Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.1989, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.1989, Blaðsíða 8
8 MÁNUDAGUR 2. JANÚAR 1989. Útlönd Palestínumenn meö myndir af Arafat, leiðtoga Frelsissamtaka Palestínumanna, minnast afmælis stofnunar Fatah- hreyfingarinnar í gær. Simamynd Reuter Uppreisnarieiðtogar reknir frá ísrael Á tuttugasta og fjórða afmælisdegi Fatah, aðalhreyfingarinnar innan Frelsissamtaka Palestínumanna, vísuðu ísraelsmenn þrettán meint- um uppreisnarleiðtogum úr landi. Á Gazasvæðinu ríkti útgöngubann og á vesturbakkanum létu israelskir her- menn mikið á sér bera. Þrátt fyrir það særðust níu Palestinumenn í óeirðum. ísraelskir landnemar á vestur- bakkanum mótmæltu því í gær að bensínsprengju skyldi hafa verið varpað á ísraelskan strætisvagn. Settu þeir upp vegatálma og köstuðu grjóti að bílum araba. Flogið var með þá sem vísað var úr landi í þyrlum til norðurhluta öryggissvæðisins í suðurhluta Lí- banons. Þar voru hverjum þeirra réttir 50 dollarar og var þeim síðan ekið í átt að stöðvum Sýrlendinga í Bekaadalnum. Þetta er í annað skipti á einum mánuði sem ísraelsmenn láta til skarar skríða á merkisdegi Palest- ínumanna. Þann 9. desember, sama dag og ár var liðið frá því að upp- reisnin hófst á herteknu svæðunum, geröu ísraelsmenn loftárásir á búðir palestínskra skæruliða nálægt Beir- út í Líbanon. Shimon Peres, fjármálaráðherra ísraels, hvatti ísraelsmenn í gær til að sætta sig við aðhaldsaðgerðir stjórnvalda. Á fundi með frétta- mönnum í gær var tilkynnt að gengi shekels, gjaldmiðils Israels, hefði verið fellt um nær 12 prósent miðað við gengi Bandaríkjadollars. Efna- hagsástandið í ísrael er slæmt og er uppreisninni á herteknu svæöunum að hluta kennt um. Reuter Arabiskur læknir hugar að sautján ára gömlum Palestínumanni sem skotinn var með plastkúlu í hnakkann af isra- elskum hermönnum. Simamynd Reuter ☆ & DANS? ☆ Já, allir í dans Kennsla hefst 9. janúar Innritun 2.-7. janúar milli kl. 13 og 18 í síma 46635 * KONUR, styrkjandi æfingar og létt dansspor, gufu- og nuddpottur á eftir DANSANDI KVEÐJA KENNSLUSTAÐIR: ÆFINQASTODIN ENGIHJALLA 8 ■ i? 46900 Hjallaskóli, Kópavogi jSí Dagný Björk danskennari PLObauð ekki aðstoð Bandarísk yfirvöld tilkynntu í gær að þau hefðu ekki fengið neitt boð frá Yasser Arafat, leiðtoga PLO, Frelsis- samtaka Palestínumanna, um aðstoð við leitina að þeim sem ábyrgir eru fyrir að hafa komið fyrir sprengju í þotu Pan American flugfélagsins. Því var einnig neitaö að Bandaríkin hefðu beöið um aðstoð PLO. Bresk sunnudagsblöð birtu í gær fréttir þess efnis að Arafat hefði heitið því að elta og drepa þá sem bera ábyrgð á sprengjutilræðinu. Bandarísk flugmálayfirvöld skýrðu frá því í gær að flugvallar- starfsmenn í Aþenu og öðrum Mið- jarðarhafsborgum hefðu verið beðn- ir um að vera á varðbergi gagnvart hryðjuverkamönnum með fölsuð vegabréf. Talsmaöur Pan American flugfé- lagsins sagði í gær að ekki hefði ver- ið neinn skortur á venjulegum ör- yggisráðstöfunum þegar þotan, sem hrapaði í nokkrum hlutum á bæinn Lockerbie í Skotlandi rétt fyrir jóhn, fór frá London. Einn farþega vantaði og farangur hans var um borð. Sá farþegi, sem er bandarískur ríkis- borgari af indverskum ættum, hefur verið yfirheyrður vandlega og þykir ekkert benda til að hann sé viðriðinn sprengjutilræðið. Á öllum stærri flugvöllum gilda þær reglur að flugvél fari ekki á loft ef um umframfarangur er að ræða. Ekki þótti ástæða til að gruna að hætta stafaði af farangri umrædds farþega sem missti af síðasta útkalli. Reuter Lögreglumaður með hund á eftirlitsferð á Heathrow flugvelli í London. Þar hafa öryggisráðstafanir verið hertar í kjölfar flugslyssins í Skotlandi. Símamynd Reuter SAS berst hótun SAS-flugfélaginu barst á föstudag- inn hótun um sprengjutilræði. Sam- kvæmt nafnlausu bréfi, sem barst til sænska kvöldblaðsins Aftonbladet, á að sprengja SAS-flugvél í innan- landsflugi innan þriggja vikna í hefndarskyni fyrir að leiðtoga Frels- issamtaka Palestínumanna, Yasser Arafat, var leyft að heimsækja Sví- þjóð. Vegna þessarar hótunar og beiðni bandarísku flugmálastjórnarinnar um aukið eftirlit þar sem bandarísk- ar flugvélar fara um uröu talsverðar tafir á flugumferð í Svíþjóð um helg- ina. NTB Tamílar hóta að berjast áfram Stærsta skæruliðahreyfmg tamíla á Sri Lanka hét því í morgun að halda áfram baráttunni gegn indverskum hermönnum sem sendir voru til eyj- arinnr til að bæla niður uppreisn aðskilnaöarsinna. í yfirlýsingu, sem gefin var út að- eins nokkrum klukkustundum áður en Premadesa sór embættiseið sinn sem forseti landsins og aöeins einum degi eftir að indversk yfirvöld til- kynntu að þau ætluðu aö kalla heim hluta herliös síns, sögðust skærulið- ar ætla aö halda baráttunni áfram þar til allt indverskt herlið væri á brott frá Sri Lanka. Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.