Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.1989, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.1989, Blaðsíða 26
MÁNUDAGUR 2. JANÚAR 1089, Svidsljós Ólyginn sagði . . . Whitney Houston er ekki alveg eins vingjarnleg viö alla og hún er við litla strákinn í kókauglýsingunni sem við fáum oft að sjá á skjánum. Nýlega hélt hún tónleika í Hong Kong. Ein- hver úr salnum tók þá til við að mynda hana þar til stúlkan gerði sér lítið fyrir og stöðvaði tónleik- ana. Hún náði í syndarann mikla og húðskammaði hann. Ekki leið á löngu þar til áhorfendur byrj- uðu að púa og baula á söng- konuna. Sá sem var skammaður sagði að Whitney hefði hagað sér eins og versta róluvallarkerling. Michael Jackson Heilsuæði og hræðsla við sjúk- dóma gerir suma hálfmóður- sjúka. Michael Jackson er einn þeirra. Fyrir tónleikaferð sína til Japan lét hann 60 manna starfslið sitt gangast undir eyðnipróf. Fjórir úr hópnum voru svo óheppnir að fá jákvætt út úr próf- inu. Jackson varö hræddur og bannaði þeim að koma með í ferð- ina og sagði þeim að halda sig á burt um alla eilífð. Stykkishólmur: Einkunnir á haustönn og verðlaimaveitingar Róbert Jörgensen, DV, Stykkishólmi: Haustönn Grunnskólans í Stykk- ishólmi lauk á hefðbundinn hátt, þannig að afhending einkunna og jólakveðja fór fram innan hvers bekkjar með tilheyrandi samblandi af gleði og eftirvæntingu. Eftir þessar síðustu samverustund- ir hvers bekkjar fóru litlu jólin fram á Sal. Barnakórar skólans, en þeir eru tveir, sungu bæði saman og sinn í hvoru lagi undir stjórn Jóhönnu Guðmundsdóttur. Síðan var séra Gísli H. Kolbeins með helgistund. Þá sýndu nemendur í 6. bekk helgileik. Afhending vinninga vegna jólaum- ferðargetraunar skólabarna fór fram á skemmtilegan hátt. Lögreglan í Stykkishólmi hefur um árabil afhent þessi verðlaun, fyrst meö því að keyra þau út á Þorláksmessu en nú seinni ár hefur afhending farið fram á litlu jólunum. Sveinn Ingi Lýðsson varðstjóri leysti þetta verkefni vel af hendi en hann þekkir börnin vel þar sem hann er með reglulega um- ferðarfræðslu í skólanum. Eftir þessa hátíðlegu stund var stiginn dans umhverfis jólatréð. Það er gaman að fylgjast með því hvernig nemendur á öllum aldri skemmta sér við að dansa kringum jólatréð. Um kvöldið héldu unglingamir áfram að dansa í félagsmiðstöðinni þar sem hin vinsæla unglingahljómsveit Bus- arnir léku fyrir dansi. Hundajól Þaö var líf og fjör viö ósa Elliðaáa annan dag jóla. Þar var saman kom- inn hópur hundaeigenda og allir voru auðvitað með hundana sína sem sumir hverjir voru skreyttir hálsbandi eða fallegri slaufu, auðvit- að í tilefni jólanna. Guðrún Petersen er hundaeftirlits- maður Reykjavíkurborgar og á sjálf forkunnatfagran scháfer. „Við kom- um oft hingað að viðra greyin og náttúrlega okkur sjálf. Hundarnir njóta þessara stunda til fulls eins og sjá má. Áður vorum við mikið í Oskjuhlíðinni en það þótti ekki henta nógu vel. Hér em skepnurnar miklu frjálsari.“ „Andstæðingum hundahalds fer fækkandi,“ sagði Guðrún „og stærsta málið er náttúrlega gott eftir- lit með dýrunum. En því miður em alltaf einhverjir svartir sauðir sem skemma fyrir, en þessu miðar í rétta átt. Eins og sjá má gerum við engum ónæði með vem okkar hérna.