Dagblaðið Vísir - DV - 03.08.1988, Page 31

Dagblaðið Vísir - DV - 03.08.1988, Page 31
MIÐVIKUDAGUR 3. ÁGOST 1988. 31 Lífsstíll Áður var þessi eldhúsinnrétting með rennihurðum. En þær voru fjarlægðar og á einfaldan hátt settar þægilegar skápahurðir í staðinn. Efnið er úr MDF og sagað hjá seljanda. Aðalatriðið er að staðsetja stoðir á milli (gráleitt á mynd) þar sem lamir eru festar í. Að þvt loknu er efnið málað og höldur settar á. DV-mynd S Þar er átt viö innréttingaeiningar sem raðaö er saman eftir smekk og þörfum. Dýpt er yfirleitt alltaf sú sama, 60 cm í neöri skápum og 35 cm í þeim efri. Breidd þessara staöla er yfirleitt á bilinu 30-100 cm. Langalgengastar eru þó breiddirnar 40 eða 50 cm. 60 cm breidd er einnig algeng og fer þetta eftir breidd heimilistækja. Til- högun innréttinganna má því auö- veldlega haga þannig að allt passi. Ef einhverju skeikar má alltaf klæða af meö fellilistum úr sama efni og innréttingin. Þetta gildir bæði um gamalt og nýtt húsnæði. Yfirleitt er nokkuð aðgengilegt að mæla upp og láta einingar passa. í þessu sambandi er vert að geta þess aö veggir eru sjaldnast réttir hvort heldur er í gömlum eða nýjum húsum. Því geta mælingar og uppsetningar valdiö erfiðleikum. Best er að hafa samráð við fagmenn í þessu sambandi. Lofthæð í húsum hér á landi er algeng 250 cm. Eldhúsinnréttingar ná oftast upp í 210 cm hæð. Sökkull er venjulega hafður 10 cm hár, neðri skápur 90 cm og sá efri um 70 cm. Þessar tölur eru hér aðeins gefnar til grófrar viðmiðunar. Stærð og mál eldhúsa geta verið mjög mismun- andi. eldhúsi eða hæð. Slíkt er hægt aö útvega sér á vegum borgarinnar eða sveitarfélags. Annars er hægt að mæla upp og rissa afstöðuteikningu eins vel og kostur er. Þá skal taka tillit til hæðar upp í glugga, staðsetn- ingu hurða, miðstöðvarofna, niður- falls og vatnslagnar og rafmagns. Allra þátta sem mögulega geta haft áhrif á innréttinguna. Að þessu loknu er vert að skipu- leggja hvort vaskur skuli vera ein- faldur eða tvöfaldur, hringlaga o.s. frv. Hvar eldavél á vera og ísskápur og hvar á að snæða. Breytt um útlit fyrir lítið Það er hægt að bæta útht og nota- gildi eldhúsinnréttingu verulega fyr- ir lágt verð. Sveinn Jónsson hjá Inn- réttingabúöinni í Ármúla segir að endurnýjunarmarkaður á þessu sviði eigi framtíð fyrir sér. í því sam- bandi má nefna að nokkrir aðilar taka að sér að framleiða eða selja eingöngu hurðir - það se'm snýr fram, „frontinn". Sveinn segir að verð fyrir slíkar framkvæmdir geti legið á bihnu 25-30% af kostnaðarverði nýrrar innréttingar. Þannig mætti einnig skipta um skúffur og fá þægilegri hluti inn í innréttinguna. Meðalstór skáphurð getur e.t.v. kostað á bilinu 2-4 þúsund krónur. Síðan má velja nýjar höldur og jafnvel lamir í stað þeirra gömlu. Ef fólk sættir sig við uppröðun innréttingarinnar og innra útht er þessi kostur virkilega fýshegur. Og svo má smíða sjálfur eins og áður greinir. -ÓTT. Eldhúsinnréttingar eru seldar í stöðlum. Stundum er talað um lengdar- metra. Það er þó ekki áreiðanlegur útreikningur því rammar (kubbar) geta verið mjög mjsmunandi. Þessi innrétting fæst hjá Byggt og búið í Kringl- unni og kostar 94.000 krónur. Verð eldhúsinnréttinga er mjög mismunandi. Hagkvæmast er fyrir kaup- anda að leita tilboða. Þá er heppilegast að hafa teikningu hæðar eða eld- húss svo öll mál séu rétt. Mikilvægast er að gera sér Ijósa grein fyrir vinnu- aðstöðu þannig að aðstaða verði sem þægiiegust. Sveinn Jónsson hjá Innréttingabúðinni telur að endurnýjunarmarkaður eigi framtíð fyrir sér. Að það aukist að skipt verði um framhlið innréttinga, s.s. skápahurðir og skúffur. Á myndinni er dæmi um einfalda og látlausa inn- réttingu. Verðið er 88 þúsund krónur. Framleiðslan er íslensk. Ef eingöngu væri skipt um framhlið myndi verðið vera um 25-30% af heildarverði. DV-mynd S Þegar skipt er um innréttingu eða hún bætt Jakob Líndal arkitekt ráðleggur fólki tvímælalaust að leita sem flestra tilboða standi til að kaupa eða skipta um innréttingu. Fyrst verður að gera sér góða grein fyrir umfangi og notkunargildi hlutanna. Til hlið- sjónar er best að miða við teikningu af íbúðinni. Útvegi fólk sér teikningu á enginn misskilningur að geta átt sér stað. Jakob segir að misbrestur sé á því að fólk komi á staöinn og mæli upp þótt vissulega sé það gert í mörgum tilvikum. „Ef teikning er fyrir hendi eiga öll nauðsynleg mál að liggja fyrir.“ En hvers vegna skyldi fólk vilja skipta um innréttingu? Hjá Innrétt- ingabúðinni við Háteigsveg fengust þær upplýsingar að margir yrðu leiö- ir á gamla skipulaginu. Erfiðar hurð- ir, óhagkvæm staðsetning skápa, heimhistækja eða vasks og heira í þeim dúr. Með öðrum orðum; fólk er farið að gefa meiri gaum að betri vinnuaðstöðu. Þetta á við um hluta fólks. Nýbyggingar eru svo aftur annar handleggur og enn aðrir vhja hreinlega fá eitthvað nýtískulegra og fahegra - ljósar innréttingar i stað- inn fyrir þær dökku o.s.frv. Vinnuaðstaða í eldhúsi er ekki ein- vörðungu miðuð við matseld. Mörg- um fmnst þægilegt að geta haft böm- in hjá sér þegar þau em að læra heima. Aöalatriðið er að stutt sé í nauðsynlega hluti og kostur sé gef- inn á sem þæghegustu rými. Erfiðast að breyta vatnslögn Helstu upplýsingar sem þurfa aö hggja fyrir þegar leitað er tilboða eru eftirfarandi. Samþykkt teikning af Áður fyrr voru innréttingar yfirleitt „klæðskerasaumaðar" alla leið upp í loft. Eldhús voru þá gjarna aðeins ætluð til að matreiða i - í borðstofunni var snætt. Ef settir eru tvöfaldir efri skápar verður nýting mjög góð. Þetta á vel við um minni ibúðir. Þessi innrétting er frá Ikea. Tvær þægilegar skápahurðir í stað stórrar rennihurðar. Brautirnar, sem rennihurðir færast á, safna gjarna í sig illþrífanlegum óhreinindum. Til að framkvæma verk sem þetta þarf aðeins áhuga og örlitla lagni. DV-mynd S

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.