Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.1989, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.1989, Blaðsíða 24
MÁNUD'AGUR 2. JANÚAR 1989. Menning Djúpt í minmngu drengs Þegar skáld taka aö fjalla um bernsku sína og uppvaxtarár, þaö tímabil ævinnar sem flestum er hugstæðast, verða gjarnan til bestu og lífvænlegustu verk þeirra. Gleggsta dæmiö um þetta í ís- lenskri bókmenntasögu er að sjálf- sögðu Fjallkirkja Gunnars Gunn- arssonar, það er að segja sá hluti hennar sem gerist á íslandi, en um hana sagði Kristinn E. Andrésson: „Hún er eitt unaðslegasta skáld- verk, sem ritað hefur verið af ís- lenskum höfundi... Stíllinn og málið ber á einhvern torræðan hátt í sér líf atburðanna og hrær- ingar fólksins." Frá seinni árum má nefna Þorpið, tímamótaverk Jóns úr Vör, sagnabálkinn um Jak- ob eftir Sigurð A. Magnússon og flölmörg önnur verk. Og nú hefur Njörður P. Njarðvík bæst í hóp þeirra skálda sem gert hafa bernsku sinni skil í skáldlegum búningi. Fjölhæfur höfundur Njörður P. Njarðvík er fjölhæfur höfundur og hefur sent frá sér margs konar verk: Sögur, ljóð, leik- rit, æviminningar, barnabækur, þýðingar, kennslubækur í bók- menntafræði og skólaútgáfur sí- gildra skáldverka. Hann hóf ritferil sinn árið 1963 með bókinni Sá svarti senuþjófur, opinskáum minningum Haraldar Björnssonar leikara sem hann las síöar í útvarp við góðar undirtekt- ir. Ljóðabókin Lestin til Lundar kom út 1973 en einstök ljóð úr henrti hafa verið þýdd á fjölmörg tungumál; einnig hefur Njörður þýtt og gefið út ljóðaúrval finnska góðskáldsins Bo Carpelans. Barna- sögunni Helgi skoðar heiminn og bókunum um Sigrúnu var vel tekið og leikritið Hvar er hamarinn? var sýnt á vegum Þjóðleikhússins ný- verið. Að öllum þessum verkum ólöst- uðum eru þó skáldsögur Njarðar merkastar að mínum dómi, en þær eru fjórar talsins: Niðjamálaráðu- neytið, 1967; Dauðamenn, 1982, söguleg skáldsaga um feðga sem brenndir voru á galdrabáli í Skut- ulsfirði 1656 fyrir tilstuölan hins makalausa klerks, Jóns Magnús- sonar þumlungs; Ekkert mál, 1984, átakanleg en sönn lýsing á einu mesta vandamáli okkar daga - og loks bernskusagan nýja. Sár reynsla drengs í flæðarmálinu fer hægt af stað. Fyrsti kaflinn er nákvæm lýsing á sögusviðinu, firðinum og þá sér- staklega flæðarmálinu. Hann hefst á þessum orðum: „Framundan fjö- ruborðinu sefur fjörðurinn í sól- skininu. Það er að falla út. Efst í fjörunni eru ávalir steinarnir orðn- ir þurrir, og þeir eru undarlega Njörður P. Njarðvik. Bókmenntir Gylfi Gröndal stamir og hlýir viðkomu...“ Og niðurlagið er þannig: „Þannig líður morguninn. Svo líða árin einnig og áður en varir er raunveruleiki flæðarmálsins horfmn langt aftur í blámóðu bernskunnar." I öðrum kafla beinist athyglin að tveimur drengjum sem róa til fiskjar: „Hvorugur mælir orð frá vörum. Umhverfis þá bærist kvöldkyrrðin í mildum andardrætti golunnar í næstum algerri þögn.