Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.1988, Page 12

Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.1988, Page 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 15. NÓVEMBER 1988. Spumingin Hvað langar þig mesttil að fá í jólagjöf? Katja Masters, 12 ára: Mig langar mest í hjól í jólagjöf. Guðlaug Gigja Ottadóttir, 9 ára: Ég veit það ekki - útvarp, ballettskó eða eitthvað. Sofíia Sveinsdóttir, 4 ára: Myndavél - eða bara sælgæti. Kristbjörg Þórsdóttir, 11 ára: Skrif- borð, hjól eða skíði. Guðjón Abbes, 9 ára: Mig langar mest í fjarstýrðan bíl í jólagjöf. Lesendur Atkvæðagreiðsla hjá SÞ: Rétt ákvörðun ráðherra Haraldur Haraldsson hringdi: Það hefur verið gert að umtalsefni að utanríkisráðherra hefur þurft aö taka snöggar ákvarðanir um afstöðu okkar íslendinga í kosningu hjá Sameinuðu þjóðunum, t.d. um tillögu sem fordæthir framferði ísraels- manna á hinum herteknu svæðum viö land þeirra. - Og íslenskir frétta- menn spyrja allir eins: „Hefur ein- hver afstöðubreyting orðið hjá okkur íslendingum varðandi atkvæða- greiðslur hjá SÞ?“ Ekki er nú frum- legheitunum fyrir aö fara! . Oft hefur það verið svo að við ís- lendingar höfum haft samstöðu með hinum Norðurlandaþjóðunum í af- stööu til ýmissa mála er t.d. snerta þriðja heiminn og annað sem stund- um má flokka undir hin viökvæmari mál. Stundum hefur þetta reynst af- farasælt en ekki alltaf. í því tilviki, sem hér um ræðir og hefur orðið að fréttaefni, var t.d. þannig í pottinn Frá allsherjarþingi SÞ. búið að búið var að semja einhveija átti að flyfja en láðist að bera undir tölu sem einn fulltrúi Norðurlanda íslensku sendinefndina fyrr en nokkrum mínútum fyrir flutning hennar og þá orðið of seint aö koma með breytingar sem okkar menn vildu gera. Það er ekkert sjálfgefið að við ís- lendingar hnýtum okkur alltaf aftan í hinar Norðurlandaþjóðimar í hvaða máli sem er og síst af öllu þeg- ar um er að ræða tillögur sem inni- halda lítið annað en einhliða for- dæmingu á öðrum þjóöum. Við höf- um engin efni á stuðningi við slíkar tfllögur. Utanríkisráðherra á hrós skilið fyrir það hvemig hann virðist ætla aö standa að málum í ýmsum þeim efnum sem varða þátt okkar á al- þjóðavettvangi. Okkur íslendingum kemur best að sýna sem mest sjálf- stæði í afstöðu okkar tfl viðkvæmra mála og láta koma fram að við séum ekki nauðsynlega munstraðir fylgis- menn einhvers sérstaks hóps þjóða öðrum fremur. Felagsmalastofiiun Reykjavíkurborgar: Óreglulegur símatími? Keli hringdi: Ég hef orðið fyrir þeirri reynslu að að hringja árangurslaust í Fé- lagsraálastofnun Reykjavikurborg- ar til að tala við félagssráðgjafa sem hefur með mál dóttur minnar að gera. Þessi félagsfræðingur er sagður eiga að vera með símavið- talstíma tvisvar í viku á tilteknum tíma f>Tir hádegi. Að Wtta á þennan tíma er hægara sagt en gert því ef maður hringir milli kl 9 og 10 er sagt að hringja mflli kl. 10 og 11. AUt í lagi með það. Svo hringir maöur mflli kl. 10 og 11 og þá er manni sagt að síma- tími sé milli kl. 11 og 12. Og þegar maður svo segir að þaö hafi maður einmitt gert er maöur bara sagöur Ijúga. Mér finnst þaö ansi hart ef opin- ber stofhun, sem tekur að sér að koma börnum í fóstur, með eða án vflja foreldra þeirra, getur breytt símatimum hjá sér á hálftíma eða klukkutíma fresti. Þaö væri fróð- legt að heyra hvort fleiri en ég hafi átt í erfiðleikum meö aö ná inn sím- leiöis til félagsffæðings þessarar stofnunar. Samkvæmt upplýsingum, sem les- endasíðan hefur fengið, beint frá Félagsmálastofnun, er símaviðtals- tími við félagssráðgjafa í sambandi við mál barna, frá kl. 11-12 mánu- daga, miðvikudaga og föstudaga. Móögandi ummæli forsætisráöherra: Hvað myndum við segja? Guðjón Magnússon hringdi: Ég las í Tímanum í morgun viðtal við tvo menn í tilefni úrslita forseta- kosninganna í Bandaríkjunum, þá Steingrím Hermannsson forsætis- ráðherra og Þorstein Pálsson, for- mann Sjálfstæöisflokksins. Eðlilegt má telja að fá viðbrögð þessara manna við