Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.1988, Síða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.1988, Síða 26
42 FÖSTUDAGUR 4. NÓVEMBER 1988. Jarðarfarir Ágúst Indriðason lést 23. október sl. Hann fæddist á Patreksfirði 5. ágúst 1901. Foreldrar hans voru Guðríður Karveldsdóttir og Indriði Guð- mundsson. Ágúst kvæntist Ingileif Ingvadóttur en hún lést árið 1963. Þau hjónin eignuðust eina dóttur. Ágúst stundaði alla almenna vinnu Hans Aöalsteinsson Oddrún Hansdóttir Albert Hansson Þórður Hansson Albert Jónasson Þórunn Jóhannesdóttir til sjós og lands á Patreksfirði. Árið 1952 fluttist hann með fjölskyldu sína til Hafnarflarðar. Útfór hans verður gerð frá Hafnaríj arðarkirkj u í dag kl. 15. Ragnar Kjartansson lést 25. október sl. Hann fæddist í Reykjavík 24. maí 1930, sonur hjónanna Ragnheiöar Magnúsdóttur og Kjartans Gíslason- ar. Ragnar kvæntist Katrínu Björns- Ingjaldur Tómasson Ingjaldur Tómasson dóttur en þau slitu samvistum eftir stutta sambúð. Þau eignuðust eina dóttur. Eftirlifandi sambýliskona Ragnars er Kristín Sigurðardóttir. Ragnar starfaði á Veðurstofu íslands frá 1961 og við jarðeðlisfræðideild frá árinu 1964 til dauöadags. Útfór hans verður gerð frá Dómkirkjunni í dag kl. 13.30. Ólafía Eyjólfsdóttir, Lönguhlíð 3, Reykjavík, verður jarðsett frá Álftár- tungukirkju laugardaginn 5. nóv- ember kl. 14. Útfór Egils Guðjónssonar fer fram frá Suðureyrarkirkju laugardaginn 5. nóvember kl. 14. Sigfús Jónsson, fyrrv. verkstjóri á skipaafgreiðslu KEA, Skólastíg 9, Akureyri, verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju föstudaginn 4. nóv- ember kl. 13.30. Stefán J. Guðmundsson bygginga- meistari, Breiðumörk 17, Hvera- gerði, verður jarðsunginn frá Hvera- gerðiskirkju laugardaginn 5. nóv- ember kl. 14. Haraldur Ágústsson smiður, Fram- nesvegi 16, Keflavík, veröur jarð- sunginn frá Ketlavíkurkirkju laug- ardaginn 5. nóvember kl. 14. Andlát Ragnhildur Steinunn Maríusdóttir, Heiðarhvammi 1, Keflavík, andaðist á Landspítalanum 2. nóvember. Borghildur Tómasdóttir, Brekku, Þykkvabæ, andaðist 2. nóvember á Sjúkrahúsi Suðurlands, Selfossi. Arthur Emil Aanes vélstjóri, Efsta- sundi 12, andaðist á Borgarspítalan- um miðvikudaginn 2. nóvember. Einar Sigurstéinn Bergþórsson skipasmiður, Þingholtsstræti 12, lést á Landspítalanum 2. nóvember sl. TiBcynningar JC-BROS heldur flóamarkað og kökubasar laugar- daginn 5. nóvember nk. í glerskálanum á Eiðistorgi milli kl. 9.30 og 16. Til sölu verða heimabakaðar kökur og ónotaður fatnaður. Listahátíð unglinga í Breiðholti Dagana 6.-11. nóvember nk. standa fé- lagsmiðstöðin Fellahellir og menningar- miðstöðin Gerðuberg að listahátíð þar sem unglingum á aldrinum 13-16 ára er gefmn kostur á að koma verkum sínum á framfæri. Boðið verður upp á tónlist, myndlist, upplestur, dans, glens og fleira. Hátíðin veröur opnuð á sunnudag kl. 20 í Fellahelli. Aðgangur er ókeypis á alla dagskrárliði. Breiðfirðingafélagið 50 ára afmælisfagnaður og árshátíð fé- lagsins verður haldinn í Súlnasal Hótel Sögu fóstudaginn 18. nóvember og hefst með borðhaldi kl. 20. Miðasala og borða- pantanir 13. nóvember í Sóknarsalnum, Skipholti 50a, kl. 14-18. Upplýsingar hjá Birgi, s. 44459, Finni, s. 30773, og Ólöfu, s. 51446. Námskeið um hjónabandið Laugardaginn 5. nóvember verður haldið stutt námskeið