Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.1989, Blaðsíða 2
MÁNUDAGUR 2. JANÚAR 1989.
Fréttir
Reykjavíkurlögregla haföi ekki undan:
ölvun og ófriður í
heimahúsum á nýársnótt
Nýársnótt var mjög annasom hjá
lögreglunni { Reylqavík. Var sér-
lega mikið aö gera síðari hluta
nætur og þá mest vegna ölvunar
„út og suður um aUan bæ" eins og
lögreglumaöur sagði DV. Alls voru
68 útköll vegna ölvunar og ýrais-
legs annars á nýársnótt.
Þrátt fyrir þijá fullmannaða
aukabíla á vakt hafði lögreglan
ekki undan aö sinna útköllum næt-
urinnar. Var gífurleg ölvun í
heimahúsum og tengdust ilest út-
köU þeirri ölvun. Þá þurfti að fara
í heimahús og stiUa tii iriðar eða
aðstoða annan húsráöenda þegar í
óefni var komið. Þegar líða tók á
morguninn fór aö bera á ölvuna-
rakstri en þá höfðu margir farið
úr áramótagleðskapnum í fússi og
upp í bíl. Voru alls 18 teknir grun-
aðir um öivun við akstur.
EUefu útköll voru vegna rúðu-
brota og brutu unglingar allar rúð-
ur KRON-verslunarinnar við Ed-
dufeU, Eins voru raörg útköll að
Hótel íslandi en þar var mikiU
troðningur og eitthvað um meiösl
á fólki vegna þess.
Þrátt fyrir erUinn hafði lögreglan
á orði að áramótin hefðu í raun
farið blessunarlega vel fram en
áraraótum fylgdi alltaf öivun og af
ölvun vandræði. Nú heföu hins
vegar engin stórslys hlotist af gleö-
skapnum.
Slökkviliðið í Reykjavík var hvatt
6 sinnum út á gamlársdag og 5 sinn-
um á nýársnótt. Var ekki um stór-
vægilega eldsvoða að ræöa. Fjögur
útköU voru vegna flugelda. I einu
tiUelli kviknaði í þaki íbúðarhúss
í Árbæjarhverfi en slökkviliöi tókst
að slökkva eldinn eftir að hafa rifið
nokkrar plötur af þakinu.
Í nágrannasveitarfélögunum,
Kópavogi og Hafnarfirði, var nokk-
ur erill en engin teljandi slys á
fóUii. Að sögn lögreglunnar þar
voru þetta tiltölulega róleg áramót
eins og reyndar víðast hvar um
landið.
-hlh
- sjá einnig bls. 6
Fyrsta bam ársins 1989:
Var búin að
lofa fólkinu
mínu þessu
- segir móöirin, Guöbjörg Björgvinsdóttir
Fjölskyldan saman komin á fæðingardeild Landspítaians. F.v. Guðjón, Jóhann Guðjónsson, Rakel Gunnarsdóttir
og Kristján. Ekki var hægt að hafa litla bróðurinn meö á myndinni þar sem hann var enn í hitakassa eftir fæðinguna
í sjúkrabílnum. DV-mynd BG
Söguleg fæðing á Reykjanesbrautiimi:
Fæddi barn á tveim
mínútum í sjúkrabíl
„Eg var búin að lofa fólkinu mínu
því að þetta yrði fyrsta barn ársins.
Það var nú ekkert alltof sannfært um
að þetta gengi eftir enda var ekki
mikU alvara á bak viö loforðið. En
svo fór að sú stutta varð fyrst í heim-
inn á nýbyrjuðu ári en samkvæmt
öUu eðlúegu heföi hún átt að fæðast
þann 29. desember 1988,“ sagði Guð-
björg Björgvinsdóttir sem eignaðist
fyrsta barn ársins 1989. Var þaö
stúlka, tæpar 16 merkur og 53 sentí-
metrar. Hún fæddist á fæðingardeild
Landspítalans þegar klukkuna vant-
aði 21 mínútu í eitt.
Þær mæögur voru harla hressar
þegar DV-menn litu til þeirra upp á
fæðingardeild Landspítalans í gær.
Sú stutta lét að vísu ekki mikið fyrir
sér fara en svaf vært í fangi móður-
innar þrátt fyrir blossana frá mynda-
vélinni.
