Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1988, Page 15

Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1988, Page 15
FÖSTUDAGUR '16. DESÉMBÉR TÖ8S 15 Hér er að mynd ast spenna „Við þessu er það ráð að taka úr gildi visitölukrónuna og setja SDR í staðinn,“ segir m.a. i greininni. Á landi okkar er að myndast mikil spenna. Þessi spenna er sér- stök að því leyti að fólk getur illa beitt rökvísi sinni til rökréttra sam- tímaákvarðana. Orsakir þessa eru þær að við búum við tvöfaldan gjaldmiðil, vísitölukrónu og launa- krónu. Það skiptir ekki máli hvað fólk reynir, alltaf aukast skuldir og tap fyrirtækja en sjóðir vaxa. Meirf vinna hefnir sín, hækkað kaup hefnir sín í hækkun skulda umfram tekjuhækkun. Að vinna sig út úr vanda gildir ekki. Það sem gildir er að svindla. Kerfið er farið að bjóða upp á það sem einu færu leiðina til framlegðar fyrir fjölda fólks. Ef maður er að tapa húsi þá kærir hann formgalla og annað þvílíkt og situr með hús sitt eða eignir og borgar ekkert fyrr en allt er tekið með fógetaaðgerð. Hækkað kaup er tap Það er vegna þess að hann á eng- an annan framlegðarmöguleika. Ef verð á fiskafurðum hækkar og kaup hans hækkar þá hækka skuldur hans meira og hann tapar á hækkuðu fiskverði. Þetta er vegna þess að verðtrygging hér á hlutdeild í hagvexti, ef verður, og það er ekki verðtrygging heldur rugl eða fmnst okkur að þegar vel aflast og gott verð er á afurðum þá eigi erlendir lánardrottnar að fá uppfærslu á skuldum okkar? Þetta gerist samt með lánskjara- vísitölu fyrir innlenda lánar- drottna. Þeir eiga ekki að sæta betri kjörum en erlendir því við getum þá alveg eins pakkað Seðlabankan- um saman og fengið eingöngu er- lent fé í landið. Því er að myndast mikil spenna í KjaUaiiim Þorsteinn Hákonarson framkvæmdastjóri þessu landi, fyrsta stig útrásarinnar er hafið, fyrsta niðurlæging stjórn- valda í langri röð niðurlæginga þar til búið er að skýrgreina stjórnvöld eins réttlaus og væru þau af ann- arri tegund - í kjölfar brennivíns- mála og upphrópana um sprúttsölu koma fleiri. Við sem vorum hjá BJ vitum þetta vel því þangað kom fólk með sögumar fyrst en vildi ekki láta nafn síns getið. Nú eru allir að verða tilbúnir að tala. Nógu erafaðtaka Hjá okkur í BJ var það mottó að það væru ekki mennirnir heldur- kerfið. En fólk vildi láta taka í ýmsa aðila þar sem því ofbauð framferðið. Við vorum yfirleitt ekki á þeirri skoöun. Svo mikið er þó víst að þetta land skelfur ef allt lendir í þeirri félagslegu útrás sem nú er að fara af stað. Eins og ég vissi þá, og veit nú, þá kæmi að því að ráðstafanirnar frá 1983 og fárán- leg verðtrygging, sem nú er að gera út af við fjölda heimila, leiddi til þessa. Ég skrifaði fram og aftur um það í blöðin hvernig Landsvirkjun gerði það gott á að fá 166% hækkun inn- anlands og fast verð á gjaldeyri. Ég varaði við uppboðunum og benti á félagslegar afleiðingar tegundaskil- greiningar og hvernig hún fer fram. Það er þannig að áður en spendýr berjast fer fram skilgreining með miklum tiiburðum hvort á öðru í þá veru að afhelga tegundaréttinn og félagslega hlýðni við reglu teg- undarinnar gagnkvæmt. Þetta er nú að gerast í pólitíkinni og soltnar lýs bíta ekki bara sárt, þær munu og naga beinin. Stjórnmálamenn ekki síður æstir Óróinn í síðustu ríkisstjórn og einnig í þeirri sem nú situr er dæmi um sama