um málefni hjónabands- ins. Námskeiðiö fer fram í Safnaðar- heimili Laugameskirkju og stendur frá kl. 13 til kl. 19. Leiðbeinendur verða sr. Þorvaldur Karl Helgason, sr. Birgir Ás- geirsson og sr. Jón D. Hijóbjartsson. Námskeiðið er haldið í samvinnu við Reykjavikurprófastsdæmi og er ætlað fólki sem er í sambúð, hjónabandi eða er að undirbúa hjúskap og vill auðga samskipti sín á milli, styrkja sambandið og efla sjálfsvitund sína og stöðu gagn- vart maka sínum. Upplýsingar og skrá- setning fer fram í Safnaðarheimili Laug- ameskirkju dagana 1.-4. nóvember milli kl. 15 og 17, sími 34516. Ennfremur má tala við einhvem leiðbeinandann. Hjálpum 300.000 heimilis- lausum í Nicaragua Eins og kimnugt er af fréttum olli fellibyl- urinn Jóhanna gifurlegu tjóni í Nic- aragua. Um þrjú hundruð þúsund manns misstu heimili sín og atvinnulíf og sam- göngur í landinu urðu fyrir miklu áfalli. Akall hefur borist frá sendiráði Nic- aragua í Stokkhólmi um að efna til fjár- söfnunar og samtök og einstaklingar em hvattir til að leggja sitt af mörkum. Mið- Amerikunefndin hefur ákveðið að gang- ast fyrir slíkri söfnun líkt og ýmis stuðn- ingssamtök víöa um heim. Þeir sem vilja styðja Nicaragua við þessar erfiðu að- stæður, geta lagt fé inn á sparisjóðsbók nr. 801657 í Alþýðubankanum, Laugavegi 31. Einnig er hægt að greiða meö C-gíró í öllum bönkum og póstútibúum. Nánari upplýsingar um stuðningsstarflð em veittar hjá Mið-Ameríkunefndinni, Mjölnisholti 14, alla virka daga kl. 17-19, simi 17966. Skátafélagið Segl vígir nýttfélagsheimili Laugardaginn 5. nóvember fer fram vígsla á nýju félagsheimili aö Tindaseli 3 í Seljahverfi í ReyKjavík. Athöfnin hefst kl. 14. Opið hús verður eftir vigsluna. Kvöldvaka verður í Öldutúnsskóla og hefst hún kl. 20. Allir skátar og velunnar- ar velkomnir. Fundir Suður-Afríkusamtökin gegn apartheid, sem stofnuð vora í júni sL, halda sinn fyrsta aðalfund laugardaginn 5. nóv. kl. 14 að Suðurlandsbraut 30, 2. hæð. Meðal þess sem liggur fyrir aðalfundinum til afgreiðslu er frumvarp til nýrra laga fyr- ir samtökin þar sem kveðið er á um kosn- ingu stjómar. Auk venjulegra aðalfund- arstarfa mun svo Sigþrúður Gunnars- dóttir segja frá starfi með baráttusamtök- um gegn apartheid í London og söng- hópur samtakanna syngur baráttu- söngva blökkumanna í Suður-Afríku á frummálinu. I. fundur í Áfram Forum verður haldinn í Öldugötusal Hallveigar- staða, Túngötu 14, laugardaginn 5. nóv- ember, kl. 11 f.h. Sigríður Vilhjálmsdóttir þjóðfélagsfræðingur kynnir bókina Kon- ur og karlar á Norðurlöndunum. Að fundinum standa: Bandalag kvenna í Reykjavík, Kvenfélagasamband íslands og Kvenréttindafélag íslands. Kvenfélag Laugarnessóknar heldur fund í safnaðarheimilinu mánu- daginn 7. nóvember kl. 20. Gestir á fund- inum verða konur úr stjórn Bandalags kvenna í Reykjavík. Ennfremur kemur Ömmukórinn úr Kópavogi og skemmtir. Kaföveitingar. Mætum vel. Ráðstefnur Félag sérkennslufræðinga efnir til ráðstefnu í samvinnú viö menntamálaráðuneytið 4. og 5. nóvember í Holiday Inn. Yfirskrift ráðstefnunnar er: Sérkennslan í nútíð og framtíð. í 15 framsöguerindum verðurfjaliaö um mál- efni bama með sérkennsluþarfir, al- menna kennslu - sérkennslu og skóla- þróun hér á landi. Ráðstefnan er öllum opin er áhuga hafa á skólamálum. Ráð- stefnugjald er kr. 2.500. Kaffi báða