„Ég hef varla séð hana vakandi enn
sem komið er,“ sagði Guðbjörg. „Hún
er ósköp vær og góö enda gekk fæö-
ingin mjög vel og tók ekki nema tvo
tíma.“
Guðbjörg sagði aö hún og faðirinn,
Ragnar Anton Sigurösson, væru ekki
búin að ákveða hvað stúlkan ætti að
heita. „Enda myndi ég alls ekki segja
frá nafninu í blöðunum þó svo að við
værum búin aö ákveða það,“ sagöi
hún. -JSS
Sá óvenjulegi atburöur átti sér staö
í gærmorgun aö Rakel Gunnarsdóttir
ól son í sjúkrabíl sem var aö flytja
hana frá Keflavik til Reykjavíkur.
Gekk fæöingin vel og heilsast henni
og nýfædda syninum vel.
„Ég var búin að vera á spítalanum
í Keflavík frá því klukkan sex í gær-
morgun. Þá fór að dofna yfir hjart-
slættinum í barninu og þar sem eng-
inn svæfingarlæknir er á spítalanum
var gripið til þess ráðs að flytja mig
til Reykjavíkur þar sem ég skyldi
fæða.“
Rakel til halds og trausts á leiöinni
milli staða var Lea Oddsdóttir ljós-
móðir. „Þegar við nálguðumst Voga-
afleggjarann fann ég að fæöingin var
að fara af stað. Um það bil tveim
mínútum seinna var barniö fætt,
heljarmikill bolti, 22 merkur og 56
sentímetrar. Klukkuna vantaði fimm
mínútur í ellefu þegar hann kom í
heiminn og aðeins skömmu síðar
heyrði ég til hans. Þá létti mér held-
ur.
Annars var enginn tími til að verða
óttaslegin þvi hlutirnir gengu svo
hratt fyrir sig. Þaö varö auðvitað
uppi fótur og fit í sjúkrabilnum þegar
fæðingin fór af stað. En það var
brugðist skjótt og vel viö og Lea tók
á móti af miklu öryggi. Mér er sagt
aö sjúkrabíllinn hafí veriö 16 mínút-
ur á milli spítala þannig aö ekki er
hægt að segja annaö en að hlutirnir
hafi gengið fljótt og vel fyrir sig aö
öllu leyti."
Eiginmaður Rakelar, Jóhann Guð-
jónsson, og tveir synir þeirra hjóna,
Kristján og Guðjón, voru staddir á
fæðingardeild Landspítalans þegar
blaðamenn heilsuðu upp á Rakel þar
í gær. Þeir voru að vonum harla
ánægðir með nýja fjölskyldumeðlim-
inn þótt ekki væru þeir famir aö fá
aö sjá hann enn þar sem hann var í
hitakassa. „En ég hefði þó alveg ver-
iö til í að fá systur,“ sagöi sá yngri,
Kristján, sem sagðist þó vera vel sátt-
urviðnýjabróðurinn. -JSS
Grindavlk:
Eldur í beitingaskúr
Eldur kom upp í beitingaskúr í
Grindavík á nýársnótt og skemmd-
ist hann mikiö af eldi og reyk.
Áfastar verbúðir sluppu við eld-
skemmdir en uröu fyrir töluverð-
um skemmdum af völdum reyks.
Ekki er talið aö kviknað hafi í
vegna flugelda en eldsupptök eru
ókunn. Um 22 bjóö voru í skúmum
og tjón töluvert vegna þess.
Að ööru leyti fóru áramótin í
Grindavík rólega fram. Vegna veö-
urs, rigningar og strekkings, voru
ekki margir á feröinni og þurfti
lögreglan ekki aö hafa mikil af-
skipti af fólki. Þó voru nokkur út-
köll vegna ölvunar í heimahúsum.
-hlh
Stykkishólmur:
Aurskriður í Álftafirði
Tvær aurskriður féllu á veginn í
Álftafirði á Skógarströnd, á leið-
inni frá Stykkishólmi til Búöardals,
á gamlársdag. Að sögn lögreglu
voru ekki miklar skemmdir á veg-
inum. Var rutt strax á gamlársdag
og er vegurinn fær öllum bílum.
-hlh
Skattahækkun á bílum og bensíni
Verö á bilum og bensíni hækkaði
um áramótin vegna aukinna skatta
á þessar vörur.
Lítrinn af blýlausu bensíni
hækkar þannig úr 36,60 krðhum í.
41 krónu og er það um 12 prósent
hækkun.
Ríkisstjórnin ákvað hækkun
bensíngjalds á gamlársdag en 15
mánuðir em síðan bensíngjaldið
hækkaði siöast.
Á sama tíma var ákveöiö að
hækka innílutningsgjald af bílum
og bifhjólum.
Fjármálaráðuneytið gerir ráð
fyrir að bílar hækki í verði um
6-8% að jafnaöi. Þó hækka stærri
bílar og aflmeiri hlutfallslega
meira en minni bílar.
-pv
•‘1-
'y/ f'.i'i t'f'py