Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.1988, Side 32
J
FRETTASKOTIÐ
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000 krón-
þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- ur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við
ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. Fyrir fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn - Augtýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022
w.
ÞRIÐJUDAGUR 8. NÓVEMBER 1988.
Davíð Scheving:
Réttlætið
sigraði
Sakadómur Reykjavikur hefur
■%ýknað Davíö Scheving Thorsteins-
son af ákærum saksóknara vegna
fundarlauna sem Davíð bauð þeim
sem skilaöi sér Sólcoladós númer
1.000.000. Allur sakarkostnaður fell-
ur á ríkissjóð.
Davíð var ákærður fyrir brot á lög-
um um verðlag, samkeppnishömlur
og óréttmæta viðskiptahætti. Pétur
Guðgeirsson sakadómari kvað upp
dóminn. í dóminum segir að þar sem
aðeins einum neytanda hafi verið
boðin rífleg fiárhæö í „fundarlaun"
og aö tilviljun réði hver hreppti hana
væri tæpast unnt að lita svo á að um
hafi verið að ræöa kaupbæti í al-
mennum skilningi þess orðs."
„Dósin kom aldrei fram. Viö gáfum
rítrabbameinsfélaginu þau eitt
hundrað þúsund sem heitið var í
fundarlaun. Ég er eðlilega mjög sátt-
ur því að ég átti eins von á að verða
dæmdur. Samt tel ég mig hafa verið
að gera rétt. Þó ég hefði verið dæmd-
ur til að greiða eina krónu í sekt
hefði ég áfrýjað. Réttlætið sigraði,"
sagði Davíð Scheving Thorsteinsson.
-sme
Sjóvá og Almennar
sameinast í eitt
tryggingafélag
Sjóvá hf. og Almennar trygging-
ar hf. hyggjast sameinast í eitt
tryggingafélag. Þetta verður til-
kynnt nú í vikunni, líklegast á
morgun. Vitað er að Almennar
tryggingar verða með starfs-
mannafund í dag klukkan ftmm
þar sem þetta mál ber á góma.
Forráðamenn beggja trygginga-
félaganna hafa rætt sameiningar-
málin að undanfömu. Tiigangur-
inn með sameiningunni er að ná
fram hagkvæmni í rekstrinum.
Nýja tryggingafélagið yrði stærsta
tryggingafélag á íslandi með um 30
prósent markaðarins. Það yrði þar
með stærra en helsti keppinautur-
inn, stærsta núverandi trygginga-
félagið, Samvinnutryggmgar, sem
er með 23 prósent af markaðnum.
Sjóvá er með um 18 prósent af
tryggingamarkaðnum núna en Al-
mennar tryggingar um 12 prósent.
Sjóvá skilaði tæplega 30 milljóna
króna hagnaði á síðasta ári en Al-
mennar voru reknar með um 15
milljóna króna tapi.
Gífurleg samkeppni hefur rikt á
tryggingamarkaðnum að undan-
förnu. Sjóvá og Alraennar komu
saman með Gullverndina og Sam-
vinnutryggingar F-trygginguna.
DV sagði frá því á dögunum að
Samvinnutryggingar heföu þjóf-
startað í þeirri keppni.
Um 120 manns vinna til samans
hjá Sjóvá og Almennum trygging-
um. Ljóst er að sameiningin gengur
út á að standast alla samkeppni
betur og ná fram hagræðingu. Það
getur þýtt að einhveijir missi
vinnu sína viö sameininguna.
-JGH
Drukknir nemar:
^lötuðu sjúkrabíl,
lækni og lögreglu
Um tuttugu drukknir nemendur,
úr Fiölbrautaskólanum í Garðabæ,
hafa veriö kærðir til bæjarfógetans í
Garöabæ. Nemendurnir voru um
helgina í drykkjuveislu í skiðaskála
á Hellisheiði. Þegar þeim þótti nóg
komið hringdu þau til slökkviliösins
í Reykjavík og tilkynntu slys.
Sjúkrabíll með lækni hélt þegar af
stað. Lögreglubíll fylgdi sjúkrabíln-
um. Mikil hálka var á heiðinni. Þegar
sjúkrabíllinn og lögreglubíllinn
komu að skíðaskálanum kom í ljós
aö enginn var veikur eða slasaður -
j^peldur vantaöi fólkið aðeins far heim
' á leið.
