninni eru ótal hlutir sem
mætti athuga við hönnun eldhúss.
Birta verður að nýtast, rafmagns-
lagnir og vatnslögn em á sínum stað
og krefjast gjama uppröðunar í sam-
ræmi við það. Hér er ekki ætlunin
að setja upp illleysanlegt púsluspil.
Engu að síður er gaman að geta
ákveöið sjálfur sína vinnuaöstöðu.
Staðlaðir „kubbar“ henta á
fiestum stöðum
Varðandi innréttingar er oft talað
um rammastærð eða jafnvel kubba.
Stundum eru neðri skápar í grynnra lagi. Þá er hentugt að stilla fallegri eldhúshlutunum
upp og hafa hurðarlaust.
í dag miðast innréttingar við hagkvæmni og þægindi. Stundum renna skúffur svo glatt að
varla þarf meira en að blása á þær til að þær lokist.