Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1988, Page 32
F R ÉTTAS l< O T I Ð
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu
þá i síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt-
ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur.
Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000
krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við
fréttaskotum allan sólarhringinn.
Rítstjórn - Auglýsingar - Askrift - Dreifing: Simi 27022
FÖSTUDAGUR 16. DESEMBER 1988.
Læknamálið í Grindavik:
Ríkisendurskoðun
heimill aðgangur
„Kristmundi Ásmundssyni er skylt
að veita Ríkisendurskoðun beinan
aðgang að sjúkraskýrslum þeirra
sjúklinga sem leituðu til Heilsugæslu
Suðumesja, Grindavík. í mars, apríl
og maí 1988. Málskostnaður fellur
niður.“
Þannig hljóðar úrskurður Ásgeirs
Eiríkssonar dómara í máli Ríkisend-
urskoðunar á hendur Kristmundi
Ásmundssyni heilsugæslulækni í
Grindavík.
Kristmundur hefur kært úrskurð-
inn til Hæstaréttar.
-sme
POTTASKEFILL
POTTASKEFILL
heitir þessi karl
Afjólasveinunum
þrettán er hann
sá fimmti'sem kemur
til byggða fyrirjólin.
8
DAGAR
TIL JÓLA
LOKI
Hefði ekki verið gáfulegra
aðgrýta „Steininn"á
Skólavörðustígnum!
Bráðabirgðalögin:
Afgreidd milli jola
og nýárs
- segir forsætisráðherra
Steingrímur Hermannsson for-
sætisráðherra mælir fyrir bráöa-
birgðalögunum í neðri deild á
morgun. Steingrímur sagðist ekki
eiga von á því að lögin yrðu af-
greidd frá deildinni fyrir jól, nær
væri að tala um tímann á milli jóla
og nýárs. Forseti neöri deildar,
Kjartan Jóhannsson, taldi aö lögin
ættu að geta komið úr nefnd á mið-
vikudaginn og þá til 2. umræðu.
„Afgreiðsla sjálfstæðismanna á
bráðabirgðalögunum í efri deild
var mjög óvenjuleg. Þeir hafa sjálf-
sagt einhverjar ástæöur til þess
þess þó ég komi ekki auga á þær í
fljótu bragði. En þetta kom ekki á
óvart eftir framkomu þeirra, þetta
er í takt við hana.“ Steingrímur
sagðist hvorki vera bjartsýnni né
svartsýnni á að lögin kæmust í
gegn en hann var.
„Ef menn vilja fella út þau
ákvæði, sem sjálfstæðismenn eru
aö tala um að styðja núna, þá er
það rétt sem kom fram í DV í gær
að það þýðir það að mjög mikill
mismunur verður á milli launþega.
Sumir fá lausa samninga í byrjun
ársins en ASÍ-félögin flest ekki fyrr
en 10. apríl.“
Sumir stjómarliða hafa ásakað
Steingrím fyrir að hafa ekki spilað
nógu vel úr spilunum með' tillögu
sinni í efri deild því það þýðir með-
al annars að „huldumönnúm"
verði gert erfiðara um vik í neðri
deild. „Ég held aö það geti ekki
gert neinum erfiðara um vik að
fella niður mannréttindabrota-
ákvæði. Menn hljóta að anda léttar
eftir það,“ sagði Steingrímur.
-SMJ
Hafnarfjörður:
Ófrísk kona
fyrir bíl
Kona, sem er langt gengin með
barn, varð fyrir bíl um miðnætti í
gær. Slysið varð við umferðarljós á
Reykjavikurvegi við Hjallabraut í
Hafnarfirði. Konan var að fara aust-
ur yfir Reykjavíkurveg. Hún varð
fyrir bíl sem var ekið vestur Reykja-
víkurveg.
Konan handlegsbrotnaði, skaddað-
ist í andhti og marðist illa, Hún var
flutt á kvennadeild Landspítalans.
