Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.1988, Side 10
10
FÖSTUDAGUR 4. NÓVEMBER 1988.
JHOWOAP H
150 lítra kæliskápur
með eða án frystihólfs.
Hæð 85, breidd 57, dýpt 60.
2ja ára ábyrgð
Opiö föstud. til kl. 20, laugard. til kl. 16.
Skipholti 7, símí 26800 og 20080.
2ja ára ábyrgð
Opið föstud. til fcl. 20, laugard. tll kl. 16.
Sklpholtl 7, slmi 26800 og 20080.
45 lítra frystir
235 lítra kælir
Hæð 145, breidd 57, dýpt 60
JNOWCAP
Útlönd
Thatcher hittir
Walesa
Margaret Thatcher, forsætisráð-
herra Bretlands, hittir í dag Lech
Walesa, leiðtoga Samstöðu. í gær
sagði Thatcher leiðtogum PóUands
að hefla viðræður við hin bönnuðu
verkalýðssamtök.
Thatcher mun fljúga til Gdansk í
dag þar sem Samstaða reynir nú að
hindra lokun Lenín-skipasmíða-
stöðvarinnar sem fyrirskipuð hefur
veriö af yfirvöldum. Það var einmitt
í þessari skipasmíðastöð sem Sam-
staða varð til árið 1980.
Margaret Thatcher er fyrsti erlendi
forsætisráðherrann sem fer til
Gdansk til viðræðna við leiðtoga
fyrstu óháðu verkalýðssamtakanna
í austantjaldslöndum. Thatcher
sagði við Jaruzelski í kvöldverðar-
boði í gær að frelsi til handa þegnun-
um og réttindi verkalýðsfélaga væri
eina leiðin tU velfamaðar. En í skila-
boðum tíl Walesa og pólskra verka-
manna sagði Thatcher að frelsið sem
hún hvetti tU kallaði á ábyrgð svo
sem eins og að sætta sig við þrenging-
ar sem fylgdu víðtækum breyting-
um. Hvatti Thatcher tU viðræðna við
fuUtrúa aUra stétta, þar á meðal
Samstöðu.
Yfirvöld endurtóku opinberlega í
gær boð sitt um viðræður við Sam-
stööu. Walesa sagði að andrúmsloftið
væri ekki hið rétta en vegna heim-
sóknar Thatchers myndi hann bíða
með að gefa svar sitt þar tU hún
væri farin frá PóUandi.
Forsætisráðherra Bretlands, Margaret Thatcher, veifar til þúsunda Pólverja
í Varsjá sem fögnuðu henni í gær. Simamynd Reuter
Skotbardagi á hóteli
Tveir menn létust og aUt að fimmt-
án særðust í gærkvöldi í skotbardaga
miUi stríðandi fylkinga verkalýðs-
félaga í Mexico City. Átökin áttu sér
stað í lúxushóteli í borginni og brut-
ust þau út vegna deUna um völdin í
verkalýðsfélagi hótelstarfsfólksins.
Starfsmenn Rauða krossins kváö-
ust halda að aUt að tvö hundruö
manns hefðu verið handteknir vegna
þátttöku í ólátunum. Engir hótelgest-
ir urðu fyrir meiðslum því að þeir
höfðu hlýtt fyrirmælum um að snúa
aftur tíl herbergja sinna áður en tíl
skotbardagans kom. Átökun brutust
út í anddyri hótelsins og geisuðu síð-
an um alla neðstu hæðina.
ETA knýr á um samningaviðræður
Pétur L. Pétursson, DV, Barceloina;
ETA hefur krafist nýrra samn-
ingaviöræðna við stjórnvöld og hefur
boðist til að slaka verulega á kröfum
sínum úr síðustu viðræðum. Stjóm-
völd hafa fyrir sitt leyti lýst því yfir
aö þau muni skoða hug sinn vand-
lega áður en sest verði að samninga-
borðinu og að ekki komi til greina
að ræða við samtökin nema þau leggi
niður vopn.
TU að undirstrika alvöru kröfunn-
ar um samningaviðræður skutu
samtökin sprengjum að bækistöð
þjóðvarðUða í Viscayahéraði. Ekki
híutust meiðsl af árásinni.
ETA stendur nú sterkar að vígi en
nokkru sinni fyrr og er mikUl þungi
að baki kröfu samtakanna. Eftir rán-
ið á EmUiano Revilla fyUtust sjóöir
samtakanna en fjölskylda iðnjöfurs-
ins hefur greitt samtökunum um
1.100 miUjónir peseta, (um 400 millj-
ónir ísl. króna) í lausnargjald og hef-
ur ReviUa sagst hafa lofað aö greiða
um 800 miUjónir peseta (rúmar 200
milljónir ísl. króna) tU viðbótar.
Samtökin eru því fær í flestan sjó og
óttast menn mjög hvað verða viU er
þau fara að leita fyrir sér um vopna-
búnað.
Baskneskir stjómmálaflokkar hafa
tekið kröfu ETA fálega og segja sam-
tökin á engan hátt hafa umboð bask-
nesku þjóðarinnar tíl samningavið-
ræðna viö sfjómvöld. Þetta eru mun
svartsýnni viðbrögð en áður. Síðast
er ETA bauðst tíl samningaviðræðna
var tílboðinu vel tekið af stjóm-
málaflokkum. Þær viðræður sem
fram fóra í Alsír í janúar síöastUðn-
um fóru þó út um þúfur. Viðbrögð
stjórnvalda em þó svipuð og þá. Þá
var því lýst yfir að ekki kæmi tíl
greina að ganga að neinum kröfum
samtakanna nema þau sýndu friðar-
vUja sinn í verki með því að láta af
tilræðum gegn öryggissveitum ríkis-
ins. Það gerðu samtökin ekki og virð-
ast heldur ekki reiðubúin tU að gera
það nú. Það era því Utlar líkur tíl
þess að teknar verði upp friðarvið-
ræður miUi stjómvalda og ETA í
bráö.
BÍLASÝNING
LAUGARDAG OG SUNNUDAG KL. 14-17
NISSAN SUBARU
Ingvar
sýningarsalurinn,
Rauðagerði
Q) 91-3 35 60