Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1988, Qupperneq 3
FÖSTUDAGUR 16. DESEMBER11988.
Fréttir
Læknamálin og Árbæjaraöferöin:
Breytir ekki
gangi málsins
- segir heilsugæslulæknirinn í Grindavík
„Sú staðreynd að Árbæjaraðferðin
hefur aldrei verið reynd breytir ekki
gangi málsins. Ég stóð í þeirri trú að
sú aðferð heföi ,veriö notuð í Árbæ.
Óneitanlega varð ég mjög hissa þegar
ég frétti þetta. En ég vil endurtaka
að það breytir ekki skoðunum mín-
um á því að þá aðferð á að nota. Með
því er hægt að vernda trúnað milli
læknis og sjúklings," sagði Krist-
mundur Ásmundsson, heilsugæslu-
læknir í Grindavík.
Læknarnir stóði í þeirri trú, að
aðeins grunaði læknirinn hefði séð
sjúkraskýrslurnar - það er að Árbæj-
araðferðin hefði verið notuð. Nú hef-
ur komið fram að svo var ekki.
Stjórn Félags íslenskra heimilis-
lækna hefur fundað vegna þess að
Árbæjaraðferðin var ekki notuð við
rannsókn á reikningsgerðum læknis
í Árbæjarhverfi. Eins vegna þess aö
stjórn félagsins vissi ekki hvernig að
rannsókninni var staðiö,
Stjórn Félags íslenskra heimihs-
lækna hefur í engu breytt um skoðun
- þar eru allir á einu máli um að
Árbæjaraðferðin sé eðlilegust við eft-
irlit með reikningsgerðum laekna. Á
fundi stjórnarinnar kom fram undr-
un yfir að áður gert samkomulag um
rannsókn á Heilsugæslustöðinni í
Árbæ skyldi ekki virt.
Rannsóknarlögreglan hefur áður
lýst yfir í DV að ekki hefði verið brot-
ið samkomulag við lækna við rann-
sóknir á Heilsugæslustöðinni i Árbæ.
-sme
1 Ð U N N A R B Ó K
E R G Ó Ð B Ó K
ISLENSKA
DEAQMA,-
rAðningabókin
Alla dreymir, og flestum leikur forvitni á
aö vita hvaö draumarnir tákna. Þeir eru
ýmist skýrar myndir eða dulræö tákn,
viðvörun, leiösögn eða forspá. Pess
vegna skiptir miklu aö ráöa þá rétt og
túlka þann boðskap sem þeir bera
okkur. í þessari bók má fletta upp á fjöl-
mörgum draumtáknum og lesa um
merkingu þeirra. Fjöldi Islendinga segir
hér frá draumum sínum og hvernig þeir
rættust. Hér eru einnig kaflar um sjó-
mannadrauma og um merkingu nafna í
draumi, um þjóötrú tengda draumum,
fyrirboða og fornar aðferðir til að
skyggnast inn f framtíðina. íslenska
draumaráðningabókin á erindi til allra
sem áhuga hafa á draumum og dul-
sýnum.
IÐUNN
Braðraborgarstíg 16 ■ sími 28555
Jólamynd frá Getreidegasse í Salzburg, heimsfræg verslunargata.
§Itíéíi- oi> ámitttíMíi'
íAlpam
Beint flug tíl SALZBURG
alln laugavdaga í vetar
k ki*.
19.900
* Allai* iiánari Hpplýsiii^ar fænlu á wiliwkrií'shifum Ilu^lciila. hjá
umbuðiimöiiiiuiii og fcn)askrif»lofum.
Söluskrífstofur Flugleiða: Lækjargötu 2, Hótel Esju og Krínglunni. Upplýsingar og
farpantanir í síma 25 100, ’
Við ttjúgtun
svo íétt í luudti
FLUGLEIÐIR
Skíða- eða skemmtíferð í Alpana er jafnframt heimsókn á nokkra af fallegstu og
rómantískustu staði heimsins.
I Salzburgerlandi má finna góð hótel, hlýlegar krár, dískóstaði, stórfenglega matsölu-
staði og feikn öll af mjög góðum verslunum.
Þið njótið góðs af íslenskumælandi starfsfólki Fiugleiða, hvort sem um skemmtiferð
eða skíðaferð er að ræða.
m:u
/C/FVCrA Alin VCIur.AWnFAH Ht