Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.1988, Síða 8
8
ÞRIÐJUDAGUR 15. NÓVEMBER 1988.
Viðskipti_________________________________________________________________________dv
Saltfiskvinnsla um borð:
Ekki lakari afkoma en
hjá frystitogurunum
„Þetta er svona eins og ljós í
myrkri sjávarútvegsmálanna um
þessar mundir. Þessi saltíiskverkun
um borö er þaö eina sem við höfum
ekki tapað peningum á síðastliðin 2
ár. Ég hygg að afkoman sé ekki lak-
ari en hjá frystitogurunum," sagði
Tómas Þorvaldsson, útgeröarmaður
í Grindavík, en hann hefur látið
verka saltfisk um borð í togaranum
Gnúpi GK í sumar eða þar til þorskk-
Peningamarkaður
INNLÁNSVEXTIR (%) hæst
Innlán óverðtryggð
Sparisjóösbækurób. 5-7 Bb
Sparireikningar
3ja mán uppsogn 5-8 Sb.Sp
6 mán. uppsogn 5-9 Vb.Sb,- Sp
12 mán. uppsogn 6-10 Ab
18mán. uppsogn 15 Ib
Tékkareikningar, alm. 1-2 Vb.Sb,- Ab
Sértékkareikningar 5-7 Ab.Bb,- Vb
Innlan verötryggö Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 1.5-2 Bb.Vb,- Sp
6 mán. uppsögn 2-3,75 Vb.Sp
Innlán meðsérkjörum 5-12 Lb.Bb.- Sb
Innlán gengistryggð
Bandaríkjadalir 7,25-8 Vb
Sterlingspund 10.50- 11,25 Vb
Vestur-þýskmörk 4-4.25 Ab.V- b.S- b.Úb
Danskar krónur 7-8 Vb.Sb
ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst
Útlán óverðtryggð
Almennirvíxlar(forv.) 15,5-18 Sp
Viöskiptavíxlar(forv-) (1) kaupgengi
Almenn skulaabréf 16,5-21 Vb
Viöskiptaskuldabréf(1) kaupgengi Allir
Hlaupareikningar(vfirdr.) 19-22 Lb.Úb
Utlan verötryggö
. Skuldabréf 8-8,75 Vb
Útlán til framleiðslu
isl. krónur 17-20 Lb.Bb
SDR 9-9,75 Lb.Úb,- Sp
Bandarikjadalir 10,25 Allir
Sterlingspund 13,50- 14^50 Lb.Úb
Vestur-þýskmörk 6,75-7,25 Allir nema Vb
Húsnæðislán 3,5
Lífeyrissjóðslán 5-9
Dráttarvextir 27,6 2,3 á mán.
MEÐALVEXTIR
Óverðtr. nóv. 88 20,5
Verötr. nóv. 88 8,7
VÍSITÖLUR
Lánskjaravísitala nóv. 2272 stig
Byggingavísitala nóv. 399,2 stig
Byggingavísitalanóv. 124,8stig
Húsaleiguvisitala Engin hækkun 1. okt. Verðstoðvun
VERÐBRÉFASJÓÐIR
Gengi bréfa veröbréfasjóöa
Einingabréf 1 3,364
Einingabréf 2 1,915
Einingabréf 3 2,181
Fjölþjóðabréf 1,268
Gengisbréf 1,565
Kjarabréf 3,359
Lífeyrisbréf 1.691
Markbréf 1,775
Skyndibréf 1,030
Sjóðsbréf 1 1,618
Sjóðsbréf 2 1,405
Sjóðsbréf 3 1,154
Tekjubréf 1,565
HLUTABRÉF
Söluverð að lokinni jofnun m.v. 100 nafnv.:
Almennar tryggingar 118 kr.
Eimskip 346 kr.
Flugleiðir 273 kr.
Hampiðjan 130 kr.
Iðnaðarbankinn 172 kr.
Skagstrendingur hf. 160 kr.
Verslunarbankinn 134 kr.
Tollvörugeymslan hf. 100 kr.
(1) Við kaup á viðskiptavíxlum og við-
skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja
aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi,
kge. Búnaðarbanki og Samvinnubanki
kaupa viðskiptavíxla gegn 31% ársvöxt-
um og nokkrir sparisj. 30,5%.
Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn,
Bb= Búnaðarbankinn, lb = lðnaðar-
bankinn, Lb = Landsbankinn, Sb =
Samvinnubankinn, Úb= Útvegsbankinn,
Vb = Verslunarbankinn, Sp = Sparisjóð-
irnir.
Nánari upplýsingar um peningamarkað-
inn birtast i DV á fimmtudögum.
segir Tómas Þorvaldsson, útgerðarmaður í Grindavlk
vótann þraut á dögunum.
Forsögu þessa máls sagði Tómas
vera þá að í fyrrasumar hefðu þeir
hjá Þorbirni hf. í Grindavík sett
ílatningsvélar og vinnslulínur þar að
lútandi um borð í tvo báta. Aflinn
var flattur um borð og saltaður í
kör. Útkoman var það góð að ákveðið
var að senda togarann Gnúp GK á
slíkar veiðar og vinnslu í sumar.
Fiskurinn er saltaður í kör. Eftir
veiðiferðina, sem stendur eina til
tvær vikur, er fiskurinn tekinn og
umsaltaður á bretti og síðan fluttur
út eftir viku. Þetta er svokallaður
tandurflskur. Tómas sagðist nú bara
vilja kalla hann léttsaltaðan. Sú
breyting hefur orðið á að fólk í S-
Evrópu vill nú fá flskinn mjúkan og
léttsaltaðan.
Þorbjörn hf. er bæði með saltfísk-
og rækjuvinnslu. Tómas segir að
bullandi tap sé á rækjuvinnslunni.
Saltfiskvinnslan hefur verið í mínus
framan af árinu en er nú sennilega
að komast að núllinu. Ástæðuna fyr-
ir því að hallar á saltfiskverkunina
segir Tómas vera þá að fiskurinn sé
miklu minni nú en áður var. Fyrir
bragðið fæst lægra verð fyrir hann.
Nefndi hann sem dæmi að nú væru
500 til 600 flskar í tonninu en þar til
fyrir 16 til 18 árum þótti eðlilegt að
100 til 130 flskar væru í hverju tonni
upp úr sjó.
„Þetta segir auðvitað sína sögu um
hvernig ástandið er orðið og því mið-
ur er það staðreynd að það heldur
áfram að versna, flskurinn, sem
veiddur er, verður sífellt minni,“
sagði Tómas Þorvaldsson.
-S.dór
Eysteinn Helgason
til Plastprents
Eysteinn Helgason, fyrrum for-
stjóri Iceland Seafood, var ráðinn
framkvæmdastjóri Plastprents síð-
astliðinn föstudag. Jón Steingríms-
son, sem tók við framkvæmdastjóra-
stöðunni í byrjun febrúar á þessu
ári, lætur af því starfi að eigin ósk.
Eysteinn Helgason er fæddur 24.
september árið 1948. Hann starfaði
hjá Sölustofnun lagmetis á árunum
1973 til 1978, fyrst sem sölustjóri og
síðar sem annar tveggja fram-
kvæmdastjóra.
Hann var framkvæmdastjóri Sam-
vinnuferða-Landsýnar á árunum
1978 til 1984. Hann varð síðan for-
stjóri Iceland Seafood 1. september
1986 en lét af því starfi sem kunnugt
er í febrúar á þessu ári.
Eysteinn er kvæntur Kristínu
Rútsdóttur og eiga þau þrjú börn.
Eigendur Plastprents eru flöl-
skylda Hauks Eggertssonar, Skelj-
ungur og Sölumiðstöð hraðfrystihús-
anna. Stjórn fyrirtækisins er skipuð
Hauki Eggertssyni, formanni, Árna
Ólafi Lárussyni, Bjarna Lúðvíkssyni
og Eggerti Haukssyni.
-JGH
Kraftaverkamaðurinn Heinz Durr, forstjóri AEG. Hann flytur erindi á Sögu
á fimmtudaginn kemur um breytingar á efnahagslífi Þýskalands og um
Evrópumarkaðinn.