svo mikilvægum atburði sem forsetakosningar þar vestra eru og við eigum svo mikið undir, þótt á óbeinan hátt sé. Eftir að forsætisráðherra hefur tjáð sig um stefnu hins nýkjörna forseta segir hann orðrétt; „Ég hefði hins vegar vonað að þeir tækju efnahags- mál sín föstum tökum og tel reyndar að allur heimurinn hljóti að hafa áhyggjur af því að þarna eru erlend- ar skuldir líklega hlutfallslega orðn- ar jafnmiklar og okkar íslendinga. Það að auðugasta þjóö heims skuli halda áfram að á þeirri braut er nátt- úrlega algjörlega ófært og getur haft miklar og alvarlegar afleiðingar fyrir alla heimsbyggðina. Það er svo sann- arlega von mín að George Bush taki á þessum málum og ég hef enga ástæðu til að ætla annað en að það veröi gert“. Mér fmnst að hér megi segja aö nú sé „eggið farið aö kenna hænunni“! Eða hvaö myndum við íslendingar segja ef við fréttum af ummælum ráðamanna annarra ríkja í fjölmiðl- um þar sem þeir segðust „hafa áhyggjur af skuldastööu íslands, ein- hverju fátækasta ríki heims“? Við íslendingar erum nú það við- kvæmir fyrir utanað komandi yfir- lýsingum um okkur aö hér ætlar bókstaflega allt á annan endann þeg- ar slíkt fréttist. En hvað snertir um- mæli forsætisráðherra okkar um Bandaríkin þá er kannski mismunur á hvort ein auðugasta þjóð heims tekur lán eða sú fátækasta og á ég þá við auðæfi sem eru til staöar í landinu sjálfu og standa ávallt undir lánunum. Mér finnst að ráðamenn okkar ættu að láta af þessari mikil- mennsku sem felst í alls kyns um- mælum og yfirlýsingum um gang heimsmála. Þeir hafa nóg verkefni hér heima til að sjá um og tjá sig um. Hringið í síma 27022 nuUi kl. 10 og 12 eða skrifiö „Pagurt er yfir flóann að lita og horfa ó Jökulinn, hvort heldur baðaðan i sól á björtum degi eða lýstan mána og stjörnum á heiðskírri nóttu“, segir með mynd frá bréfritara. Hin holla vættur Ingvar Agnarsson skrifar: Þegar sól skín í heiði er fagurt um að litast á landi okkar. Þá er heill- andi að standa á Valhúsahæð og sjá Snæfellsjökulinn rísa úr hafi í öllu sínu veldi. Seiðmögnuð áhrif eru honum tengd. Þar er gott til sam- banda milli himins og jarðar, milli jarðarbúa og hinna lengra komnu á hnöttum alheimsins. Ekki er að furða þótt Snæfellingar, bæði hinir fomu svo og hinna síðari tíma, ættu fjarhrifasambönd við Bárð Snæfellsás, hinn máttuga stjarnbúa, sem stundum birtist þeim í geislabliki og reyndist þeim hin mikla hollvættur er þeir hétu á í nauöum. Og enn er Bárður Snæfellsás mátt- ugur í eðli sem áður og þess verður að til hans sé leitað. Þetta mættu ekki síst Snæfellingar hafa í huga „er þeim liggur lítið á“ því á þeim slóðu'm vom samböndin sterkust við þessa máttugu veru og því full ástæða til að veflja þau öfl til lífs að nýju og taka upp aftur hin fornu tengsl. Sniðugar fréttir á Stjörnunni Tómas Tómasson hringdi: Ég var að hlusta á hádegisfréttir Sljörnunnar í dag (miðvikud. 9. okt.) og eins og stundum áður voru frétt- irnar alveg bráöskemmtilegar. Þeir segja líka á Stjömunni; við erum með öðruvísi fréttir - og það eru orð að sönnu. Því skyldu fréttir líka ekki geta verið gamansamar þótt þær séu um dagleg mál líðandi stundar? Stundum er hægt að gera fréttir, sem annars eru hundleiðinlegar, bráð- skemmtilegar. Þetta er gert hjá Stjörnunni í ríkum mæli. Fréttin sem mér fannst svona skemmtileg i tólf-fréttum Stjörnunn- ar var um nýju „sjóðakassana" sem fyrrverandi fjármálaráðherra fyrir- skipaði að notaðir skyldu þar sem viðskipti eiga sér stað. „Allt sjóðvit- laust vegna nýju sjóðakassanna" byrjaöi fréttin, eða eitthvað á þá leið. Síðan reitti fréttamaðurinn af sér brandarana varðandi þessa marg- nefndu sjóðakassa (sem ekki ætti samt að nota til suðu) og setti fram hvern orðaleikinn á fætur öðrum á frábæran hátt. Ég hvet fólk til að fylgjast með fréttum Stjörnunnar, a.m.k. kl. 12 á hádegi, þótt ekki sé nema til að losna frá amstri dagsins nokkrar mínútur. Nóg er nú samt af alvarlegheitunum hér.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.