Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.1988, Qupperneq 2

Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.1988, Qupperneq 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 15. NÓVEMBER 1988. Fréttir __ Akæra sérskipaðs ríkissaksóknara í Hafskipsmálinu: Fjárdráttur, skjalafals og brot í opinberu starfi Ákæra Jónatans Þórmundssonar, sérskipaös ríkissaksóknara í Haf- skipsmálinu, er í 10 köflum og í höf- uöatriöum svipuð og sú ákæra sem Hallvarður Einvarösson ríkissak- sóknari haföi geflð út. Ákærurnar á Hafskipsmenn fjalla í stórum dráttum um skjalafals. rangfærslu skjala, fjárdrætti og skilasvik. Eru Björgólfur Guðmundsson, Ragnar Kjartansson og Páll Bragi Kristjónsson ákæröir fyrir íjárdrátt af sérstökum tékkareikningi og Helgi Magnússon endurskoöandi um aö hafa hylmað yfir þennan fjárdrátt. Þessir flórir eru og ákærðir fyrir að hafa staðið aö rangfærslu reikn- ingsskila yfir rekstur og efnahag Hafskips hf. og dótturfélaga þess fyrstu átta mánuði ársins 1984. Björgólfi, Ragnari og Páli er gefið aö sök að hafa veitt bankastjórn út- vegsbankans villandi upplýsingar um liklega rekstrarafkomu Hafskips á árunum 1984 og 1985. Ragnari, Björgólfi og Helga er gefið að sök að hafa staðið í sameiningu að því að útbúa efnislega röng bók- haldsgögn til að villa um fyrir stjórn félagsins og bankastjórn Útvegs- bankans til að tryggja félaginu áframhaldandi lánstraust. Þá er Sig- urþóri Guðmundssyni og Þórði Hilmarssyni gefið að sök að hafa lát- ið löggiltum endurskoðanda Haf- skips í té tilbúin skjöl um uppsafnað- ar tekjur við samningu á ársreikn- ingi fyrir 1984. Þá er Páli Braga gefið að sök að hafa notað falsaða reikninga til gjald- færslu í bókhaldi Hafskips. Árna Árnasyni og Ragnari Kjart- anssyni eru gefin skilasvik að sök þar sem þeir hafi greitt vikulega í rúma þrjá mánuði 20 þúsund krónur inn á viðskiptareikning Hafskips hjá Reykvískri endurtryggingu hf. og þannig dregið taum eins lánardrott- ins öðrum til tjóns þegar þeim átti ekki aða hafa dulist aö stefndi í gjald- þrot Hafskips. Bankastjórar og bankaráðsmenn Útvegsbankans eru ákærðir fyrir brot í opinberu starfi þar sem banka- stjórar eiga að hafa óhlýðnast fyrir- mælum bankaráðs og bankaráðs- menn að hafa sýnt vanrækslu við yfirstjórn bankans, við eftirht með starfsemi hans og látið hjá líða að fylgjast með skuldbindingum og tryggingum vegna viðskipta bankans við Hafskip hf. Þá er Inga R. Jóhannssyni, endur- skoðanda Útvegsbankans, gefið að sök að hafa brugðist eftirlitsskyldu sinni vegna viðskipta bankans við Hafskip hf. að því er varðar trygging- ar vegna skuldbindinga bankans gagnvart félaginu og að hafa ekki komið á framfæri aðfinnslum og ábendingum um misfellur sem hon- um á að hafa verið kunnugt um á þessum viðskiptum frá og með árinu 1981. Er þess krafist að allir ákærðu verði dæmdir til refsingar og greiðslu sakarkostnaðar og að Helgi Magnússon verði auk þess sviptur réttindum löggilts endurskoðanda. -hlh Jónatan Þórmundsson, sérskipaður rikissaksóknari í Hafskipsmálinu, litur á málsskjöl ásamt aðstoðarmanni sín- um, Tryggva Gunnarssyni lögmanni. Var rannsókn málsins endurunnin að