Ekki var vitað í morgun hvernig
henni heilsaðist. -sme
Bessastaðir:
Efri hæðin
ónýt
Efri hæð forsetasetursins á Bessa-
stöðum er ónýt. Þetta kom fram á
ríkisstjómarfundi i gær og var haft
eftir Steingrími Hermannssyni for-
sætisráðherra að skömm væri að
ástandi íbúðar forseta íslands.
Fúi er í burðarbitum hússins og
þakið er talið ónýtt. Líklega munu
viðgerðir á Bessastöðum kosta um
50 milljónir króna.
í morgun sagði Steingrímur við DV
að viðgerð mundi hefjast á Bessa-
stöðumívor. -pv
Lögreglan handtók mann í gærdag eftir að hann hafði hent grjóti að Al-
þingishúsinu. Maðurinn, sem lögreglan þekkir mæta vel, hafði gert sig klár-
an fyrir mikið grjótkast. Hann hafði poka sér við hlið með grjóti i.
DV-mynd GVA
Veðrið á morgun:
Snjókoma
víða um
land
í fyrramálið verður suðaustan
átt með snjókomu víða um land
og nokkurt frost. Síðdegis verður
komin suðvestanátt með rign-
ingu og síöar slydduéljum sunn-
anlands og vestan og heldur
hlýrra í bili. Hitinn verður 0-4
stig.
Kópavogur:
Starfsmaður
slökkti eld
Tilviljun réð að ekki varð stórtjón
vegna bruna í gærkvöld. Maður, sem
starfar á Trésmíðaverkstæði H. Guð-
mundssonar og átti af tilviljun leið
fram hjá vinnustað sínum skömmu
fyrir klukkan ellefu í gærkvöld, sá
að eldur var laus á gólfi verkstæðis-
ins.
Hann kallaði á slökkvilið en hafði
lokið við að slökkva eldinn og koma
ruslafötu - en í henni var eldurinn -
út þegar slökkvilið kom á vettvang.
Slökkviliðsmenn aðstoðuðu mann-
inn við að loftá reyknum út.
Talið er að stórtjón hefði getað orð-
ið ef starfsmaðurinn hefði ekki átt
leið fram hjá vinnustað sínum.
______________________-sme
Akranes:
Bíll ónýtur eftir
bruna í bflskúr
Sigurgeir Sveinsson, DV, Akranesi:
Bíll gjöreyðilagðist í gærkvöldi
þegar kviknaði í bílskúr við Vallholt
á Akranesi. Eldurinn kom upp um
áttaleytið í bílskúrnum, sem
skemmdist eimúg mikið í brunanum,
og bílnum, sem var gamall, verður
vart ekið meir. Eldsupptök er ókunn.
Slökkviliðið:
Gabbaðí
Vogahverfi
Slökkvihð Reykjavikur var kallað
að íbúðarhúsi í Vogahverfi í nótt. Um
gabb reyndist vera að ræða. Lögregla
náði þeimsem hringdi í slökkviliðið.
Hann hafði verið að angra fólk í
næsta nágrenni.
Maðurinn var fluttur í fanga-
geymslur þar sem hann var í nótt.
-sme
Torkennileg Ijós
á Faxaflóa
Torkennileg ljós sáust á Faxaflóa á
fimmta tímanum í nótt. Vegfarandi
gerði lögreglu viðvart. Þaðan barst
málið til Slysavarnafélagsins. Þegar
að var gáð reyndist um grænlenskt
rækjuveiðiskip að ræða. Talstöð
skipsins haföi bilað og því var gripið
til þess ráðs að gera viðvart í landi
meö ljósagangi.
Grænlendingana vantaði lóðs til að
sigla inn á Reykjavíkurhöfn. Skipið
er nú komið til hafnar - heilu og
höldnu. -sme
5 hnuplarar
teknir í gær
Lögreglunni bárust fimm kærur
vegna búðahnupls í gær. Allir hnupl-
ararnir voru teknir í Kringlunni.
Lögreglan segir að ekki hafi allir
getað borið fyrir sig fátækt.
Búðahnupl er algengara fyrir jól
en á öðrum árstímum. -sme
ÞRðSTUR
68-50-60
VANIRMENN
l i ... ’ . —-1