Hér er um ótvirætt hegningarlaga-
brot að ræöa og hefur lögreglan í
Reykjavík þegar sent kæru til Más
Péturssonar, bæjarfógeta í Hafnar-
firöi. Guðmundur Hermannsson
yfirlögregluþjónn sagði að hann
myndi ekki eftir eins aivarlegu plat-
útkalii. -sme
Bílstjórarnir
aðstoða
senDiBíLnsTöÐin
v
Þeim tjölgar jafnt og þétt smábátunum og ekki færri en 60 bætast við á þessu ári. Fjölgunin er svarið við kvóta-
kerfinu vegna þess að bátar undir 10 tonnum eru undanþegnir kvótakerfi. Margir nýir smábátar hafa bæst við í
flota Sandgerðinga og hér má sjá nokkra þeirra. DV-mynd GVA
LOKI
Þeir ætla sýnilega ekki
aðtryggja eftirá!
Veöríö á morgun:
Kaldi
suðvestan-
lands
Á morgun verður suðaustanátt,
kaldi eða stinningskaldi við suð-
vesturströndina en mun hægari í
öðrum landshlutum. Rigning eða
skúrir verða á Suðvestur- og Suð-
urlandi og sunnanverðum Aust-
fjörðum en að mestu þurrt annars
staðar. Hitinn veröur 5-8 stig.
Fordæming á ísrael:
Jón Baidvin
breytti
afstöðu
íslendinga
Það vakti mikla athygli við at-
kvæðagreiðslu á Allsheijarþingi
Sameinuðu þjóðanna síðastliðinn
fimmtudag að ísland sat hjá við at-
kvæðagreiðslu um ísrael. Var það
við atkvæðagreiösíu um tillögu sem
fordæmir ísraela vegna aðgerða
þeirra á herteknu svæðunum. 130
þjóðir studdu tillöguna, ísrael og
Bandaríkin voru á móti og 16 þjóðir
sátu hjá. Meðal annars Kanada, Bret-
land og ísland.
Að sögn Geirs Gunnarssonar al-
þingismanns sem sat þingið þá kom
afstaða íslendinga á óvart meðal
þingfulltrúa, sérstaklega vegna þess
að Islendingar breyta um afstöðu frá
því í fyrra en þá greiddu þeir at-
kvæði með tillögu sem þessari. Þá
vorum við í hópi með hinum Norður-
landaþjóðunum sem tóku aftur undir
fordæminguna nú.
Að sögn Helga Ágústssonar, skrif-
stofustjóra í utanríkisráðuneytinu,
var tekin ákvörðun um þessa at-
kvæðagreiðslu hér heima, meðal
annars af utanríkisráðherra Jóni
Baldvin Hannibalssyni. Sagði Helgi
að þarna hefði verið um að ræöa
mjög einhliða fordæmingu á ísrael
sem ekki hefði verið hægt að taka
undir.
Hjörleifur Guttormsson alþingis-
maður sagði í samtali við DV í morg-
un að þessi niðurstaða kæmi sér
mjög á óvart og hann muni krefjast
þess að umræða verði í utanríkis-
málanefnd Alþingis og að utanríkis-
ráðherra geri grein fyrir afstöðu
sinni þar. Formaður nefndarinnar,
Jóhann Einvarðsson, sagði að vissu-
lega kæmi á óvart þegar viö værum
í slíkum minnihluta á vettvangi Sam-
einuðu þjóðanna og átti hann von á
því að það yrði rætt við fyrsta tæki-
færi á fundum nefndarinnar. -SMJ
Bráðabirgðalögin:
Úr nefnd í
desember
Að sögn Eiðs Guðnasonar, for-
manns fjárhags- og viðskiptanefndar
efri deildar, þá má búast við því að
bráðabirgðalög ríkisstjórnarinnar
komi úr nefndinni í desember. Fyrsti
fundur nefndarinnar um lögin var í
morgun.
Eiður sagðist ekki hafa neina trú á
öðru en að lögin fengju afgreiðslu á
þingi. -SMJ
Kýldi trúnaðar-
manninn
Til átaka kom á milli tveggja leigu-
bílstjóra í Hafnarfirði á föstudags-
kvöld. Deilur höfðu risið milli mann-
anna en annar þeirra er trúnaðar-
maður og hafði afskipti af afleysing-
um á bil hins. Það sætti leigubílstjór-
inn sig ekki við og barði hann í and-
litið. Trúnaðarmaðurinn er með
glóðarauga.
Nú hefur trúnaðarmaðurinn kært
starfsbróður sinn til rannsóknarlög-
reglunnar í Hafnarfirði. Sá kærði
hefur ekki verið yfirheyrður enn sem
komið er. Talið er að hann hafi verið
undir áhrifum áfengis. -sme