Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.1988, Qupperneq 26
26
ÞRIÐJUDAGUR 8. NÓVEMBER 1988.
Jarðarfarir
Guðlaug Sigmundsdóttir frá Gunn-
hildargerði lést 26. október. Hún var
fædd 19. apríl 1895, dóttir hjónanna
Guðrúnar Sigfúsdóttur og Sigmund-
ar Jónssonar. Hún giftist Pétri Sig-
urðssyni, en hann lést árið 1955. Þau
hjónin eignuðust átta böm. Útför
Guðlaugar verður gerð frá Fossvogs-
kirkju í dag kl. 13.30.
Þorbjörg Gunnlaugsdóttir, Hraunbæ
22, Reykjavík, verður jarðsungin frá
Árbæjarkirkju fimmtudaginn 10.
nóvember kl. 13.30.
Útför Ragnhildar Steinunnar Mar-
íusdóttur, Heiðarhvammi 1, Kefla-
vík, verður gerð frá Keflavíkurkirkju
miövikudaginn 9. nóvember kl. 14.
Arthur Emil Aanes vélstjóri, Efsta-
sundi 12, veröur jarðsunginn föstu-
daginn ll. nóvember ki. 13.30 frá
Fossvogskirkju.
Magnús Loftsson bifreiðastjóri,
Hamraborg 32, Kópavogi, verður
jarðsunginn frá. Kópavogskirkju
miðvikudaginn 9. nóvember og hefst
athöfnin kl. 13.30.
Andlát
Eyjólfur Einar Eyfells Þórsson bif-
vélavirki, Laugamesvegi 83, Reykja-
vík, lést á Landakotsspítala 4. nóv-
ember.
Yalgerður Hjördís Sigurðardóttir,
Álftahólum 2, andaðist á Landspítal-
anum að morgni sunnudagsins 6.
nóvember.
Sigurður Ámundason frá Þverholt-
um, Þórólfsgötu 7a, er látinn.
Bjarni Markússon, matsveinn frá
Rofabæ, Meðallandi, Laugamesvegi
76, lést á Landspítalanum 5. nóvemb-
er.
Fundir
Kvenfélag Kópavogs
« heldur félagsfund funmtudaginn 10. nóv.
nk. kl. 20.30 í félagsheimilinu. Gestur
fundarins verður frú Guðrún Waage með
kynningu og sölusýningu frá versluninni
Silkiblómiö.
JC Kópavogur
3. félagsfundur JC Kópavogs verður hald-
inn í dag þriðjudaginn 8. nóvember kl.
20.30 að Hamraborg 1, 3. hæð. Gestur
fundarins verður Jóna Ingibjörg Jóns-
dóttii' frá Kynfræðslustöðinni. Fundur-
inn er öllum opin. Félagsmenn eru hvatt-
ir til að mæta og taka með sér gesti.
Opinn fundur hjá
ITC Melkorku
verður haldinn þann 9. nóvember kl. 20
í menningarmiðstöðinni Gerðubergi,
Breiöholti. Fundarstef: Maður lifir á
meðan maður lærir. Gestir velkomnir.
Upplýsingasími 46751.
Kvenfélag Fríkirkjunnar
í Reykjavík
heldur basar og hlutaveltu nk. laugardag
að Laufásvegi 13, Betaníu. Velunnarar
félagsins eru beðnir að koma munum
þangað nk. fimmtudag og fóstudag eftir
kl. 17.
Ti3kyiuiingar
Aðstoðarmaður Stein-
gríms ráðinn
Jón Sveinsson lögfræðingur hefur verið
ráðinn aðstoðarmaður Steingríms Her-
mannssonar forsætisráðherra. Jón
Sveinsson er fæddur 7. júli 1950, lauk lög-
fræðiprófi frá Háskóla Islands 1976, starf-
aði síðan sem dómarafulltrúi við emb-
ætti bæjarfógetans á Akranesi til 1980 en
hefur eftir það rekið þar lögfræðiskrif-
stofu. Jón varð héraösdómslögmaður
1979. Hann hefur átt sæti í bæjarstjórn
og bæjarráði Akraness, auk ýmissa
nefnda og stjóma á vegum kaupstaðar-
ins. Þá hefur Jón gegnt ýmsum trúnaðar-
störfum fyrir Framsóknarflokkinn, átt
sæti í framkvæmdastjórn og miðstjórn
og varaþingmaður flokksins í Vestur-
landskjördæmi var hann á árunum
1979-1987. Eiginkona Jóns er Guðrún
Magnúsdóttir kennari og eiga þau tjögur
böm.