miklum hluta til, sem var mikil vinna, en Jónatan hafði á orði við upphaf hennar að málsskjölin væru líklega um þrjú tonn að þyngd. DV-mynd GVA Samsæriskerming um DV og Flugleiðir: Frétt DV er rétt - segir stjómaiformaður Skotferða „Frétt DV um Skotferðir er rétt. Sigurður Eiríksson sem ræddi viö Stöð 2 í gær talar ekki á vegum Skotferða. Hann var ekki hluthafi í fyrirtækinu og ekki ráöinn fram- kvæmdastjóri þess. Hann var starfsmaður Skotferða en var ekki lengur á vegum þeirra þar sem ákveðið var síðastliðinn miðviku- dag aö hætta við allt saman, enda voru ekki skilyrði til að hefla þess- ar ferðir að sinni, meðal annars vegna ónógrar þátttöku," sagði sflórnarformaður Skotferða við DV í morgun. Stöð 2 birti í gærkvöldi langt við- tal viö Sigurð nokkum Eiríksson sem fláði stöðinni aö hann væri eini forsvarsmaður Skotferða og að DV og Flugleiðir bæru sök á því að aðeins flórir farþegar hefðu far- ið út með vél British Midland til Skotlands á sunnudaginn. Að sögn sflómarformanns Skot- ferða viröist sem Sigurður Eiríkis- son hafi haldið áfram með málið upp á eigin spýtur. „Eftir að hætt var viö ferðimar síðastliöinn mið- vikudag höfðu Skotferðir starfs- menn áfram á skrifstofúnni til að svara fyrirspumunum og tilkynna að hætt væri við ferðirnar og jafn- framt til að hringja í þá sem höfðu pantað og greina þeim frá gangi mála. Sigurður Eiríksson var því ekki á vegum Skotferða eftir mið- vikudaginn, hvað þá að hann tali í nafni þeirra." Ferðir Skotferða gengu ætíð und- ir heitinu Glasgow-ferðir, en Sig- urður sagði á Stöð 2 að það væri rugl, þetta væru Edinborgarferðir. í auglýsingum Skotferða má hins vegar glöggt sjá að fljúga átti til Edinborgar og síðan stóð til að aka farþegum í rútu til Glasgow þar sem gista átti á Holiday Inn hóteli í sjö nætur. Einnig var boðið upp á gistingu í Edinborg. -JGH Alþýðubandalagið: Formleg mótmæli vegna álmálsins ■ Þingflokkur Alþýðubandalagsins samþykkti í gær mótmæli vegna skipunar Jóns Sigurðssonar, iðnað- ar- og viðskiptaráðherra, í nefnd til að undirbúa samninga við þau flögur erlendu fyrirtæki sem nú gera hag- kvæmnisathugun á nýbyggingu ál- vers í Straumsvík. DV skýrði frá þessari nefndarskip- un á föstudag og hörðum viðbrögð- um ráðherra Alþýðubandalagsins á ríkisstjómarfundi á fimmtudag þeg- ar Jón Sigurðsson kynnti þessa máls- meðferð. Á ríkissflórnarfundi í morgun bar Svavar Gestsson menntamálaráðherra Jóni síðan mótmæli þingflokksins en hann telur þessa nefndarskipun bijóta í bága við ákvæði stjómarsáttmálans um álmálið. Ólafur Ragnar Grímsson, fiármála- ráðherra og formaöur Alþýðubanda- lagsins, sat ekki fund þingflokksins né heldur Steingrimur J. Sigfússon landbúnaðarráðherra og Guðrún Helgadóttir, forseti sameinaðs þings. -gse Eftirlit bankaráða: Spurning hvers hægt er að ætlast til fyrir þessa þóknun - segir Stefán Valgeirsson „Þessi ákæra á hendur bankaráð- inu kemur mér á óvart vegna þess mér finnst að lögin sem þá giltu feh ekki í sér að ætlast sé til svo mikils eftirlits frá bankaráðunum," sagði Stefán Valgeirsson, alþingismaður og formaður bankaráðs Búnaðar- bankans. „Það er ákaflega flókið mál að fylgj- ast með útlániun