Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1988, Page 16

Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1988, Page 16
16 FÖSTUDAGUR 16. DESEMBER 1988. LÓÐAÚTHLUTUN Til úthlutunar eru 34 lóðir fyrir einbýlishús við Aust- urfold og Vesturfold og 14 lóðir fyrir raðhús við Fannafold á svæði, sem nefnter Fagrabrekka, norðan Foldahverfis í Grafarvogi. Gert er ráð fyrir að lóðirnar verði byggingarhæfar sumarið 1989. Nánari upplýsingar verða veittar á skrifstofu borgar- verkfræóings, Skúlatúni 2, 3. hæð, sími 18000. Þar fást einnig afhent umsóknareyðublöð og skipulags- skilmálar. Tekið verður við lóðarumsóknum frá og með 19. desember 1988 á skrifstofu borgarverkfræðings. At- hygli er vakin á því að endurnýja þarf eldri lóðarum- sóknir. Borgarstjórinn í Reykjavík Nýjasta bensinstöðin frá Matchbox með rafstýrðum bílskúrshurðaopnara. Verð kr. 1.995,- KÆRU VIÐSKIPTAVINIR I samanburði verðkönnunar Verðlagsstofnunar er Leik- fangahúsið með hæsta verð á einni vörutegund. Saman- burður er ekki raunhæfur, tekið er mið af útsöluvöru í einni búð (kannski í miður fallegum umbúðum). Nú ætla ég að biðja fólk að lesa skýrslu Verðlagsstofn- unar og bera saman verð. • Auk þess ætla ég að bjóða fólki upp á afslátt dagana 16.-20. desember. Afslátturinn er 10-70% Póstsendum Virðingarfyllst, LEIKFANGAHÚSIÐ Skólavörðustíg 10, sími 14806 RÚLLUKRAGABOLIR Efni: 100% bómull. Litir: svart, hvítt, dökkblátt. Stærðir: M, L, XL. Verð kr. 795,- VINNUFATABÚÐIN Laugavegi 76, Hverfisgötu 26 íþróttir FH - Baia Mare í kvöld: Treystum á toppleik og aö vörnin smeUi saman, segir Þorgiis Óttar Hafnfirðingar eiga erfiðan Evrópu- leik fyrir höndum í kvöld en þá glíma þeir við stallbræður sína í rúmenska stórliðinu Baia Mare. FH tapaði fyrri leiknum ytra með nokkrum mun, 39-31, en liðið á þó nokkra möguleika á að jafna metin og gera gott betur á heimavelli sín- um. Hafnfirðingar áttu á brattann aö sækja fyrir seinni leikinn í síðustu umferð Evrópumótsins en þá tóku þeir á honum stóra sínum og slógu norska liðið Fredensborg Ski úr keppni með talsverðri reisn. Lið FH-inga er gríðarlega efnilegt og er það því til alls víst í kvöld. „Ég held að við eigum möguleika gegn þessu liöi ef við sýnum toppleik - ef við leikum eins og við getum best," sagði Þorgils Óttar Mathiesen, fyrirliði FH-inga, í samtali við DV í gær. „Við höfum að vísu ekki sýnt okkar bestu hliðar í vetur en ég er að vona Handknattleikslið Islendinga leik- ur í tvígang gegn Svíum eftir helgi eins og raunar hefur komið fram í DV. Fara leikirnir fram á þriöjudag og miðvikudag, báðir klukkan 20.30. íslenska landsliðið hefur ekki verið valið enn fyrir þessar viðureignir en áformað er að valið veröi ljóst oröið í dag og tilkynnt þá eöa í kringum helgina. „Þessi landsliðshópur, sem nefnd- ur var í Morgunblaðinu, er fyrst og fremst hugarórar þess blaðamanns sem skrifar greinina,“ sagöi Guðjón Guömundsson, aðstoðarmaður Bog- dans Kowalzcyk landsliðsþjálfara, í samtali við DV í gær. Var Guðjón þá spurður hvort landsliðhópurinn væri ljós orðinn fyrir þessa tvo leiki. „Liðið hefur ekki verið tilkynnt og að liðið nái sér núna á strik,“ sagði Þorgils ennfremur. „Vörnin hefur verið höfuðverkurinn til þessa og hún verður að vera í lagi á morgun, þá verður vörnin að smella saman. Varnarleikurinn hjá rúmenska lið- inu er raunar slakur líka og ég held að heimavöllurinn eigi að gefa okkur þetta fjögur til fimm mörk. Þetta lið tapaði fyrir Drott í fyrra með 10 mörkum úti en vann síðan heima með sama mun og það sýnir hvað heimavöllurinn vegur í raun þungt. Þetta rúmenska lið er ekki ýkja reynslumikið því ákveðin endurnýj- un hefur átt sér stað hjá því í upp- hafi tímabilsins,“ hélt Þorgils áfram. „Það á því að vera mögulegt að