Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.1988, Qupperneq 28
28
ÞRIÐJUDAGUR 8. NÓVEMBER 1988.
Sviðsljós
Kisumar eru mjög eölilegar út-
lits enda voru þær lifandi fyrir
meira en 100 árum. Maöur að
nafni Waiter Potter fékk þessa
ketti senda til sín seint á 19. öld-
inni og ákvað aö stoppa þá upp.
Það má geta þess aö þeir voru
allar dauöir þegar hann fékk þá
í hendur og að Potter elskaði dýr.
Nú eru þessi dýr til sýnis á safni
í suöurhluta London. Auk katta
eru kaninur viö skriftir, íkomar
á hækjum og margt fleira.
100 ára
gamlar
kisur
Ólyginn
sagði . . .
Madonna,
söngkonan sem telur sig líkjast
goðsögninni Marilyn Monroe,
telur sig einnig þurfa mikið pláss.
Hún og eiginmaöur hennar, Sean
Penn, létu nýlega byggja sund-
laug, sem mætti nota á ólympíu-
leikum, í garöinum hjá sér. Sund-
laugin er við hús þeirra í Malibu.
Og þau ætla ekki aö láta þar viö
sitja heldur gera sundlaug fyrir
þjónustuliöiö - í sömu stærð.
Robert Wagner
og JiU St. John em loks búin aö
ákveða að ganga upp að altarinu
efdr 6 ára sundur og saman sam-
band. Þegar hann spurði hana
hvort hún vildi giftast sér, sagöi
hún ekki bara já heldur
jájájájájájá!!! Jill og Robert hafa
, verið par í svo til öll þessi 6 ár
en dætur hans hafa hingað til
ekki samþykkt hana í móðurstað.
Nú hafa stúlkurnar hins vegar
lagt blessun sína yfir samband
þeirra. Athöfnin fer fram leyni-
lega í Aspen á St. Valentínusar-
deginum, rómantískasta degi
Ameríkananna.
Guðný Guðbjörnsdóttir, Magdalena Schram og Þórhildur Þorleifsdóttir með Ingibjörg Sólrún Gísladóttir með kaffi og með því.
hönd undir kinn enda úr mörgu að ráða.
Simon Le Bon,
rokkstjaman úr Ðuran Duran,
gerði allt vitlaust á veitingastað
í London á dögunum. Hann hall-
aði sér yfir borð þar sem írönsk
hjón sátu aö snæðingi og spurði
eiginmanninn í gamni hvort
hann gæti keypt konuna hans.
Arabinn stökk á fætur og braut
vínglasið fyrir framan tærnar á
rokkstjömunni og ætlaði að berja
hana. Svo æstur var náunginn
að það þurfti þrjá þjóna til að
leggja hann flatan og koma hon-
um út. Það borgar sig greinilega
ekki að gantast of mikið.
Kristín Halldórsdóttir hefur upp raust sína undir stjórn Finnbjargar Guð-
mundsdóttur. Bryndís Jónsdóttir og Elín Guðjónsdóttir fylgjast brosmildar
með.
Konur af Vesturlandi sáu að mestu leyti um framkvæmd landsfundarins.
Hérna eru þær Ingibjörg Daníelsdóttir, Snjólaug Guðmundsdóttir og Stein-
unn Ingólfsdóttir, allar af Vesturlandi, með siikiklúta er Kvennalistinn lét
gera í sumar.
Gleði og kraftur einkenndi þennan landsfund. Hér sést eini karlmaðurinn
á svæðinu, Arnar Páll Hauksson, og hjá honum standa Ingibjörg Daníels-
dóttir og Danfríður Skarphéðinsdóttir.
Fjöldi kvenna víðs vegar af landinu fékk tækifæri til að hvila sig á amstri
hversdagsins og skiptast á skoðunum.
Landsfundur Samtaka um
Kvennalista var haldinn að Lýsuhóli
á Snæfellsnesi um síðustu helgi. Þar
komu kvennalistakonur saman,
ræddu máhn, fóm í sund og áttu í
alla staði ánægjulega helgi. Það var
spjallað fram eftir nóttu, síðan farið
á fætur fyrir allar aldir og sumar
drifu sig jafnvel í sund í morgun-
rökkrinu. Fundahöld hófust klukkan
níu á morgnana og var lögð meginá-
hersla á árangursríka vinnu í stað
þess að eyða löngum tíma í orðalag
stjórnmálaályktana. Kvennahsta-
konur voru sammála um að þessi
fundur hefði einkennst af krafti og
gleði þegar þær komu heim til sín
úrvinda.
Öðruvísi landsfundur