“ -H.dór Þeir voru fljótir að hlýða, hundarnir, þegar eigendurnir kölluðu á þá til myndatöku. „Þeir hlýða okkur betur en krakkarnir," varð einum á orði. Guðrún Petersen er þriðja frá vinstri. Barnakórar GSS sungu saman undir stjórn Jóhönnu Guðmundsdóttur. DV-mynd Róbert Yngstu nemendurnir, 4-5 ára, i finni sveiilu DV-mynd Róbert Danssýning í Hólminum Róbert Jörgensen, DV, Styklashólim: Dansskóli Eyglóar 'lauk haus- tönn sinni með danssýningu í Fé- lagsheimili Stykkishólms sunnu- daginn 11. desember. Nemendur úr öllum fiokkum nema hjóna- flokkum sýndu dans við mikinn fógnuð áhorfenda. Mjög góð mæt- ing var á þessa skemmtilegu sýn- ingu enda var hér um að ræða eins konar uppskeruhátíð hjá bömun- um. Hjónaklúbbarnir luku önninni með sameiginlegu borðhaldi í Hótel Stykkishólmi og var stiginn dans eftir frábærar veitingar. Dansskóli Eyglóar hefur starfað á Snæfellsnesi undanfarin ár og er vonandi orðinn fastur þáttur í skólastarfi á Nesinu. Skólastjóri Dansskóla Eyglóar er Eygló Bjamadóttir og býr hún í Stykkishólmi. Brigitte Nielsen er sem vonlegt er ekki hamingju- söm um þessar mundir. Nýlega lýsti hún því grátandi fyrir sjón- varpsmanni í ítalska sjónvarpinu að aðgerðin, sem hún gekkst und- ir í október, hefði ekki borið til- ætlaðan árangur - hún er með legkrabbamein. En Brigitte lætur ekki bugast, hún fer í aðra aðgerð bráðlega og vonast að sjálfsögðu eftir betri árangri í það skiptið. Áriö 1974 fæddi Susan Rosenkowitz frá Höfðaborg fyrstu sexbura sem sögur fara af. í dag er hún skilin við manninn sinn og farin frá börnun- um. Sexburarnir hreinlega hata hana - hún varð ástfangin af öðmm manni og er nú gift honum. Þegar sexburarnir komu fylgdist umheimurinn með henni hvert fót- mál. Hún átti tvö börn fyrir en hana langaði í barn til að fylla tómleika tilverunnar. Hún átti ekki hamingju- samt hjónaband og hélt að barn myndi bæta sálarástandið. En Susan átti erfitt með að verða ófrísk svo hún fór í hormónameðferð. Á með- göngunni var henni sagt að þetta gætu orðið þríburar, kannski fjór- burar - á níunda mánuði var ljóst að sexburar kæmu. „Ég var að sjálfsögðu hamingjusöm með öll bömin sem voru heilbrigð og falleg," segir Susan. „En það fylgdust alhr með mér og ég átti ekk- ert fyrir sjálfa mig - þetta var þræl- dómur sem tók því meira á mig því eldri sem bömin átta urðu. Colin, maðurinn minn, var harður og vildi aga, þó ég vilji ekki halda því fram að hann sé slæmur faöir. En íjöl- skyldutengslin voru aldrei sterk og ég varð þunglynd og útshtin á taug- Susan Rosenkowitz giftist nýlega Terry Wilson. Hún hafði þá yfirgefið átta börn, þar af sexbura, og fyrrver- andi eiginmaðurinn sat eftir með sárt ennið. Þetta er eina myndin sem Susan fékk að taka með sér af sexburunum viö skilnaðinn. Þarna eru þeir 13 ára- um með mín vandamál út af fyrir mig. Þessu varö að ljúka.“ í september 1987 keyrði Susan með þrjá yngstu syni sína á fótboltaæf- ingu. Hún talaði stundum við þjálf- ara þeirra, Terry Wilson, á meðan strákarnir voru í búningsklefunum. „Þetta var bara góður vinskapur á milli okkar. En loksins fékk ég ein- hvem til að trúa fyrir mínum mál- um.“ Susan fór nú að læðast út á nóttunni til að hitta Terry. Loks ósk- aði Susan eftir skilnaði við Colin og sagði honum að hún væri ástfangin af öðrum manni. Sexburarnir voru orðnir íjórtán ára. „Colin varð ras- andi,“ segir Susan. „Hann sagði börnunum hve svikul móðir þeirra væri. Þau kölluðu mig hinum verstu nöfnum. Elsti sonur minn sló mig meira að segja.“ Svo flutti Susan að heiman og í skilnaðarskilmálanum er ákvæði um yfirráðarétt föðurins en jafnfrcunt að móðirinn fái að sjá börnin sín oft. „Bömin hafa hingað til neitað að hitta mig,“ segir Susan. „Ég tel þaö vera vegna þess aö faðir þeirra gefur þeim neikvæða mynd af mér. Við vorum gift í 22 ár og vonaði að við gætum skihð með virðingu." Þrátt fyrir að Susan hafi gengið í gegnum erfitt tilfinningatímabil við skilnaöinn sér hún alls ekki eftir því að hafa byrjað nýtt líf með Terry. Fyrir nokkru giftu þau sig í kyrrþey. „Ég mun aldrei gefa bömin mín upp á bátinn og vona að einn dag geti þau heilsað mér opnum örmum. Ég get fyrirgefið þeim allt og veit að það hlýtur að vera faðir þeirra sem held- ur þeim frá mér.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.