“ Þriðji kaflinn fjallar á áhrifaríkan hátt um sára reynslu drengsafdrykkju- skap föður síns, ritaður af næmleik og hlýju, og siðan tekur við hver efnisþátturinn af öðrum, þar sem brugðið er upp eftirminnilegum svipmyndum, bæði persónulegum og eins varðandi líf og starf í ís- lensku sjávarplássi. Ástæða er til að nefna sérstaklega kaflann Rauð nótt - hvítur dagur sem segir frá snjóflóðum; hann birtist fyrst í smásagnasafninu Gúmmískór með gati, sem Mál og menning gaf út 1985, og varð aö sögn höfundar kveikjan að þessari bók. Frásögnin rís hæst í síðasta kaflanum, þegar drengurinn kemur heim ungur námsmaður eftir nokkurra ára fjarveru til að fylgja föður sínum til grafar. Lokaorðin eru á þessa leiö: „Fjörðurinn varð hluti af hon- um. Hann bar fjörðinn innra með sér og hann myndi fylgja drengn- um hvert sem hann færi, - allt til hinstu stundar." Úr fjarlægð og innan frá Höfundur getur þess í stuttum eftirmála að ekki sé skynsamlegt að líta á bókina sem sjálfsævisögu- lega nema að litlu leyti, þar sem farið sé frjálslega með efnið á stundum. Hvað sem þeirri athuga- semd líður eru efnistökin mjög sannfærandi og skáldlegi búning- urinn sjaldan á kostnað trúverðug- leikans. Njörður nefnir einnig í eft- irmálanum að hann láti sér „detta í hug að einhverjir ísflrðingar þyk- ist kannast við suma atburði og ef til vill einhverjar sögupersónur líka“. Þetta er ugglaust rétt; þótt ég sé ekki ýkja kunnugur mönnum * og málefnum fyrir vestan þóttist ég þekkja sumar persónurnar, að minnsta kosti þá sem hlýtur titilinn „alversti bílstjóri alheimsins", keyrði eitt sinn yfir konu við bryggjusporðinn og sagði: „Hvað ert þú að flækjast hér niðri á bryggju sem átt heima hátt uppi í hlíð?“ Hér er ef til vill ekki um sögu að ræða í eiginlegum skilningi heldur svipmyndir frá uppvaxtarárum drengs í sjávarplássi, einstaka þætti sem mynda þó sterka heild. Höfundur fjallar um efnið í senn úr fjarlægð og innan frá, eins og segir réttilega á bókarkápu, og frá- sögnin einkennist af sterkum und- irtóni saknaðar og sársauka. Mest er þó um vert að bókin er vel skrif- uð, stíllinn meitlaður og málfar hreint - en sá eiginleiki ræður jafn- an úrslitum þegar skáldverk eru metin. Njörður P. Njarðvik í fiæöarmálinu Iðunn 1988, 123 bls. G.G. Eðlilegar hvatir ogóeðlilegar A síðustu 2-3 árum hefur um- ræða um sifjaspell sem félagslegt vandamál farið vaxandi hér á landi. Nokkrar vonir eru því óhjá- kvæmilega bundnar við útkomu bókar um þetta efni, vonir um að hún skýri og auki þekkingu á sifja- spellum, orsökum þeirra og afleið- ingum. Að mínu mati hafa þessar vonir þó ekki ræst með útgáfu þeirrar bókar sem hér er til umræðu. Höfundar byggja alla umfjöllun sína á tveimur meginskýringum á orsökum sifjaspella. Þær eru ann- ars vegar að með okkur öllum blundi duldar eðlislægar hvatir til sifjaspella og að þær blossi upp við tilteknar aðstæður. í annan stað leita höfundar skýringa á orsökum sifjaspella í ófullnægöum tilfinn- ingalegum samskiptum í fjölskyld- um. Þeir líta svo á aö allir í fjöl- skyldunni eigi aðild að sifjaspellun- um vegna þess að allir í íjölskyld- unni stjómist af „eðlislægum hvöt- um“ sem ekki fengu jákvæða útrás (bls. 15). Höfundar beita síðan þess- um skýringum í túlkunum