mál því þingmenn eru bara menn og þótt þjóðin haldi að þeir séu hálaunamenn þá fylgir alls konar „kruðirí" því að vera þing- maður og það kostar sitt enda er hjá fáum meiri einkaóreiða ef mak- inn er ekki því harðari og skyn- samari og enn dýrara fyrir þing- menn sem eru konur, það hefur alltaf verið dýrt að halda úti kven- legri forystuímynd. Niður á Alþingi koma einhverjir tölvugaurar og taka 2500 á tímann, svo reikna þingmenn út, 3500 tímar, já, það eru átta milljónir!! Það er sá tími sem þeir eru beint bundnir af stjórnmálum á ári, svona yfirleitt, en svo láta sumir fara minna fyrir sér. Fyrst og fremst ráða þeir þó ekk- ert við hlutina frekar en við hin og það fer illa í þá. Menn ættu að muna skeytin sem gengu á milli í haust. Þetta er bara' sama félagslega þróunin þar og annars staðar. En þessi æsingur mun bitna illa á þeim sjálfum. Rétt að skoða orsakir Orsakir þessa eru þær að fólk getur ekki notað skynsemi sína og vinnu sér til framdráttar vegna þess að verðtryggingarnar eru of háar og vextir miðast við verð- tryggingar. Það kann að hljóma skrýtilega en það er betra að hafa minni sparnað í landinu heldur en að hafa jafnmiklar verðtryggingar og hér gerist. Það er vegna þess að sparnaðurinn nýtist ekki til neins annars en eignaupptöku. Ekki er um neinn raunverulegan sparnað að ræða af aflafé heldur einungis uppskipti í launakrónum gegnum lánskjaravísitölu. Lánskjaravístölukrónan er svo sterkur gjaldmiðill að fólk getur ekki byggt eða stundað atvinnu- rekstur með hana. Því kaupir fólk tiltölulega ódýra hluti sem það ræður við fjármagnskostnaðinn á og það eru fyrst og fremst bílar. Og þar sem raunsparnaðurinn af aflafé er ekki fyrir hendi eru rök um aukinn sparnað merkingar- laust rugl. Eignaupptökusparnað- ur er ekki sparnaður heldur skrif- stofuleikur sem minnir helst á rússneska rúllettu. Við þessu er það ráð að taka úr gildi vísitölu- krónuna og setja SDR í staðinn, einnig í gömlum samningum, þaö er miklu veikari gjaldmiðill en þaö er hægt að reka fyrirtæki með hon- um. Að öðrum kosti munum við sjá framgang eðlilegrar félagslegrar þróunar, með afhelgun og síðar óeirðum. Þorsteinn Hákonarson „Það kann að hljóma skrýtilega en það er betra að hafa minni sparnað í landinu heldur en að hafa jafnmiklar verðtryggingar og hér gerist.“ Ráðherrar í f fla- beinsturm Það er sífellt veriö að fræða okk- ur á einhverju nýju. Nýjustu vís- indin eru þau að hluti lögreglu- stöðvarinnar við Hverfisgötu sé fílabeinsturn. Þessi tum heitir öðru nafni Utanríkisráðuneytið. Ef marka má það sem blessaður for- sætisráðherrann okkar segir hlýt- ur að vera alveg hábölvað að lenda á þessum stað, því þar verða menn bæði sjónlausir og heyrnalaus- ir. Þótt við kjósendur, í það minnsta sumir, trúum því statt og stöðugt að andlegur sljóleiki hrjái mjög suma stjórnmálamenn koma yfir- lýsingar af þessu tagi okkur samt á óvart því að sljóleikinn verður yfirleitt ekki svo magnaður að þeir viðurkenni svona nokkuð. Að eigin sögn eru þeir þvert á móti í góðum tengslum við kjósendur, hafa efna- hagslífið á hreinu og kunna ótal ráð til þess að bjarga atvinnulífinu. Þegar þeir eru svo búnir að „bjarga" atvinnulífinu í algert þrot afsaka þeir sig með því að þeir hafi hvorki heyrt, séð né fylgst með undanfarin tuttugu ár eða svo, og þetta eru afsakanir þeirra sem hafa stjórnað allan