bankanna. Eins og þóknun bankaráðsmanna var á þess- um tíma sé ég ekki að hægt hafi ver- ið að ætlast til þess að menn legðu afskaplega mikla vinnu í eftirlit nema ef til vill í gegnum endurskoð- endur. Þetta hefur breyst að því leyti til að nýju lögin kveða á um að bankaráðin eigi að fylgjast meira með og þóknun almennra banka- ráðsmanna hefur verið hækkuð úr 8 prósentum í 12 prósent af launum bankasflóra. Formaður bankaráðs fær helmingi meira. Þóknun nú er því þannig að hægt er að ætlast til meira eftirlits." - Eruð þið í bankaráði Búnaöar- bankans þess fullvissir að þið getið fylgst með útlánum bankans? „Nei. Það erum við ekkert fullviss- ir um. En við reynum það. Við fáum yfirlit yfir alla stærstu skuldara. Við spyrjumst fyrir ef við teljum eitthvaö geta verið athugavert. En það er kannski svo að meira sé spurt og meira fylgst með eftir að þetta kom upp í Utvegsbankanum. En svo er það spurning um þóknunina og hvers hægt er að ætlast til,“ sagði StefánValgeirsson. -gSe Full ástæða til að rannsaka lekann „Þaö er enginn sekur fyrr en búið er að dæma hann,“ sagði Kristinn Finnbogason, framkvæmdastjóri Tímans og varaformaður bankaráðs Landsbankans, aðspurður um álit hans á ákærum á hendur fyrrver- andi bankaráðsmönnum Útvegs- bankans i tengslum við gjaldþrot Hafskips. „Mér finnst dálítið einkennilegt að menn skuli sjá ákærur á sig í sjón- varpi. Ég er furðu lostinn yfir því að forsetar í Alþingi eða einhverjir aðr- ir skuli leka þessu út. Þetta á að vera algjört trúnaðarmál. Ég held að það sé full ástæða til þess að rannsaka þann leka því að þetta er bæði óæski- legt og óviðunandi." - Fylgist bankaráð Landsbankans betur með útlánum bankans en ætla má að bankaráð Útvegsbankans hafi gert? „Ég held að það sé mismunandi í einstökum bönkum hvað máhn eru tekin mikið inn á fundi bankaráð- anna. En Hafskipsmáhð hefur leitt til þess að bankaráðin eru farin að fylgjast meira með stærri skuldur- um. Ég held að þetta mál hafi verið að því leyti gott og það er í sjálfu sér ágætt að fá úr því skorið hver ábyrgð bankaráðsmanna er,“ sagði Kristinn Finnbogason. -gse Ami Amason: Ekki erfitt að snúa ofan af þessu „Eg reikna ekki með að það verði erfitt að snúa ofan af þessu. Þetta er aöeins einn lítill punktur í ákær- unni, um skilasvik. Ég tel að þetta- hljóti að vera misskilningur sem ætti að vera hægt aö leiðrétta," sagði Ámi Árnason, fyrrverandi deildar- stjóri flárreiðudeildar Hafskips, við DV í morgun en hann er einn hinn þriggja Hafskipsmanna sem ekki voru ákærðir áður. Sagði Árni aö sér heföi komið mjög á óvart að vera ákærður. -hlh Þrír dómarar í Hafskipsmálnu: Málið þingfest í desember „Það verða þrír dómarar í máhnu, Haraldur Henrýsson, sem verður dómsformaður, Pétur Guðgeirsson og Amgrímur ísberg,“ sagði Gunn- laugur Briem, yfirsakadómari í Reykjavík, við DV í morgun. Sagði Gunnlaugm- að Haraldur Henrýsson hefði leyfi frá störfum í sakadómi til 1. desember þar sem hann er nú varadómari í Hæstarétti. Mun Hafskipsmáhð bíöa á borðinu hjá honum þangað til og því ljóst að það verður ekki þingfest fyrr en í desember. -hlh

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.