Forstjóri AEG á íslandi:
Durr er galdrakarl
Einn þekktasti forstjóri Þýska-
lands, Heinz Durr, forstjóri AEG,
kemur í heimsókn til íslands í þess-
ari viku og heldur erindi á morgun-
verðarfundi Verslunarráðs íslands á
Hótel Sögu á fimmtudagsmorguninn.
Durr tókst það sem allir töldu vera
óframkvæmanlegt. Hann bjargaði
AEG frá gjaldþroti.
Durr mun ræða um fyrirtæki í
Evrópu framtiðarinnar á morgun-
fundinum á Sögu. Ennfremur ræðir
hann breytingar sem orðið hafa í
efnahagslífi Þýskalands.
Það var árið 1980 sem Durr tók við
starfi forstjóra AEG. Fyrirtækið var
þá á barmi gjaldþrots og skuldaði
næstum 5,3 milljarða þýskra marka.
Árið eftir voru skuldimar komnar í
4,6 milljarða og árið 1987 voru þær
komnar niður í 347 milljónir þýskra
marka.
Staöa fyrirtækisins styrktist held-
ur betur á sama tíma. Eigið fé jókst
úr 706 milljónum þýskra marka í um
1,9 milljarða marka.
Árið 1983 keypti Daimler-Benz
samsteypan meirihlutann í AEG.
Heinz Durr er forstjóri AEG en jafn-
framt situr hann í stjórn Daimler-
Benz.
-JGH
Rækja veidd á
ný í Skagafirði
- talsvert magn fannst af veiðanlegri rækju í firðinum
Þóiiiailur Ásmundsson, DV, Saudárkróki:
Við rækjuleit í Skagafirði nýlega
fannst talsvert magn af veiðanlegri
rækju, tveggja til þriggja ára stofni,
og hefur verið leyft að veiða 50 tonn
í haust. Þrír bátar stunda þessar
veiðar sem hófust fyrir rúmri viku
á miðunum innan við Eyjar.
Það eru Blátindur og Týr frá
Sauðárkróki og Faxavík, sem ný-
lega var keyptur til Hofsóss af ung-
um sjómönnum á staðnum, Ómari
og Amari Unasonum. Þetta er 15
tonna trébátur, smíöaður í Kefla-
vík 1980.
Bátarnir leggja alhr upp hjá Dög-
un á Sauöárkróki og aö sögn Garð-
ars Sveins Árnasonar fram-
kvæmdastjóra duga þessar veiðar
vinnslunni út nóvember. Er þetta
svo sannarlega búbót þar sem ann-
ars heföi ekkert verið að gera og
síöur var búist við rækjuveiði á
Skagafirði í haust. Hins vegar er
óráðið með framtíö Dögunar.
Dröfn, rækjubátur fyrirtækisins,
fer ekki meira á sjó þar sem úreld-
ing bíður hans og vinnslan hefur
ekki fengið lánafyrirgreiðslu til
kaupa á nýjum báti.
Verðhækkun í
millilandaflugi
Flugleiöir og Amarflug hækk-
uðu fargjöld í millilandafluginu
síöasthðinn fimmtudag. Amar-
flug hækkaöi þau um 4 prósent
og Flugleiðir 3 prósent.
Hækkun flugfargjalda er háð
leyfi verðlagsyfirvalda. Ástæöa
þessara hækkana eru erlendar
verðhækkanir. Heimild er fyrir
því í lögunum um verðstöðvun
að taka inn hækkanir af erlend-
um uppruna.
Aö sögn verðlagsyfirvalda rúm-
ast þessar hækkanir flugfélag-
anna innan verðstöðvunarlag-
anna.
-JGH
Eigendur Smyr-.
ils í vöruf lutning-
um milli íslands
og Færeyja
Um nokkurra ára skeið hefur fær-
eysk/íslenska skipafélagið North-
Westline annast vömflutninga milli
Færeyja og Austflarða og Norður-
landshafna. Aöaleigandi skipafélags-
ins, Hans Pauli Johannsen, er ný-
látinn og hefur verið ákveðið að selja
skipafélagiö. Smyril-Line, sem ann-
ast hefur farþegaflutninga milli
Seyðisflarðar og Færeyja um árabil,
hefur sýnt áhuga á að kaupa North-
Westline skipafélagið og yfirtaka
vöruflutningana.