koma Rúmenunum í opna skjöldu. En eins og áður sagði þá treystum við á topp- leik og að áhorfendur komi og styðji við bakið á okkur eins og þeir hafa raunar alltaf gert,“ sagði Þorgils Ótt- arviðDV. -JÖG hefur ekki einu sinni verið valið enn sem komið er,“ sagði Guðjón. Landslið Svía hefur tekiö talsverð- um breytingum frá því í Seoul. Nýr maður hefur tekið við stjórnvelinum af Roger Carlsson, sem hefur snúið sér að fyrra starfi, póstmennskunni, eftir því sem heimildir DV herma. Nýi þjálfarinn heitir Bent Johans- son og þykir sá ekki fara troðnar slóðir en hann hefur bryddað upp á ýmsum nýjungum í sænska liðinu. Er það liður í að móta heilsteypt lið fyrir heimsmeistaramótiö í Tékkó- slóvakíu árið 1990. Bent þessi þjálfaði lið Drott í áratug með góðum árangri og á því eflaust eftir að spjara sig með sænska lands- liðið. JÖG Bjarki Sigurðsson, besti maður Víkini höllinni i gærkvöldi. Hugarórar blaðamanns - segir Guöjón um landsliðshóp Morgunblaðsins Að flytja félög... - opið bréf til íþróttasíðunnar Pálmi Gíslason, formaður Ung- mennafélags íslands, hefur sent íþróttasíðu eftirfarandi bréf vegna fréttar' i DV í vikunni varöandi hugsanlegan flutning rótgróins íþróttafélags í Grafarvoginn: „Eitt undarlegasta mál á íþrótta- síöum dagblaðanna birtist í DV14. des. sl. undir fyrirsögninni „Flytur Fram úr Safamýri í Grafarvog?“ Þessar einstæðu vangaveltur hljóta að kalla fram margar spurning- ar. Fyrir rúmlega ári var stofnað ungmennafélag í Grafarvogi. Ung- mennafélögin hafa á undanfornum árum verið í mikilli sókn um allt land, bæði á íþrótta- og félagslegu sviði. Það er því ekki undarlegt þó íbúar Grafarvogs hefðu áhuga á aö fá ungmennafélag í Grafarvoginn og með því að styrkja hið félagslega starf. Rúmlega 100 manns mættu á stofnfund og nægt framboð var af fólki til stjórnunarstarfa. Síöan hefur verið mjög blómlegt starf hjá félaginu, mikið æskulýösstarf og foreldrar hafa mikið veriö með. Allt bendir því til að hér sé í upp- siglingu mjög gott félag, þó ekki hafi þaö enn fengið keppnisleyfi vegna sérstakra reglna hjá ÍBR. Við sem í forystu ungmennafé- lagshreyfingarinnar stöndum urð- um auðvitað vör viö að sumum var brugöiö er ungmennafélag skyldi stofnað í Reykjavík sem staösett yrði í ákveðnum bæjarhluta. Þó við ættum von á einhverjum fyrirstöð- um höföum við ekki hugmyndafiug til að sjá slíkar vangaveltur fyrir sem í viðtalinu komu fram. Hvers hagsmunum er verið að þjóna? Er það íbúum Grafarvogs sem hafa verið aö byggja upp sitt eigiö félag? Ér það forystumönnum Fram sem flestir hljóta að búa fjarri Grafar- voginum? Eða nr. 1. Er það íbúum í nágrenni Framsvæðisins sem eiga að missa bæði félagið sitt og íþróttaaðstöðu? í þessum dæraalausu hugrenn- ingum er Víkingur nefndur líka til flutnings, félag sem hefur stórt fé- lagssvæði ög mikla aöstöðu. Skyldi fbúum smáíbúðahverfis og Foss- vogs vera sársaukalaust að missa félagið sitt? í greininni talar viömælandi blaðamannsins um „stórslysiö í Breiðholti". Þar nefnir hann tvö félög. En gleymdist það kannski að annað félagiö er með elstu félögum í Reykjavík og flutti einmitt í Breið- holtið. Þvi flytur Fram ekki i Breið- holtið og leysir vandann, eða vant- ar hugsanlega aöstöðu fyrir þenn- an stóra bæjarhluta. Annar bæjarhluti væri frekar sambærilegur við Grafarvoginn en Breiðholtið, það er Árbæjarhveffiö. Þar var byggt upp gott félag og sá enginn öfundaraugum yfir því. Fylkir hefur alla tíð byggt upp gott æskulýðsstarf sem hefur skilað ár- angri í öllum flokkum. Flutningur rótgróins félags á svæði annars mun skapa mörg vandamál. Væri ekki nær að taka höndum saman og byggja upp öflugra félags-, íþrótta- og æskulýösstarf. Pálmi Gíslason form. UMFÍ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.