Álfaborg eykur við
starfsemi sína
Nú í haust jók Álfaborg hf. við starfsemi
sína er það keypti húsgagnaverslun Ný-
borgar hf. sem var í sama húsnæði 1
Skútuvogi 4. Álfaborg hf. hóf rekstur sinn
1986 er það keypti byggingavörudeild
Nýborgar hf. og er það því 2 ára um þess-
ar mundir. Fram til þessa hefur fyrirtæk-
ið aðallega verslað með ákveðnar bygg-
ingarvörur. Nýlega byrjaði Álfaborg hf.
að selja hreinlætistæki og býöur nú upp
á gott úrval vandaðra tækja. Hefur nú
einnig verið lagt talsvert í breytingar í
sýningarsal verslunarinnar og er þar
margt sem gæti eflaust glatt augað. Munu
báðar verslanimar verða áfram á sama
stað í Skútuvogi 4.
Hallgrímskirkja-
starf aldraðra
Á morgun, miðvikudag, verður opið hús
í safnaðarsal kirkjunnar og hefst kl. 14.30.
Dagskrá: Vestur-íslensku prestshjónin
sr. Erik og Svava Sigmar munu segja frá
og syngja.
Fóstsnyrting og hágreiðsla em hvem
þriðjudag og fóstudag.
Skafmiðar fylgja Vikunni
í tilefni 50 ára afmælis
Vikan fagnar 50 ára afmæli sínu í nóv-
ember. Fyrsta tölublaðið kom út 17. nóv-
ember 1938. Vikan hefur átt miklum vin-
sældum að fagna frá upphafi og í síöustu
lesendakönnun, sem framkvæmd var af
Félagsvísindastofhun fyrir auglýsendur,
reyndust 54% aðspurðra lesa blaðið og
kom það næst á eftir Húsum & hibýlum
að vinsældum. Nýútkomið tölublaö Vik-
unnar er að verulegum hiuta tileinkað
hálfrar aldar afmælinu, sem og næsta
töiublað. f tilefhi af afmælinu dreifir Vik-
an gjöfum til lesenda sinna. Eitt þúsund
lesendur fá gjafir sem em samanlagt að
verðmæti ein og hálf milljón króna. Er
gjöfunum útdeilt með skafhtiðum sem
fylgja fjómm tölublöðum. Enginn getur
þó leyst út afmælisgjöfina án þess að geta
sagt til um felustað Arkarinnar hans Nóa
sem nú leynist í vikunni á nýjan leik.
Tapað fundið
Brúnt seðlaveski tapaðist
Gamalt brúnt seðlaveski tapaðist sl.
fimmtudagsmorgim, líklega á leið frá
Hveragerði til Reykjavíkur. í veskinu
vom skilríki og peningar. Skilvís
fmnandi vinsamlegast skili því til lög-
reglunnar. Fundarlaun.
Tónleikar
Háskólatónleikar
Anders Josephsson baríton og Anna
Guðný Guömundsdóttir píanóleikari
koma fram á þriðju háskólatónleikum
haustmisseris sem haldnir verða í Nor-
ræna húsinu miðvikudaginn 9. nóvember
kl. 12.30. Á efnisskránni verða „Dýrabók-
in eða fylgdarlið Orfeifs" eftir Poulenc
og „Úr vísum Eiríks konungs" eftir Ture
Rangström.
VEISTU . ..
að aftursætið
ferjaftihratt
og framsætið.
SPENNUM BELTIN
hvar sem vlð sitjum
íbílnum/
yujráwn W
SMÁAUGLÝSINGAR
Menning
Þar sem allt ger-
ist á dúknum
Um sýningu
Það fylgir þvi undarleg tilfmning
aö ganga inn í Hótel Holiday Inn,
þar sem marmari og harðviður tjá
velsæld og óráðsíu hins nýja Is-
lands, til að berja augum verk eftir
helsta myndskáld íslensku kreppu-
áranna, Snorra Arinbjarnar.