dagana og hádegisverður seinni daginn er inni- falið. t Hugheilar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andiát og útför ástkærs sonar okkar, bróður, barnabarns og mágs, Aðalsteins Hanssonar, Hamarsgötu 12, Fáskrúösfirði, sem lést 30. sept. KNATTSPYRNUFÉLAGIÐ ÞROTTUR HAUSTFAGNAÐUR Haustfagnaður félagsins verður haldinn í félags- heimilinu laugardaginn 5. nóvember nk. Húsið opn- að kl. 21.30. Félagar, fjölmennið. Nefndin Leiðrétting frá Sólveigu Pétursdóttur í kjallaragrein minni í blaðinu í gær, „Sögur af stjómmálamönnum", féll brott hjá mér innskotssetning sem ég vildi mega koma á framfæri sem leiðréttingu. í miðju kaflans, undir millifyrir- sögninni „Fjármálaráðherrann" á því að standa eftirfarandi: Nú vita allir sem vilja vita að þessi vangoldni söluskattur er að langmestu leyti til kominn vegna áætlana skattheimtu- aðila á fyrirtæki og einstakhnga sem ekki hafa skilað söluskattskýrslum, vegna þess að engin starfsemi hefur farið fram hjá þeim, og þeim ber því engan söluskatt að greiða. Það kæmi ekki á óvart þó að meira en helmingurinn af þessari „svoköll- uðu“ skuld fyrirtækjanna væri þannig til kominn og innheimtist því aldrei. Svona málflutningur hlýtur alltaf að verða léttvægur fundinn og er sýnilega til að villa um fyrir fólki. Jólagjafahandbók OV VERSLANIR Hin sívinsæla og myndarlega jólagjafahandbók kemur út 8. desember nk. Þeir auglýsendur sem áhuga hafa á að auglýsa í Jólagjafahandbókinni vinsamlegast hafí sambandi við auglýsingadeild DV. Þverholti 11 eða í síma 27022 kl. 9-17 virka daga sem fyrst. í síðasta lagi föstudaginn 25. nóv. nk. Villandi saman- burður DV á notkun fjölmiðla Súlurit sem DV birti laugardaginn 29. október, þar sem notkun dagblaða er borin saman við notkun útvarps og sjónvarps, er afar villandi. Þar eru fuflkomlega ósambærilegir hlutir bornir saman. Annars vegar er sýndur lestur dag- blaða, sem tekur á milli 15 og 45 mín- útur hjá hverjum lesanda, og hins vegar hlustun og horfun á útvarp og sjónvarp á aðeins einum hálftíma. Staðreyndin er sú að útvarpsstöðv- ar eru í gangi allan sólarhringinn, og sjónvarpsstöðvar meirihluta sól- arhringsins. Því er vægast sagt ósanngjamt að bera þessa fjölmiðla saman á þann máta sem DV gerir. Réttast væri að bera saman notkun ljósvakamiðla og dagblaða miðað við heildameyslu þeirra. Þá væri öll horfun eða hlustun ljósvakamiðla borin saman við lestur dagblaða. í súluriti DV er ekki einu sinni miðaö við þann fjölda sem stillir ein- hvern tíma dagsins á ljósvakamiðl- ana, eins og hann kemur fram á blað- síðu 3 í fjölmiðlakönnun Félagsvís- indastofnunar Háskólans í október. Sá fjöldi er talsvert meiri en DV sýn- ir í súluritinu. DV getur aðeins um mestu notkun á hverri stöð á einum hálftíma. Lágmarkskröfu verður að gera um að í súluriti DV sé getið heildarfjölda þeirra sem stilla einhvern tíma dags- ins á hveija stöð. En eins og fyrr sagði þá eru út- varpshlustun og sjónvarpshorfun ekki sambærilegar við dagblaðalest- ur. Mun minni tíma er varið að jafn- aði við lestur dagblaða en við út- varps- og sjónvarpstækin. Mjög margir hlusta til dæmis allan daginn á útvarpið í vinnunni og fólk situr tímunum saman fyrir framan sjón- varpstækin. Ríkisútvarpið Stöö 2 Bylgjan Sfjaman Samband íslenskra auglýsingastofa

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.