Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.1989, Blaðsíða 3
MÁNUDAGUR 2. JANÚAR 1989.
3
Fréttir
Aramótaávarp forsætisráöherra:
Vandratað milli
ofstjjórnar og
stjórnleysis
Það er vandi að stjórna íslensku
þjóðfélagi svo að vel sé. Meðalvegur-
inn milli ofstjórnar og stjórnleysis
er vandrataöur var skoðun Stein-
gríms flermannssonar forsætisráð-
herra þegar hann flutti áramótaá-
varp sitt.
„Helst vil ég lýsa eðlilegum afskipt-
um stjórnvalda þannig að þeim beri
að skapa grundvöll fyrir heilbrigðar
athafnir einstaklingsins í þjóðfélagi
þar sem velferð og jöfnuður ríkir,“
sagði Steingrímur um viðhorf sitt til
starfsins.
Steingrímur var bjartsýnn á fram-
tíð efnahagsmála þrátt fyrir barlóm
undanfarnar vikur og mánuði. Hann
taldi líkur á að næst þegar ytri að-
stæður færðu íslendingum góðæri
myndi sækja í sama farið; þjóðin
myndi eyða um efni fram en ekki
sýna ráðdeild og sparsemi. Stein-
grímur sagði nauðsynlegt að stjóm-
völdu gripu til aðgerða til að vöxtur
þjóðartekna „leiði ekki til þenslu
eins og verið hefur undanfarin tvö
ár.“
í áramótaávarpinu kom fram að
Steingrímur hyggst endurvekja starf
nefndar sem vann fyrir nokkrum
árum að framtíðarkönnun á þjóð-
félaginu. Nefndinni er ætlað að spá
í þróun ýmissa grundvallarþátta
þjóðfélagsins fram til ársins 2010.
Um sína framtíðarsýn sagði Stein-
grímur: „Við viljum sjá frjálst land
og frjálsa þjóð sem ber höfuðið hátt
meðal þjóða heims, þjóð sem ræður
sínum eigin málum af skynsemi og
án öfga, þar sem hagvöxturinn er
jafn og s ígandi þrátt fyrir sveiflur
náttúrunnar, þar sem atvinnuleysi
er óþekkt og fjölskyldur og einstakl-
ingar búa hamingjusöm í góðu hús-
næði og njóta þess sem nútímalíferni
býður best.“
Steingrímur sér þrjár hættur steðja
að sjálfstæði þjóðarinnar. í fyrsta
lagi útlenda sjónvarpsmenningu, í
öðru lagi einhæft atvinnulíf, fiski-
stofnunum séu takmörk sett og í
þriðja lagi Efnahagsbandalag Evr-
ópu og þróun þess.
Forsætisráðherra telur mikilvægt
að þjóðin leiti besta svarsins við þess-
um þrem hættum. -p v
Landsmenn kvöddu gamla árið að venju með brennum og flugeldum af
ýmsu tagi. Þessi mynd var tekin við Álfheimabrennuna í Reykjavík á gaml-
árskvöld. DV-mynd BG
Innflutningsbann á vörur frá Suður-Afríku:
Bannið hefur
sáralítil áhrif
- segir Vilhjálmur Egilsson hjá Verslunarráði
„Þetta bánn er einfaldlega þannig
í framkvæmd aö þær vörur, sem eru
með upprunavottorð frá Suður-Af-
ríku, komast ekki inn í landið," sagði
Vilhjálmur Egilsson, hagfræðingur
Verslunarráðs íslands, er DV ræddi
við hann um innflutningsbann á vör-
um frá Suður-Afríku og Namibíu
sem tók gildi í gær.
Lög þessa efnis voru samþykkt í
maí sl. en tóku formlega gildi um
áramótin. Vilhjálmur var spurður
hvort vörur frá þessum löndum
kæmust með engu móti inn í landið
nú.
„Það á ekki að vera. Ég man þó
eftir því að á Norðurlöndunum fór í
gang umræða um vörur sem voru frá
öðrum Afríkulöndum en voru fluttar
í gegnum Suður-Afríku. Niðurstaðan
varð sú að væru þær með uppruna-
vottorð frá Suður-Afríku féllu þær
undir bannið, annars ekki.“
Vilhjálmur sagði að innflutnings-
bannið hefði ekki teljandi áhrif.
Menn hefðu keypt ávexti og niður-
suðuvörur frá Suður-Afríku því það
hefði verið hagstæðara á einhverjum
tímum heldur en að kaupa inn frá
öðrum löndum. „Menn verða nú að
skipta við einhver önnur lönd sem
bjóða ekki upp á eins hagstætt verð.
Þetta gæti því þýtt einhverja verð-
hækkun á tilteknum vöruflokkum.
En annars hefur þetta bann sáralítil
áhrif.“ -JSS
§líl()ih osj slmmúikréív
íMpam
Beint ttug tíí SALZBURG
ulla laugardaga í vetur
WMm
Jólamynd frá Getreidegasse i Salzburg, heimsfræg verslunargata.
Skíða- eða skemmtiferð í Alpana er jafnframt heimsókn á nokkra af fallegstu og
rómantískustu staði heimsins.
( Salzburgerlandi má finna góð hótel, hlýlegar krár, diskóstaði, stórfenglega matsölu-
staði og feikn öll af mjög góðum verslunum.
Þið njótið góðs af íslenskumælandi starfsfólki Flugleiða, hvort sem um skemmtiferð
eða skíðaferð er að ræða.
Viknverd frá kr.
TViER
ELVIVI
19,900
* Allar uánaií uppKviiiijar 1‘ærdu á völiiskHfvtofuni l'lm>ici«>a. lijá
íiinlutásinöinnim oj| tcnliMikrílviofiiiii.
Söluskrifstofur Flugleiða: Lækjargötu 2, Hótel Esju og Kringlunni. Upplýsingar og
farpantanir í síma 25 100.
Viðttjúgwu
svo létt í hniftn
FLUGLEIÐIR