Víst er að annað umhverfl hefði
hæft betur þessum hógværa lista-
manni sem tjáði sig öllum öðrum
betur um „fegurð hins fábrotnasta
á daglegri vegferð okkar, um sann-
gildi þeirra hluta sem eru oft hvað
léttvægastir fundnir á vogaskál
gullsins", svo notuð séu orð Bjöms
Th. Bjömssonar.
En meðan verk Snorra em ekki
að staðaldri aðgengileg annars
staðar tekur maður sérhverri sýn-
ingu á verkum hans með þökkum,
þó svo hún hangi uppi á nærbuxna-
litum veggjum niðri í kjallara á
Hótel Holiday Inn.
Sundurleit
Á sýningunni em alls 64 verk,
málverk, vatnslitamyndir, túss- og
blýantsteikningar úr safni föður-
bróður hans, Harðar Arinbjarnar.
Spanna þau tímabilið frá 1920, áður
en Snorri hélt utan til náms, til
1950, en sem kunnugt er lést lista-
maðurinn árið 1958.
Þetta er aö vísu allsundurleit sýn-
ing og eru sum verkin á mörkum
þess aö vera sýningarhæf. Hér á
ég til að mynda við afstrakt-stemm-
ur Snorra sem ganga engan veginn
upp hvemig sem á þær er litið. Þó
hafa þær auðvitaö sögulegt gildi.
En inn á milli em nokkrar perlur
sem sérhvert íslenskt safn gæti
verið fullsæmt af. Vil ég sérstak-
lega benda á þijár sjálfsmyndir frá
á verkum Snorra
Snorri Arinbjarnar - sjálfsmynd.
c. 1928, þegar þeir Snorri og Þor-
valdur Skúlason höföu bundist vin-
áttuböndum og eggjuðu hvor ann-
an til dáða, og vatnslitamyndir frá
fyrstu árum listamannsins í Osló,
Myndlist
Aðalsteinn Ingólfsson
c. 1929-30, gerðar í hlýjum, jarð-
bundnum litum.
Það orð fór ævinlega af Snorra
að hann ætti í vandræðum með „að
fylgja línu“, svo notuð séu orð hans
Arinbjamar
sjálfs, það er að undirbyggja mál-
verk sín og vantslitaverk traustri
teikningu.
Frjálslega og án ábyrgðar
Vissulega bera nokkur verk á
þessari sýningu þess merki. En
Snorra tókst hins vegar að snúa
þeirri ávöntun sér í hag með því
að teikna og byggja upp myndir
sínar með litnum einum. Þannig
fer að áhorfandinn horfir fram hjá
eilítið stirðlegri samsetningu
margra mynda hans og lætur hríf-
ast af vörmum, þunglyndislegum
htblæ þeirra.
Þetta á við um nokkrar vatnslita-
myndir af innanstokksmunum sem
hér er að fmna (t.d. nr. 12 & 14).
En þegar Snorri taldi sér ekki
skylt að „fylgja línu“, heldur skiss-
aði frjálslega og án ábyrgðar, þá
kviknaöi heldur betur líf í dráttlist
hans. Þetta sést ekki síst í léttum
skopteikningum frá Kaupmanna-
höfn (nr. 17, 19 & 34) sem fanga
andstæöurnar í dönsku þjóðlífi í
þann mund sem kreppan reið yfir
af fúllum þunga.
Þessi litla sýniiig gefur tæplega
tilefni til vandlegrar úttektar á
myndlist Snorra Arinbjarnar. En
hún minnir hins vegar á að tíma-
bært er orðið aö gera slíka úttekt
á verkum hans, annað tveggja í
formi bókar eða veglegrar yfirlits-
sýningar. Það mætti gera árið 1991,
á 90 ára afmæli listamannsins.
Þangað til verðum við að láta
okkur nægja þesssa litlu sýningu í
Hótel Holiday Inn en henni lýkur
þann 13 nóv. nk.