sínum á þeim sögum um sifjaspell sem þeir birta í bókinni og útkoman verður oft á tíðum þversagnakennd og ósannfærandi. Höfundar gera enga tilraun til að skýra eða draga ályktanir af félags- legum veruleika okkar. Þeir ganga framhjá þeirri staðreynd að það eru nánast eingöngu karlar sem fremja sifjaspell og að það eru stúlkuböm að meirihluta til sem verða fyrir slíku ofbeldi. Þetta má þó lesa óbeint úr texta þeirra en þeir draga ekki af því ályktanir eða taka mið af því í umfjöllun sinni. „Þögli vitorösmaðurinn“ Sama verður uppi á teningnum varðandi valdamismun innan fjöl- skyldunnar milli karla annars veg- ar og kvenna og bama hins vegar. Lauslega er vikið að þessum þátt- um en engar ályktanir dregnar af þeim um stöðu kynjanna og hugs- anleg tengsl við kynferðisofbeldi karla í fjölskyldum. Miöað við of- Bókmeimtir Guðrún Jónsdóttir anskráð kemur það varla á óvart að útlistanir höfunda hljóti síðan óhjákvæmilega að gera móðurina að lykilpersónu i siíjaspellamálum. Þeir nefna hana „þögla vitorðs- manninn“ og segja hana sjaldnast algjörlega saklausa heldur taka þátt í þeim þó að hún viti ekki af þeim, hún er „þungamiðja leiks- ins“ (bls. 67). Þetta gerir hún meö því að draga sig í hlé frá fjölskyld- unni og losnar þannig við tilfinn- ingaleg skylduverk sín. Leyfi móð- irin sér sem sagt að huga að eigin löngunum og þörfum eða einfald- lega að afla fjölskyldunni meiri tekna verður nánast ofur eðlilegt skv. höf. að eiginmaðurinn noti dóttur sína sem staðgengil hennar bæði tilfinningalega og kynferðis- lega. Með öðrum orðum, ef við kon- ur breytum eða endurskilgreinum hefðbundið kynhlutverk okkar er- um við sekar um vanrækslu. Þetta er í hnotskurn boðskapur bókar- innar hvaö varðar mæður. Hver svíkur hvern? Höfundar fjalla nokkuö um of- beldismennina í sifjaspellum. Þá kemur fram ein af mörgum þver- sögnum í bókinni. Eins og áður sagði er gengið út frá því að öll fjöl- skyldan stuðli ljóst og leynt að sifjaspellunum og þó sér í lagi mæðurnar en jafnframt segjast höf. telja árásarmanninn einan ábyrgan. í umfjöllun um árásar- manninn er síðan dregin upp mynd af honum sem leiksoppi ófull- nægðra tilfmninga, einstaklingi sem getur ekki hamið „eðlilegar hvatir“ sínar. Loks skal hér vikiö að umfjöllun höfunda um börn sem fyrir sifja- spellum verða. Þar er maifgt vel gert en ég er þó ekki frá því að mörgum konum sem orðið hafa fyrir sifjaspellum finnist of mikið gert úr „ástarþrá" barna til árásar- aðilans en of lítið úr valdaleysi þeirra kjósi þeim nákominn karl- maður að beita þau kynferðislegu ofbeldi. Skv. kenningunni, sem bókin byggir á, að orsakir sifjaspella sé að rekja til ófullnægðra tilfinninga í fjölskyldum, er einnig ljóst að börnin sem verða fyrir sifjaspellum deila á þeim ábyrgð með öðrum í ^•fjölskyldunni. Hver hefur þá svikið hvern, verður áleitin spurning og trúverðugleiki höfunda sem tals- manna barna verður tvíbentur. „Skjólstæðingar sifjaspella“ Þýðandi virðist hafa unnið sitt verk samviskusamlega. Víða má þó finna prentvillur og málfarsleg- ar ambögur en slíkt verður