tímann. Ég var svona að hugsa um að leggja það til að við slægjum saman í gleraugu og heyrnartæki handa Jóni Baldvin áður en hann lendir í því sama og Steingrímur en að athuguðu máli er ég svosem ekkert viss um að það yrði til bóta. KjaUaiinn Guðmundur Axelsson framhaldsskólakennari Nýirsiðir Nýjasta „trixið“ í pólitíkinni er það að formenn flokkanna eru farnir að stunda trúboð inni á gafli hver hjá öðrum. Steingrímur og Jón Baldvin eru búnir. Ætli Þor- steinn og Ólafur Ragnar séu ekki næstir? Vegir stjórnmálamann- anna eru greinilega órannsakan- legir, líkt og vegir guðs almáttugs, nema hvað ástæður „órannsakan- leikans“ eru trúlega ekki þær sömu. Annars er aldrei að vita nema þetta sé upphafiö að því að við fáum tveggja flokka kerfi eins og það er kallað. Mér skilst að tveggja flokka kerfi sé flokkakerfið kallað í þeim lönd- um þar sem fullt er af flokkum, svipað og hér, en tveir til þrír eru langstærstir. Ef til vill fáum Við- bráðum Framþýðuflokk og Alstæð- isbandalag auk Kvennalista í stað fjölflokksins sem nú er ríkjandi. Hverbersökina? Eitt pólitískt nýmæli rak ég aug- un í, í dagblaði nú nýverið. Fyrr- „Annars þarf kánnski engan að undra þótt fólk, sem býr úti á landi, fari frek- ar í innkaupaferðir til útlanda en til Reykjavíkur. Farið kostar álíka mik- ið.“ „Ef til vill fáum við bráðum Framþýðuflokk og Alstæðisbandalag“, seg- ir greinarhöfundur - Formannaheimsóknir. Jón Baldvin Hannibalsson sækir heim Framsóknarflokkinn. verandi íjármálaráðherra tók upp þá nýbreytni að í stað þess að kenna kollegum sínum í pólitík um ófarir í fjármálum íslenska ríkisins kennir hann að sjálfsögðu þeim um sem sökina eiga, það er að segja okkur kjósendum. Við eyðum eða öllu heldur sóum fjármunum okkar í bíla, utanlands- ferðir, myndlykla og farsíma. Ég fæ reyndar ekki betur skilið en bless- aðir ráðherrarnir okkar séu á sí- felldu flandri út um öll lönd. Þeir aka á bílum, hafa bílasíma og svo framvegis. Er málið kannske þann- ig vaxið að það sé allt í lagi að ráð- herrar og alþingismenn eyði pen- ingunum okkar í bíla, utanlands- ferðir og farsíma en um leið og við eyðum þeim sjálf er það annað hvort bruðl eða sóun? Þær eru ekki amalegar framtíð- arhorfur okkar íslendinga. Við get- um svo sannarlega horft með stolti og aðdáun til foringjanna í fíla- beinsturnunum sínum, vitandi það að af og til stíga þeir niður til okk- ar, veita okkur fóðurlegar áminn- ingar og gera átak í því að beina okkur á réttar brautir. Verslunintil útlanda Fjölmiðlar hafa undanfarið frætt okkur á því að það nýjasta í ferða- málum okkar íslendinga sé að fara dagsferðir til útlanda til þess að versla. Yflrvöld og kaupmenn eru víst í meira lagi óhress með þessar feröir. Mér flnnst að það hljóti að liggja í augum uppi að áður en fólk fer í svona feröir reiknar það út kostnaöinn og reynir að gera sér grein fyrir hver sparnaðurinn muni verða. Verði útkoman já- kvæð fer fólk gjarna í svona ferðir. Sé þetta ekki allt í lagi hlýtur ann- að af tvennu að vera að. Reiknings- kennslu í skólum hlýtur að vera mjög ábótavant eða verðlagning hjá kaupmönnum hér er út í hött. Annars þarf kannske engan að undra þótt fólk, sem býr úti á landi, fari frekar í innkaupaferðir til út- landa en til Reykjavíkur. Farið kostar álíka mikið. Guðmundur Axelsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.