-AI
Septemberfólk í haustferð
- um sýningu Septem á Kjarvalsstöðum
Fyrir rúmum fjörutíu árum ollu
svonefndar Septembersýningar tals-
veröu uppþoti hér í bæ. Þarna kom
fram breiður og samhentur hópur
Ustamanna undir merkjum frjálsrar
abstraktlistar en Svavar Guðnason
var þá búinn að undirbúa jarðveginn
meö sýningu sem hann hélt tveimur
árum áður. Eftir að danskir Cobra-
málarar sýndu hér áriö 1948 varö
ekki aftur snúið. Það var enginn
maður með mönnum nema hann
væri að hálfu óhlutbundinn og að
hálfu frumstæður. Valtýr Pétursson
var einn af frumkvöðlum Septemb-
ersýninganna, þá nýkominn utan úr
hinum stóra heimi með allar nýjustu
hræringamar í farteskinu. Segja má
að Valtýr hafi öðrum fremur kynnt
geómetríska abstraktlist hér á landi
og þar með stuðlað að þeim straum-
hvörfum sem urðu í upphafi sjötta
áratugarins frá fijálsu abstrakti yfir
í reglubundið. Jafnvel þótt síðasta
Septembersýningin hafi verið haldin
1952 þá blómstraði geómetrían sem
aldrei fyrr næstu árin þar á eftir.
Hápunktinn má e.t.v. telja hitamálið
sem spannst í kringum val þátttak-
enda á Rómarsýninguna 1955. Með
vasklegri framgöngu og sámheldni
tryggðu geómetríumálaramir sig þá
í sessi sem gjaldgengir fulltrúar ís-
lenskrar samtímalistar. En upp úr
Myndlist
Ólafur Engilbertsson
þvi fóm menn hver í sína áttina,
þótt ýmsir, eins og t.d. Þorvaldur
Skúlason og Karl Kvaran, héldu
áfram uppi merkjum strangflatarins.
Valtýr Pétursson hófst handa við
mósaík og fór svo aö mála hlut-
bundið. Má segja að hann hafi því
endað þar sem flestir formbyltingar-
menn byrjuðu.
Septem-hópurinn var stofnaður
árið 1974 að tilstuðlan Valtýs. Kjami
þess hóps tók þátt í Septembersýn-
ingunum í upphafi sjötta áratugar-
ins. Nú hefur hópurinn opnað sýn-
ingu á Kjarvalsstöðum og er hún til-
einkuð minningu Valtýs Pétursson-
ar. Þeir sem þama eiga verk auk
Valtýs em þau Guðmunda Andrés-
dóttir, Kristján Davíösson, Hafsteinn
Austmann, Jóhannes Jóhannesson
og Guömundur Benediktsson.
Það verður að segjast eins og er að
septemberfólkið má muna sinn fífil
fegri. Þama er jú lofsverður vitnis-
burður um fólk sem heldur ótrautt
áfram á sinni braut hvað sem tautar,
en því miður er afraksturinn ekki
nema svipur hjá sjón hjá flestum.
Hafsteinn Austmann er þó óneitan-
lega að gera hressilega hluti. Myndir
eins og Haustferð (nr. 42), Bygging
(nr. 43) og Ljósbrot (nr. 46) era kraft-
miklar í uppbyggingu og minna á
tjargaðar skektur í brimi. Guðmund-
ur Benediktsson virðist vera farinn
aö nostra aðeins of mikið við viðinn
og bronsmyndimar eru ekki eins
margræðar hjá honum og áður. Jó-
hannes og Guðmunda em á svipuðu
róli og þau vom fyrir þrjátíu árum
og er það vel, en tæknin er ekki sú
sama. Kristján Davíðsson er ljóö- x
rænn og óformlegur sem fyrr en
stríðnin virðist næstum gufuð upp
hjá honum eins og flestum samsýn-
enda hans. Þessi sýning er e.t.v. helst
minnisstæð vegna yfirlitsins yfir fer-
il Valtýs. Það yfirlit hefði þó mátt
vera miklu ítarlegra og meira af
verkum frá fyrstu árum hans við
trönurnar sem undirrituðum sýnist
hafa verið langsamlega hugmynda-
ríkust og djörfust.
-ÓE
Bygging eftir Hafstein Austman.