vænt- anlega að skrifa á reikning próf- arkalesara. Ég get þó ekki látið hjá líða að nefna tvö málfarsleg atriði sem fóru í taugarnar á mér. Hið fyrra er að tala um aðila að sifja- spellum, þ.e. barnið og ofbeldis- manninn, og sifjaspell skjólstæð- ings, þ.e. barnsins. Ef til vill er hér um aö ræða viðhorfsbundna mál- notkun þar sem árásarmaðurinn og barniö eru sett undir sama hatt hvaö varðar sifjaspellin. Hið síðara er að tala um skjólstæðinga sifja- spella og að stytta sifjaspell í spell en hvorttveggja kemur víða fram í textanum. Þýðandi hefur kosið að fella burt í þýðingunni þann kafla ensku út- gáfunnar sem fjallar um lagaleg refsiákvæði varðandi sifjaspell. Vissulega byggja höfundar þar á bandarískum lögum og dómum en æskilegt hefði verið aö aðlaga þennan kafla íslenskum aðstæðum bæði hvaö varðar refsiákvæði laga, upplýsingaskyldu almennings og íslenska dóma í sifjaspellamálum. Þýðandi bætir hins vegar við við- auka um sifjaspell hér á landi, end- urprentun úr Þjóðviljanum, vænt- anlega í því skyni að færa efnið nær okkur. Um það er ekki nema gott eitt að segja. Svo vill til að ég var einn viömælenda blaðamannsins. Örvinglun stúlkubarns... Mér heföi fundist eðlilegt að bera birtingu þessa efnis í bók undir þá sem lögðu til efnið í viðtöhn. Það var ekki gert og varð mér tilefni til þenkinga um hver eigi birt efni, hver á t.d. útgáfuréttinn á texta bókarinnar? Tímaskekkja Um frágang bókarinnar er það að segja að hún er óþjál í hendi, beita verður afli til að halda henni opinni við lestur. Ekki er getiö um höfund að kápu bókarinnar en hún virkar ruglingsleg á mig og án tengsla við efni bókarinnar. Eins og ég gat um í upphafi eru mér það mikil vonbrigði að þýöandi og útgefandi skyldu velja einmitt þessa bók til útgáfu, einkum vegna þess að þetta er fyrsta bókin sem birtist á íslensku um þetta vand- meðfarna efni og fær því væntan- lega allstóran lesendahóp. Satt aö segja skil ég ekki val þeirra, jafnvel þótt þau aðhyllist þær hugmyndir sem liggja til grundvallar í bókinni og hér hafa verið raktar lítillega. Þessi bók kom fyrst út fyrir 10 árum. Nýjar kenningar og aukin þekking á þessum málum bætist við svo til daglega og fjöldi áhuga- verðra nýrra bóka um efnið er nú á boðstólum. Val þessarar bókar til útgáfu nú er því tímaskekkja að mínu mati. Bókin er ekki líkleg til aö draga úr goðsögnunum um sifjaspell eða að auka skilning fólks á eöli þeirra. Ef eitthvað er skilur hún við les- anda með það á tilfinningunni að kynferðislegt ofbéldi gagnvart börnum sé nánast náttúrulögmál og að eina von okkar sé aö fagfólk geti læknað hina „sjúku“. Þetta er dapurleg niðurstaða en sem betur fer er hún ekki í samræmi við raunveruleikann. Meðferð fagfólks er ekki eina svarið. Við getum hvert og eitt tekiö þátt í baráttu gegn sifjaspellum, baráttu fyrir breyttu þjóðfélagi þar sem kynferð- islegt ofbeldi og valdníðsla á börn- um fær ekki þrifist. Susan Forward og Craig Buck: Börnin svikin Þýóandi: Guórún Einarsdóttir sálfræó- ingur Útgelandi: Tákn G.J.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.